Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Síða 58
,0 Qfmæli
LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999 JjV
Sigurður Sigurðarson
Sigurður Sigurðarson, dýralækn-
ir á Keldum, er sextugur i dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Sigurðarstöð-
um í Bárðardal og ólst þar upp til
þriggja ára aldurs. Hann átti heima
að Keldum á Rangárvöllum til sjö
ára aldurs, síðan á Selalæk í sömu
sveit en flutti þaðan á tíunda ári að
Hemlu í Landeyjum og átti þar
heima fram yfir tvítugt.
Sigurður lauk stúdentsprófi frá
* MA 1961, dýralæknisprófí frá Nor-
ges Veterinærhögskole í Ósló 1967,
M.Sc.-prófi í meinafræði búfjár við
The Royal Veterinary College, Uni-
versity of London 1970, og sérfræði-
prófi í sjúkdómum sauðfjár og naut-
gripa í Ósló 1995. Hann hefur jafn-
framt verið við framhaldsnám og
farið í náms- og fyrirlestraferðir í
dýralæknisfræðum til Svíþjóðar,
Danmerkur, Grænlands, Finnlands,
Skotlands, Þýskalands, Lettlands og
Litháens auk Noregs.
Sigurður gegndi embættum hér-
aðsdýrcdækna í afleysingum í Borg-
arfjarðarumdæmi 1968 og sá jafn-
framt um kennslu í líffærafræði við
Bændaskólann á Hvanneyri, síðan í
Laugarásumdæmi, Helluumdæmi og
’ Reykjavíkurumdæmi. Hann var
framkvæmdastjóri Sauðfjársjúk-
dómanefndar 1976-77 og sérfræðing-
ur hennar 1969-93, síðan hjá emb-
ætti yfirdýralæknis og var settur yf-
irdýralæknir 1987.
Sigurður hefur lengst af stundað
rannsóknir, sjúkdómagreiningar og
leiðbeiningastörf við Tilraunastöð
HÍ að Keldum, m.a. rannsóknir á
riðuveiki í sauðfé hin síðari ár.
Fjölskylda
Sigurður er kvæntur
Halldóru Einarsdóttur,
f. 21.3. 1942, dóttur Ein-
ars Sverrissonar, bónda
og rafvirkjameistara frá
Kaldrananesi í Mýrdal,
og k.h., Ragnhildar Sig-
ríðar Guðjónsdóttur, úr
Vestmannaeyjum.
Börn Sigurðar og
Halldóru: Sigurður, f.
1969, fiskeldisfræðingur
og tamningamaður;
Ragnhildur, f. 1970, golf-
kona og kennari við Árbæjarskóla;
Einar Sverrir, f. 1973, rekur Bif-
reiðaverkstæði Reykjavikur; Sölvi,
f. 1978, húsasmiður og tamninga-
maður.
Bróðir Sigurðar er Skúli Jón, f.
20.2. 1938, framkvæmdastjóri og for-
maður Rannsóknarnefndar flug-
slysa, kvæntur Sjöfn Friðriksdóttur
kennara og eiga þau tvo syni á lífi,
Friðrik tölvunarfræðing, og Sigurð
Darra, kerfisfræðing og tölvunar-
fræðinema.
Foreldrar Sigurðar voru Sigurður
Jónsson, f. 8.1. 1909, d. 22.10. 1939,
bóndi og smiður á Sigurðarstöðum í
Bárðardal, og Kristín Skúladóttir, f.
30.3. 1905, d. 13.6. 1995, kennari.
Síðari maður Kristínar var Ágúst
Andrésson, bóndi í Hemlu i Vestur-
Landeyjum, en þau áttu ekki böm
saman.
Böm hans af fyrra hjónabandi
voru Magnea Helga, húsfreyja í
Hemlu, d. 1998, og Andrés Haukur,
bifreiðarstjóri og skrifstofumaður í
Reykjavík.
Ætt
Sigurður var sonur
Jóns, b. á Sigurðarstöð-
um, Jónssonar, b. í
Baldursheimi, Illuga-
sonar, b. þar, Hallgríms-
sonar, ættfóður Hraun-
kotsættar, Helgasonar.
Móðir Jóns eldra var
Þuríður Eyjólfsdóttir,
systurbarn við Jón Sig-
urðsson á Gautlöndum
en Þuríður, amma
hennar, var formóðir
Skútustaðaættar. Móðir
Jóns yngra var María Friðriksdótt-
ir, Þorgrímssonar frá Hrappsstaða-
seli, af Hraunkotsætt.
Móðir Sigurðar Jónssonar var
Jónína, dóttir Sölva Magnússonar,
Einarssonar, b. í Nesi í Loðmundar-
firði. Móðir Jónínu var Anna Stein-
unn Einarsdóttir, systir Stefáns í
Möðmdal á Fjöllum, Einarssonar, b.
