Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999
Fréttir
Óánægja með þá ákvörðun Vinnslustöðvarinnar að hætta við sameiningu:
Geir Magnússon kom í
veg fyrir sameininguna
- rifti án sýnilegrar ástæðu þó gengið væri að hörðum kröfum hans
Eins og DV greindi frá á dögunum
hefur Vinnslustöðin í Vestmannaeyj-
um slitið sameiningarviðræðum við
þrjú sjávarútvegsfyrirtæki: ísfélag
Vestmannaeyja, Krossanes og Ósland.
Viðræður um sameininguna höfðu
staðið yfir í allt haust og er ijóst að til-
kynningin kom eins og þruma úr heið-
skíru lofti fyrir marga.
Orð Geirs Magnússonar, stjómar-
formanns Vinnslustöðvarinnar, um að
hið nýja fyrirtæki hefði verið með of
miklar skuldir hljóta að teljast furðu-
leg í ljósi skulda Vinnslustöðvarinnar.
Hið nýja fyrirtæki hefði skuldað 7,7
milljarða króna en þar af væra 4,4
komnir frá Óslandi og Vinnslustöð-
inni, fyrirtækjum sem heyra undir
hæl Olíufélagsins og þar með Geirs
sjálfs. Þegar sameiningarviðræður
hófust var það skilyrði af hálfu Olíufé-
lagsins að Ósland, sem er fiskimjöls-
verksmiðja, yrði með í sameiningunni.
Forsvarsmenn Krossaness og ísfélags-
ins voru ekkert of hrifnir af því en
voru reiðubúnir að taka það inn til að
sameiningin gengi. Samkvæmt heim-
ildum DV hafa sumir forsvarsmanna
Krossaness og ísfélagsins bent á að
meira vit væri í því fyrir fsfélagið að
bæta við sig veiðiheimildum því, eins
og einn orðaði það, „það eru of mörg
lík í lestinni hjá Vinnslustöðinni".
Geir hafði sitt fram að lokum
í lok sumars var skrifað undir vilja-
yfirlýsingu um sameiningu fyrirtækj-
anna sem var í framhaldinu samþykkt
í stjómum þeirra. Áöur höfðu yfir-
menn Vinnslustöðvarinnar átt í við-
ræðum við Fisk-
iðjuna Skagfirð-
ing fyrir norðan
en samkvæmt
heimildum DV
strönduðu þær
viðræður á
norðanmönn-
um. Vitneskja
um viðræður ís-
félagsins og
Vinnslustöðvar-
innar lak fljótt
út og neyddist
Vinnslustöðin
til að senda til-
kynningu á
Verðbréfaþing
íslands þegar
viljayfirlýsingin
var farin að
ganga manna á
milli á faxi.
Telja margir að
einhverjir, tengdir Olíufélaginu, hafi
lekið yfirlýsingunni því þeirra eintak
var frábrugðið eintakinu sem stjómir
ísfélagsins, Vinnslustöðvarinnar og
Krossaness höfðu undir höndum. „Það
er ljóst að einhver lét þetta af stað en
ég er jafnnærri því og þú hvaðan þetta
kom,“ sagði Geir Magnússon þegar
hann var spurður um málið. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins voru þeir
margir sem höfðu skoðanir á ágæti
sameiningarinnar og vildu ýmsir
koma í veg fyrir hana. „Það voru
margir sem vildu málið feigt," sagði
einn viðmælenda DV. „Ýmsa aðila
langar í Vinnslustöðina og þeb- hafa
ekkert látið af þeim ásetningi." Um
það hvort margir hefðu reynt að hafa
áhrif á sameininguna sagði Geir
Magnússon: „Við bara skoðuðum þetta
mál og ég þarf ekkert að lýsa því fyrir
þér á neinn annan hátt.“ Þá hefur DV
öruggar heimildir fyrir því að þegar í
ljós kom að ekkert í afkomutölum ísfé-
lagsins gæfi tilefni tii að rifta samein-
ingarferlinu hefði Geir Magnússon far-
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum. Samkvæmt heimildum DV skiptu Vest-
mannaeyingarnir í stjórn fyrirtækisins um skoðun varðandi sameininguna.
Sigurgeir Brynjar
framkvæmdastjóri
innar.
