Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
DV
Fréttir
Klóakmál á Höfn hafa verið í ólagi í mörg ár:
Bölvaður sóðaskapur
í samtali DV við íbúa á
Höfn í Homafirði á mánu-
dag kom í ljós að klóakmál
þar í bæ hafa verið í mikl-
um ólestri lengi - jafnvel
um áraraðir. íbúðabyggð á
Höfn er með þeim hætti að
afrennsli klóaksins er nán-
ast inni miðju íbúðarhverfi.
„Þegar ég flutti á svæðið
heyrði ég af því að þama
hefði eitthvað fólk veikst
sökum þessa. Heima hjá
mér hefur hins vegar eng-
um orðið meint af þessu -
líklega höfum við bara aö-
lagast þessu,“ sagði Gísli
Geir Sigurjónsson, íbúi á
Höfn, sem býr við fjöruna.
„Það er búið að tala um
þetta við bæjarstjómina
margoft. Það hefur verið á
stefnuskránni að setja upp
dælustöð mjög lengi og
dæla afrennslinu héðan í
aðra dælustöð. Það hefur
hins vegar ekki enn þá ver-
ið gert og okkur verið sagt að það sé
of dýrt - á að kosta einhverjar 10-15
milljónir.
Það hefur verið lítið um svör hjá
bæjarstjórninni þegar maður hefur
spurt hverju þetta sætir. Þetta er
- segir íbúi. Börnum haldið frá fjörunni
Klóakvandi
Á Höfn kemur klóakiö upp úr á stórstraumsfjöru. Reynt er aö fyrirbyggja aö börn komi þar i
náttúrlega bölvaður sóðaskapur
hvort sem fólk er að veikjast af
þessu eða ekki,“ bætti Gísli Geir
við.
Samkvæmt heimildum DV hafa
sumir foreldrar á Höfn brugðið á
það ráð að meina börnum sínum að
leika sér í fjörunni. Einn heimildar-
maður sagðist fylgjast með því
hvort börn hans færu eitthvað i fjör-
una og reyndi eftir fremsta megni
að koma í veg fyrir það.
„Ef þau eru síðan að
leika sér í fjörunni þrátt
fyrir tilmæli manns
fylgist maður vel með þvi
hvort þau veikist eða
verða eitthvað slöpp á
næstu dögum.“
Ásmundur Þorkelsson
er matvælafræðingur hjá
Hollustuvernd ríkisins.
„Hollustuvernd hefur
fylgst með þessu máli í
gegnum sóttvarnarlækni
og yfirdýralækni. Málið
er það að fólk er að fá
salmonellu- og
campylobactersýkingar á
þessum slóðum og engin
skýring fundist enn þá.
Matvæli hafa verið rann-
sökuð og ekkert fundist í
þeim, en við gerum okkur
grein fyrir því að tíðni
bakteríanna getur verið
svo lítil að það þarf að
iærrj, taka mjög stór sýni til
— þess að finna eitthvað.“
Ásmundur kvaðst ekki hafa heyrt
af slælegum klóakmálum á Höfn í
Hornafirði, en bætti því við að það
væri alls ekki hægt að útiloka að
þarna væru einhver tengsl á milli.
-ÓRV
Hundabúi neitað um starfsleyfi
- eigandi segist vera búinn að laga það sem þurfti og hefur sótt aftur um leyfi
Umhverfis- og heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkurborgar
neitaði í síðustu viku að
gefa hundabúinu að Dals-
mynni á Kjalarnesi starfs-
leyfi. „Vegna þess að ekki er
búið að ganga frá frárennsl-
ismálum og öðru sem heil-
brigðiðseftirlitið hefur kraf-
ist að verði gert áður en leyf-
ið er veitt þá sá nefndin sér
ekki annað fært en að leggj-
ast gegn veitingu starfsleyfisins,"
sagði Hrannar Björn Amarsson,
formaður nefndarinnar.
Eigandi hundabúsins, Ásta Sig-
urðardóttir, sagði hins vegar að
búið sé að gera við það sem þarf að
laga.