á Brú á Jökuldal.
Sölvi og Anna Steinunn bjuggu á
Grunnavatni á Fljótsdalsheiði, í
Klausturseli á Jökuldal en flúðu
Öskjugosið 1875 að Svínadal í Keldu-
hverfi, síðan bjuggu þau á Gríms-
stöðum á Fjöllum, Reykjahlíð við
Mývatn, Svartárkoti í Bárðardal en
síðast á Kaupangi við Eyjaljörð.
Systkini Sigurðar Jónssonar voru
María, kona Elíasar Aarseth í Ála-
borg, Gunnlaugur, b. á Sunnuhvoli í
Bárðardal, Jón Baldur, b. á Stóra-
völlum, Sölvi Steinar, b. á Sigurðar-
stöðum, og Anna Steinunn, fyrri
kona Sigurðar Baldurssonar, b. á
Lundarbrekku. Kristín, móðir Sig-
urðar, var dóttir Skúla fræðimanns
og b. á Keldum, Guðmundssonar, b.
þar, Brynjólfssonar, b. í Kirkjubæ á
Rangárvöllum, Stefánssonar, b. í Ár-
bæ, Bjarnasonar, ættföður Víkings-
lækjarættarinnar, Halldórssonar.
Guðmundur Brynjólfsson á Keldum
var þrígiftur og átti tuttugu og fimm
böm. Mikill ættbogi er frá honum
kominn. Móðir Skúla á Keldum,
Þuríður Jónsdóttir, Sigurðssonar
frá Skarðshlíð, var þriðja kona Guð-
mundar. Alsystkini Skúla á Keldum
voru Vigfús fræðimaður, kenndur
við Engey, siðar á Laufásvegi 43 í
Reykjavík, Sigurður bóndi á Sela-
læk, Jón, b. á Ægisíðu, Júlía, kona
séra Ingvars Nikulássonar á
Skeggjastöðum, og Guðrún í Gufu-
nesi, kona Filippusar Filippussonar.
Móðir Kristínar Skúladóttur var
Svanborg Lýðsdóttir, b. í Hlíð, Guð-
mundssonar frá Skarfanesi, Þor-
steinssonar, Halldórssonar, b. á
Rauðnefsstöðum, en hann var sonur
Bjama á Víkingslæk.
Systkini Kristínar voru Aldís,
kona Haraldar Thorarensen á Mó-
eiðarhvoli, Þuríður, kona Theodórs
Árnasonar frá Hurðarbaki, Guð-
mundur og Lýður, bændur á Keld-
um, og Helga, fyrri kona Jóns Egils-
sonar, b. á Selalæk. Ffóstursonur
Svanborgar og Skúla á Keldum var
Engilbert Kristjánsson, síðast b. i
Pulu i Holtum.
Sigurður og Halldóra, kona hans,
bjóða ættingjum, vinum og kunn-
ingjum að samfagna og þiggja þjóð-
legar veitingar í Iðnaðarmannahús-
inu á horni Ingólfsstrætis og Hall-
veigarstígs í Reykjavík laugardag-
inn 2.10., kl. 14.00-17.00.
Sigurður Sigurðarson.
Þórður G.E. Guðmundsson
Þórður Gunnar Edward Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs Landsvirkjunar, Ás-
búð 29, Garðabæ, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Þórður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám í
rafvirkjun við Iðnskólann í Reykja-
vík 1967-69, í rafmagnstæknifræði
við Tækniskólann i Reykjavík
1969-72, rafmagnsverkfræði við HÍ
1972-75 og raforkuverkfræði við
Tækniháskólann í Þrándheimi
1975-78.
Þórður var verkfræðingur í
rekstrardeild Landsvirkjunar frá
1978, deildarverkfræðingur frá 1980,
yflrverkfræðingur frá 1988, rekstr-
arstjóri frá 1992 og framkvæmda-
stjóri rekstrarsviðs frá 1994.
Þórður sat í tækniráði Sambands
íslenskra rafveitna 1992-96 og var
formaður þess 1995 og 1996, sat í
fagstjórn raforkusviðs Samorku
1995-97, i fagráði raforkusviðs Sam-
orku frá 1998 og er formaður þess
frá 1999. Hann er formaður Ljós-
tæknifélags íslands frá 1999, stjóm-
arformaður TNets frá 1999, situr í
skólanefnd Rafiðnaðarskólans frá
1996, Endurmenntunar vélfræðinga
frá 1998 og formaður Hafnarnefndar
Garðabæjar frá 1986.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 18.12.1971 Gerdu
Farestveit, f. 6.3. 1949, leikskólasér-
kennara. Hún er dóttir Einars
Farestveit, f. 9.4. 1911 í
Modalen í Noregi, d.
