Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Blaðsíða 13
Um leið og við óskum landsmönnum árs og friðar viljum við
minna á nokkur atriði sem ber að hafa í huga á nýju ári ...
Skatthlutfall í staðgreiðslu 2000
Skatthlutfall í staðgreiðslu verður
38,37%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra
sem fædd eru 1985 eða síðar, er 6% af
tekjum umfram frítekjumark barna sem er
kr. 83.933
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er kr. 286.944 á ári,
eða kr. 23.912 á mánuði. Samkvæmt
nýsamþykktum lögum má nýta 85% af
ónýttum persónuafslætti maka á árinu
2000.
Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð
Lífeyrisiðgjald sem halda má utan
staðgreiðslu er 4% af launum eða
reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að færa
að auki allt að 2% frádrátt vegna iðgjalda
samkvæmt samningi um viðbótartrygg-
ingavernd, enda séu iðgjöld greidd
reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr.
8. greinar laga um skyldutryggingu
lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Tryggingagjald launagreiðenda o.fl.
Tryggingagjald, markaðsgjald og gjald í
ábyrgðarsjóð launa á árinu 2000 verður í
einu gjaldstigi, 5,23% á laun ársins. Hjá
útgerðum fiskiskipa vegna launa sjó-
manna bætast við þetta 0,65% og verður
gjald þeirra alls 5,88%.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Verðbreytingastuðull
Verðbreytingastuðull skv. 26. gr. laga nr.
75/1981 verður 1,0561 fyrir árið 1999.
Orðsendingar um skatthlutfali og um
skattmat í staðgreiðslu verða sendar
næstu daga en þar koma fram ítarlegar
upplýsingar um þessi atriði.
Við minnurn á orðsendingu sem send
var launagreiðendum í nóvember þar
sem er að finna allar upplýsingar um
útfyllingu launamiða og launaframtals.
Skilafrestur vegna launamiða og launa-
framtals er til 21. janúar 2000.
Að lokum minnum við á að allar upp-
lýsingar er að finna á upplýsingavef
ríkisskattstjóra rsk.is