Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Page 2
2
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
Fréttir
Undanþágu til kennslu einhverfra barna hafnað:
Neyðarástand skapast
- segir skólameistari Menntaskólans í Kópavogi - mun berjast áfram
Nei
Undanþágunefnd hefur hafnað undanþágubeiðni Menntaskólans í Kópavogi
um að sex einhverfir nemendur í skólanum fái kennslu í verkfallinu. Hér er
Gunnlaugur Ástgeirsson ásamt verkfaiisvörðum.
Undanþágunefnd,
sem starfar vegna
yfirstandandi verk-
falls framhalds-
skólakennara, hefur
hafnað undanþágu-
beiðni Menntaskól-
ans í Kópavogi um
að sex einhverfir
nemendur í skólan-
um fái kennslu í
verkfallinu.
„Það skapast neyðarástand þegar
truflun verður á kennslu þessara
nemenda, því einhverfa er fótlun af
þeim toga að öll röskun er afskap-
lega slæm fyrir þá,“ sagði Margrét
Friðriksdóttir, skólameistari
Menntaskólans í Kópavogi, við DV.
Nemendunum umræddu er kennt
í sérstakri deild í MK. í undanþágu-
nefnd eiga sæti tveir fulltrúar, Gunn-
laugur Ástgeirsson frá Kennarasam-
bandi íslands og Valur Ámason, tU-
nefndur af fjármálaráðherra. FuU-
trúi ríkisvaldsins samþykkti undan-
þágubeiðnina en fuUtrúi kennara-
samtakanna hafnað henni. í lögum
um undanþágunefnd segir að báðir
aðUar verði að vera sammála til þess
að undanþága sé veitt.
„Ég var meira að segja með fuU-
tingi foreldra í þessu efni þegar sótt
var um undanþáguna," sagði Mar-
grét. „Þeir lýstu því bréflega hvaða
áhrif verkfaUið hefur á þessa nem-
endur. Ég satt best að segja undrað-
ist það mjög að beiðninni skyldi vera
hafnað. Það var gert á þeim forsend-
um að ekki lægju fyrir nægjanleg
rök til að lýsa þessu sem neyðar-
ástandi. Ég var mjög ósátt við þá
málsmeðferö."
Margrét hefur ekki gefiö upp aUa
von í baráttunni fyrir að fá kennslu-
undanþágu fyrir nemenduma sex.
Hún hyggst endurnýja umsóknina
strax eftir helgi. Þá mun hún leggja
fram álit sérfræðinga, þ.e. lækna og
sálfræðinga, sem hafa með einhverfa
nemendur að gera.
„Mitt mat er að ef einhverjir nem-
endur í framhaldsskólum flokkist
undir það að eiga rétt á undanþágu
þá séu það þessir nemendur. ÖU
meðferð og kennsla gengur út á að
halda öUu í föstum skorðum. Stöðug-
ar endurtekningar og reglubundið
starf eru forsendurnar fyrir því að
vinna með þá þannig að þeir mennt-
ist og þroskist. Þeim fer beinlinis aft-
ur við svona röskun. Sú afturfór var
farin að sýna sig strax eftir 3-4 daga
hjá þessum nemendum. Þá fórum
við að berjast í þessu fyrir alvöru."
Samkvæmt lögum um kjarasamn-
ing opinberra starfsmanna er ein-
ungis heimUt að kaUa fólk tU starfa
tU þess að afstýra neyðarástandi.
Gunnlaugur sagði ástæðuna fyrir
því að beiðninni hefði verið hafnað
þá að hann teldi að ekki hefði verið
sýnt fram á að þarna væri neyðar-
ástand í skUningi laganna. Enn
fremur að ekki hefði verið sýnt fram
á meira neyðarástand hjá þessum
nemendum heldur en mörgum öðr-
um fötluðum nemendum og fjölda
unglinga sem ættu við vandamál að
stríða sem yrðu erfíðari viðfangs
þegar skólastarf slitnaði.
