Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2000, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2000 15 DV A.S. Byatt er gestur Bókmenntahátíðar í Reykjavík: Hinn hverfuli veruleiki Einn þekktasti rithöfundurinn sem nú gistir Bókmenntahátiö í Reykjavík er breska skáldkonan og bókmenntafræðingurinn Antonia Susan Byatt eða A.S. Byatt eins og hún kallar sig. Hún fæddist árið 1936 í Sheffield í Englandi og gaf út fyrstu bókina sína, Shadow of a Sun, árið 1964. Þekktust er hún fyrir skáldsög- una Possession sem kom út 1990 og fékk Booker verðlaunin bresku en hún hefur skrifað fjölda annarra skáldsagna og smásögur hennar eru líka heillandi lesning. Rómansa úr tvennum tímum Possession er sérkennileg skáld- saga - eins og raunar flest verk Byatt. Hún segir frá tveimur imgum bókmenntafræðingum í nútímanum, pilti og stúlku, sem hvort um sig eru að rannsaka skáld frá 19. öld, hann karl, hún konu. Þau kynnast af til- viljun og verða ástfangin og smám saman komast þau að því að skáldin þeirra í fortíðinni þekktust líka og elskuðu reyndar hvort annað... Þetta er ekki „skáldsaga" heldur „rómansa" eða nútímariddarasaga, segir Byatt og hún segist líka hafa viljað stæla á sinn hátt ástarsögur Georgette Heyer sem hún dáði sem unglingur. Sagan er óhemju skemmtileg og sýnir vel að ekkert starf í heimi getur verið æðislegra en að semja skáldsögur - ef maður hef- ur hæfíleikana til þess. Örlög persón- anna vefast og vefjast saman og fleira og fleira kemur í ljós um fortíðina eins og í góðri leynilögreglusögu uns lesandinn sjálfur er kominn á kaf og orðinn þátttakandi í henni. Stærsta afrek Byatt í Possession er þó að hún bæði skrifar bréf og yrkir heilu ljóöaflokkana í nafni hinna upp- diktuðu skálda sögunnar og þó að það séu stælingar á 19. aldar ljóðum sem Byatt er sérfræðingm- í eru þau furðu mögnuð mörg, fyrir utan hvað þau eru ólík innbyrðis eftir því hvort skáldið hún yrkir fyrir. Þetta gerir bókina auð- vitað illþýðanlega en ég bið alla skáld- sagnafíkla og ljóðavini að renna í þessa bók við fyrsta tækifæri, hafi þeir ekki þegar lesið hana. Ævintýrln hellla Eitt af því sem maður tekur eftir undir eins við texta Antoníu Byatt er hvað hinn norræni heimur er henni nákominn. Hún vitnar í norræn- ar sögur, ævintýri og goösagnir, notar norræn nöfn á fólki og stöð- um og jafnvel norræn orð. Hún hefur sagt í viðtali að sem bam hafi hún verið sólgin í ævintýri og goðsögur og hennar uppá- haldsbók hafi lengi verið gamalt enskt rit um norræna goðafræði sem móðir hennar hafði keypt sem ungur stúdent þegar hún var að læra fomíslensku. Biblíusög- urnar vöktu sáralítinn áhuga minn, segir hún sakbitin, en ég var gagntekin af hinum svikula Loka, Fenrisúlfinum grimma og Óðni hinum víðförula. Heims- mynd mín var mótuö af Ásgarði, grískum goðsögum, Grimmsævin- týrum og ævintýmm H.C. Ander- sens. Hver er ævi manns? Langt mál mætti skrifa um sagnaflokk Byatt um stúlkuna Fredericu Potter sem er fædd um svipað leyti og höfundurinn. í þremur bókum, The Virgin in the Garden, Still Life og Babel Tower, hefur hún opnað leið inn í flókið líf Fredericu, fjölskyldu hennar, vina, ástmanna og annarra sem hún kynnist og um leið kortlagt í geysispennandi texta lífshætti fólks í Englandi á 6. og 7. áratug aldarinnar. Aðdáendur Byatt bíða spenntir eftir boðuðu fjórða bindi þess sagnaflokks en nýjasta skáldsaga hennar sem kom út núna í sumar, The Biographer’s Tale, fjallar um allt annað fólk. Þar hittmn við Phineas G., nettan lítinn bók- menntafræðing