Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.2000, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000
15
Fátt virðist hafa
reynt meira á skaps-
muni formanns Fram-
sóknarflokksins að und-
anfórnu en velgengni
Vinstri hreyflngarinnar
- græns framboðs. Sú
velgengni hefur komið
fram í skoðanakönnun-
um sem vissulega er
ekki sama og úrslit í
kosningum. Það ber
jafnframt við að fylgi
Framsóknarflokksins
mælist hverfandi.
Kjallarinn
Sýn Halldórs for-
manns
Jafnvægi formanns
Framsóknarflokksins
færðist svo mjög úr ___________
skorðum að bæði sjón
hans og hugsun óskýrðist. Af
fréttamyndum frá landsfundi
Vinstri grænna sá hann enga aðra
en gamla komma. Og enn fmnur
formaðurinn enga aðra skýringu á
gengi Vinstri grænna en þá að
kommunum fjölgi þar óðum.
Nú er því ekki hægt að neita að
meðal liðsmanna
vinstri grænna eru
vissulega gamlir
kommar. Þar hafa
menn séð t.d. Óla
(komma) Jónsson
og Ragnar (skjálfta)
Stefánsson (svo
maður nefni tvo
góða) auk þekktra
valkyrja úr sömu
röðum.
Einnig bregður
fyrir gömlum og
ungum krötum.
Auk þess hefur
fyrrverandi erind-
reki Framsóknar-
flokksins, sem
þetta ritar, borið, á
fundum vinstri
grænna, kennsl á
margan góðan og gamlan og ungan
framsóknarmann. Loks má geta
þess að í flokk Vinstri grænna
gengur nú fólk sem ekki hefur
áður fest sig í flokksstarfi.
Skýringar
Sé vikið að skýringum þá er það
skoðun margra að undir stjórn
Halldórs Ásgrímssonar hafi Fram-
sóknarflokkurinn gerst harðsvír-
Kristinn Snæland
leigubílstjóri, fyrrv. er-
indreki Framsóknar-
flokksins
„Að taka manngildið fram yfír
auðgildið, gömul hugsjón sam-
vinnu- og framsóknarmanna, fell-
ur ekki að hugmyndum forystu
Framsóknarfíokksins undir stjórn
Halldórs Ásgrímssonar sem að
eigin sógn kýs sér það hlutskipti
að berast með straumnum."
aður hægri flokkur þrátt fyrir að
Halldór hamri sífellt á miðjuskýr-
ingum. En sú einkavæöing og
markaðshyggja sem tröllríður
þjóðinni og almenningi er farið að
blöskra er á ábyrgð Framsóknar-
flokksins. Afleiðingin er m.a. sú,
að fjármagn er sogað frá þeim sem
eiga ekki og tii þeirra sem eiga.
Ríkisstofnanir og rikisfyrirtæki
eru færð sömu fjármálaöflum á
silfurfati.
Greinarhöfundur segir það skoðun margra að undir stjórn Haltdórs Asgrímssonar hafi Framsóknarflokkurinn gerst
harðsvíraður hægri flokkur.
Að taka manngildið fram yfir
auðgildið, gömul hugsjón sam-
vinnu- og framsóknarmanna, fell-
----------L ur ekki að hug-
myndum forystu
Framsóknarflokks-
ins undir stjórn
Halldórs Ásgríms-
sonar, sem að eigin
sögn kýs sér það
hlutskipti að berast
með straumnum.
Vinstri grænir berj-
ast gegn straumn-
um, sagði Halldór á
miðstjórnarfundi
Framsóknarflokks-
ins á dögunum. -
Þá þótti mér vænt um Halldór.
Stendur fyrir sannri
jafnaöarstefnu
Svo blindur er Halldór á ferð
sína með straumi frjálshyggju,
markaðsvæðingar og einkavæð-
ingar að hann hvorki sér né skilur
að einmitt sú afstaða vinstri
grænna að berjast gegn þessum
straumi fjármálaaflanna sem taka
auðgildið fram yfir manngildið
veitir vinstri grænum þaö
mikla fylgi sem að þeim sóp-
ast. Vinstri grænir eru í raun
eini flokkurinn sem stendur
fyrir sannri jafnaðarstefnu og
tekur harða afstöðu gegn
einkavæðingu og markaðs-
hyggju. Vinstri grænir hafa
raunverulega fólkið í fyrir-
rúmi og taka manngildi fram
yfír auðgildi. Þetta tvennt ætti
Halldór að kannast við úr
stjórnmálaályktunum Fram-
sóknarflokksins frá fyrri tíð.