„Þessi vandamál voru fyrirsjáan-
leg,“ sagði Gunnlaugur. „Lögin gera
ráð fyrir því að kaUa megi fólk tíma-
bundið tU vinnu tU að afstýra neyð-
arástandi. Neyðarástand hlýtur að
vera eitthvað óvænt sem kemur upp
á, sem þarf að bregðast við, en ekki
einhver fyrirséður vandi. Það er aUs
ekki hlutverk þessarar lagagreinar
að létta af erfiðleikum sem verða tU
við verkfaUið." -JSS
Margrét
Friöriksdóttir.
Tamningastöö opnuö:
Draumaaðstaða
hestamannsins
Opna tamningastöö dv-mynd gunnar kristjánsson.
Húnvetningurinn ísólfur Líndal Þórisson frá Lækjamóti ásamt unnustu sinni, Vigdísi Gunnarsdóttur. Þau hafa opnaö
myndarlega tamningastöð í grennd við Grundarfjörð.
Reykjavík:
225 manns án lögheimilis
DV, GRUNDARFIRÐI:_______
Isólfur Líndal Þórisson frá
Lækjamóti í V-Húnavatnssýslu
opnaði fyrir skömmu tamninga-
stöð í Suður-Bár við austanverðan
Grundarfjörð. I tUefni opnunar-
innar bauð ísólfur ásamt unnustu
sinni, Vigdísi Gunnarsdóttur, til
opins húss að Suður-Bár fyrir
nokkru.
Aðstöðuna leigir ísólfur af
Marteini Njálssyni, ferðaþjón-
ustubónda í Suður-Bár sem breytt
hefur því sem áður var fjós í rúm-
gott hesthús. Var það samdóma
álit þeirra gesta sem litu inn á
laugardaginn að þetta væri
draumaaöstaða hestamannsins.
Stórt og rúmgott hesthús með
mismunandi stórum stíum og inn
á milli básar tU að binda baldna
fola. Þá er rúmgóð járninga- og
vinnuaðstaða, og innangengt er í
tamningaskemmu þar sem frum-
tamning fer fram.
Sýndi ísólfur viðstöddum hand-
brögðin við notkun bandmúls i
frumtamningu í skemmunni.
Enn fremur er reiðgerði úti í
tengingu við hesthúsið.
Að sögn ísólfs er hann með full-
bókað í tamningu til áramóta og
þegar væru farnar að berast pant-
anir eftir áramót. Sagði ísólfur að
greinilegt væri að hugur væri
kominn í Vestlendinga vegna
væntanlegs Fjórðungsmóts að
Kaldármelum næstkomandi sum-
ar. -DVÓ/-GK
I Reykjavík eru 225 manns óstaðsett-
ir í hús eða, með öðrum orðum, eiga
ekki skráð lögheimili í ákveðnu húsi.
Færri eru óstaðfestir í hús á lands-
byggðinni en heildartala þessa fólks á
íslandi er um þijú hundruð manns.
Þótt bannað sé með lögum að hafa ekk-
ert lögheimili sagði Skúli Guðmunds-
son, lögfræðingur og yfirmaður þjóð-
skrárinnar, svona skráningu hafa
tíðkast áratugum saman og að núver-
andi tala í Reykjavík í dag væri svipuð
því sem hún hefði verið undanfarin ár.
„Þetta fólk er með sömu réttindi og
ber sömu skyldur og þeir sem eru
skráðir í ákveðin hús í viðkomandi
sveitarfélagi," sagði Skúli. Hann bætti
því við að á ýmsum stöðum í löggjöf
væri gert ráð fyrir fólki sem er skráð
óstaðsett í hús. Nýjasta dæmið, sagði
Skúli, er í lögum um kosningar til Al-
þingis, Ástæður þess að fólk er óstað-
sett í hús eru margvíslegar en algeng-
ustu tilvikin eru hjá fólki sem hefúr í
reynd verið heimilislaust árum sam-
an. Einnig er nokkuð um að fólk
gleymir að flytja heimilisfang sitt þeg-
ar það flytur úr annaðhvort leiguíbúð
eða eigin íbúð og er þá oftast um tíma-
bundið ástand að ræða. Enn fremur
eru dæmi um fólk sem flutt hefur til
útlanda en ekki tilkynnt Hagstofunni
um dvalarstað sinn. -SMK
Ökumaður sofnaöi
Rannsóknamefnd mnferðarslysa tel-
ur orsök mannskæðs banaslyss í febrú-
ar síðastliðnum hafa verið þá að öku-
maður jeppabifreiðar hafi sofnað undir
stýri. Þrír létust og fjölmargir slösuð-
ust i slysinu, sem varð á Vesturlands-
vegi á Kjalamesi. Bylgjan greindi frá.
