Dagblaðið Vísir - DV - 31.12.1999, Blaðsíða 36
40
FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1999 JDP'V
mtlönd
Albanskir íbúar Kosovo-héraðs máttu þola miklar hörmungar á árinu þegar Serbar hröktu þá burt frá heimilum sínum svo hundruðum þúsunda skipti.
Atlantshafsbandalagið hélt uppi loftárásum á Júgóslavíu í margar vikur til að knýja Serba til að láta af þjóðernishreinsunum sínum f Kosovo. Þessi mynd
sýnir flóttamenn á leið upp forugan fjallveg eftir að þeir fengu að fara inn fyrir landamæri nágrannaríkisins Makedóníu.
Arið sem Evrópa fér í stríð
Árið, sem er á enda, er árið sem
Evrópa fór í stríð. Valdamestu ríki
heims drógust inn í þjóðernisátök í
suðausturhluta Evrópu. Kosovo-
stríðið var ekki þau ragnarök sem
bölsýnismenn höfðu spáð. En brott-
rekstur Slobodans Milosevics
Júgóslavíuforseta á Albönum frá
Kosovo leiddi til mestu loftárása í
Evrópu frá seinni heimsstyrjöld-
inni.
Árið 1999 var einnig árið sem
Bandaríkin héldu forseta sem þau
töldu að þau myndu missa, það er
Bill Clinton, og misstu forseta sem
þau hefðu ef til vill fengið, John F.
Kennedy yngri.
Spillingarfen stjórnmála
Rússland sökk dýpra í spillingar-
fen stjórnmálanna og kapítalisma
maflósa samtímis því sem þriðji for-
sætisráðherra landsins á árinu
sendi skriðdreka til að bæla niður
uppreisn múslíma í Tsjetsjeníu.
Áustur-Timorbúar losnuðu una-
an oki Jakarta. Átök múslíma og
kristinna, vaxandi aðskilnaðar-
stefna og öngþveiti í efnahagsmál-
Gwyneth Paltrow naut mikilla vin-
sælda í Hollywood á árinu. Hér sést
hún í hlutverki sínu í óskarsverð-
launamyndinni Ástfanginn Shake-
speare. Sjálf fékk hún óskar.
Ástralskur hermaður beinir riffli sín-
um að manni sem grunaður er um
að vera í vígasveitum andstæðinga
sjálfstæðis Austur-Tímors. Víga-
sveitir gengu berserksgang og
myrtu mikinn fjölda manna eftir að
Ijóst var að íbúar Austur-Tímors
höfnuðu áframhaldandi sambandi
við Indónesíu.
um og pólitík héldu þó áfram að
valda umróti í Indónesíu.
Á árinu sem er að líða varð út-
hlutunarnefnd óskarsverðlaunanna
ástfangin af Shakespeare, stráka-
hljómsveitir nutu enn sömu vin-
sælda og allur nýr varningur í
verslunum var með merkimiða sem
á stóð millennium eða þúsund ár.
Bókstafstrúarmenn í stærðfræði,
sem bentu á að þriðja árþúsundið
samkvæmt tímatali Krists hæfist
ekki fyrr en 2001, voru afgreiddir
sem sparðatinendur.
Yfirvöid og fyrirtæki höfðu varið
gífurlegu fé í undirbúning og ætl-
uðu ekki að láta staðreyndir koma í
veg fyrir góða veislu.
Hraðbankar leika ekki
jólalög
Fyrirtæki fullvissuðu viðskipta-
vini sína um að þau væru örugg fyr-
ir 2000-vandanum. Flugvélar myndu
ekki hrapa niður úr háloftunum og
hraðbankar myndu ekki leika jóla-
lög um leið og þeir gleyptu banka-
kortin okkar á nýársdag.
Sumir bankar í Evrópu voru viss-
ir um að tölvurnar þeirra réðu við
breytinguna þegar i ljós kom að ótt-
inn um hrun hraðbankavéla, þegar
tekin var upp sameiginleg evrópsk
mynt, reyndist ástæðulaus. Um 300
milljónir Evrópubúa vöknuðu upp
við það í janúar að tekin hafði ver-
ið upp sameiginleg evrópsk mynt í
fyrsta sinn frá því á tímum róm-
verska keisaradæmisins.
