Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1999, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 2. OKTOBER 1999
75'
jSgaœm^g^aa^asfæi'iFMgæ;
", ' K'WvV
550 5000
Rafvirkjar óskast
Erum með ný og spennandi verkefni fyrir rafvirkja sem
geta tekist á við ný og krefjandi verkefni.Þurfa að geta
unnið sjálfstætt. Tölvukunnátta æskileg. Þurfa að geta
hafið störf sem fyrst.
Uppl. gefur Ljósvirki ehf. í síma 898 8888.
Vilt þú góð laun og
breytilegan vinutíma?
Frá og með 1. október sl. yfirtók Ræsting ehf.
alla starfsemi ræstingardeildar Securitas hf.
Hjá Ræstingu ehf. vinnur góður og samhentur
hópur fólks sem vinnur eingöngu við
hreingerningar.
Hreingerningar eru umfangsmeiri þrif en dagleg
ræsting þar sem húsnæði er tekið í
allsherjarþrif. Nýir starfsmenn fá kennslu og
þjálfun í upphafi.
í boði eru fastar stöður þar sem unnið er eftir
ákveðnu vaktakerfi. Byrjunarlaun eru 120 þús.
á mánuði fyrir fullt starf.
Við leitum að fólki sem líkar vel við hópvinnu
og getur unnið breytilegan vinnutíma.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá
starfsmannastjóra, Síðumúla 23.
Verkstæðisskemma
S A. Verktak ehf. óskar eftir tilboðum í verkstæðisskemmu,
sem er við Sultartangavirkjun. Skemman er 400 fermetrar,
einangruð bogaskemma úr bárujárni með innkeyrsludyrum
í báðum endum.
Skemmuna skal fjarlægja af staðnum.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Uppl. eru veittar á skrifstofu í síma 577 5700, fax 577 5707.
Mosfellsbær
Óskum eftir að ráða fólk til afgreiðslu o. fl.
Störfin laus nú þegar.
Mosfellsbakarí,
Urðarholti 2. — Sími 566 6145.
1>
A
KOPAVOGSBÆR
Frá Smáraskóla
Vegna stækkunar skólahúsnæðisins
vantar okkur fleiri góða gangaverði/
ræsta í 50% störf frá kl. 13.00 - 17.00.
Um er að ræða lifandi og skemmtileg
störf, þar sem sérstaklega góður andi
ríkir meðal samstarfsfólks og starfs-
umhverfi er til fyrirmyndar. Störf þessi
henta vel bæði körlum og konum á
öllum aldri. Laun samkvæmt kjara-
samningi Eflingar við Kópavogsbæ,
Upplýsingar veitir Örn Sævar Eyjólfsson
húsvörður í síma 554 6100 og 863 5301.
Eignarhaldsfélagið Kringlan mun opna í október 9.200 fermetra viðbót við verslunarmiðstöðina
Kringluna. í hjarta nýbyggingarinnar á þriðju hæð verður Stjörnutorg, nýtt og glæsilegt veitingasvæði.
Torgið samanstendur af sjö skyndibitastöðum sem raðað er í hálfhring með um 300 sætum í miðjunni.
Auk skyndibitastaðanna munu sfanda fjögur veitingahús við torgið.
Eignarhaldsfélag Kringlunnar óskar eftir að ráða til starfa drífandi
og hressa einstaklinga til starfa við tiltekt og þrif á Stjörnutorgi.
Stjörnutorg verður opið milli kl. 11.00 og 21.00.
Starfsfólk vantar í bæði fullt starf og í hlutastörf.
Sendu okkur umsókn ef þú hefur áhuga á að starfa í samhentum,
líflegum hópi, ert snyrtileg/ur og létt/ur í lund, ásamt því að vera
góð/ur í mannlegum samskiptum.
Skriflegar umsóknir óskast sendar til DV fyrir 1. október, merktar „Stjörnutorg“.
BYGGÓ
BYGGINGAFÉLAG GYLFA 0G GUNNARS
Verkamenn í byggingavinnu.
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir að
ráða verkamenn í byggingavinnu.
Upplýsingar gefur Kristján í síma 892 1148,
Árni í síma 893 4629 og Steinar í síma 696 8560.
Fiæðslumiðstöð
Reykjavíkur
■é
RALA
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
og Búnaðarsamband Suðurlands
auglýsa stöðu tilraunastjóra.
Staða tilraunastjóra á tilraunastöðinni á Stóra-Ármóti í
Hraungerðishreppi er laus til umsóknar.
