Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 50
58 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 Tilvera 1>V í 'f iö Ríkey sýnir kattaskúlptúra og olíumyndir Nu stendur yfir sýning í Kringlunni á verkum myndlist- arkonunnar Ríkeyjar Ingimund- ardóttur. Á sýningunni er að finna olíumyndir frá þessu ári, kattaskúlptúra og lágmynd af aflaskipinu Súlimni. Sýning Ríkeyjar stendur til 31. júlí. Djass j íStríö snorra siguwpawson- >■ AR A JOMFWUNNI Sjöundu sumar- tónleikar veitingahússins Jómfrú- arinnar við Lækjargötu fara fram laugardaginn kl. 16-18. Að þessu sinni kemur fram tríó trompetleikar- ans Snorra Siguröarsonar. Aðgangur er ókeypis en mætiö samt með pen- ing fyrir bjór, því þetta er villt partí. Klassík ■ HARMONIKUKONSERT A ~ BROADWAY I kvöld veröur hátíðar- konsert og dansleikur á Broadway og gefst nú tækifæri á aö heyra öll ^tónlistaratriöi alþjóölegu harmóniku- hátíöarinnar sem haldin er í Reykja- vík þessa dagana. Meðal þeirra sem sþila verða Hljómsveit Hjördís- ar Geirs, Stormurinn og Léttsveit Harmonikufélags Reykjavíkur. ■ SUMARTÓNLEIKAR VIÐ MÝ- VATN Nú flytja Þorsteinn Gauti Sig- urösson, pianó, og Margrét Krist- jánsdóttir, fiðla, einsleiks- og sam- leiksverk í Reykjahlíöarkirkju við Mý- vatn. Á efnisskrá þeirra eru m.a. verk eftir Mozart, Brahms, Ravel, Þórarin Jónsson og Atla Heimi Sveinsson. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og standa í eina klukkustund. Aðgangseyrir er kr. 500. ■ TONAFÓRN BACHS í SKÁL- ■w HOLTSSKOLA I dag flytur breski gömbuleikarinn Mark Levy erindi um Tónafórn Bachs kl. 14 í Skál- holtsskóla og kl. 15 flytur Sigurður Halldórsson sellóleikari svítur nr. I, II og IV á barokkselló eftir J.S. Bach. Kl. 17 á laugardag flytur breskur hópur valinkunna barokkhljóðfæra- leikara Tónafórnina eftir J.S. Bach. Leikhús ■ THRJUUERlÁ NY Verslingarnir knáu, sem gerðu allt vitlaust í vetur með heimatilbúna söngleiknum sín- um Thriller, eru mættir aftur. Thriller hefst kl. 20.30 í kvöld, örfá sætj eru laus og síminn hjá Leikfélagi ís- lands er 552 3000. ’ Fyrir börnin___________________ ■ REYNISVATN Harmónikudagskrá verður fyrir börn og fjölskyldufólk við Reynisvatn frá klukkan 10-16. Meðal þess sem er á þessari ótrú- legu dagskrá er silungaveiði, grill og svo verður riöiö hestum. Opnanir ■ fi*i i fpi i ist | dag kl. 11, fyrir hádegi, opnar Vagna Sólveig Vagns- dóttir sýningu í Gallerí Ust, Skip- holti 50d. ■ GALLERÍ®HLEMMUR.IS Ásta Þórisdóttir opnar myndlistarsýning- una „Mllli vita“ í Garðskagavlta i dag kl 14. ■ ÍSLENSK GRAFÍK Ljósmynda- samsýning Evu Jiménez Cerdanya og Alexöndru Litaker verður opnuð í dag kl. 16 í húsi íslenskrar grafíkur, Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is DV, HÓLMAVlK: „Mér er efst í huga sú bjartsýni sem ég hef fundið hjá íbúum Strandasýslu og hve staðráðnir þeir eru í að sækja fram á mörgum svið- um. Samræðumar við Stranda- menn varpa líka skemmtilegu ljósi á það sem víða er rætt um, vanda byggðanna. Hér er mikil orka í fólk- inu og hana er mikilvægt að virkja til nýrra verka. Hafi fólk ekki vilja eða samtakamátt til að vinna sínu byggðarlagi allt til heilla þá verður lítið úr opinberum framkvæmdum," sagði forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Byggðastefna Strandasýslu Ólafur sagðist hafa fundið í Strandasýslu meiri bjartsýni og sóknarvilja en hann átti von á. „Það vekur mér gleði og er einnig umhugsunarefni bæði fyrir mig og aðra, nauðsyn þess að tryggja að fólkið geti nýtt þá hæfileika sem búa í því sjálfu. Galdrasýningin hér á Hólmavik er t.d. ekki aðeins skemmtileg og fróðleg sýning held- ur er hún brautryðjendastarf í fræð- um eins og sagnfræði, islenskum fræðum og þjóðfræði þar sem heimamenn varpa nýju ljósi á 17. öldina sem hinir lærðu menn í æðstu menntastofnunum landsins hafa enn ekki gert. Hér er líka ver- ið að endurreisa hið gamla Riis-hús á Borðeyri og það eru heimamenn sem hafa frumkvæði að þessum verkum en ekki opinberar stofnan- ir. Fólkið hér rekur sína eigin byggðastefnu, sína eigin framsókn án þess að hljóta til þess mikla styrki eða stuðning heldur nýtir fyrst og fremst sitt eigið afl.