14.8. 1994, forstjóra, og
Guðrúnar Farestveit
Sigurðardóttur, f. 6.12.
1913 á Æsustöðum í
Langadal í Austur-
Húnavatnssýslu, d.
11.12. 1996, húsmóður.
Gerða varð fimmtug fyrr
á árinu.
Börn Þórðar og Gerdu
eru Bergur Þór Þórðar-
son, f. 21.12. 1973, raf-
eindavirki í Reykjavík,
kona hans er Unnur
Dóra Einarsdóttir, f.
28.6. 1976, tækniteiknari,
Þórður Gunnar Edward
Guðmundsson.
hans er Ásdís María
Rúnarsdóttir, f. 14.2.
1977 háskólanemi;
Hjördís Eva Þórðar-
dóttir, f. 15.3. 1982,
nemi við MR.
Systir Þórðar er
Andrea Katrín Guð-
mundsdóttir, f. 2.8.
1955, félagsráðgjafi.
Foreldrar Þórðar era
Guðmundur R. Karls-
son, f. 7.2. 1930, bifvéla-
virki í Reykjavík, og
Hjördís S. Þórðardótt-
ir, f. 2.2.1933, læknarit-
ari.
og eiga
þau einn son; Einar Frey Bergsson,
f. 1.8. 1999; Atli Freyr Þórðarson, f.
27.7. 1977, flugmaður, sambýliskona
Gerða og Þórður taka á móti gest-
um i Kiwanishúsinu, Engjateigi 11,
Reykjavík, í dag, laugardaginn 2.10.,
frá kl. 20.30.
Marteinn Njálsson
-ý Marteinn Njálsson,
bóndi að Vestri-Leirár-
görðum, Leirár- og
Melahreppi, verður
fimmtugur á mánudag-
inn.
Starfsferill
Marteinn fæddist á
Vestri-Leirárgörðum og
ólst þar upp. Hann fékk
sína bamaskólamennt-
un í farskóla, stundaði
nám við Bændaskólann
_ á Hvanneyri og lauk
> þaðan búfræðiprófl 1971,
stundaði nám við Iðnskólann á
Akranesi, hóf sextán ára nám í
húsasmíði, lauk sveinsprófi í þeirri
grein og er húsamíðameistari frá
1973.
Marteinn stundaði almenn land-
búnaðarstörf á unglingsárunum,
vann við smíðar i Borgarnesi og á
* Akranesi til 1970, er hann hóf bú-
fræðinám, og aftur frá
1971.
Er Marteinn stund-
aði smíðar var hann
búsettur á Akranesi.
Hann flutti aftur að
Vestri-Leirárgörðum
1974, hóf þar búskap og
hefur verið bóndi þar
síðan.
Marteinn situr í
sveitarstjóm Leirár- og
Melahrepps, situr í
skólanefnd Heiðar-
skóla, situr í stjórn
Hrossaræktarsambands
Vesturlands, situr í sóknarnefnd
Leirársóknar og hefur setið í stjórn
ýmissa félaga, s.s. Hestamannafé-
lagsins Dreyra og ungmennafélags-
ins Hauks.
Fjölskylda
Marteinn kvæntist 25.3.1972 Dóm
Líndal Hjartardóttur, f. 9.8. 1953,
tónmenntakennara. Hún er dóttir
Hjartar L. Sigurðssonar, ökukenn-
ara og Akranesi, og Dóra Bjarna-
dóttur húsmóður.
Böm Marteins og Dóra Líndal
era Njáll Líndal, f. 15.1. 1971, nemi
við KHÍ, búsettur í Reykjavík, en
kona hans er Ásdís Margrét Rafns-
dóttir; Ómar Líndal, f. 3.12. 1973,
tannlæknanemi, búsettur í Reykja-
vík en kona hans er Ingibjörg Mar-
ía Halldórsdóttir; Karen Líndal, f.
2.3.1983, fjölbrautaskólanemi.
Systkini Marteins eru Klara, f.
18.8. 1945, hjúkrunarfræðingur í
Amarholti á Kjalamesi; Þórdís, f.
15.12. 1946, kennari aö Reykjum í
Torfulækjarhreppi í Húnavatns-
sýslu; Ingibjörg, f. 1.7. 1948, d. 24.11.
1993; Sveinbjörn Markús, f. 6.10.
1954, skólastjóri í Mýrarkoti á Álfta-
nesi, búsettur í Bessastaðahreppi;
Steinunn, f. 27.6. 1953, kennari í
Keflavík; Hjalti, f. 18.4. 1958, bifvéla-
virkjameistari og forstjóri eigin fyr-
irtækis, búsettur á Akranesi; Smári,
f. 1.12. 1960, vélvirki á Akranesi;
Kristín, f. 16.11. 1963, félagsráðgjafi
og forstöðumaður, búsett í Reykja-
vík; Sæunn, f. 16.11. 1963, tóm-
stunda- og æskulýðsráðgjafi, búsett
í Hafnarfirði.
