Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2000, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
Fréttir
Viö réttarhaldið í gær. Jónas Jóhannsson héraösdómari lengst til vinstri. Ákæröi situr lengst til hægri ásamt verjanda sínum.
DV-mynd Teitur
23 ára Hafnfiröingur sem gekk berserksgang á Álftanesvegi í september:
Stakk þrjá og henti stór-
um steini í höfuð konu
- tveir stungnir, einnig lögreglumaöur og lögreglukona fékk stein í höfuðið
„Hann reyndi að reka hnífinn í
skrokkinn á mér. Fyrstu atlögumar
fóm ekki i gegnum jakkann. Síðan
fann ég að hnífurinn stakkst inn í
hægri handlegginn á mér,“ sagði Páll
Winkel, lögreglumaður í Kópavogi og
laganemi, í réttarhaldi vegna 23 ára
Hafnfirðings sem er ákærður fyrir að
stinga Pál með hnífi og einnig tvo
aðra menn, kasta stórum grjóthnull-
ungi í höfuð lögreglukonu, líflátshót-
anir og brot gegn fólki í opinberu
starfl á Áiftanesvegi í Garðabæ að
morgni 12. september.
' " I 1
í dómsalnum
Ottar Sveinsson
Átta lögreglumenn, þar af tvo sér-
sveitarmenn úr Reykjavik, þurfti til
að yfirbuga sakborninginn þegar um-
sátursástand skapaðist á Álftanesveg-
inum framangreindan morgunn.
Athygli vekur i máli þessu að ungi
maðurinn, sem stakk þrjá einstak-
linga með hnífl í miklu æðiskasti og
kastaði stórum steini í höfuð fjórða
aðilans, er einungis ákærður fyrir
brot gegn 217. grein hegningarlaganna
- minni háttar líkamsárás. Maður
þessi, Sigurður Sörensson, var árið
1993, þá 17 ára, og síðan árið 1996
dæmdur fyrir að sparka í höfuðið á
liggjandi fólki.
„Ég verð bara að biða þessa 6 mán-
uði,“ sagði framangreindur Páll lög-
reglumaður við réttarhaldið í gær, að-
spurður um afleiðingar hnífstungunn-
ar. „Þetta eru fiklar og það er hætta á
blóðblöndun," sagði Páll og vísaði til
hættu á lifrarbólgusmiti. Páll sagði
jafnframt að það hefði greinilega ver-
ið einbeittur ásetningur ákærða að
beita hnífnum og kasta grjóti í áttina
að lögreglumönnum. Þeim bar fLest-
um saman um það við réttarhaldið í
gær að ákærði hefði í um tíu skipti
kastað hnefastórum hnullungum að
lögreglumönnunum sem skýldu sér
m.a. á bak við bíla. í eitt skiptið lenti
steinn í höfði lögreglukonu með þeim
afleiðingum að hún fékk skurð á
vanga og í annað skipti brotnaði rúða
i lögreglubíl.
Gekk alltaf meö hníf á mér
„Ég veit ekki hvenær ég tók upp
hnífinn," sagði Sigurður við réttar-
haldið í gær. Hann kvaðst hafa gengið
heiman frá sér í Hafnarfirði og tekið
slökkvitæki með sér, sennilega í „ein-
hverjum húmor“ eftir að hafa verið
búinn að drekka „eina kippu af bjór
og slátra einni brennivínsflösku". „Á
þessum tíma var ég búinn að vera í
fikniefnum en hafði þó verið „strait"
af þeim í 2 vikur. Síðan datt ég í það,“
sagði Sigurður.
Hann hitti hann tvo félaga sína,
sem voru á bíl, á Álftanesvegi um-
ræddan morgun og var á leið í partí.
Kom þar til deilna, svo ekki sé meira
sagt. Ákærði stakk annan félaganna
tvisvar en hinn einu sinni. Tilviljun
er talin hafa ráðið því að sárin voru
ekki alvarlegri en raun bar vitni því
a.m.k. annar þeirra heldur því fram
að ákærði hefði reynt að stinga sig í
brjóstið.
Eftir þetta var kallað á aðstoð lög-
reglu.
„Ég held ég hafi verið með hnífinn
þegar lögreglan kom,“ sagði ákærði.
Hnífurinn, stór vasahnífur, var sýnd-
ur við réttarhaldið í gær. „Ég gekk
alltaf með hann á mér,“ sagði ákærði
sem að flestu leyti kvaðst ekki muna
eftir því sem geröist á vettvangi.
Hann hótaöi aö drepa okkur
„Hann hótaði að drepa okkur ef við
kæmum feti nær. Hann var með hníf-
inn á lofti," sagði lögreglumaður úr
Hafnarfirði í réttarhaldinu en hann
kom fyrstur á vettvang ásamt starfsfé-
laga sínum, konu. Hann ákvað að
kalla á aðstoð. Komu þá tveir aðrir
lögreglumenn úr Hafnarfirði og tveir
úr Kópavogi, karl og kona. „Hann fór
að grýta okkur með steinum úr veg-
kantinum. Hann sagði: „Þið náið mér
ekki nema að skjóta mig,“ „ sagði lög-
reglumaðurinn úr Hafnarfirði um
ákærða á vettvangi. „Við hörfuðum
undan grjóthriðinni og biðum aðstoð-
ar sérsveitar lögreglumanna úr
Reykjavík."
