Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.2000, Qupperneq 56
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000
Framkvæmdastjóri Vegas ánægður með bann við fleiri súlustöðum:
Kvóti á nekt í
miðbænum
- talið að markaðsverð nektarstaða stórhækki
m
Búist er við að mark-
aðsverð á nektardans-
stöðum í miðborg
Reykjavíkur rjúki upp úr
öllu valdi í kjöifar
ákvörðunar borgarráðs á
fimmtudaginn. Ákveðið
var að útdeila ekki fleiri
leyfum til að opna nekt-
ardansstaði á miðborgar-
svæðinu, heldur beina
þeim á athafnasvæði
utan borgarmiðjunnar,
svo sem á Grensásveg,
þar sem löng hefö er fyr-
ir slíkum rekstri á því
svæði. Segja má að með
þessari ákvörðun hafi
borgarráð búið til kvóta-
kerfi handa nektardans-
stöðum. í viðtali við DV í
gær sagði Helgi Hjörvar, forseti
borgarstjórnar, að nektardansstað-
irnir „hefðu óneitanlega sett svip á
borgina og hún fengið óæskilega um-
fjöllun". Þetta leiddi til áðumefndrar
ákvörðunar hjá borgarráði.
> "
>
. _ V' 1 Club Clinton, Fischersundi
Nektarstaðir
^ .■ - - 3 Maxim s, Hafnarstræti
i Reykjavik ^ 4 ciub ?, Hveifisgöh,
E!» J > , 5 Vegas,Laugavegi
ásamt Þórskaffi í BrauUrfiolti og
Bóhem i Grensásvegí
Nektarkvóti
Vegasmenn eru hæstánægöir meö borgarráð.
Þór Ostensen, framkvæmdastjóri
Vegas, er ánægður með ákvörðun
borgarráðs.
„Þessi ákvörðun borgarráðs gleð-
ur mig. Það hefur lengi legið fyrir
að ekki eigi að bæta við nektar-
dansstöðum í borginni og
hafa tveir eða þrir aðOar
þegar fengið afsvar. Ég
hef þó ekki hugsað mikið
út í það hvort staðurinn
hafi rokið upp í verði.
Hins vegar er ég mjög
hlynntur aðhaldi frá yfir-
völdum og hvet til þess að
fylgst sé með stöðum í
þessari starfsgrein."
Menn úr viðskiptalífinu
hafa bent á að þarna hafi
myndast kvótakerfi og nú
muni þeir staðir sem fyrir
eru ganga kaupum og söl-
um fyrir háar fjárhæðir.
„Þessir staðir munu nú
ganga á milli manna fyrir
háar upphæðir. Ef eigendun-
um verður bannað að selja
staðina er lítið mál að breyta fyrir-
tækinu í hlutafélag og selja síðan
hlutabréfm fram og til baka - þaö
getur enginn komið í veg fyrir það,“
sagði kona úr viðskiptalifmu sem
viU ekki láta nafns síns getið. -ÓRV
Eldur í skóla
Eldur kom upp í Seljaskóla um
kvöldmatarleytið í gær. Eldur
hafði hlaupið í þakklæðningu þar
sem iðnaðarmenn höfðu verið að
vinna með gastæki.
Fjölmennt lið slökkviliðsmanna
fór á staðinn og eftir snarpa
baráttu við eldinn á þakinu tókst
því að koma í veg fyrir frekara tjón
en þegar var orðið. -EIR
Pantið í tíma
da?ai i Þjóðhátíð
20
FIUGFÉLAG ÍSLANDS
570 3030
Leigubílstjóri ætlaði að kaupa þrjá rjómaísa:
Sjoppueigandinn
hirti debetkortið
- því ísamir kostuðu minna en 500 krónur
Runólfur Runólfsson leigubíl-
stjóri missti debetkortið sitt í hend-
Vettvangur átakanna um rjómaísinn
Kaupmaðurinn í Dals-Nesti tekur ekki kort fyrir
„iágar og óhagkvæmar upphæöir“.
umar á hafnfirskum sjoppueiganda
þegar hann ætlaði að kaupa þrjá
rjómaísa handa sér, syni sínum og
kunningja í gær.