Grunnskólakennarar funda
Fimmti fundur samninganefnda Fé-
lags grunnskólakennara og Launa-
nefndar sveitarfélaga var haldinn í
gær. Á fundinum vakti samninganefnd
Félags grunnskólanema athygli samn-
inganefndar Launanefndar á því að nú
er ekki nema innan við hálfur mánuð-
ur þangað til gildandi viðræðuáætlun
rennur út. Visir.is greindi frá.
Nýr skrifstofustjóri
Menntamálaráð-
herra Bjöm Bjama-
son hefur ákveðið að
veita Karitas H.
Gunnarsdóttur deild-
arstjóra embætti
skrifstofustjóra
menningarmála í
menntamálaráðu-
neytinu til fimin ára frá og með 1. des-
ember 2000 að telja. Visir.is greindi frá.
1302 atvinnulausir
Atvinnuleysisdagar í október jafn-
giltu því að 1.302 hafi að meðaltali ver-
ið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Fleiri konur vom atvinnulausar en
karlar, en 829 konur vom atvinnulaus-
ar en 473 karlar. Þetta em að meðaltali
66 fleiri án atvinnu en í septembermán-
uði, en um 589 færri en í október í
fyrra. Visir.is greindi frá.
„Hátískan“ í notuðum fötum
Rauða kross búðin, verslun með
vandaðan notaðan fatnað, opnar í dag
kl. 13 með nýstárlegri tískusýningu þar
sem þátttakendur úr keppninni Ungfrú
ísland.is sýna „hátiskuna" í notuðum
fótum. Vísir.is greindi frá.
Tilboöum tekiö
Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráð-
herra, Sturla Böðv-
arsson, samgöngu-
ráðherra, og Karl
Steinar Guðnason,
forstjóri TR, ákváðu í
gærmorgun að taka
tilboði fjögurra fyrirtækja um sjúkra-
og áætlunarflug í landinu. Þetta em
Flugfélag íslands, Flugfélag Vest-
mannaeyja, íslandsflug og Leiguflug ís-
leifs Ottesens. Visir.is greindi frá.
Bóklegt bílpróf á Netinu
Nú geta allir þeir sem hafa aðgang
að Netinu spreytt sig á prófi sem er
svipaö skriflegum hluta bflprófs Um-
ferðarráðs. Þetta er nýjung hjá VÍS. Bú-
ast má við að margir hafi gagn af aö
nýta þennan möguleika þar sem fall-
prósentan í þessum hluta prófsins hef-
ur undanfarin ár verið um 30%. Vis-
ir.is greindi frá.
Fjórtán sóttu um
Fjórtán einstaklingar sóttu um stöðu
forstjóra Byggðastofnunar, en umsókn-
arfrestur rann úr 14. nóvember siðast-
liðmn. Iðnaðarráðherra skipar í stöð-
una til fimm ára að fenginni tiliögu
stjórnar Byggðastofnunar. Visir.is
greindi frá.
OZ opnar í Kanada
OZ.com tilkynnti í
gær að það hefði opn-
að skrifstofur í
Kanada, með kaup-
um á fyrirtæki sem
stofhaö var af
Microcell Telecomm-
unications og Erics-
son Canada. Kaup-
verðiö er 2,3 milljarðar króna. Visir.is
greindi frá.