Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Side 23
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1999
27
I>V
Collymore barði
nýju kærustuna
Fótboltakappinn Stan Collymore
hefur nú beitt enn eina kærustuna
ofbeldi. Estelle Williams fannst
meövitundarlaus nú í vikunni og
hafði Collymore lumbrað á henni I
afbrýðiskasti.
Svo hafði virst sem kappinn væri
aö ná tökum á lífi sínu. Fulham
hafði fengið hann að láni hjá Aston
Villa og hann hafði auk þess farið í
meðferð vegna þunglyndis og lofað
að bæta sig.
En nú hefur Stan Collymore sem
sagt gert enn ein mistökin, að því er
bresk blöð greina frá. Um miðja nótt
aðfaranótt mánudags var lögreglan
í London kölluð að íbúð Collymores.
Þar gekk fótboltahetjan berserks-
gang. í íbúðinni var Estelle Willi-
ams, nýjasta kærasta Collymores,
meðvitundarlaus. Hún hefur ekki
viljað kæra hann fyrir ofbeldið.
Á meðan heimsmeistarakeppnin í
Stan Collymore gekk berserksgang.
fótbolta fór fram i fyrra misþyrmdi
Collymore þáverandi kærustu
sinni, Ulriku Jonsson. Hún er
þekktur sjónvarpsþáttastjórnandi í
Bretlandi.
Parið var á krá í París og
Collymore varð afbrýðissamur.
Hann barði og sparkaði í Ulriku þar
til öðnun kráargesti tókst aö yfir-
buga hann. Ulrika yfirgaf
Collymore eftir barsmíðarnar en í
fyrra var hann einnig ákærður fyr-
ir ofbeldi gagnvart annarri kær-
ustu, Michelle Green.
Þá greindi enn ein kærastan,
Lotta Farley, sem hafði verið með
Collymore í fimm ár, frá því að hún
hefði sætt ofbeldi.
Fyrir nokkrum vikum varð
Ulrika æf er hún frétti að Collymore
hefði sýnt nýjum félögum hans í
fótboltanum kynlífsmyndir af sér og
honum.
Hvað er annað hægt en að brosa út að eyrum þegar maður er í Feneyjum. Að minnsta kosti sá bandaríska leikkon-
an Laura Dern ekki ástæðu til annars. Hún ætlar að kynna mynd á kvikmyndahátíðinni í borginni.
Sviðsljós
Sharon Stone í góðverkum:
Seldi skartgripi
Kvikmyndaleik-
konan Sharon Sto-
ne var í finu formi
þegar hún tók þátt
i skartgripaupp-
boði einu miklu í
Fort Myers á Flór-
ída fyrir skömmu.
Uppboðið var til
styrktar konum
sem hafa sætt mis-
þyrmingum og
misnotkun af öllu
tagi.
Sharon lá ekki á
liði sínu í að telja
gestina fjórtán hundruð á að losa
sig við eitthvað af fénu sem þeir
höfðu handbært. í
því skyni settist
hún í kjöltu fjöl-
margra karla í
salnum og manaði
þá til að bjóða í vör-
una sem var til
sölu. Og þeir létu
ekki á sér standa
því alls seldist fyrir
um tuttugu milljón-
ir íslenskra króna.
„Ég hef samrekkt
næstum öllum
þeim sem hafa gef-
ið mér hálsfesti
með demöntum. En þeir timar
eru nú liðnir," sagði Sharon.
MMC Pajero stw 2800 turbo disil ‘97
2800 cc, sjálfskiptur m/öllu, ekinn 45 þús.
7 manna bíll
Jöoo. .
WWW.evropa.is
rasa
Blaðberar óskast
í eftirtaldar götur:
Brúnaveg
Dalbraut
Selvogsgrunn
Sporðagrunn
Auðbrekku
Löngubrekku
Laufbrekku
Máshóla
Orrahóla
Ugluhóla
Valshóla
Bankastræti
Laugaveg
Fjólugötu
Smáragötu
Sóleyjargötu
Upplýsingar veitir afgreiðsla
DV í síma 550 5000
Kryddpíur komn-
ar í ævisögustríð
Kryddpíumar fjórar voru ekki
par hrifnar þegar fyrrum stallsystir
þeirra, hin rauðhærða Geri Hall-
iwell, sendi þeim eintak af væntan-
legri ævisögu sinni. Geri vildi með
sendingunni vera hugguleg og kurt-
eis við þessar gömlu vinkonur sínar
og skapa frið þeirra í milli. Það
lukkaðist þó ekki, að sögn netútgáfu
MTV.
Stúlkumar bmgðust við skrifelsi
hinnar rauðhærðu með því að hefja
undirbúning að eigin ævisögu. Ef
allt gengur eftir mun saga fjór-
kvennanna sem eftir eru í Kryddpí-
unum koma í bókabúðir mánuði á
eftir ævisögu Geri.
í sameiginlegri ævisögu ætla þær
Melumar B og C og Victoria og
Emma meðal annars að segja frá
viðskilnaðinum við Geri, eins og
hann horfir við þeim. í ofanálag
ætla stúlkurnar líka að tjá sig um
sólóferil hinnar brotthlaupnu.
Fyrsta einleiksplata Geri hefur
fengið blendna dóma gagnrýnenda.