Tilraunastöðin á Stóra-Ármóti er rekin sameiginlega af
Rannsóknastofhun landbúnaðarins og Búnaðarsambandi
Suðurlands í samræmi viðlög nr. 29 1981 og samstarfssamning
þessara aðila frá 1983. t samræmi við þetta er óskað eftir
umsóknum frá aðilum sem hafa sérmenntun sem tengist
nautgriparækt, einkum fóðurfræði eða sambærilegum sviðum,
sem nýtast myndi starfseminni.
Skipulag á rekstri stöðvarinnar og áherslur í
rannsóknastarfseminni eru í endurskoðun og er þess vænst
að nýr tilraunastjóri taki virkan þátt í þeirri skipulagningu.Á
Stóra-Ármóti er ný tilraunaaðstaða sem byggð heftir verið
upp á síðustu fimmtán árum en starfsemi á staðnum hófst
árið 1987 og er framhald af starfsemi sem unnin var í
Laugardælum. Möguleiki er á búsetu á staðnum.
r
Umsóknum ber að skila fyrir 20. október nk. til Þorsteins
Tómassonar, forstjóra Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins, Keldnaholti.
Upplýsingar veitir einnig Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands.
HnMMMH
Arctic Experience er bresk ferðaskrifstofa sem m.a. sérhæfir sig í ferðum til íslands og
hefur áralanga reynslu af sölu á ferðum hingað til lands. Ferðaskrifstofan er staðsett í
útjaðri London. Á skrifstofunni starfa um 20 manns. Viðkomandi einstaklingur fær
aðstoð við að finna hentugt húsnæði.
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Starfsfólk óskast til ýmissa starfa ístarfsmenn
óskast til ýmissa starfa í Grunnskólum Reykjavíkur.
Meginmarkmið með störfunum:
Að taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans þar
sem áhersla er lögð á vellíðan nemenda.
Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi, við gangavörslu,
þrif o.fl.
Árbæjarskóli, sími 567 2555
100%
Möguleiki á lægra starfshlutfalli ýmist
fyrir eða eftir hádegi.
Hamraskóli, sími 567 6300
50-100% störf.
Húsaskóli, sími 567 6100
60-100% störf.
Langholtsskóli, sími 553 3188
100% og hlutastörf.
Öskjuhlíðarskóli, sími 568 9740
Þroskaþjálfi, 50% starf.
Starfsfólk til að annast nemendur í leik og starfi,
skóladagvist o.fl.:
Árbæjarskóli, sími 557 2555
50% starf
Kennarar
Árbæjarskóli, sími 567 2555
Stærðfræði í unglingadeild.
1/1 staða
Engjaskóli, sími 510 1300
íslenska og stærðfræði 17. bekk og
stuðningskennsla í 5. bekk,
1/1 staða.
Réttarholtsskóli, sími 553 2720
Sundkennsla, hlutastarf
Rimaskóli, sími 567 6464
Alm. kennsla, afleysingar í 7. bekk
vegna barnsburðarleyfis.
100% staða.
Seljaskóli, sími 557 7411
Stærðfræði og íslenska í unglingadeild.
1/2 staða.
Almenn kennsla á yngsta stigi.
1/2 staða.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar.
Umsóknir ber að senda í skólana.Laun skv. kjarasamningum
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
MMMHMnMMHMMMM
Vegna aukinna verkefna óskar Arctic Experience
eftir að ráða starfsmann.
Helstu verkefni eru:
• Sala á ferðum til íslands.
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf til viðskiptavina.
• Farseðlaútgáfa.
• Önnur tilfallandi störf á ferðaskrifstofu.
Við leitum að einstaklingi sem er duglegur og ábyrgur
í spennandi og krefjandi starf. Gerð er krafa um
þjónustulund og samviskusemi. Góð enskukunnátta
er skilyrði.
Ef þig hefur alltaf dreymt um að starfa við
ferðaþjónustu erlendis er þetta þitt tækifæri!
Um er að ræða framtíðarstarf. Æskilegt er að
viðkomandi hafi búið erlendis eða hafi reynslu af
því að vinna með erlendum aðilum.
Umsóknir á ensku ásamt mynd óskast sendar til
Ráðningarþjónustu PricewaterhouseCoopers merktar
„London" fyrir 12. október nk.
Upplýsingar eru veittar hjá Ráðningarþjónustu
PricewaterhouseCoopers alla virka daga kl. 08.30
til 14.00.
PricB/VáTerhouseQopers %
Höfðabakka 9*112 Reykjavík • Sími 550 5300 • Bréfasími 550 5302 • www.pwcglobal.com/is