Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
DV
57
Tilvera
Afmælisbörn
Forest Whitaker 39 ára
Leikarinn og leikstjórinn Forest
Whitaker er þrjátíu og níu ára í dag.
Whitaker varð frægur þegar Clint
Eastwood valdi hann til að leika saxó-
fónleikarann Charlie Parker í Byrd.
Hann lék i kjölfarið í nokkrum ágætis-
myndum, meðal annars Crying Game
og Good Moming Vietnam. Seinni árin
hefur hann snúið sér að leikstjóm og
fyrsta mynd hans, Waiting to Exhale,
náði miklum vinsældum. Þessa dagana
má sjá Whitaker í góðu formi í Ghost
Dog: The Way of Samurai.
Michael Flatiey 42 ára
Bandaríski dansarinn Michael
Flatley er 42 ára í dag. Þótt Flatley sé
bandarískur þá varð hann fyrst frægur
þegar hann kom með „Riverdance" hóp-
inn i Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
fyrir nokkrum árum. Þegar aðstandend-
ur sýningarinnar vildu gera minna úr
þætti Flatleys hætti hann og stofnaöi
sinn eiginn dansflokk, Lord of Dances.
Hafa sýningar hans, sem einnig byggja
á írskum þjóðdönsum, verið meðal vin-
sælasta skemmtiefnis.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 16. júlí og mánudaginn 17. júlí
Vatnsberinn (20. ian.-18. febrö:
Spá sunnudagsins:
Ástvinir upplifa gleði-
legan dag. Þú deiiir
ákveðnum tílfinning-
um með vinum þínum og það
skapar sérstakt andrúmsloft.
Spa mánudagsíns:
Þú verður að gæta þess að særa
engan með framagimd þinni. Þó
að þú hafir mikinn metnað verður
þú líka að taka tíllit til annarra.
Hrúturinn (21. mars-19. anrih:
Þessi dagur verður eft-
irminnilegur vegna at-
» burða sem verða fyrri
hluta dagsins. Viðskipttnblómstra
og fjármálin ættu að fara batnandi.
Spa manudagsins:
Þú ættir að lita í eigin barm áður
en þú gagnrýnir fólk. Ef þú gerir
það mun þér ganga afar vel aö
vinna með öðru fólki.
Tvíburarnir (21. mai-2l. iúníl:
Ekki má einbeita sér
mm/J of mikið að smáatrið-
um. Þú gætír misst
sjónar á aðalatriðunum. Fjöl-
skyldan má ekki gleymast.
Spá mánudagsins:
Einhver sýnir þér hlýtt viðmót, áhuga
sem þú áttir alls ekki von á. Þú verður
mjög ánægður með þetta en þú skalt
samt ekki sýna það allt of mikið.
Liðnið (23. iúlí- 22. áeústl:
' Þú finnur firir við-
kvæmni í dag og veist
ekki hvernig best er að
bregðast við. Vertu óhræddur við
að sýna tílfinningar þínar.
Spá mánudagsins:
Fjölskyldan ætti að eyða meiri tíma
saman. Það er margt sem kernur
þér á óvart í dag, sérstaklega við-
mót fólks sem þú þekkir btið.
Voein (23. sept.-23. okt.l:
mm
I Seinkanir valda þvi að
þú ert á eftir áætlun
og þarft þvi að leggja
þig allan fram tíl þess að ná að
ljúka þvi sem þú þarft í dag.
Spá mánudagsins:
Dagurinn verður á einhvem hátt
eftirminnilegur og þú tekur þátt í
einhverju spennandi. Þú ættir að
taka virkari þátt í félagslífinu.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
Spa sunnudagsins:
' Þú verður að sætta þig við
takmörk annarra og ekki
gera of miklar kröfur. Ást-
arsamband sem þú átt í gengur í gegn-
um erfiðleika en það mun jafna sig.
Þú skalt forðast óþarfa tilfinningasemi og
ekki láta skapið hlaupa með þig í gönur.
Rómantíkin liggur í loftinu og von bráðar
mun draga til tíðinda í ástarlifinu.
Flskamirn.9. febr.-20. marst:
Spá sunnudagsins:
'Dagurinn veröur frem-
ur rólegur og þú færð
næði til að hugsa um
framtiðina. Kvöldið verður
friðsamlegt.
Spá manudagsins:
Þú átt mjög annríkt fyrri hluta
dagsins og fólk er ekki jafntilbúið
að hjálpa þér og þú vildir. Þegar
kvöldar fer allt að ganga betur.
Nautið (20. aoríl-20. maí.l:
Þú kemst að þvi að þú
/ ert orðinn dálitíð lú-
>■/ inn á tílbreytingarleys-
inu og ættir ef til vill að reyna að
finna þér nýtt áhugamál.
Þú heyrir eitthvað sem kemur þér
á óvart en þú færð betri skýringu
á þvi áður en langt um líður.