ísfélag Vestmannaeyja. Almenn óánægja virðist vera með ákvörðun stjórnar Vinnslustöðvarinnar.
ið að setja fram miklar kröfur á Isfé-
lagsmenn ef sameiningin ætti að ganga
eftir. Með öðrum orðum: Geir Magnús-
son vann leynt og ljóst að því að ekk-
ert yrði af sameiningunni. Fyrsta kraf-
an var að ísfélag Vestmannaeyja færði
olíuviðskipti sín yfir til Oiíufélagsins
hf. en fram að því hafði ísfélagið skipt
við Skeljung. Þetta féllust ísfélags-
menn á en sú ákvörðun hefur eflaust
reynst Sigurði Einarssyni erfið því
auk þess að hafa skipt við Skeljung til
margra ára er Sigurður gamall stjóm-
armaður félagsins. Þá gerði Geir
Magnússon það að kröfu að Sigurður
Einarsson yrði ekki forstjóri í samein-
uðu fyrirtæki. Um þetta segir Geir:
„Hafi það komið til umræðu ræði ég
það ekki í blöðunum." Að síðustu
krafðist Geir þess
að Sigurður Ein-
arsson og fjöl-
skylda myndu ekki
eiga nema sem
næmi 35% í sam-
einuðu fyrirtæki,
þ.e. Geir fór fram á
það að þau losuðu
sig við um 10%.
Samkvæmt heim-
ildum DV höfðu ís-
félagsmenn gengið
að öllum þessum
kröfum en því
bjóst Geir Magnús-
son líklega ekki
við. Því var ekki
um neitt annað að
ræða fyrir Geir en
að rifta samruna-
ferlinu án nokkurr-
ar sýnilegrar
ástæðu.
Kristgeirsson,
Vinnslustöðvar-
Vestmannaeyingarnir í stjórn
Vinnslustöðvarinnar skiptu um
skoðun
Hlutskipti Vestmannaeyinganna í
stjóm Vinnslustöðvarinnar er sér-
stakt. Samkvæmt heimildum DV var
það Haraldur Gíslason, Vestmannaeyj-
um./Sem fyrstur bryddaði upp á sam-
einingu ísfélags
Vestmannnaeyja og
Vinnslustöðvarinn- ______________
ar. Hann var mjög
hlynntur samein-
ingunni þvf með
henni taldi hann ör-
uggt að Vinnslu-
stöðin yrði áfram i
bæjarfélaginu en þá
hafði Vinnslustöðin
verið í viðræðum við aðra, m.a. Fisk-
iðjuna Skagfirðing, en þær viðræður
voru komnar mjög langt á veg. Hinn
Vestmannaeyingurinn sem situr í
stjóm Vinnslustöðvarinnar er Viktor
Fréttaljós
Höskuldur Daði Magnússon
Helgason. Hann var samkvæmt heim-
ildum DV einnig hlynntur sameining-
unni. Eftir því sem DV kemst næst
voru þeir búnir að skipta um skoðun
fyrir stjómarfundinn sem haldinn var
á mánudaginn en Viktor mætti ekki
sökum veikinda.
Ástæðan fyrir þvi að Haraldur
skipti um skoðun er ekki vituð og vildi
hann ekki tjá sig mn málið við blaðið.
Einhver umræða hefur þó verið í Eyj-
um um að Sigurður Einarsson yrði of
stór í hinu nýja fyrirtæki og þar af
leiðandi of stór í bæjarfélaginu. Það
hefur pirrað marga í Eyjum og er vit-
að að einhverjir útgerðarmenn reyndu
að koma í veg fyrir sameiningu eða,
eins og einn viðmælandi blaðsins orð-
aði það: „Það var í lagi að Siggi tæki
fyrirtækið þegar það var á leið úr bæn-
um en um leið og forsvarsmenn
Vinnslustöðvarinnar fóra að halda því
fram að hægt væri að reka fyrirtækið
í Eyjum lögðust menn gegn sameining-
unni.“ Geir Magnússon hafði þetta að
segja um þennan orðróm: „Ég hef
heyrt þennan orðróm en veit ekkert
meira um það.“
Menn vildu sjá sameininguna
ganga upp
Viðmælendur DV virðast vera á
einu máli um að ef
sameiningin hefði
_______________gengið eftir hefði það
verið mjög jákvætt
fyrir Vestmannaeyjar.
og líklegt að rétta
hefði mátt af skrykkj-
ótt gengi undanfarið.
Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, sagði í
samtali við blaðið á miðvikudag að
hann hefði viljað sjá öflugt sjávarút-
vegsfyrirtæki rísa í bænum með góða
kvótasamsetningu. „Ég hefði viljað sjá
þetta ganga upp,“ sagði Guðjón. Sig-
urður Einarsson hefur lýst yfir mikl-
um vonbrigðum með niðurstöðuna og
sagði að hún hefði komið á óvart.
Hann vísaði þeim orðrómi á bug að
staða ísfélagsins hefði verið verri en
menn áttu von á.
„Stjómin hefur ekki fjallað um mál-
ið en persónulega slær þetta mig illa.
Ég hafði reiknað með að þessi samein-
ing myndi ganga eftir," segir Magnús
Kristinsson,
stjórnarmaður í
Lífeyrissjóði
Vestmannaeyja,
en sjóðurinn á
tæp 16% í
Vinnslustöðinni.