„Hann var viti sínu fjær og til alls
líklegur," sagði sami lögreglumaður
við fyrstu skýrslutöku eftir atburðinn
og staðfesti í gær að sá framburður
væri réttur. Hann sagði jafnframt - á
sama hátt og aðrir lögreglumenn í
gær - að grjóthnullungaskotin hefðu
verið „fóst og miðað á ákveðna lög-
reglumenn".
Lögreglukonan úr Hafnarfirði, sem
kom fyrst á vettvang, sagðist hafa
snúið sér að ungu piltunum tveimur
sem höfðu orðið fyrir hnífstungum -
annar þeirra var fluttur á brott með
sjúkrabíl.
Reyndi aö stinga af
á lögreglubíl
Einn steinanna stóru lenti í höfði
lögreglukonu úr Kópavogi. PáU sagði
að sér hefði reyndar sýnst að ákærði
heföi þá verið að miða á sig.
Lögreglubíllinn úr Kópavogi stóð
skammt frá. Eftir að sérsveitarmenn
lögreglunnar úr Reykjavík komu, m.a.
vopnaðir skjöldum, hljóp ákærði að
Kópavogsbílnum og settist undir
stýri.
Hlupu þá þeir lögreglumenn á eftir
honum sem það gátu, Páll, sérsveitar-
mennimir og fleiri, báðum megin að
bílnum til að yfirbuga manninn.
„Hann var að reyna að snúa lyklinum
í kveikjulásnum þegar við komurn,"
sagði annar sérsveitarmannanna í
gær.
Akæröi var yfirbugaður
„Ég var gjörsamlega blindur í 12
tima á eftir,“ sagði Sigurður sem fékk
táragas framan í sig þegar lögreglu-
mennirnir vom að yfirbuga hann. Á
þeim tíma stakk ákærði í handlegg
Páls lögreglumanns - greinilega með
þeim ásetningi um að stinga hann i
skrokkinn, að sögn Páls. Auk þess er
talið að ákærði hafi sjálfur tvíhand-
leggsbrotnað einmitt í þeim átökum.
Telst þetta minni háttar iík-
amsárás?
Ákærði er nú búsettur í Dan-
mörku. Hann svaraði öllum spum-
ingum greiðlega og af kurteisi við
réttarhaldið í gær. Lögmaður hans
sýndi skjöl sem staðfesta skóla-
göngu hans ytra og upplýsti hann
einnig að sakborningurinn hefði
haldið sig bæði frá fíkniefnum og
áfengi frá því að atburðurinn átti
sér stað.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
mun kveða upp dóm fljótlega í mál-
inu. Eins og fyrr greinir vekur sér-
staka athygli í þessu máli að ríkis-
saksóknari gefur sakborningnum
einungis að sök brot gegn 217. grein
hegningarlaganna, minni háttar lík-
amsárás. Varla þarf sérfræðiþekk-
ingu til að sjá að af framangreind-
um framburðum lögreglumanna og
annarra málsaðila má ljóst vera að
það var ekki sakbomingnum að
þakka að allir sluppu lifandi á Álfta-
nesvegi í Garðabæ að morgni
sunnudagsins 12. september.
Dómara er ekki heimilt að dæma
sakborning í meiri refsingu en það
lagaákvæði sem brotið er heimfært
á kveður á um.
Þegar sakbomingurinn var árin
1993 og 1996 dæmdur fyrir að sparka
í höfuð á liggjandi fólki hlaut hann
í fyrra skiptið 20 daga skilorðsbund-
iö varðhald en í það síðara óskil-
orðsbundið 20 daga varðhald.
2000-vandinn liggur utan á
- segir Bjössi í World Class
„Það er áberandi hvað fólk hefur
þyngst og má með sanni segja að
2000-vandinn kom
ekki frá tölvunum
heldur liggur hann
utan á fólkinu. Ef
þjóðin bæði fitnar
og eldist verður
þetta ærið vanda-
mál í framtíðinni
og afar dýrt fyrir
Björn Leifs- heilbrigðiskerfið,"
son. segir Bjöm Leifs-
son í líkamsræktar-
stöðinni World Class.
Janúarmánuður er vel til þess
fallinn að hefja nýjan og betri lífs-
stíl enda margir sem hafa strengt
það áramótaheit að rækta líkama
sinn betur.
Gaui litli braut múrana
Nú er svo komið að það er ekki
bara fallega og vel vaxna fólkið sem
sækir líkamsræktarstöövar. „Það
var hending að sjá fólk yfir kjör-
þyngd i líkamsræktarstöðvum fyrir
nokkrum árum en Gaui litli hefur
náð að brjóta múrana og fólk í öll-
um þyngdarflokkum sækir stöðv-
arnar,“ segir Bjöm.