„Ég bað um þrjá ísa og afgreiðslu-
stúlkan tók því vel. Þegar ég svo
ætlaði að greiða fyrir með kortinu
mínu sagði hún að ég yrði að kaupa
fyrir minnst 500 krónur. Þar sem ís-
amir kostuðu aðeins 480 krónur
vildi hún að ég keypti bland í poka
fyrir 20 krónur. Því neitaði ég og þá
kom sjoppueigandinn og hrifsaði til
sin kortið mitt,“ sagöi Runólfur sem
sat eftir með sárt ennið og
ís- og kortlaus.
Eftir þref við sjoppulúg-
una var lögreglan tilkvödd
en henni tókst ekki að hafa
debetkort Runólfs af Sigurði
Lámssyni sjoppueiganda í
Dals-Nesti sem segist aug-
lýsa það vel innan dyra sem
utan að hann taki ekki við
kortagreiðslum fyrir lægri
upphæð en 500 krónur. Run-
ólfur ók því með son sinn og
kunningja á lögreglustöðina
í Hafnarfirði þar sem hann
kærði Sigurð sjoppueiganda
fyrir stuld á korti sinu.
„Ég er ekki enn búinn að fá kort-
ið mitt,“ sagði Runólfur leigubíl-
stjóri seint í gærkvöldi og Sigurður
Lárusson sjoppueigandi hafði þetta
um málið að segja:
„Menn eru að misnota kortin á
lágar og óhagkvæmar upphæðir og
gegn því hef ég barist lengi. Þetta
mál fer lengra, álla leið tO ríkissak-
sóknara ef þörf krefur," sagði Sig-
urður í Dals-Nesti. -EIR
DVA1YND DVÖ
Stoke á Skaganum
Enska 2. deildarliöiö Stoke City undir stjórn Guöjóns Þóröarsonar, frægasta Akurnes-
ingsins tii þessa, hefur verið á Akranesi síðan á fimmtudag. í gærkvöid keppti liðiö
viö Skagamenn þar sem jafntefli varö. Á myndinni eru frá vinsti: Graham Kavanagh,
markahæsti leikmaður Stoke, Guöjón Þóröarson knattspyrnustjóri og Tony Dorigo,
nýjasti leikmaður Stoke; hann kom frá Derby fyrir ekki neitt.
DV-MYND E.ÓL
í sólsklnsskapi
Hann sveiflaöi sér á umferöarskiltinu í sólskininu í Reykjavík í gær meöan
borgarbúar léku viö hvern sinn fingur í sumarblíöunni.
Eldur í Ásbirni RE 50 í Slippnum:
Neisti kveikti í togara
Neisti úr logsuðu-
tæki iðnaðarmanna
kveikti í innréttingu
í vistarverum áhafn-
ar um borð í togar-
anum Ásbirni RE 50
i Slippnum í Reykja-
vík síödegis í gær.
Varð úr mikill eldur
sem eyðilagði
minnst eina káetu
auk þess sem miklar
reykskemmdir urðu
í framhluta skipsins.
„Við sendum fjóra
reykkafara inn í
skipið til móts við
Slökkviliösmenn voru í þrjá
tíma aö ráöa niöurlögum elds-
ins í togaranum.
eldinn og alls tók
það okkur þrjár
klukkustundir að
ráða niðurlögum
hans,“ sagði varð-
stjóri hjá slökkvilið-
inu í Reykjavík í
gær. Það auðveldaði
okkur verkið að
skipið var á landi en
ekki á sjó.“
Ásbjöm RE 50 er
isfisktogari í eigu
Granda hf. og þekkt-
ur sem mikið afla-
skip, sérstaklega á
karfamiðum. -EIR