Skammvinn sæluvíma
Vesturlanda til að hrekja burt ein-
vald sem komið hefur sér vel fyrir.
Nítján aðildarríki NATO
eyðilögðu stóran hluta samgöngu-
kerfis Serbíu með sprengjum og
flugskeytum. Forsetarnir tveir í
Washington og Moskvu, sem báðir
voru í veikri stöðu, deildu um hern-
aðaraðgerðirnar og Kína blandaðist
inn í málið eftir loftárás NATO á
kínverska sendiráðið í Beigrad.
rir horn í
Lewinskymálinu
Sæluvíman var hins vegar
skammvinn því nýja evran fór að
falla gagnvart doÚarnum. Sumir
Þjóðverjar veltu því fyrir sér hvort
ekki hefði verið viturlegra að halda
hinu volduga marki sem eitt
Júgóslavíulýðveldið, Svartfjalla-
land, tók upp i stað eigin gjald-
miðils, dinarsins.
Allar spár um að
Milosevic
Júgóslavíuforseti
félli af valdastóli
reyndust rangar.
Hann sannaði,
eins og Saddam
Hussein íraks-
forseti hafði áður
gert, að það þarf
meira en
aðarmátt
Bill Clinton slapp fyrir horn í
fyrstu réttarhöldunum á þessari öld
sem höfðuð voru til embættismissis.
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrum Sovétleiðtogi, kveður Rafsu eiginkonu sína
hinstu kveðju. Raísa lést á sjúkrahúsi í Þýskandi í september.
Þetta gerðist líka
á árinu 1999:
Rósirnar bræddu
ekki konuhjartað
Árið byrjaði ekki vel fyrir ítal-
ann Roberto sem reyndi að fá
kærustuna sina, hana Al-
essöndru, til að hætta við að
hætta við að
giftast hon-
um. Al-
essandra lét
ekki segjast
og skipti þá
engu þótt Ro-
berto léti
færa henni
1480 rósir.
Eina rós fyrir hvern dag sem
þau voru trúlofuð.
Roberto færði sinni heittelsk-
uðu meira að segja sjálfur síð-
ustu rósina, kom ríðandi á hesti
að veitingastaðnum þar sem Al-
essandra sat að snæðingi með
fjölskyldu sinni.
Eini maðurinn sem græddi á
örvæntingarfullum tilraunus Ro-
bertos var blómasalinn.
Fékk bréf frá Elvis
eftir 39 ára bið
Betra er seint en aldrei hlýtur
hún Karen Golz að hafa hugsað í
janúar þegar henni barst bréf frá
sjálfum rokkkónginum Elvis
Presley, 39 árum eftir að það var
póstlagt.
Karen, sem var og er mikill
aðdáandi Presleys, hafði beðið
goðið um eiginhandaráritun fyr-
ir 11 ára afmælið sitt árið 1960.
Bréfið kom ekki og Karen viður-
kennir að hafa grátið á afmælis-
daginn.
Drap kærustuna,
sauð hana og át
Tuttugu og fjögurra ara gam-
all Breti var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi á árinu fyrir að drepa
kærustuna, sjóða af henni annað
lærið og snæða það síðan með
pasta og ostasósu.
Maðurinn bar að hann hefði
dreymt um að verða frægur
raðmorðingi.
Vilja eiga titrar-
ana sína í friði
Hópur kvenna í Alabamaríki í
Bandaríkjunum vildi fá að eiga
titrarana sína og önnur hjálpar-
tæki ástarlífsins i friði. Konum-
ar höfðuðu mál á hendur ríkinu.
Lögmaður kvennanna sagði að
með banni sínu á hjálpartækjun-
um væri hið opinbera að skipta
sér af því sem fram færi í svefn-
herbergjum almennings.
íkveikja eftir rifr-
ildi um málverk
Hjónarifrildi getur haft marg-
víslegar afleiðingar í för með
sér, eins og sannaðist best í Dan-
mörku. Þar kveikti karlmaður
nokkur í húsi sínu eftir heiftar-
legt rifrildi við frúna. Deiluefn-
ið? Jú, hjónin voru ekki sam-
mála um hvar og hvernig skyldi
hengja málverk upp á stofuvegg-
ina.