Foreldar Marteins: Njáll Markús-
son, f. 18.12. 1918, d. 15.12. 2978,
bóndi að Vestri-Leirárgörðum frá
1948, og Fríðar Þorsteinsdóttir, f.
26.8. 1925, húsmóðir.
Ætt
Njáll var sonur Markúsar, b. á
Ölviskrossi, Benjamínssonar, b. á
Hrófbjargarstöðum, Jónssonar.
Móðir Markúsar var Katrín Mark-
úsdóttir, b. að Austurkoti í Kjósar-
hreppi.
Móðir Njáls var Kristfríður
Sveinbjörg Hallsdóttir, Bjömssonar,
og Guðrúnar Gunnlaugsdóttur.
Marteinn tekur á móti gestum að
Hlöðum á Hvalfjarðarströnd laugar-
Marteinn Njálsson.
lil hamingju
með afmælið
2. október
90 ára
Þórhildur Bergsteinsdóttir,
Stórholti 30, Reykjavík.
80 ára
Haraldur Hálfdánarson,
Hábæ 33, Reykjavik.
Eiginkona hans er Ragnhildur
Guðbjörnsdóttir.
Þorsteinn Jónasson,
Vallholtsvegi 7, Húsavík.
70 ára
Jón Páll Halldórsson,
Engjavegi 14, ísafirði.
Ólafur Oddgeirsson,
Stapaseli 13, Reykjavík.
Soffia S. Haraldsdóttir,
Sólheimum 24, Reykjavík.
Þórarinn Brynjar Þórðarson,
Vatnsnesvegi 32, Keflavík.
Þórður Magnússon,
Laufási 5, Garðabæ.
60 ára
Hallgrímur Daníelsson,
Kirkjubraut 33, Akranesi.
Jóhanna Aðalsteinsdóttir,
Stapagötu 21, Njarðvík.
Sesselja Jónsdóttir,
Skagabraut 33, Akranesi.
Stella Björgvinsdóttir,
Markarlandi 7, Djúpivogi.
Valmundur Eggertsson,
Lyngheiði 18, Kópavogi.
50 ára_______________________
Ágúst Karl Gunnarsson,
Vesturhólum 23, Reykjavík.
Elba Bára Núnes Altuna,
Strandaseli 6, Reykjavík.
Guðbjörg S. Eggertsdóttir,
Hafnartúni 4, Siglufirði.
Jón G. Magnússon,
Nesbala 88, Seltjamamesi.
Jón Karlsson,
Selvogsbraut 1, Þorlákshöfn.
Júlíanna Maria Nilssen,
Háaleiti 20, Keflavík.
Katrín Pálsdóttir,
Stóragerði 22, Reykjavík.
Kristín Magnúsdóttir,
Túnbrekku 4, Kópavogi.
Lára M. Ellingsen,
Þórannarstræti 93, Akureyri.
Pétur Pétursson,
Maríubakka 10, Reykjavík.
Sigríður Bjamadóttir,
Kríubakka 4, Bíldudal.
Svandís J. Sigurðardóttir,
Langholtsvegi 79, Reykjavik.
Þórður G. Guðmundsson,
Ásbúð 29, Garðabæ.
Þórður Hannesson,
Stekkjarhvammi 13, Hafnarfirði.
40 ára_______________________
Ágúst Elfar Þorvaldsson,
Sólvallagötu 40b, Keflavík.
Bima Jónsdóttir,
Nýbýlavegi 102, Kópavogi.
Björg Jónatansdóttir,
Fjóluhvammi 10, Hafnarfirði.
Edda Olsen,
Stórateigi 12, Mosfellsbæ.
Elín Heiður Kristjánsdóttir,
Digranesheiði 22, Kópavogi.
Gísli Sverrir Ámason,
Hrísbraut 10, Höfii.
Guðbjörg Hinriksdóttir,
Lundarbrekku 16, Kópavogi.
Guðrún Gunnarsdóttir,
Fannafold 241, Reykjavik.
Ingigerður A. Konráðsdóttir,
Bólstaðarhlíð 58, Reykjavík.
Jóhannes Eggertsson,
Vallarási 4, Reykjavík.
Júlía Laufey Guðlaugsdóttir,
Tindaseli ld, Reykjavík.
Kristinn L. Brynjólfsson,
Lágabergi 1, Reykjavík.
Pálmi Jóhannesson,
Geitabergi, Akranes.
Runólfur Ólafsson,
Granaskjóli 22, Reykjavík.
Valdimar G. Jakobsson,
Hátúni 10, Reykjavík.