Nú fmnast þessi fyrirheit þar
ekki lengur og virðist því flokk-
urinn eins og formaðurinn ber-
ast með straumnum. Fólki er
ofboðið. Líka gömlum og góð-
um framsóknarmönnum.
Að lokum kýs ég að þakka
Halldóri fyrir þá ábendingu á
fundi miðstjómar Framsókn-
arflokksins að ítreka þá stað-
reynd að vinstri grænir berj-
ist gegn straumnum. Þá tók
fylgi vinstri grænna enn góð-
an kipp upp á við. Þakka þér,
Halldór.
Kristinn Snæland
Manngildi - auðgildi
- markaðshyggjan á ábyrgð Framsóknarflokksins
Kvótaflokkarnir á Alþingi
- dómskerfið veitir þeim annað rothögg á einu ári
Dómur Héraðsdóms Vestfjarða í
máli gegn eigendum og skipstjóra
á Vatneyri BA 238 er stórtíðindi og
vekur miklar vonir um að sigur
réttlætisins sé í nánd í mesta
deilumáli síðari ára í íslensku
samfélagi. Dómurinn byggir alfar-
ið á þeim rökstuðningi sem kom
fram frá Hæstarétti í máli Valdi-
mars Jóhannessonar fyrir ári og
er beinlínis í rökréttu framhaldi af
honum.
Það eru þær reglur stjórnar-
skrárinnar að allir skuli njóta
jafnræðis gagnvart lögunum og að
allir skuli hafa jafnan rétt til að
stunda atvinnurekstur sem eru
brotnár með núgildandi úthlutun
kvótans. Máske fellur þetta órétt-
láta og háskalega kerfi áður en
fjölmargar sjávarbyggðir umhverf-
is landið fara í eyði vegna þess að
veiðirétturinn hefur verið seldur i
burtu.
Óábyrg viöbrögö viö dómi
Hæstaréttar í fyrra
I stað þess að nota tímann til að
móta reglur um stjóm fískveiða á
jafnræðisgrund-
velli kusu stjóm-
völd að snúa út
úr dómi Hæsta-
réttar fyrir ári
og skilgreina
hann út frá mjög
þröngu sjónar-
horni. Þess
vegna hefur heilt
ár liðið til ónýt-
is. Þess vegna er
nú mikil hætta á
að stjórnlausar
veiðar muni
hefjast 'í kjölfar
þessa dóms. Kvótaflokkarnir á Al-
þingi, sem hafa farið sinu fram ár
eftir ár gegn vilja þjóðarinnar,
bera þunga ábyrgð í þessu máli.
Nú ættu þeir sem bera ábyrgð á
þessari óheillastefnu og hafa varið
hana fram á þennan dag að sjá að
sér og taka þátt i alvöruumræðu
um fiskveiðistjórn sem byggð
verði á jafnræði og rétt-
læti.
Ef stefnumótun af því
tagi verður ekki hafin
þegar í stað er stjórn-
leysi og öngþveiti fram
undan.
Það er vel hægt að
stjóma fiskveiðum án
þess að mismuna þegn-
unum með þeim herfi-
lega hætti sem gert hefur
verið. Tiilögur um fisk-
veiðistjórnun þar sem
jafnræðis er gætt milli
þeirra sem starfa í grein-
inni hafa legið fyrir
lengi.
Sjávarútvegsnefnd
hefjist þegar handa
Að tala um að stjóm-
kerfið sé hrunið er óá-
byrgt tal. Það er ekki
hrunið nema menn vilji að það
hrynji.
Að það verði efnahagslegt hrun
ef þessi dómur verður staðfestur í
Hæstarétti eins og framkvæmda-
stjóri LÍÚ segir er fáránlegt og lýs-
ir einungis þeirri övæntingu sem
grípur þá sem vilja viðhalda for-
réttindum þeima sem hafa sérað-
stöðu með núgildandi fyrirkomu-
lagi. - Sjávarútvegsnefnd Alþingis
hefjist þegar
handa.
Fyrir heilu ári
hundsuðu stjórn-
völd þá grundvall-
arhugsun um jafn-
ræði með vísun til
stjómarskrárinn-
ar sem birtist í
dómi Hæstaréttar.
í stað þess að hefj-
ast þá þegar
handa við endur-
skoðun stjórnkerf-
isins kusu þau að
verja einkaeignar-
haldið á kvótan-
um fram í rauðan
dauðann. Þess
vegna verður sá
aðlögunartími
sem útgerðin í
landinu fær að
nýju fyrirkomu-
lagi líklega styttri en hann hefði
getað orðið.
