Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Page 33
I>V LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
33
dans
fslenski dansflokkurinn:
Annasamt starfsdr
fram undan
Starfsár íslenska dansflokksins er
nú senn að hefjast. Hinn 14. október
næstkomandi verður fyrsta frumsýn-
ing ársins og segja má að hún sé til-
einkuð ungum danshöfundum því
sýnd verða þrjú ný verk eftir íslenska
höfunda, auk þess sem tónlistin við
þau er íslensk og samin sérstaklega
fyrir sýningrma.
Verkin þrjú eru „NPK“ eftir
Katrínu Hall og er fyrsta verk hennar
síðan hún tók við listrænni stjóm ís-
lenska dansflokksins. Tónlistin er eft-
ir hljómsveitina Skárr’en ekkert og
verður hún flutt lifandi á sýningum.
Annað verk sýningarinnar er Maður-
inn er alltaf einn, eftir Ólöfu Ingólfs-
dóttur og er byggt á verki sem hún
sendi í Danshöfundasamkeppni ÍD
haustið 1998. Verkið hlaut ekki náð
fyrir augum dómara en fékk góðar
viðtökur á alþjóðlegri danshátíð í
mars á þessu ári. Tónlistin er frum-
samin af Halli Ingólfssyni. Þriðja
verkið í sýningunni, Æsa, er sam-
starfsverkefni íslenska dansflokksins
og Pars pro toto, Láru Stefánsdóttur,
danshöfundar, Guðna Franzsonar tón-
skálds og Þórs Tuliniusar leikstjóra.
Árið 1627 var strandhögg gert á ís-
landi og um það bil 400 íslendingum
rænt. Þeir vora fluttir til Marokkó og
Alsír þar sem þeir voru hnepptir í
þrældóm. Aðeins 40-50 þeirra komust
aftur til heimalandsins en örlög hinna
eru ókunn.
Fyrsta frumsýning vetr-
arins er tileinkuð ís-
lenskum höfundum í
dansi og tónum. Síðan
verður flokkurinn með
sýningar bæði hár
heima og erlendis fram
á næsta haust
Goðsagnirnar og Baldr
Önnur sýning starfsársins verður
11. febrúar og nefnist Diaghilef:
Goðsagnimar og er lokahluti þríleiks
eftir Jochen Ulrich um hinn rúss-
neska impresarío sem bylti ballett-
heiminum með uppfærslum sínum
hjá Les Ballets Russes í París á fyrstu
áratugum aldarinnar. Verkið er
samið sérstaklega fyrir Islenska dans-
flokkinn og er hér um heimsfrumsýn-
ingu að ræða. Fyrri hlutarnir tveir
voru gerðir fyrir Innsbruckballettinn
og Euregio. Sýningin er á dagskrá
Reykjavíkur, menningarborgar Evr-
ópu árið 2000.
Á listahátíð í vor verður sýnt verk
fyrir böm eftir Nönnu Ólafsdóttur og
er verkið pantað í tilefni Listahátíðar
barna.
íslenski dansflokkurinn tekur
einnig þátt í risavöxnu verkefni á veg-
um Reykjavíkur, menningarborgar
Evrópu árið 2000. Er það Baldr eftir
Jón Leifs, samið fyrir stóra hljómsveit
og dansara. Auk íslenska dansflokks-
ins taka þátt í þeirri sýningu Sinfón-
íuhljómsveit íslands, dansarar úr
finnska Þjóðarballettinum og fleiri
listamenn. Það er finnski dansahöf-
undurinn Jorma Uotinen sem semur
dansana við tónlist Jóns Leifs en
hann er einnig listrænn stjómandi
finnska Þjóðarballettsins.
Heimsflutningur á þessu mikla
verki verður í Laugardalshöll 18.
ágúst árið 2000 og síðan verða sýning-
ar í Bergen 31. ágúst og Helsinki 7. og
8. september.
Sýningar víða um Evrópu
Á næsta ári tekur íslenski dans-
flokkurinn einnig þátt í TransDanceE-
urope 2000, verkefni sem hefur að
markmiði að tengja saman menning-
arborgir Evrópu með sameiginlegri
danshátíð sem ferðast á milli þeirra á
árinu. Hátíðin hefst i Avignon í lok
febrúar, heldur svo áfram til Bergen,
Prag, Bologna, Brussel, Helsinki og
lýkur loks í Reykjavík í byrjun nóvem-
ber. Flokkurinn tekur þátt í hátíðinni
fyrir hönd Reykjavikur og mun ferð-
ast til a.m.k. þriggja af hinum erlendu
borgum, Avignon, Prag og Bologna, og
sýna verk eftir íslenska danshöfúnda.
FUJIFILM WWW.fUjNilm.iS
VEIUU BESTU FMMKÖIUININA
FUJIFILM CRYSTAL ARCHIVE
ENGINGARBESTI
UÚSMYNDAPAPPÍR
SEMTILER
FUJIFILM
FRAMKÖILUN
UM ALLT LAND
Skipholti 31, sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, sími 461 2850
Opi&: Virka daga 10-18:30, laugardaga 10-17, sunnudaga 12-17.