Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 DV Fréttir Klóakmál á Höfn hafa verið í ólagi í mörg ár: Bölvaður sóðaskapur í samtali DV við íbúa á Höfn í Homafirði á mánu- dag kom í ljós að klóakmál þar í bæ hafa verið í mikl- um ólestri lengi - jafnvel um áraraðir. íbúðabyggð á Höfn er með þeim hætti að afrennsli klóaksins er nán- ast inni miðju íbúðarhverfi. „Þegar ég flutti á svæðið heyrði ég af því að þama hefði eitthvað fólk veikst sökum þessa. Heima hjá mér hefur hins vegar eng- um orðið meint af þessu - líklega höfum við bara aö- lagast þessu,“ sagði Gísli Geir Sigurjónsson, íbúi á Höfn, sem býr við fjöruna. „Það er búið að tala um þetta við bæjarstjómina margoft. Það hefur verið á stefnuskránni að setja upp dælustöð mjög lengi og dæla afrennslinu héðan í aðra dælustöð. Það hefur hins vegar ekki enn þá ver- ið gert og okkur verið sagt að það sé of dýrt - á að kosta einhverjar 10-15 milljónir. Það hefur verið lítið um svör hjá bæjarstjórninni þegar maður hefur spurt hverju þetta sætir. Þetta er - segir íbúi. Börnum haldið frá fjörunni Klóakvandi Á Höfn kemur klóakiö upp úr á stórstraumsfjöru. Reynt er aö fyrirbyggja aö börn komi þar i náttúrlega bölvaður sóðaskapur hvort sem fólk er að veikjast af þessu eða ekki,“ bætti Gísli Geir við. Samkvæmt heimildum DV hafa sumir foreldrar á Höfn brugðið á það ráð að meina börnum sínum að leika sér í fjörunni. Einn heimildar- maður sagðist fylgjast með því hvort börn hans færu eitthvað i fjör- una og reyndi eftir fremsta megni að koma í veg fyrir það. „Ef þau eru síðan að leika sér í fjörunni þrátt fyrir tilmæli manns fylgist maður vel með þvi hvort þau veikist eða verða eitthvað slöpp á næstu dögum.“ Ásmundur Þorkelsson er matvælafræðingur hjá Hollustuvernd ríkisins. „Hollustuvernd hefur fylgst með þessu máli í gegnum sóttvarnarlækni og yfirdýralækni. Málið er það að fólk er að fá salmonellu- og campylobactersýkingar á þessum slóðum og engin skýring fundist enn þá. Matvæli hafa verið rann- sökuð og ekkert fundist í þeim, en við gerum okkur grein fyrir því að tíðni bakteríanna getur verið svo lítil að það þarf að iærrj, taka mjög stór sýni til — þess að finna eitthvað.“ Ásmundur kvaðst ekki hafa heyrt af slælegum klóakmálum á Höfn í Hornafirði, en bætti því við að það væri alls ekki hægt að útiloka að þarna væru einhver tengsl á milli. -ÓRV Hundabúi neitað um starfsleyfi - eigandi segist vera búinn að laga það sem þurfti og hefur sótt aftur um leyfi Umhverfis- og heilbrigðis- nefnd Reykjavíkurborgar neitaði í síðustu viku að gefa hundabúinu að Dals- mynni á Kjalarnesi starfs- leyfi. „Vegna þess að ekki er búið að ganga frá frárennsl- ismálum og öðru sem heil- brigðiðseftirlitið hefur kraf- ist að verði gert áður en leyf- ið er veitt þá sá nefndin sér ekki annað fært en að leggj- ast gegn veitingu starfsleyfisins," sagði Hrannar Björn Amarsson, formaður nefndarinnar. Eigandi hundabúsins, Ásta Sig- urðardóttir, sagði hins vegar að búið sé að gera við það sem þarf að laga. „Það var tvennt að en við erum búin að laga þaö. Þegar við keyptum hér fyrir rúmu ári þá voru frá- rennsli og rotþróin í ólestri en við erum búin að laga þetta allt,“ sagði Ásta. Nýlega var lögum breytt þannig að starfsleyfi þarf fyrir öllu dýrahaldi í at- vinnuskyni og verið er að vinna í því að bú komi sér upp tilskildum leyfum. Lögreglan gefur út þessi leyfi en til þess þarf já- kvæða umsögn umhverfis- og heilbrigðisnefndar. Hundabúið hefur lagt inn aðra umsókn sem nefndin mun líta á eftir að heilbrigðisfull- trúi skoðar búið. Ef vilyrði fyrir starfseminni fæst frá nefndinni verður dýravemdunarráð líka að gefa jákvæða umsögn áður en lög- reglan í Reykjavík getur gefið út starfsleyfi. Hundabúið er með smáhunda- ræktun á 10 mismunandi smá- hundategundum og hefur meðal annars flutt inn 40 hunda. Á átt- unda tug smáhunda er á búinu. -SMK Hrannar B. Amarsson. Neitað um starfsleyfi Hundabúinu aö Dalsmynni á Kjalarnesi var neitaö um starfsleyfi nýverið vegna ófrágengins frárennslis. Eigandi búsins segir að búið sé aö gera viö frárennsliö og hefur búiö sótt aftur um leyfi. Ferðamenn á Krít: í bíltúr með andarteppu íslenskir ferðamenn á Krít hafa þurft að grípa til þess ráðs að aka um miðjar nætur með