Það hlýtur að vera krafa nú á
hendur stjómvöldum að strax
verði brugðist við af ábyrgð og
festu. Sjávarútvegsnefnd Alþingis
verði kvödd saman til að leita
sátta um reglur um stjórnkerfi
flskveiða sem byggjast á jafnræði
og réttlæti.
Jóhann Ársælsson
„Fyrir heilu ári hundsuðu stjórn-
völd þá grundvallarhugsun um
jafnræði með vísun til stjórnar■
skrárinnar sem birtist í dómi
Hæstaréttar. í stað þess að hefj-
ast þá þegar handa við endur-
skoðun stjórnkerfísins kusu þau
að verja einkaeignarhaldið á kvót-
anum fram i rauðan dauðann
Kjallarinn
,Jóhann
Ársælsson
alþingismaöur, fulltrúi
Samfylkingarinnar í
sjávarútvegsnefnd
Alþingis
Með og
á móti
Á aö setja upp eftirlits-
myndavélar í og viö grunn-
skóla hér á landi?
Nokkur umræða hefur veriö meöal
kennara og skólastjóra um þaö hvort
koma eigi upp eftirlitsmyndavélum viö
skóla og á skólagöngum.
Slíkur búnaöur hefur veriö settur upp í
fjórum grunnskólum á
höfuöborgarsvæöinu og skólastjórar fleiri
skóla hafa fariö þess á leit að fá aö reyna
slíkan búnaö.
Hamlar gegn
einelti og
skemmdarverkum
„Ég er ein-
dregið hlynnt-
ur því að reyna
öryggismynda-
vélar á skóla-
lóðum og skóla-
göngum og tel
að þær geti
gagnast kenn-
Urum Og Skóla- Hnar magnússon,
stjórnendum skóiastjóri
með ýmsu Hagaakola'
móti. Ég er hins vegar mótfallinn
því að slíkar vélar séu hafðar í
kennslustofum.
Myndavélar hafa verið settar
upp til reynslu við a.m.k. Árbæj-
arskóla, Foldaskóla og Garða-
skóla. Þar er að koma í ljóst að
búnaðurinn mun borga sig upp á
skömmum tima með umtalsveröri
fækkun skemmdarverka.
Ég tel svo ekki síður mikilvægt
að myndavélar má nýta til að
draga úr, uppræta og koma í veg
fyrir einelti. Eineltismál geta orð-
ið mjög alvarleg ef ekkert er að
gert og því full ástæða til að beita
sér gegn þeim og öðru ofbeldi með
ýmsum ráðum.
Almennt séð held ég að vélarn-
ar muni hægja á þeim nemendum
sem oft eru alltof fyrirferðarmikl-
ir á annarra kostnað. Að þessu
leyti er búnaðinum beitt gegn
þeim sem ganga á rétt annarra
með eyðileggingu og ofbeldi. Það
er til mikils að vinna fyrir alla að-
ila að draga úr slíkri hegðun.
Þessar vélar eru alls engin end-
anleg töfralausn. En þær geta
komið að gagni, öllum til hags-
bóta, sé þeim rétt beitt.“
Eru heimilin
næst ?
„Frelsið
glatast sjaldan
allt í einu. Nú
þegar hefur
stóri bróðir
auga með okk-
ur á ýmsum
gatnamótum
og í miðbæn-
um með
myndavélum.
Það var auð-
vitað varað
Glúmur Jón
Björnsson,
ritstjóri Vef-
Þjóöviljans
við því þegar menn byrjuðu að
fikra sig inn á þessar brautir
meö því að setja upp eftirlits-
myndavélar við gatnamót að
þetta væru bara fyrstu skrefm.
Skömmu síðar voru eftirlits-
myndavélar komnar í miöbæ-
inn. Það er því að koma á dag-
inn sem menn vöruðu við í upp-
hafi. Hvað verður næst? Eru
ekki flestir og alvarlegustu
glæpimir framdir inn á heimil-
um fólks? Það verður lítið mál
fyrir þá, sem réttlæta uppsetn-
ingu eftirlitsmyndavéla til að
koma í veg fyrir rúöubrot við
skóla, að réttlæta uppsetningu
eftirlitsmyndavéla í stofur
landsmanna þar sem alvarlegri
glæpir en rúðubrot eiga sér stað.
Ríkinu er alls ekki treystandi
til að safna upplýsingum af
þessu tagi eins og það hefur sýnt
með því að bera upplýsingar úr
skattskýrslum fólks á torg og
ráðstafa heilsufarsupplýsingum
um fólk að því forspurðu."
-KGK