“ Aðspurður hvort hann teldi Strandamenn skera sig úr mannlífs- flóru þjóðarinnar sagöi Ólafur Ragnar að þegar hann hefði verið að alast upp fyrir vestan hafi verið rætt um Strandamenn af einstakri lotningu. Þríburar á Drangsnesi Hjónin Guörún Guöfinnsdóttir og Jóhann Á. Gunnarsson á Drangsnesi meö þríburana Guöfinn Ragnar, Þóri Örn og Gunnar Má, auk forsetans og Stellu Guörúnar. „Vestfirðingar telja að vísu sjálfa sig vera æði merka en Strandamenn voru þar i sérflokki. Það var talið betra að umgangast þá með varúð og talsverðri hógværð þvi þeir gætu verið til alls líklegir og kröftugri en aðrir menn. Ég hef skynjað það að enn býr Strandasýsla að þessum eiginleikum og menn virðast á mörgum sviðum vera að gera þá að auðlind tO að skapa ferðaþjónustu fyrir islenska og erlenda gesti þar sem þessi gamla mynd og arfur er nýttur á skemmtilegan og frumleg- an hátt. Þannig eru Strandamenn farnir að túlka mýnd sína í vitund þjóðarinnar sjálfum sér til fram- dráttar og það þykir mér skemmti- legt. Ég skynja það ekki síst hjá unga fólkinu sem er upplitsdjarft og duglegt." -GF Heimsókn forseta íslands í Strandasýslu: Duglegt og djarft fólk á Ströndum Hvatningarverðlaun forseta íslands og Riis-hús: Ekki gera húsið svo vel upp að hann flytji - sagði Ólafur Ragnar Grímsson DV, HÓLMAVÍK: ~ Að venju veitti forseti íslands nokkrum ungmennum hvatningar- verðlaun í heimsókn sinni í Strandasýslu. Spurður hvort hann hefði fylgst með því hvernig þeim hefði vegnað sem verðlaunin hafa hlotið á undanfornum árum sagðist hann hafa fengið sendar línur og töivupóst um jól og áramót sem honum hefði þótt vænt um og að það sé gaman að fylgjast með þeim. „Þessi hvatning til ungra Islendinga eru ekki verðlaun i venjulegum skilningi heldur fyrst og fremst að- ferð til að vekja athygli á þeim mikla árangri sem ungt fólk nær á mörgum sviðum, eins og í námi, listum, íþróttum og félagsmálum. Ég hef skynjað og þykir vænt um hvað þetta er fjölbreytt sveit sem verðskuldar þessa hvatningu. Við sáum það einnig hér í Strandasýslu að það var vandi að velja hverjir ættu að hljóta hvatninguna og nið- urstaðan var aldurshópurinn frá 10-18 ára,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann sagðist hafa sannfærst um að vel hefði verið valið þegar hann hlustaði á frábæra ræðu eins hvatn- ingarþega á kvöldvöku á Hólmavík. En forsetinn hitti líka ungviðið í ferð sinni. Strandamenn státa nefni- lega af þríburum sem ung hjón eiga, þau Guðrún Guðfinnsdóttir og Jó- hann Á. Gunnarsson á Drangsnesi. ur Ragnar, Þórir Örn og Gunnar Már. Systir þeirra er fjögurra ára og heitir Stella Guðrún. Endurbætur á Riis-húsi „Þið megið ekki gera húsið svo vel upp að hann flytji héðan,“ voru orð forseta íslands í svonefndu Riis- húsi á Borðeyri eftir að fróðasti maður um sögu þess og verslunar- sögu Borðeyrar, Georg Jón Jónsson, hafði orð á því að þeir sem sjá meira, og það sem flestum er hulið, segi að Thor Jensen sé þar enn á ferð. Umræddur Thor kom til Borð- eyrar í fyrstu ferð sinni til íslands ungur maður til að nema verslunar- fræði og bar alla tíð mikla tryggð til byggðarinnar og fólksins sem þar bjó. Endurbætur á þessu meira en aldargamla húsi standa nú yfir en arkitekt framkvæmdanna er Þor- geir Jónsson. Georg Jón sagði forsetanum að á Borðeyri hefði verið gerð fyrsta til- raunin til að ná versluninni úr höndum erlendra kaupmanna og kynnti um leið verslunarsögu Borð- eyrar en í tilefni af komu forsetans hefur verið komið fyrir allmörgum myndum sem henni tengjast þar sem röð umsvifa og atburða er rak- in. Heimsókn forsetans til Stranda- sýslu lauk á miðvikudag. -GF/HH Þríburarnir, sem eru drengir, voru heimilinu Baldri á Drangsnesi við mættir í sinu finasta „pússi“ að komu hans þangað. Þeir eru tveggja taka á móti forsetanum í félags- ára siðan 31. maí og heita Guðfinn- DV-MYNDIR GF Hvatningarverölaun Sigvaldi Bergmann Magnússon, 16 ára nemandi í Hólmavíkurskóla, var einn þeirra sem hlutu hvatningarverölaun forseta íslands í ferö hans um Strandasýstu. Sigvaldi er, þrátt fyrir ungan aldur, einn fremsti skíöa- göngumaöur á Vestfjöröum. Hann tók viö viöurkenningarskjali í Staöar- kirkju í Steingrímsfiröi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.