ferðafélaga sína í bílaleigubílum með loftkæl- ingu til að hlífa þeim við hitabylgj- unni sem þar hefur geisað. Er hér aðallega um eldra fólk að ræða sem fengið hefur andarteppu og þyngsli fyrir brjóst í hitunum ytra. „Við ókum í hringi með loftkæl- inguna á fullu þar til fólkið hafði náð sér og það var okkur þakklátt fyrir,“ sagði einn ferðalanganna sem var svo heppinn aö hafa leigt sér bU með loftkælingu en í síð- ustu viku fór hitinn í Grikklandi vel yfir 40 stig. -EIR Sæplast hf. og Atlantic Island ehf.: Sameina trollkúlu- framleiðslu DV, DALVIK:____________ Sæplast hf. hefur undirritað samkomulag um kaup á fyrirtæk- inu Atlantic Island ehf. í Vest- mannaeyjum með það í huga að sameina fyrirtækin undir nafni Sæplasts hf. Atlantic Island hefur framleitt sprautusteyptar trollkúlur úr plasti tU notkunar um borð í fiski- skipum og eru kúlumar svipaðar þeim sem Sæplast framleiðir á Dal- vík. Áætluð heUdarvelta Atlantic Island er um 24 milljónir króna og hefur um 60% framleiðslunnar far- ið á erlenda markaði. Eigendur fyrirtækjanna skipta á hlutabréfum þannig að eigendur Atlantic fá hlutabréf í Sæplasti gegn afhendingu bréfa í Atlantic Island. Þessi kaup eru i samræmi við áður útgefna yflrlýsingu stjórn- enda Sæplasts um að styrkja fyrir- tækið með fjárfestingum í rekstri sem tengdur eru þeirri fram- leiðslu- og markaðsþekkingu sem félagið hefur yfir að ráða. Með kaupunum skapast mögu- leikar tU hagræðingar í rekstri Sæplasts á Dalvík en unnt verður að sameina framleiðslu Atlantic Is- land þeirri starfsemi sem nú er rekin á Dalvík og draga þannig umtalsvert úr kostnaði. Þessi sameining styrkir Sæplast í þeirri höröu samkeppni sem rík- ir á þessum markaði og frekari möguleikar tU sóknar á erlenda markaði skapast. -HIÁ Veðríö í kvofd Þykknar upp og rignir Suöaustanátt 10 til 15 m/s. og víðast rigning vestaniands. Sunnan- og Suðaustan 8 til 13 og súld eða rigning á Suðausturlandi. Noröaustantil þykknar upp meö hægt vaxandi Sunnanátt. Hlýjast norðaustanlands. Sófargangur og sjávarfölf REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.24 23.37 Sótarupprás á morgun 03.44 02.59 Síödegisflóð 18.12 22.45 Árdegisflóö á morgun 06.25 10.58 Skýrbigar á yeöurtáknum i*~-VINDATT ♦—HITl -10° 'ViNDSTYKKUR i metrum á sokúndu ^rKU O: ö LETTSRYJAÐ HÁLF- SKVJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ ' w Wffi' w ö RiGNiNG SKÚRIR SIYDDA SNJÓK0MA O == ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞÖKA Af skýjum Það verða líklegast flákaský sem við sjáum þegar þykknar upp um helgina. Það eru mjög algeng ský hériendis, svipuð netjuskýjum en mynda þó samfelldari skýjabreiðu sem er lægra á lofti og dekkri á köflum. Þá eiga líklega eftir aö sjást skúraský sunnan- og vestanlands en þaö eru mjög háreist ský, sem geta náð frá lágskýjahæö upp til veörahvarfa. Veðríð á rnorgurr Vœta og skýjað með köflum Sunnan 8 til 13 m/s. og skúrir eða rigning sunnan og vestantil en skýjað með köflum norðaustanlands. SV 5S m/s. og skúrlr sunnan og vestantil en léttskýjat) á NorSur- og Austurlandl. Hltl 8 tll 18 stlg, hlýjast á Norðausturlandl. Þriöjtof W23M Vindun / 8-13 m/v~' Hiti 8° til 18° Nokkuð hvöss suðvestanátt. Smáskúrir vestantll en léttskýjað austantll. Hltl 8 tll 18 stlg, hlýjast austanlands. Midvíkad , VinduR / Hiti 8° til 18° ’ Fremur hæg suðvestanátt. Smáskúrir vestantll en léttskýjaö fyrir austan. Hlýjast austanlands. AKUREYRI skýjaö 12 BERGSTAÐIR léttskýjaö 11 BOLUNGARVÍK léttskýjaö 11 EGILSSTAÐIR 11 KIRKJUBÆJARKL. skýjað 15 KEFLAVÍK léttskýjaö 13 RAUFARHÖFN skýjaö 10 REYKJAVÍK léttskýjaö 14 STÓRHÖFÐI léttskýjaö 13 BERGEN hálfskýjaö 14 HELSINKI skýjað 17 KAUPMANNAHÖFN skýjað 17 OSLÓ alskýjaö 15 STOKKHÓLMUR 16 ÞÓRSHÖFN skýjaö 12 ÞRÁNDHEIMUR rigning 11 ALGARVE heiöskírt 29 AMSTERDAM skúrir 14 BARCELONA hálfskýjaö 24 BERLÍN skúr 18 CHICAGO léttskýjaö 22 DUBUN alskýjaö 15 HAUFAX skýjaö 16 FRANKFURT úrkoma 15 HAMBORG skúrir 15 JAN MAYEN skýjaö 6 LONDON skúrir. 15 LÚXEMBORG skýjaö 15 MALLORCA hálfskýjaö 27 MONTREAL heiöskírt 20 NARSSARSSUAQ alskýjað 11 NEW YORK skýjaö 22 ORLANDO þokumóöa 26 PARÍS skýjaö 18 VÍN skýjaö 18 WASHINGTON þokumóða 20 WINNIPEG léttskýjaö 16 rn'Æimw.itiitrrr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.