Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Blaðsíða 50
58
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
Tilvera 1>V
í 'f iö
Ríkey sýnir
kattaskúlptúra
og olíumyndir
Nu stendur yfir sýning í
Kringlunni á verkum myndlist-
arkonunnar Ríkeyjar Ingimund-
ardóttur. Á sýningunni er að
finna olíumyndir frá þessu ári,
kattaskúlptúra og lágmynd af
aflaskipinu Súlimni. Sýning
Ríkeyjar stendur til 31. júlí.
Djass
j íStríö snorra siguwpawson-
>■ AR A JOMFWUNNI Sjöundu sumar-
tónleikar veitingahússins Jómfrú-
arinnar við Lækjargötu fara fram
laugardaginn kl. 16-18. Að þessu
sinni kemur fram tríó trompetleikar-
ans Snorra Siguröarsonar. Aðgangur
er ókeypis en mætiö samt með pen-
ing fyrir bjór, því þetta er villt partí.
Klassík
■ HARMONIKUKONSERT A ~
BROADWAY I kvöld veröur hátíðar-
konsert og dansleikur á Broadway
og gefst nú tækifæri á aö heyra öll
^tónlistaratriöi alþjóölegu harmóniku-
hátíöarinnar sem haldin er í Reykja-
vík þessa dagana. Meðal þeirra
sem sþila verða Hljómsveit Hjördís-
ar Geirs, Stormurinn og Léttsveit
Harmonikufélags Reykjavíkur.
■ SUMARTÓNLEIKAR VIÐ MÝ-
VATN Nú flytja Þorsteinn Gauti Sig-
urösson, pianó, og Margrét Krist-
jánsdóttir, fiðla, einsleiks- og sam-
leiksverk í Reykjahlíöarkirkju við Mý-
vatn. Á efnisskrá þeirra eru m.a.
verk eftir Mozart, Brahms, Ravel,
Þórarin Jónsson og Atla Heimi
Sveinsson. Tónleikarnir hefjast kl.
21.00 og standa í eina klukkustund.
Aðgangseyrir er kr. 500.
■ TONAFÓRN BACHS í SKÁL-
■w HOLTSSKOLA I dag flytur breski
gömbuleikarinn Mark Levy erindi
um Tónafórn Bachs kl. 14 í Skál-
holtsskóla og kl. 15 flytur Sigurður
Halldórsson sellóleikari svítur nr. I, II
og IV á barokkselló eftir J.S. Bach.
Kl. 17 á laugardag flytur breskur
hópur valinkunna barokkhljóðfæra-
leikara Tónafórnina eftir J.S. Bach.
Leikhús
■ THRJUUERlÁ NY Verslingarnir
knáu, sem gerðu allt vitlaust í vetur
með heimatilbúna söngleiknum sín-
um Thriller, eru mættir aftur. Thriller
hefst kl. 20.30 í kvöld, örfá sætj
eru laus og síminn hjá Leikfélagi ís-
lands er 552 3000.
’ Fyrir börnin___________________
■ REYNISVATN Harmónikudagskrá
verður fyrir börn og fjölskyldufólk við
Reynisvatn frá klukkan 10-16.
Meðal þess sem er á þessari ótrú-
legu dagskrá er silungaveiði, grill og
svo verður riöiö hestum.
Opnanir
■ fi*i i fpi i ist | dag kl. 11, fyrir
hádegi, opnar Vagna Sólveig Vagns-
dóttir sýningu í Gallerí Ust, Skip-
holti 50d.
■ GALLERÍ®HLEMMUR.IS Ásta
Þórisdóttir opnar myndlistarsýning-
una „Mllli vita“ í Garðskagavlta i
dag kl 14.
■ ÍSLENSK GRAFÍK Ljósmynda-
samsýning Evu Jiménez Cerdanya
og Alexöndru Litaker verður opnuð í
dag kl. 16 í húsi íslenskrar grafíkur,
Tryggvagötu 17 (hafnarmegin).
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
DV, HÓLMAVlK:
„Mér er efst í huga sú bjartsýni
sem ég hef fundið hjá íbúum
Strandasýslu og hve staðráðnir þeir
eru í að sækja fram á mörgum svið-
um. Samræðumar við Stranda-
menn varpa líka skemmtilegu ljósi
á það sem víða er rætt um, vanda
byggðanna. Hér er mikil orka í fólk-
inu og hana er mikilvægt að virkja
til nýrra verka. Hafi fólk ekki vilja
eða samtakamátt til að vinna sínu
byggðarlagi allt til heilla þá verður
lítið úr opinberum framkvæmdum,"
sagði forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson.
Byggðastefna Strandasýslu
Ólafur sagðist hafa fundið í
Strandasýslu meiri bjartsýni og
sóknarvilja en hann átti von á.
„Það vekur mér gleði og er einnig
umhugsunarefni bæði fyrir mig og
aðra, nauðsyn þess að tryggja að
fólkið geti nýtt þá hæfileika sem
búa í því sjálfu. Galdrasýningin hér
á Hólmavik er t.d. ekki aðeins
skemmtileg og fróðleg sýning held-
ur er hún brautryðjendastarf í fræð-
um eins og sagnfræði, islenskum
fræðum og þjóðfræði þar sem
heimamenn varpa nýju ljósi á 17.
öldina sem hinir lærðu menn í
æðstu menntastofnunum landsins
hafa enn ekki gert. Hér er líka ver-
ið að endurreisa hið gamla Riis-hús
á Borðeyri og það eru heimamenn
sem hafa frumkvæði að þessum
verkum en ekki opinberar stofnan-
ir. Fólkið hér rekur sína eigin
byggðastefnu, sína eigin framsókn
án þess að hljóta til þess mikla
styrki eða stuðning heldur nýtir
fyrst og fremst sitt eigið afl.“
Aðspurður hvort hann teldi
Strandamenn skera sig úr mannlífs-
flóru þjóðarinnar sagöi Ólafur
Ragnar að þegar hann hefði verið að
alast upp fyrir vestan hafi verið
rætt um Strandamenn af einstakri
lotningu.