sem verður leiður á kenningum og langar til að fást við stað- reyndir. Til þess ásetur hann sér að skrifa ævisögu - því ævi manns er jú sett saman úr staðreyndum. Hann velur sér að viðfangsefni virtan ævisagnahöfund en rekur sig fljótlega á að staðreyndir em svikular. Þessi saga teng- ist fyrri bókum Byatt ýmislega þvi alltaf hef- ur hún verið að glíma við hinn hála og hverf- ula raunveruleika á einhvem hátt en hún er millispil hjá henni, mun léttari og aðgengi- legri bók en margar hinna fyrri. Antonia Byatt les upp í Iðnó í kvöld kl. 20.30 og i hádeginu á morgun spjallar hún um höf- undarverk sitt við Silju Aðalsteinsdóttur i Norræna húsinu. -SA Ahrifamikil stund Unaðsfagrar sópranraddir i þaulhugsuðu jafn- vægi við dýpri raddir karla og kvenna sungu sálminn Heyr, himna smiður eftir Þorkel Sigur- bjömsson á tónleikum í Hallgrímskirkju á mánudagskvöldið. Tónleikamir voru upphaf fimmta starfsárs Schola cantorum, en stjómandi kórsins er Hörður Áskelsson. Lag Þorkels er einhver fegursti sálmur sem saminn hefur verið og var flutningur kórsins í einu orði sagt frá- bær, styrkleikajafnvægið fullkomiö og túlkunin blátt áfram eins og hún átti að vera. Var þetta einkar áhrifamikil stund, og var andaktin svo mikil í kirkjunni að enginn þorði að klappa. Næsta atriði efnisskrárinnar var Drottinn er minn hirðir eftir Jónas Tómasson. Hófst tónlist- in á kraftmiklu ákalli sem síðan umhverfðist í myrka hugleiðslu leitandi tóna. Útkoman var magnþrungin, enda flutningur kórsins snilldar- legur. Ekki síðri var sálmurinn Tum Thee Unto Me eftir Oliver Kentish, sem byijaði á hæglátum keðjusöng er vatt upp á sig og fékk að þróast eðlUega allt til loka. Tónlistin er dimm og seið- andi, hástemmd og falleg, ávallt samkvæm sjálfri sér og greinilega innblásin. Alls vom atriði tónleikanna sjö, og í miðjunni trónaöi Requiem Jóns Leifs, eitt fegursta verk tónskáldsins. Það einkennist af innhverfu sam- spili dúr- og moll-þríunda sem í einfaldleika sín- um og tilgerðarleysi nær fram ótrúlegum áhrif- um. Því miður gerði örlítil ónákvæmni vart við sig í efstu tónum söngs- ins, en þar fyrir utan var túlkunin alveg eins og hún átti að vera og eðlilegt framhald þess sem á undan var gengið. Fljótt lelðlgjarnt í raun hefðu tónleik- amir verið fullkomnir ef kórinn hefði hér látiö staðar numið. En þrjú önnur verk vora eftir, Tignið Drottin eftir Jón Hlöðver Áskelsson, Maríukvæði eftir Atla Heimi Sveinsson og Sam’s Mass eftir John A. Speight. Maríukvæði Atla Heimis er fallegur sálmur sem er ekkert að þykjast vera eitthvað annað en hann er, en Tignið Drottinn eftir Jón Hlöðver er að mati undirritaðs ekki eins merkileg tónlist. Að formi til byggist hún á þrástefjun, sem er góð og gild tónsmíðaaðferð ef grannhugmyndimar era innblásnar, en í verki Jóns Hlöðvers verður maður fljótt leiður á að heyra sömu hendinguna aftur og aftur. Og þó flutningur kórsins hafi verið kraftmikill og litrikur, dugði það ekki til. öllu flóknari vinnubrögð lágu að baki tónsmíðar Johns A. Speight, og var formuppbygging verksins hugvitsam- leg og oft tilkomumik- il. Sjálfar tónhug- myndimar voru hins vegar ekki eins bita- stæðar, og hinar miklu tilfinningar sem era greinilega kveikjan að sköpun tónlistarinnar fengu aldrei útrás í stemn- ingsaugnablikum eða laglínum við sitt hæfi. Hér er ekki verið að segja að tónsmíöin hafi veriö tilgerðar- leg, en hún kemst bara aldrei á flug, þrátt fyrir góðan flutning kórsins, einsöngvarans Mörtu G. Halldórsdóttur og Daða Kobeinssonar óbóleik- ara. Var