Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Page 21
21
. LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
Lista- og menningarþátturinn KristaLl hefur göngu sína á ný eftir
sumarleyfi. í vetur verður tekin upp sú nýbreytni að í viku hverri
verða veitt verðlaun, Kristallinn, fyrir listviðburði sem bera af.
Umsjónarmaður er sem fyrr Sigríður Margrét Guömundsdóttir og verða
þættirnir sýndir á fimmtudagskvöldum.
Ný athyglisverð heimildaþáttaröð í níu hlutum hefur göngu sína
i október. í þáttunum, sem verða á dagskrá á mánudagskvöldum
ijallar Stefán Jón Hafstein um vanda landsbyggðarinnar í viðu
samhengi, þ.á m. flótta fóLksins úr byggðarlögunum. Haldnir
verða fundir með fólki viða um land og leitað eftir skoðunum þess.
Siggi Hall er mættur aftur í eldhúsið og
reiðir fram dýrindis rétti í allan vetur á
þriðjudagskvöldum. Hann fær til sín góða
gesti og slær á létta strengi. Uppskriftirnar
úr þáttunum verða birtar á www.ys.is
Loksins er komið að því!
Endursýningar á hinni geysivinsætu gamanþáttaröð
Heilsubælið í Gervahverfi hefjast í október og þá geta
áhorfendur Stöðvar 2 endurnýjað kynnin við Hallgrím
Orm, Simonettu Sörendsen, Saxa lækni og fleiri
furóufugla HeilsubæLisins. Laddi, Edda Björgvinsdóttir,
Pálmi Gestsson, Júlíus Brjánsson, Gísli Rúnar Jónsson og
fleiri, fara á kostum í þessum sprenghLægilegu þáttum
sem verða á dagskrá á föstudagskvöldum.
Október &
íðíenðkur !