Happatölur þinar em 8, 9 og 24.
Krabbinn (22. iúní-22, iúlíl:
Spá suonudagsins:
I Eitthvað óvænt kemur
upp á og þú gætir
þurft að breyta áætl-
unum þínum á síðustu stundu.
Happatölur þínar em 11, 14 og 29.
Spa manudagsins:
Dagurinn einkennist af tímaskorti
og þú verður á þömun fyrri hluta
dagsins. Kvöldið verður þó rólegt og
ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar.
Mevian (23. áeúst-22. seot.l:
Spá sunnudagsins:
/\V\\ Eitthvað nýtt vekur
áhuga þinn snemma dags
' og hefur truflandi áhrif á
vinnu þína það sem eftir er dagsins.
Happatölur þinar eru 8, 24 og 25.
Spá mánudagsins:
Þú færð góðar hugmyndir í dag en
það er hægara sagt en gert að koma
þeim í framkvæmd. Fólk virðist
vera afar upptekið af sjálfú sér.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
— ^
[\\ Þér er fengin einhver
\\->ábyrgð á hendur í dag.
i Láttu ákveðna erfið-
leika ekki gera þig svartsýna,
horfðu heldur á björtu hliðamar.
Spá mánudagsins:
Lífið virðist brosa viö þér þessa
dagana og ef þú ert ekki orðin ást-
fanginn nú þegar muntu líklega
verða það næstu daga.
Steingeitin (22. des.-19. ian.):
Spá sunnudagsms:
Viðskipti ganga vel í dag
og þú átt auðvelt með að
semja. Fjölskyldan er
þér ofarlega í huga, sérstaklega sam-
band þitt við ákveðna manneskju.
Þó að þér frnnist vinnan vera mikil-
væg þessa dagana ættirðu ekki að taka
hana fram yfir vini og fjölskyldu.
Vertu heiðarlegur og hreinskilinn.
Klassískt myndband
Lenny
Fyrsti sorakjafturinnc
Myndband
Topsy-Turvy iri.
Gilbert og
Sullivan
Myndbandagagnrýni
Whatever Happened to Harold Smith ★★★★
Sorakjafturinn Eddie Murphy varð
á sínum tíma gríðarlega vinsæll fyrir
sitt ofurklúra uppistand en fyrir-
mynd hans var Richard Pryor sem
hneykslaði fólk á áttunda áratugnum.
Á undan þeim öllum var þó Lenny
Bruce sem eyddi stórum hluta af ferli
sínum í endalausum málaferlum út af
orðbragði sinu sem þætti ekki til-
tökumál í dag.
Bob Fosse (Cabaret, All That Jazz)
leikstýrði þessari mynd um ævi grín-
arans og tekst að gera hetju úr hon-
um meðan hann heldur raunsæislegu
yfirbragði. Myndin flakkar milli leik-
inna atriða úr lífi grínarans, leikinna
viðtala við aðstandendur í heimildar-
myndastíl og atriða þar sem Dustin
Hoffman fer með uppistand byggt á
því sem Lenny Bruce gerði. Myndin
flakkar nokkuð fram og aftur í tíma
en fyrsti hlutinn segir frá því þegar
Lenny, sem ungur og upprennandi
grínari, kynnist fatafellunni Honey
og giftist henni. Honum stendur til
boða að fara heföbundnu leiðina en
kýs að ögra fólki og vinnur mest-
megnis sem kynnir í nektarklúbbum.
Hann fer síðan að koma fram í aðeins
virðulegri klúbbum og nær vinsæld-
um sem afar fyndinn rýnir á hræsni
og helgislepju í þjóðfélaginu. Erfitt
hjónaband, fikniefnaneysla og stöðug
málaferli taka sinn toll af geðheilsu
hans og undir lokin á ferlinum var
hann farinn að rausa um málfrelsi og
lesa upp úr dómsskjölum fyrir tóm-
um samkomustöðum áður en hann
tók of stóran lyfjaskammt og dó árið
1966.
Bob Fosse tekur myndina í
svart/hvítu, sem gefur myndinni
drungalegan blæ, enda er hún í raun
harmsaga um frumherja sem barðist
hatrammlega gegn ritskoðun en varð
að lokum að láta í minni pokann,
ekki síður fyrir eigin veikleikmn en
tilraunum yfirvalda til að koma á
hann böndum. Myndin sýnir hann
sem umhyggjusaman fóður og eigin-
mann en um leið veiklyndan dópista
og flagara. Dustin Hoffman tekst á við
þessar andstæður á aðdáunarverðan
hátt og það er virkilega gaman að sjá
kraftinn í honum þegar hann var enn
ungur. Sjálfur hefur hann sagt þetta
hafa verið besta hlutverk ferilsins.
Valerie Perrine skilar einnig góðri
frammistöðu í fremur átakanlegu
hlutverki Honey, þótt hún hafi ekki
gert mikið annað af viti á ferli sínum.