þetta óneitanlega tómlegur endir á tón- leikum, sem í byrjun lofuðu góðu. Jónas Sen ________________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Bókmenntahátíð í kvöld kl. 20.30 lesa í MHHMVn Iðnó rithöfundarnir Kerstin Ekman, André C Brink, A.S. Byatt, Mar- ÍL f Wji grét Lóa Jónsdóttir og W Einar Kárason. Á morg- H un kl. 12 eiga þær hádeg- íiÍA-. J| isspjall í Norræna hús- inu breska skáldkonan A.S. Byatt og um- sjónarmaður menningarsíðu DV. Kl. 15 verða þar pallborðsumræður um Arfinn og Netið - framtíð evrópskra bókmennta - með þátttöku Noru Ikstena, Ib Michael frá Danmörku og Andra Snæs Magna- sonar (á mynd). Annað kvöld lesa upp í Iðnó kl. 20.30 Monika Fagerholm, Edward Bunker, Slawomir Mrozek, Bragi ólafs- son og Guðrún Eva Mínervudóttir. Því miður kemst fransk-marokkanski rithöfundurinn Tahar Ben Jelloun ekki á hátíðina að þessu sinni af persónulegum ástæðum. Hann átti að vera í tveimur dagskrárliðum, upplestri á föstudags- kvöld og umræðum í hádeginu á laugar- dag, en af því verður ekki. Goðsögnin Baldur Á morgun 14. september, á fæðingar- degi dr. Sigurðar Nordals, gengst Stofnun Sigurðar Nordals fyrir fyrirlestri um ís- lensk fræði. Að þessu sinni flytur John Lindow, prófessor í norrænum fræðum og þjóðfræðum við Kalifomíuháskólann í Berkeley, fyrirlestur um goðsögnina um Baldur og túlkanir á henni. Fyrirlestur- inn verður fluttur á ensku og nefnist: „When disaster struck the gods: Baldr in Scandinavian mythology." Fyrirlesturinn verður fluttur í Þjóðarbókhlöðunni og hefst kl. 17.15. Heimspeki í skugga Platóns Á morgun kl. 17.15 verður fyrsta mál- stofa haustmisseris haldin á vegum Guð- fræðistofnunar i V. stofu í aðalbyggingu Háskóla íslands. Þá mun prófessor Jón Ma. Ásgeirsson flytja fyrirlesturinn „Kýnikear og kanónar: Heimspeki í skugga Platóns". Síðustu forvöð í tilefni af gestaleik Þjóðleikhússins á EXPO 2000 i Hannover verða örfáar sýn- ingar á Sjálfstæðu fólki á Stóra sviðinu. Þetta eru allra síðustu sýningar á þessari rómuðu uppfærslu og þær verða allar á löngum leikhúsdögum þegar báðir hlutar verksins eru sýndir á sama degi. Sýning- ardagar eru fyrirhugaðir 17. september, 23. september, 30. september og 7. október. Höfundar leikgerðarinnar eru Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guð- mundsdóttir, tónlistina samdi Atli Heimir Sveinsson, höfundur búninga er Þórunn Elísabet Sveinsdóttir og höfundur leik- myndar Axel Hallkell. Leikstjóri er Kjart- an Ragnarsson. Meðal leikenda eru Ingvar E. Sigurðsson, Amar Jónsson, Margrét Vilhjálmsdóttir, Steinunn Óhna Þorsteins- dóttir og Edda Heiðrún Backman. Þetta eru allra síðustu forvöð að sjá Sjálfstætt fólk í Þjóðleikhúsinu og er miða- sala hafin. Upp skal á kjöl klífa Á laugardaginn 16.9. verður haldin ráð- stefna um menningartengda ferðaþjón- ustu að Hólum í Hjaltadal. Til að auka á gleðina verða skagfirskar hestaréttir og réttarball sama dag! Ráðstefnan tengist Evrópuverkefninu „Guide 2000“ en markmið þess er að efla menningartengda ferðaþjónustu með sér- stakri þjálfun starfsfólks. Þátttökulöndin eru auk íslands, Danmörk, Irland og ítal- ía. Island stýrir verkefhinu og hefur fyr- irtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjón- ustunnar umsjón með því, en Iðnþróun- arfélag Norðurlandsvestra (INVEST) er samningsaðili hér á landi. Ráðstefnan hefst kl. 10 og lýkur kl. 17 með heimsókn í Staðarréttir. Fundarstjóri er Magnús Jónsson, sveitarstjóri á Skagaströnd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.