Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Qupperneq 32
32 fólk LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 I>V r Edda Sóley Oskarsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla: Samstarf við skólann er hluti af foreldraskyldunum - skólastarf og foreldrastarf er forvarnarstarf „Heimili og skóli eru áhugamannasamtök og markmiö þeirra er aö bæta uppeldis- og menntunarskilyrði barna og unglinga og bæta hag fjölskyldna’ segir Edda Sóley Óskarsdóttir. „Áhugi minn á skólamálum kviknaði nú bara einfaldlega við það að fylgjast með börnum mínum í skóla. Börnin þurfa að vera í skóla í tíu ár og hafa ekkert val þar um. Við foreldrar, sem berum frumá- byrgðina á uppeldi bama okkar, þurfum að leggja okkur fram í sam- starfi heimila og skóla til að barn- inu líði vel í skólanum, það á engu barni að þurfa að líða illa í skóla. Hluti af foreldraskyldunum finnst mér vera að sýna áhuga fyrir nám- inu, aðstoða við heimanám og vinna að því að umhverfið i skólanum sé sem allra best. Það hlýtur að vera samstarfsverkefni mitt og skólans að barnið nái góðum árangri í námi. Ég verð aö leggja eitthvað af mörkum til að geta gert kröfur á skólayfirvöld á móti.“, segir Edda Sóley Óskarsdóttir sem tók við stöðu framkvæmdastjóra Heimilis og skóla i febrúarmánuði síðastliðn- um. Heimili og skóli eru áhuga- mannasamtök og markmið þeirra er að bæta uppeldis- og menntunar- skilyrði bama og unglinga og bæta hag fjölskyldna. Enn fremur hafa samtökin það að leiðarljósi að stuðla aö samstarfi heimila og skóla og annarra sem að menntun, upp- eldi og forvörnum koma. Hvaó eru samtökin Heimili og skóli? „Þetta eru landssamtök foreldra sem voru stofnuð árið 1992 og starf- semin byggist fyrst og fremst á ár- gjöldum félagsmanna en við erum einmitt að vinna að því að afla nýrra félaga um þessar mundir til að geta starfað með enn meiri krafti. Við höfum ýmsar hugmyndir sem við viljum koma í framkvæmd og ýmislegt efni sem við viljum koma til foreldra. Stjómarmenn, sem eru níu, koma víðs vegar af landinu. Við erum með tvo starfs- menn, einn í fullu starfi og einn í hálfu starfi, en það er í rauninni allt of lítið. Við erum í samstarfi við evrópsk foreldrasamtök og einnig norræn og stundum lítum við öf- undaraugum á reksturinn hjá þeim en við fáum líka fjölmargar hug- myndir þaðan sem við getum nýtt okkur. Það er alveg óþarfi að allir séu að finna upp hjólið og miklu betra að reyna að nýta það sem reynt hefur verið annars staðar." Mikilvægi samstarfs / hverju felst starf framkvæmda- stjóra, hvernig er dœmigeróur dagur í vinnunni? „Síminn tekur drjúgan skerf, fólk hringir mikið til þess að leita upp- lýsinga varðandi almennt foreldra- starf, bæöi vegna starfsemi foreldra- félaga og foreldraráða. Margir hringja til að ræða ýmis mál sem eru efst á baugi í skólamálum eða leita upplýsinga um lög og reglu- gerðir, t.d. fjölda kennslustunda á viku eða hvort sérstakar reglur gildi varðandi skólaakstur. Við fáum líka töluvert af símtölum frá foreldrum sem eiga börn sem hafa verið lögð í einelti og jafnvel frá for- eldrum barna sem lagt hafa önnur börn í einelti. Auk þess fáum við ýmis önnur vandamál inn á borð til okkar en við fáum einnig að heyra sögur af góðu gengi í skólum og það er alltaf gleðilegt. Við reynum eftir bestu getu að liösinna og leiðbeina öllum sem til okkar leita með er- indi.. Svo þarf að sinna samskiptum við við önnur félagasamtök, undirbúa málþing og fundi, huga að efni sem hægt er að nota og ýmislegt fleira." Hvaða úrræði hafið þið að bjóða þeim sem til ykkar leita? „Fyrst og fremst stuðning og aðstoð en við höfum ekki opinbert valdsvið. Við reynum að hjálpa fólki að greina vandann ef það hefur ekki þegar gert það og finna leiðir sem færar eru og hlusta. Oft er það svo að for- eldrarnir þurfa bara smástuðning og uppörvun til að kljást við málin og við reynum að veita hann. Við leggjum áherslu á nauðsyn þess að samstarf heimila og skóla sé gott og það skilar sér í betri námsárangri barnsins og betri líðan þess.