Þríburar á Drangsnesi
Hjónin Guörún Guöfinnsdóttir og Jóhann Á. Gunnarsson á Drangsnesi meö þríburana Guöfinn Ragnar, Þóri Örn og
Gunnar Má, auk forsetans og Stellu Guörúnar.
„Vestfirðingar telja að vísu sjálfa
sig vera æði merka en Strandamenn
voru þar i sérflokki. Það var talið
betra að umgangast þá með varúð
og talsverðri hógværð þvi þeir gætu
verið til alls líklegir og kröftugri en
aðrir menn. Ég hef skynjað það að
enn býr Strandasýsla að þessum
eiginleikum og menn virðast á
mörgum sviðum vera að gera þá að
auðlind tO að skapa ferðaþjónustu
fyrir islenska og erlenda gesti þar
sem þessi gamla mynd og arfur er
nýttur á skemmtilegan og frumleg-
an hátt. Þannig eru Strandamenn
farnir að túlka mýnd sína í vitund
þjóðarinnar sjálfum sér til fram-
dráttar og það þykir mér skemmti-
legt. Ég skynja það ekki síst hjá
unga fólkinu sem er upplitsdjarft og
duglegt." -GF
Heimsókn forseta íslands í Strandasýslu:
Duglegt og djarft
fólk á Ströndum
Hvatningarverðlaun forseta íslands og Riis-hús:
Ekki gera húsið svo vel upp að hann flytji
- sagði Ólafur Ragnar Grímsson
DV, HÓLMAVÍK: ~
Að venju veitti forseti íslands
nokkrum ungmennum hvatningar-
verðlaun í heimsókn sinni í
Strandasýslu. Spurður hvort hann
hefði fylgst með því hvernig þeim
hefði vegnað sem verðlaunin hafa
hlotið á undanfornum árum sagðist
hann hafa fengið sendar línur og
töivupóst um jól og áramót sem
honum hefði þótt vænt um og að
það sé gaman að fylgjast með þeim.
„Þessi hvatning til ungra Islendinga
eru ekki verðlaun i venjulegum
skilningi heldur fyrst og fremst að-
ferð til að vekja athygli á þeim
mikla árangri sem ungt fólk nær á
mörgum sviðum, eins og í námi,
listum, íþróttum og félagsmálum.
Ég hef skynjað og þykir vænt um
hvað þetta er fjölbreytt sveit sem
verðskuldar þessa hvatningu. Við
sáum það einnig hér í Strandasýslu
að það var vandi að velja hverjir
ættu að hljóta hvatninguna og nið-
urstaðan var aldurshópurinn frá
10-18 ára,“ sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagðist hafa sannfærst um að
vel hefði verið valið þegar hann
hlustaði á frábæra ræðu eins hvatn-
ingarþega á kvöldvöku á Hólmavík.
En forsetinn hitti líka ungviðið í
ferð sinni. Strandamenn státa nefni-
lega af þríburum sem ung hjón eiga,
þau Guðrún Guðfinnsdóttir og Jó-
hann Á. Gunnarsson á Drangsnesi.
ur Ragnar, Þórir Örn og Gunnar
Már. Systir þeirra er fjögurra ára og
heitir Stella Guðrún.
Endurbætur á Riis-húsi
„Þið megið ekki gera húsið svo
vel upp að hann flytji héðan,“ voru
orð forseta íslands í svonefndu Riis-
húsi á Borðeyri eftir að fróðasti
maður um sögu þess og verslunar-
sögu Borðeyrar, Georg Jón Jónsson,
hafði orð á því að þeir sem sjá
meira, og það sem flestum er hulið,
segi að Thor Jensen sé þar enn á
ferð. Umræddur Thor kom til Borð-
eyrar í fyrstu ferð sinni til íslands
ungur maður til að nema verslunar-
fræði og bar alla tíð mikla tryggð til
byggðarinnar og fólksins sem þar
bjó. Endurbætur á þessu meira en
aldargamla húsi standa nú yfir en
arkitekt framkvæmdanna er Þor-
geir Jónsson.
Georg Jón sagði forsetanum að á
Borðeyri hefði verið gerð fyrsta til-
raunin til að ná versluninni úr
höndum erlendra kaupmanna og
kynnti um leið verslunarsögu Borð-
eyrar en í tilefni af komu forsetans
hefur verið komið fyrir allmörgum
myndum sem henni tengjast þar
sem röð umsvifa og atburða er rak-
in. Heimsókn forsetans til Stranda-
sýslu lauk á miðvikudag.
-GF/HH
Þríburarnir, sem eru drengir, voru heimilinu Baldri á Drangsnesi við
mættir í sinu finasta „pússi“ að komu hans þangað. Þeir eru tveggja
taka á móti forsetanum í félags- ára siðan 31. maí og heita Guðfinn-
DV-MYNDIR GF
Hvatningarverölaun
Sigvaldi Bergmann Magnússon, 16 ára nemandi í Hólmavíkurskóla, var
einn þeirra sem hlutu hvatningarverölaun forseta íslands í ferö hans um
Strandasýstu. Sigvaldi er, þrátt fyrir ungan aldur, einn fremsti skíöa-
göngumaöur á Vestfjöröum. Hann tók viö viöurkenningarskjali í Staöar-
kirkju í Steingrímsfiröi.