„Það liggur nú
ekkert 1 augum
uppi hvort þetta
sé betri eða verri
kostur fyrir okk-
ur,“ segir Valur
Valsson, banka-
stjóri íslands-
banka, en bank-
inn er viðskipta-
banki Isfélagsins
og Vinnslustöðv-
arinnar. „Ég hygg
að það hefði verið
betri kostur fyrir
fyrirtækin ef þau
hefðu sameinast.
Við höfum samt ekkert meiri fréttir af
þessu en hafa verið í fjölmiðlum." ís-
landsbanki átti mikinn þátt í samein-
ingunni árið 1991, þegar ísfélagið og
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja samein-
uðust annars vegar og Vinnslustöðin
og Fiskiðjan hins vegar, og pressaði
samningsaðila aftur að borðinu þegar
allt var að fara út um þúfur. „Jú, á sín-
um tíma, þegar sú sameining átti sér
stað, var það mjög að fhimkvæði bank-
ans að það var gert. Þessi sameining
var hins vegar alfarið að frumkvæði
fyrirtækjanna beggja og ef hún hefði
orðið hefðum við stutt hana. Við töld-
Sigurður Einarsson,
lags Vestmannaeyja.
um þessa sameiningu vera góðan kost
en því miður varð ekki af þessu.“
„Ég get ekki sagt að ég sé sáttur við
þessa niðurstöðu," segir Jóhann Pétur
Andersen, framkvæmdastjóri Krossa-
ness. „Þetta eru mikil vonbrigði því
þegar við fóram í þessa sameiningu
var það trú okkar að þetta væri best
fyrir alla aðila og frá þeim tima þegar
viljayfirlýsingin var undirrituð hefur
ekkert komið fram sem breytir þeim
forsendum. Það verður því að teljast
furðulegt hvað þeir tóku sér langan
tíma í þetta,“ segir Jóhann Pétur.
Stjómarmennimir Viktor Helgason,
Haraldur Gíslason og Jóhann Magnús-
son vildu ekki tjá sig um málið.
Löng bið eftir svari - leituðu
menn leiða til að rifta samruna-
áætluninni?
Eins og DV hefur greint frá lýsti Sig-
urgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri
Vinnslustöðvarinnar, því yfir í síðasta
tölublaði vikuritsins Frétta í Vest-
mannaeyjum að litlar líkur væra á því
að Vinnslustöðin myndi hætta við
sameininguna. En var ekkert erfitt að
vinna með hinum samningsaðilunum
þegar til stóð að hætta við sameining-
una? „Þetta er náttúrlega þannig að
menn skrifuðu undir viljayfirlýsingu í
haust og undir henni vinnur maður og
meðan stjómin er ekki búin að ákveða
annað vinnur maður eftir samþykkt
hennar. Meðan annað er ekki ákveðið
gildir viljayfirlýsingin og það var alls
ekkert erfitt að vinna eftir henni,“ seg-
ir Sigurgeir Brynjar. En nú var tafið
mjög lengi að svara og þið gerðuð áætl-
anir sem Geir segir að óháðir aðilar
hafi verið fengnir til að fara yfir. Sýn-
ir þetta ekki að menn vora að leita
leiða til aö rifta samrunaáætluninni?
„Það er þannig að þegar menn era
að fara í gegnum svona mikil og stór
viðskipti er ekkert óeðlilegt að menn
taki sér smátíma til að fara yfir málin,
auk þess að fundur stjómar hafði ver-
ið fyrirhugaður fyrir ábyggilega 10
dögum, en það var ekki flugfært til
Eyja í fjóra daga.
Það var 15. októ-
ber sem við ætl-
uðum að vera til-
búnir með sam-
runaáætlunina
en það var í raun-
inni ekki fyrr en
24. október sem
reikningar félag-
anna vora sam-
þykktir og þá var
það einfaldlega
þannig að meiri-
hluti stjómar
Vinnslustöðvar-
innar var ekki á
landinu næstu
tvær vikumar."
Nú hefúr Sigur-
geir verið mikið
forstjóri ísfé- gagnrýndur fyrir
að búa ekki í
Vestmannaeyj-
um: Hyggst hann flytjast þangað? „Sá
sem ætlar sér að vera framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar verður að
búa í Eyjum og það er ekkert hik á
mér í þeim efnum," segir Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson. „Hann er bara
forstjóri Vinnslustöðvarinnar og það
hefur ekki verið tekin ákvörðun um
neitt annað,“ segir Geir Magnússon.
Samkvæmt heimildum DV var Sigur-
geir Brynjar enn skráður forstjóri til
bráðabirgða í síðustu tilkynningu
stjómar Vinnslustöðvarinnar til Verð-
bréfaþings Islands.