Fjöldi fólks vill þyngjast
En nú eru ekki allir sem eru yfir
kjörþyngd. Aðrir vilja eða þurfa að
auka við þyngd sina og er þá tilval-
ið fyrir þá að sækja stöðvamar.
„Það er töluverður fiöldi fólks sem
leitar til okkar eingöngu til að
þyngjast. Við mælum með því að
lyfta lóðum og taka þá færri æfing-
ar en lyfta þyngri lóðum. Þeim er
ekki ráðlagt að fara í leikfimitím-
ana og alls ekki hlaupabretti því
þau auka brennslu líkamans. Við
höfum þjálfara í salnum sem leið-
beinir þeim viðskiptavinum sem til
Björn Leifs-
son.
fólkinu
okkar leita og hannar æfmgakerfi
fyrir hvern og einn. Þá er vinsælt
að neyta fæðubótarefna en þau eru
til fyrir alla, hvort sem fólkið vill
þyngjast, léttast eða auka við sig
vöðvamassann. En því má ekki
gleyma að boröa fiölbreytta og vel
samsetta fæðu og hugsa vel um sig,“
segir Björn. -hól
Hafnfirðingar, athugið!
Nú er runninn upp tími þeirra
athafna þegar fólk tekur niður jóla-
tré og skraut. Flestir vita hvemig
skal athafna sig við
þá iðju en þó er all-
ur varinn góður.
Ætla má, ef marka
má Morgunblaðið í
gær, að nokkuð
hafi borið á því
undanfarin ár að
Hafnfirðingar
hafa hent út
jólatrjám sínum
með skrauti og seríum. Þá munu
bæjarstarfsmenn einnig hafa tekið
lifandi tré úr görðum samborgara
sinna í misgripum fyrir úrelt og
visnuð jólatré. Mogginn í gær færði
Hafnfirðingum leiðbeiningar frá
bænum um það hvemig skuli taka
niður jólatré. Þar er því lýst að
Hafnarfiarðarbær muni nú „sem
endranær" farga trjám bæjarbúa.
Síðan koma nákvæmar leiðbeining-
ar: „Hafnarfiarðarbær minnir bæj-
arbúa á að fiarlægja skrautið af
trjánum og merkja vel þau tré sem
eru rótföst við bæjarmörkin!"
Viðvörun
Sigur Svavars Guðnasonar út-
gerðarmanns á kvótakerfinu hefur
vakið mikla athygli. Svavar Vatn-
eyrargoði hélt kvóta-
laus á sjó og veiddi
þorsk í tonnatali.
Stjórnarþingmenn-
irnir Guðjón
Guðmundsson og
Kristján Pálsson
vöruðu við því á
sínum tíma að
lagagrunnur
kvótans væri
ótraustur. Kristján stóð í harðri
baráttu gegn því að veðsetning
kvótans yrði heimiluð vegna þessa
veikleika en hafði ekki erindi sem
erfiði og uppskar óvinsældir innan
flokks. Nú, þegar bankakerfið skelf-
ur og nötrar, segir sagan að Krist-
ján glotti út í annað og minni á að
hann hafi varað við ósköpunum
sem dunið gætu yfir...
Maður ársins
Frjáls verslun valdi í lok ársins
Pál Sigurjónsson, forstjóra ístaks,
mann ársins í viðskiptalífinu. Um
líkt leyti og verið
var að ganga frá út-
nefningu hans var
verið að ganga frá
samningum um að
ístak keypti sig
inn í byggingar-
áform Skeljungs á
horni Laugaveg-
ar og Kringlu-
mýrarbrautar. Fyrir
þetta greiddi ístak 105,7 millur.
Svo skemmtilega vill til að
stjómarformaður Skeljungs og eig-
andi og útgefandi Frjálsrar verslun-
ar er sami maðurinn, Benedikt
Jóhannesson. Hann hefur því ver-
ið í góðri aðstöðu til að fylgjast með
Manni ársins við samningaborðið...
Finnur heitinn
Töluverð gremja er innan Fram-
sóknar í garð Finns Ingólfssonar
eftir skyndilegt brotthvarf hans.
Sumir ráðherrar
flokksins eru honum
bálreiðir og telja að
hann gera flokkn-
um mjög erfitt fyr-
ir. Kjósendur muni
eðlilega draga þá
ályktun að Finnur
telji framtíð
flokksins afar
veika, sjálfur hafi hann líka tal-
að um yfirvofandi kreppu, auk þess
sem flótti hans verði óhjákvæmiiega
túlkaður sem vantrú á að Fljótsdals-
virkjun muni koma. En segja má að
ferill Finns hafi staðið og fallið með
að hún kæmi. Einn ráðherra flokks-
ins mun víst ekki tala um hann
öðruvísi en i nöpmm hæðnistón
sem Finn heitinn...
Umsjón Reynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is