„Það var tvennt að en við erum
búin að laga þaö. Þegar við keyptum
hér fyrir rúmu ári þá voru frá-
rennsli og rotþróin í ólestri en við
erum búin að laga þetta allt,“ sagði
Ásta.
Nýlega var lögum breytt
þannig að starfsleyfi þarf
fyrir öllu dýrahaldi í at-
vinnuskyni og verið er að
vinna í því að bú komi sér
upp tilskildum leyfum.
Lögreglan gefur út þessi
leyfi en til þess þarf já-
kvæða umsögn umhverfis-
og heilbrigðisnefndar.
Hundabúið hefur lagt inn
aðra umsókn sem nefndin
mun líta á eftir að heilbrigðisfull-
trúi skoðar búið. Ef vilyrði fyrir
starfseminni fæst frá nefndinni
verður dýravemdunarráð líka að
gefa jákvæða umsögn áður en lög-
reglan í Reykjavík getur gefið út
starfsleyfi.
Hundabúið er með smáhunda-
ræktun á 10 mismunandi smá-
hundategundum og hefur meðal
annars flutt inn 40 hunda. Á átt-
unda tug smáhunda er á búinu.
-SMK
Hrannar B.
Amarsson.
Neitað um starfsleyfi
Hundabúinu aö Dalsmynni á Kjalarnesi var neitaö um starfsleyfi nýverið
vegna ófrágengins frárennslis. Eigandi búsins segir að búið sé aö gera viö
frárennsliö og hefur búiö sótt aftur um leyfi.
Ferðamenn á Krít:
í bíltúr með
andarteppu
íslenskir ferðamenn á Krít hafa
þurft að grípa til þess ráðs að aka
um miðjar nætur með ferðafélaga
sína í bílaleigubílum með loftkæl-
ingu til að hlífa þeim við hitabylgj-
unni sem þar hefur geisað.
Er hér aðallega um eldra fólk að
ræða sem fengið hefur andarteppu
og þyngsli fyrir brjóst í hitunum
ytra.
„Við ókum í hringi með loftkæl-
inguna á fullu þar til fólkið hafði
náð sér og það var okkur þakklátt
fyrir,“ sagði einn ferðalanganna
sem var svo heppinn aö hafa leigt
sér bU með loftkælingu en í síð-
ustu viku fór hitinn í Grikklandi
vel yfir 40 stig. -EIR
Sæplast hf. og Atlantic Island ehf.:
Sameina
trollkúlu-
framleiðslu
DV, DALVIK:____________
Sæplast hf. hefur undirritað
samkomulag um kaup á fyrirtæk-
inu Atlantic Island ehf. í Vest-
mannaeyjum með það í huga að
sameina fyrirtækin undir nafni
Sæplasts hf.
Atlantic Island hefur framleitt
sprautusteyptar trollkúlur úr
plasti tU notkunar um borð í fiski-
skipum og eru kúlumar svipaðar
þeim sem Sæplast framleiðir á Dal-
vík. Áætluð heUdarvelta Atlantic
Island er um 24 milljónir króna og
hefur um 60% framleiðslunnar far-
ið á erlenda markaði.
Eigendur fyrirtækjanna skipta á
hlutabréfum þannig að eigendur
Atlantic fá hlutabréf í Sæplasti
gegn afhendingu bréfa í Atlantic
Island.
Þessi kaup eru i samræmi við
áður útgefna yflrlýsingu stjórn-
enda Sæplasts um að styrkja fyrir-
tækið með fjárfestingum í rekstri
sem tengdur eru þeirri fram-
leiðslu- og markaðsþekkingu sem
félagið hefur yfir að ráða.
Með kaupunum skapast mögu-
leikar tU hagræðingar í rekstri
Sæplasts á Dalvík en unnt verður
að sameina framleiðslu Atlantic Is-
land þeirri starfsemi sem nú er
rekin á Dalvík og draga þannig
umtalsvert úr kostnaði.
