Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
Fréttir dv
Fiskeldi Eyjarfjarðar í fararbroddi í lúðueldi:
Norðmenn fá ís-
lensk lúðuseiði
- hafa ekki náð sama árangri og íslendingar
PV, AKUREVRI:_______________________
Fiskeldi Eyjafjarðar hf. hefur
ákveðið að selja 200 þúsund lúðu-
seiði til Noregs, en það er fyrirtæk-
ið Hydro Seafood sem kaupir seið-
in til að ala þau. Þetta er í fyrsta
skipti sem lúðuseiði eru seld frá Is-
landi til Noregs. „Norðmenn hafa
verið lengi í lúðueldi en þeir hafa
ekki náð góðum árangri og þess
vegna eru þeir að kaupa þessi seiði
af okkur,“ segir Björgúlfur Jó-
hannsson, stjórnarformaður Fisk-
eldis Eyjafjarðar.
Björgúlfur segir að Fiskeldi Eyja-
ijarðar sé með umframgetu í fram-
leiðslu lúðuseiða og því sé tilvalið
að selja lúðuseiði þótt það hafi ekki
verið á stefnuskrá fyrirtækisins að
gera það. Hann segir að mjög gott
verð fáist fyrir seiðin, en vildi ekki
upplýsa um verðið að öðru leyti.
„Nei, það getur verið hluti af
samningi okkar við Norðmenn að
þessi seiðasala leiði ekki til þess að
þeir fari í samkeppni við okkur,“
sagði Björgúlfur, þegar hann var
spurður hvort ekki væri verið að
leggja vopn í hendur Norðmanna
með því að selja þeim þessi seiði.
Hann segir að Norðmenn muni ala
seiðin í 4 kg og því muni þetta gefa
þeim 800 tonn af lúðu ef engin afföll
verða, og það sé ekki það mikið
magn að markaðurinn eigi alveg að
ráða við slíkt.
Fiskeldi Eyjafjarðar er með
400-500 þúsund lúðuseiðafram-
leiðslu á ári, en fyrirtækið er að
skila 60-70 tonnum af lúðu á mark-
að á ári. Seiðaeldi fyrirtækisins er
á Hjalteyri við Eyjafjörð, klakflsk-
eldi er í Dalvíkurbyggð og
áframeldi í Þorlákshöfn. Fyrirtæk-
ið er helmingseigandi að fyrirtæki
í Kanada sem starfar að lúðueldi og
seldi þangað nýlega 150 þúsund
lúðuseiði.
Aðaleigendur Fiskeldis Eyja-
fjarðar eru Hafrannsóknastofnun
með um 25%, Samherji um 16%,
Útgerðarfélag Akureyringa hf. um
10%. Aðrir stórir hluthafar eru
m.a. Akureyrarbær, Arnarnes-
hreppur, LÍÚ og Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna. -gk
J árnblendif élagið:
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Tilkynnt var á Verðbréfaþingi ís-
lands í fyrradag að stjóm Islenska jám-
blendifélagsins hf. hefði ráðið Norð-
manninn Frank Björklund fram-
kvæmdastjóra félagsins á fundi sínum
í gærmorgun. Frank tekur við starfmu
um næstu áramót en Bjami Bjamason
gegnir því fram til þess tíma.
Frank Björklund er 43 ára vélaverk-
fræðingur með meistaragráðu í fram-
leiðslutækni. Hann er kvæntur Kersti
Björklund og eiga þau 5 böm. Gert er
ráð fyrir að fjölskyldan flytjist til Is-
lands í upphaft næsta árs. Þá hefur
Helgi Þórhallsson verið ráðinn aðstoð-
arframkvæmdastjóri félagsins frá sama
tíma en hér er um nýtt starf að ræða.
íslenska jámblendifélagið hf. heyrir
undir kísilmálmdeildina í skipuriti El-
kem en í henni em 6 jámblendi- og kís-
ilmálmverksmiðjur auk Jámblendifé-
lagsins. Kísilmálmdeildinni hefur nú
verið skipt i þrjú svið, kísilmálmsvið,
jámblendisvið og málmsteypusviö.
Ákveðiö hefur verið að Frank Björk-
lund verði yfirmaður járnblendisviðs-
ins samhliða framkvæmdastjórastarf-
inu. Stjóm félagsins hefur einnig
ákveðið að setja á stofn sérstakt þróun-
arsetur sem dr. Jón Hálfdanarson mun
veita forstöðu. Meginverkefni þróunar-
seturs verða nýjungar og tæknifram-
farir í framleiðsluferli verksmiðjunnar
og á framleiðsluvörum.
-HKr.
Ungur nemur, gamall temur
Nú er aö renna upp tími laufabrauösgeröar. Víst er aö þekkingin á bak viö þau vísindi glatast ekki því hér er kunnátt-
unni miölaö af natni til fulltrúa ungu kynslóöarinnar.
Eskfirðingar
græða á kol-
munnanum
Tekið hefur verið á móti tæplega
54 þúsund tonnum af kolmunna hjá
fiskimjölsverksmiðju Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar það sem af er ár-
inu. Þetta er tæpur fjórðungur alls
kolmunnaafla sem landað hefur ver-
ið en í gærmorgun höfðu fiskimjöls-
verksmiðjumar alls tekið á móti
tæplega 233 þúsund tonnum af
kolmunna.