“ Foreldraverðlaunin Heimili og skóli hafa á undan- fómum áram reynt að vekja já- kvæða eftirtekt á grannskólanum og þvi gróskumikla starfi sem þar er unnið, bæði af nemendum, for- eldrum, kennurum og skólastjóm- endum. Frá árinu 1996 hafa samtökin veitt foreldraverðlaunin áriega til þeirra sem unnið hafa vel í þágu foreldra og barna. Nú í vor fóru verðlaunin til Barnaskólans á Eyr- arbakka og Stokkseyrar vegna nem- endasamninga sem þar eru gerðir. Samningamir varða velferð nem- andans og ná hvoru tveggja til námslegra og félagslegra þátta. Verðlaunin vora afhent í apríl síð- astliðnum að viðstöddum mennta- málaráðherra. Einelti kennara Þið eruð augljóslega lifandi afl i vit- und foreldra en hvað um skólana sjálfa. Leita skólamir til ykkar? „Það er að aukast. Kennarar hafa komið til okkar og til dæmis kom nýverið til okkar kennari sem ræddi um eitt af viðkvæmari málefnum skólanna, þeg- ar kennari leggur barn i einelti. Hann var að velta þessu fyrir sér og kanna úrræði. Ég vona að þetta sé afar fátítt en því miður virðist þetta koma upp af og til þó auðvitað séu kennarar vel vakandi fyrir vandanum. Reyndar tel ég að flestir sem starfa í skólanum séu vel vakandi yfir að þeir starfa með börnum og hegða sér í samræmi við það. Mér er mjög minnisstætt atvik sem ég varð vitni að í verslun einu sinni. I búðinni var staddur ganga- vörður í skóla. Lítil stúlka sem nær- stödd var hnippti í móður sína, benti á gangavörðinn og sagði: Mamma, þarna er Erla gullperla. Sú stutta hef- ur eflaust lent í hremmingum ein- hvern tímann og Erla gullperla komið henni til bjargar. Mér fannst þetta ai- veg yndislegt og undirstrikar mikil- vægi þess að gott fólk starfi í skólum landsins." Áhugi og árangur fara saman ' Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt aó þaó er fylgni milli þess hve mik- inn áhuga foreldrar sýna námi barnsins og skólastarfi og námsár- angurs barna. „Á heimilinu upplifir bamið já- kvæð viðhorf gagnvart skólanum og það hvetur barnið áfram. Ég vil líka meina það að börn finni fyrir öryggi þegar foreldramir þekkja vel til skólans og þess staifs sem þar fer fram og þau geta jafnvel átt von á að hitta foreldra sína á göngunum á spjalli við starfsmenn skólans." Foreldrasamningurinn Heimili og skóli hafa verið meó for- varnarverkefni í gangi sem œtlaó er foreldrum. „Við höfum veriö með foreldra- samning þar sem foreldrar bindast samtökum um að virða útivistartím- ann, leyfa ekki eftirlitslaus partí, kaupa ekki áfengi fyrir börnin og fleira. Með þessu forvarnarverkefni er lagður grunnur að umræðum foreldra á miili um atriði sem skipta máli fyr- ir farsælt uppeldi og forvamir gegn vímuefnaneyslu. Samtakamáttur for- eldra er geysimikill og er að skila sér hægt og bítandi. í rauninni er verið að vinna að viðhorfsbreytingu alls samfélagsins og draga úr því mikla umburðarlyndi sem þjóðfélagið hefur haft gagnvart unglingadrykkju. Hug- myndin er að fá sérstakan starfsmann sem sinnir einvörðungu þessu verk- efni og getur fylgt því vel eftir með því að mæta á fundi þar sem þess er óskað.“ En hver eru ykkar tengsl vió stofn- anir ríkisvaldsins, svo sem mennta- málaráöuneytió? „Við höfum átt mjög gott samstarf við menntamálaráðuneytiö og til dæmis átti Jónína Bjartmarz, formað- ur Heimilis og skóla, sæti í nefnd á vegum ráðuneytisins sem vann að endurskoðun reglugerðar um aga og skólareglur og enn fremur starfaði hún með ráðuneytinu að undirbún- ingi almenns hluta nýju aðal- námskrárinnar. Við eigum • einnig fulltrúa í stjórn Námsgagnastofnunar í undirbúningshópi stóru upplestrar- keppninnar. Við erum að byija að kynna fyrir foreldrum nýja aðalnámskrá grunn- skóla í samstarfi við menntamála- ráðuneytið og svæðasamtök foreldra. Við reynum að vera í tengslum og góðu samstarfi við alla þá aðila sem við getum, t.d. með málþingum eins og „Frá foreldrum til foreldra" sem við munum standa fyrir þann 30. nóv- ember næstkomandi í samstarfi við ísland án eiturlyfla, Kópavogsbæ, Samfok, Samkóp og Vímulausa æsku. Að lokum var Edda Sóley spurð hver hennar framtíðarsýn í skólamálum væri. „Draumurinn er öflug foreldrafélög og kappsöm foreldraráð. Skólinn er í eðli sínu íhaldssöm stofnun og það þarf hann að vera upp að vissu marki, það er ekki hægt að breyta einvörð- ungu breytinganna vegna. Hins vegar er hverri stofnun hollt að skoða stöðu sína og meta hana hverju sinni. Þar sem samstarf viö skólann er nauðsyn- legur þáttur í uppeldi barnanna og hluti af foreldraskyldunum ætti að vera hægt að vinna í góðu samstarfi allra í skólasamfélaginu að betri skóla fyrir börnin.“ -þor
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.