Þessi sameining styrkir Sæplast
í þeirri höröu samkeppni sem rík-
ir á þessum markaði og frekari
möguleikar tU sóknar á erlenda
markaði skapast. -HIÁ
Veðríö í kvofd
Þykknar upp og rignir
Suöaustanátt 10 til 15 m/s. og víðast rigning
vestaniands. Sunnan- og Suðaustan 8 til 13
og súld eða rigning á Suðausturlandi.
Noröaustantil þykknar upp meö hægt vaxandi
Sunnanátt. Hlýjast norðaustanlands.
Sófargangur og sjávarfölf
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.24 23.37
Sótarupprás á morgun 03.44 02.59
Síödegisflóð 18.12 22.45
Árdegisflóö á morgun 06.25 10.58
Skýrbigar á yeöurtáknum
i*~-VINDATT ♦—HITl
-10°
'ViNDSTYKKUR
i metrum á sokúndu ^rKU
O: ö
LETTSRYJAÐ HÁLF- SKVJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
' w Wffi' w ö
RiGNiNG SKÚRIR SIYDDA SNJÓK0MA
O ==
ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞÖKA
Af skýjum
Það verða líklegast flákaský sem við
sjáum þegar þykknar upp um helgina.
Það eru mjög algeng ský hériendis,
svipuð netjuskýjum en mynda þó
samfelldari skýjabreiðu sem er lægra á
lofti og dekkri á köflum. Þá eiga líklega
eftir aö sjást skúraský sunnan- og
vestanlands en þaö eru mjög háreist
ský, sem geta náð frá lágskýjahæö upp
til veörahvarfa.
Veðríð á rnorgurr
Vœta og skýjað með köflum
Sunnan 8 til 13 m/s. og skúrir eða rigning sunnan og vestantil en skýjað
með köflum norðaustanlands.
SV 5S m/s. og skúrlr
sunnan og vestantil en
léttskýjat) á NorSur- og
Austurlandl. Hltl 8 tll 18
stlg, hlýjast á
Norðausturlandl.
Þriöjtof
W23M
Vindun /
8-13 m/v~'
Hiti 8° til 18°
Nokkuð hvöss
suðvestanátt. Smáskúrir
vestantll en léttskýjað
austantll. Hltl 8 tll 18 stlg,
hlýjast austanlands.
Midvíkad
,
VinduR /
Hiti 8° til 18° ’
Fremur hæg suðvestanátt.
Smáskúrir vestantll en
léttskýjaö fyrir austan.
Hlýjast austanlands.
AKUREYRI skýjaö 12
BERGSTAÐIR léttskýjaö 11
BOLUNGARVÍK léttskýjaö 11
EGILSSTAÐIR 11
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 15
KEFLAVÍK léttskýjaö 13
RAUFARHÖFN skýjaö 10
REYKJAVÍK léttskýjaö 14
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 13
BERGEN hálfskýjaö 14
HELSINKI skýjað 17
KAUPMANNAHÖFN skýjað 17
OSLÓ alskýjaö 15
STOKKHÓLMUR 16
ÞÓRSHÖFN skýjaö 12
ÞRÁNDHEIMUR rigning 11
ALGARVE heiöskírt 29
AMSTERDAM skúrir 14
BARCELONA hálfskýjaö 24
BERLÍN skúr 18
CHICAGO léttskýjaö 22
DUBUN alskýjaö 15
HAUFAX skýjaö 16
FRANKFURT úrkoma 15
HAMBORG skúrir 15
JAN MAYEN skýjaö 6
LONDON skúrir. 15
LÚXEMBORG skýjaö 15
MALLORCA hálfskýjaö 27
MONTREAL heiöskírt 20
NARSSARSSUAQ alskýjað 11
NEW YORK skýjaö 22
ORLANDO þokumóöa 26
PARÍS skýjaö 18
VÍN skýjaö 18
WASHINGTON þokumóða 20
WINNIPEG léttskýjaö 16
rn'Æimw.itiitrrr