Það sem af er vertíðinni hefur
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. tekið
á móti 7000 tonnum meiri
kolmunnaafla en það fyrirtæki sem
næst kemur en það er Síldarvinnsl-
an í Neskaupstað með alls tæplega
47 þúsund tonn. Þar á eftir kemur
SR mjöl hf. á Seyðisfirði með tæp-
lega 43 þúsund tonn. Loðnuvinnslan
sf. á Fáskrúðsfirði er með rúmlega
30 þúsund tonn og Tangi hf. á
Vopnafirði með rúm 22 þúsund
tonn.
Kolmunna hefur verið landað á 12
stöðum á landinu og hafa íslensk
skip komið með alls tæplega 210
þúsund tonn af kolmunna að landi.
Afli erlendra skipa er rúm 23 þús-
und tonn. -DVÓ
Snjóakistan
á að hverfa
DV. SUÐURLANDI:______
Þessa dagana er verið að vinna
við breytingar utan vegar á leiðinni
austur yfir fjall sem eiga að verða
til þess að draga úr snjósöfnun á
veginum. Skammt upp af Sand-
skeiði er verið að brjóta niöur hæð-
ir sitt hvorum megin vegar. Á milli
hólanna hefur alltaf verið mikil
snjósöfnun og hingað til hefur um-
ferð í ófærð að vetrarlagi verið
beint á vetrarvegi sem lágu eftir
hólunum. Efniö sem fellur til við
framkvæmdimar er síðan flutt á
vegkantinn ofan viö Litlu kaffistof-
una þar sem það er notað til að gera
meiri fláa á kantinn í þeim tilgangi
að koma í veg fyrir að snjófjúk
þyrlist upp á veginum og safnist þar
fyrir. Þegar verkinu verður lokið í
brekkunni er reiknað með því að
snjórinn fjúki yfir veginn og safnist
því síður fyrir á honum. -NH
Vcðriö i kvölil
Hlýnandi veöur
Norölæg átt, 8 til 13 og slydda meö köflum
noröaustan- og austanlands, dálítil él
norövestan til, en annars skýjað með köflum.
Hlýnandi veöur og víða frostlaust á láglendi.
Solargangur og sjávarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 16.19 15.47
Sólarupprás á morgun 10.10 10.12
Síödegisflóö 24.10 04.43
Árdegisflóö á morgun 00.43 04.43
Skýringar á veburtáknurin
J<VINDÁTT lOV-Hm ^ -10° \VINDSTYRKUR VconcT I metrum á sekúndu 1 HEIÐSKIRT
o
LETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
SKÝJAO
;
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
‘•W ====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNiNGUR ÞOKA
Hálkan getur veriö varasöm
Það hefur veriö kalt á landinu
undanfarna daga og hálkan farin að
hrella menn. Á slysavaröstofum
borgarinnar var nóg að gera því margir
höfðu runnið til t hálkunni. Það þarf
nefnilega aö passa sig og vera í góðum
vetrarskóm og jafnvel getur verið gott
aö festa mannbrodda undir skóna til aö|
menn renni ekki á hausinn.
Léttskýjaö á Suður- og Vesturlandi
Norölæg átt, 8-13 m/s austan til en hægari vindur annars staðar.
Slydduél noröaustanlands, léttskýjaö á Suður- og Vesturlandi. Hiti O til 6
stig.
IVhiniiíla&ir
Vindur: ú viy
5-8
Hiti 5“ til 0°
Hæg breytlleg átt og víða
bjartvlðrl. Hltl 0 tll 5 stlg
vlð ströndlna en víða frost
Inn tll landslns.
1 Vindur: Vindur: vJO
3-8 m/t -J> \ 3—8 m/»
Hiti T til O' Hiti T til 0° OO
Austlæg átt. Rlgnlng eða Austlæg átt. Rlgnlng eða
slydda með köflum slydda með köflum
sunnan- og austanlands en sunnan- og austanlands en
úrkomulítlð annars staðar. úrkomulítíö annars staöar.
Hitl 0 tll 7 stig. Hiti 0 tll 7 stig.
AKUREYRI úrkoma -4
BERGSSTAÐIR skýjaö -6
BOLUNGARVÍK úrkoma -4
EGILSSTAÐIR _7
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -1
KEFLAVlK úrkoma 0
RAUFARHÖFN snjókoma -3
REYKJAVÍK Skýjaö -1
STÓRHÖFÐI úrkoma 3
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEWYORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
úrkoma
skýjaö
alskýjaö
rigning
léttskýjað
léttskýjaö
léttskýjaö
skýjaö
mistur
rigning
snjókoma
skýjaö
skúr
rigning
skýjað
skýjaö
skýjaö
hálfskýjaö
skýjaö
hálfskýjaö
skýjaö
skýjaö
skýjaö
heiöskírt
skýjaö
7
3
8
6
6
5
7
16
7
12
4
-2
6
8
6
5
3
7
4
15
6
-6
8
19
7
12
1
-12