Bæði voru þau tilnefnd til ósk-
arsverðlauna ásamt leikstjóranum
Bob Fosse og kvikmyndatökustjóran-
um Bruce Surtees. Þá fékk myndin
einnig tilnefningu sem besta myndin
og lét þar í minni pokann fyrir ekki
ómerkari keppinaut en The God-
father, Part II. Lenny er bæði fyndin
og sorgleg en umfram allt áhugaverð
úttekt á einlægum grínara sem fór
flatt á því að vilja fá að nota þau orð
sem honum sýndist.
Pétur Jónasson
Fæst í Aöalvídeóleigunni. Leikstjóri: Bob
Fosse. Aöalhlutverk: Dustin Hoffman og
Valerie Perrine. Bandarísk, 1974. Lengd:
111 mín.
Undur og stórmerki -
Kristur endurborinn?
Harold Smith getur gert margvís-
lega yfirskilvitlega hluti. Sumir
telja hann loddara en aðrir telja
harrn Krist endurborinn. Harold
sjálfur er hins vegar minnst áhuga-
samur um eigin hæfileika og vill
helst sitja í hægindastólnum sínum
fyrir framan sjónvarpið með
pipuna sina. Vince, sonur
Harolds, segir okkur söguna
af Harold og fiölskyldunni.
Inn í þetta fléttast hluti
þroskasögu Vince sjálfs.
Vince er skemmtilega, lit-
ríkur unglingskarakter.
Stundum tekst leikstjóranum
og leikaranmn að gera hann
það vandræðalegan að maöur
fer hálfpartinn hjá sér i góð-
legri sketnmtun. Sögusvið
myndarinnar er á þeim tíma,
1977, sem manni finnst allt
sérlega hallærislegt nú í dag.
Eykur það á hallæri og vand-
ræðagang persónanna. T.a.m.
gæti Vince hafa verið meiri
háttar gæi án þess að maður
geri sér fyllilega grein fyrir
því. Hins vegar er augljóst að
Harold er mubla á eigin heim-
ili en ekki harður fylgimaður
tískunnar.
Inn undir góðlátlegu grín-
inu er hárbeitt ádeila á trú
manna og örlög. Hvemig í
ósköpunum ætti Harold að
vera Kristur endurborinn? Af
hverju er hann ekki merktur með
nafninu Jesús á enninu? Hinir
mörgu hæfileikar Harolds gætu
Hún er kröpp, beygjan sem Mike
Leigh tekur með þessari mynd. Hann
hefur byggt glæsilegan feril á karakter-
drifnum sögum af bresku almúgafólki
(Naked, Secrets and Lies), en snýr sér
hér að klassískri búningamynd um r'
bresku söngleikjasmiðina Gilbert og
Sullivan.
gert hann að Kristi ef við myndum
vilja trúa því. Hins vegar gæti
hann bara verið gæddur yfimáttúr-
legum hæfileikum sem við skiljum
ekki hvernig virka. Myndin er í
það minnsta vel þess virði að horfa
á. -GG
Útgefandi Myndform. Lelkstjóri: Peter Hewitt.
Abalhlutverk: Tom Courtenay, Stephen Fry,
Michael Legge, Laura Fraser, Lulu, David
Thewlis og Mark Williams. Bresk/bandarísk,
1999. Lengd: 95 mín. Bönnuð innan 12 ára.
Það er margt til marks um að hér sé
hágæðaleikstjóri á ferð. Sögupersón-
urnar eru vel mótaðar, leikaramir
njóta sin vel, og við fáum ansi góða inn-
sýn í lífi þeirra, sigra og sorgir. Það er
hins vegar litill drifkraftur í sögunni
sem í stuttu máli er sú að Gilbert og
Sullivan eru famir að staðna og leiði
kominn í samstarfið þegar Gilbert fær
góða hugmynd og þeir setja upp
Mikado, vinsælasta söngleik sinn. Upp
í þennan ámátlega söguþráð er fyllt
með litlum hliðarsögum af skáldunum
og leikhúsfólkinu, mörgum hverjum
ágætum fyrir sína parta án þess að
koma heildarmyndinni mikið við, og
með löngum og leiðinlegum atriðum úr
söngleikjunum. Mike Leigh býr sem
sagt til vel gerða en leiðinlega og
óspennandi mynd þar sem ljósi punkt-
urinn er Jim Broadbent í hlutverki Gil-
hert__________________________________=AL
Útgefandi: Góöar stundir. Leikstjóri:
Mike Leigh. Aöalhlutverk: Jim Broadbent
og Alan Corduner. Bresk, 1999. Lengd:
160 mín. Öllum leyfö.
Gríðarlegt úrval
myndbanda.
Nýjar myndir daglega.
Kíktu á 1.500 kr.
tilboöin.
Opiö
mán.-fös.10-1
laug.10-16
Fékafeni 9 • S. 553 1300