Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Qupperneq 19
19
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000________________________________________
DV _______________________________________________Helgarblað
Einar Örn Birgisson:
Einstakt
ljúfmenni
„Alltaf frá því hann var barn
hefur Einar verið mikill gleðigjafi,
því hann var alltaf svo líflegur.
Maður fyrirgaf honum allt, því
hann var svo líflegur," sagði Aldís
Einarsdóttir, móðir Einars Amar
Birgissonar, 27 ára, sem fannst lát-
inn í hraungjótu skammt frá
Grindavíkurvegi snemma á
fimmtudagsmorgun. Viðskiptafé-
lagi Einars, Atli Helgason, 33 ára,
hefur játaö að hafa orðið Einari
Erni að bana.
Aldís og faðir Einars, Birgir Öm
Birgis, töluðu við DV í gær. íbúð
þeirra Aldísar og Birgis Amar var
full af blómum, það logaði á kert-
um og síminn stoppaði ekki þann
tíma sem blaðamaður og ljósmynd-
ari DV voru á staðnum.
Einar var yngstur þriggja systk-
ina, 12 árum yngri en systir hans,
Guðrún Hulda, og fjórum árum
yngri en bróðir hans, Birgir Svan-
ur. Öll hafa þau systkinin unnið að
verslunarstörfum í Heimilistækj-
um með foður sínum, Birgi Erni,
en hann var verslunarstjóri í
Heimilistækjum í Sætúni til
margra ára.
„Þetta er svo óraunverulegt enn
þá, manni finnst maður bara vera
í bíó og önnur mynd fari að byrja
bráðum," sagði Birgir Örn.
Reynum að taka á reiðinni
Atli og Einar Örn höfðu þekkst í
mörg ár, enda báðir mjög áhuga-
samir knattspyrnumenn. Atli var
ekki heimagangur á heimili for-
eldra Einars Arnar, þótt Aldis og
Elnar Orn meö ungum frænda sín-
um á ættarmóti.
Hamingjuóskir
Þessi mynd var tekin laugardagskvöldið áður en Einar Örn hvarf. Hann situr hér með systurdóttur sína, Karen
Evu Kristjánsdóttur, í fanginu, til borðs með unnustu sinni, Guðlaugu Hörpu Gunnarsdóttur. Félagi Einars hafði
bakað handa honum köku merkta Gaps í tilefni af opnun verslunar þeirra Atla.
Vinsæll ungur maður
„Hann var hreinn drengur,
hjartahreinn og ljúfur, það er
ábyggilegt," sagði Aldís. „Það er
erfitt að finna eitthvað í fari hans
sem skyggir á,“ samsinnti faðir
hans.
Einar Öm, sem var alla tíð mikill
áhugamaður um knattspyrnu og
aðrar íþróttir, var kosinn íþrótta-
maður ársins í Réttarholtsskóla
árið 1989, árið sem hann útskrifað-
ist úr gagnfræðaskóla.
Sjö árum síðar tók hann þátt í
keppninni besta módel í heimi árið
1996. Dómaramir voru sammála um
að Einar Öm hefði átt að vinna, en
þar sem íslendingur hafði unnið
árið áður leyfðu reglurnar það ekki
og Einar Öm lenti í öðru sæti. Hon-
um var ráðlagt að snúa sér að mód-
elstörfum, en hugur hans stóð til
annarra hluta. Rúmu ári síðar skrif-
aði Einar Öm undir samning við
knattspymufélag í Noregi. Atvinnu-
mennska hans i knattspyrnu varð
þó ekki löng, því eftir 11 mánuði í
Lyn í Noregi hætti hann vegna
meiðsla.
„Ég held þú sért undir
heillastjörnu núna“
Þegar Einar varö 25 ára var hann
í Noregi. Móðir hans hafði upp á ís-
lenskum bakara og lét baka handa
honum köku, svo Einar fengi eitt-
hvað íslenskt í afmælisgjöf. Aldís
sagði að félagar hans hefðu oft gert
góðlátlegt grín aö Einari Erni fyrir
það hversu tengdur foreldrum sín-
um hann var.
Kvöldið áður en Einar hvarf tal-
aði hann við móður sína í síma.
„Ég sagði við hann: „Karlinn
minn, ég held þú sért undir heilla-
stjömu núna,“ og þá sagði hann:
„Það held ég líka“,“ sagði Aldís.
Einar Öm og unnusta hans, Guð-
laug Harpa Gunnarsdóttir, 28 ára,
hófu sambúð í íbúð þeirra í Kópa-
vogi í ágúst. Guðlaug Harpa byrjaði
í Kennaraháskólanum í haust, en
hún hefur starfað sem flugfreyja.
Einar Örn og Atli Helgason,
meðeigandi hans, höfðu opnað
verslunina GAPS Collection á Is-
landi örfáum dögum áður en Einar
hvarf á miðvikudaginn í síðustu
viku.
„Það er svo erfitt að skilja þetta,
það var allt svo bjart hjá honum,"
sagði Aldís.
Birgir Öm hafi heyrt af Atla síðan
þeir Einar kynntust.
„Ég hef ekkert heyrt um hann
annað en gott, en ég þekkti hann
ekkert," sagði Aldís. „Við hugsum
til fjölskyldu Atla og þau hafa
kannski ekki alla þá hlýju sem við
höfum.“
„Við erum að reyna að taka á
okkar reiði gagnvart Atla. Okkur
grunaði aldrei að Atli ynni þetta
voðaverk," sagði Birgir.
Öskjuhlíöin
Einar Örn hvarf miðvikudaginn 8.
nóvember, og farið var að leita að
honum strax um kvöldið.
Systir Einars Arnar hafði ætlað í
ferð til Dublin daginn eftir að Einar
örn hvarf. Aldís keyrði dóttur sína út
á Hótel Loftleiðir, því Guðrún Hulda
ætlaði að tékka sig inn þá um kvöld-
ið til þess að flýta fyrir sér morgun-
inn eftir. Guðrún Hulda fór þó ekki
til Dublin, því ekkert hafði spurst til
Einars Arnar, en þá um kvöldið
ákváðu mæðgurnar að aka um öskju-
hlíðina og bilastæðið við Hótel Loft-
leiðir.
„Ég get eiginlega enga skýringu
gefið á því að við gerðum það, okkur
bara fannst við þurfa að aka þama
um,“ sagöi Aldís. Seinna um kvöldið
fór Birgir Örn um Öskjuhlíðina og
bílastæðið líka, og sagði hann ástæð-
una vera þá að hann vann í tvö ár
sem öryggisvörður og hefur síðan ill-
an bifur á Öskjuhlíðinni.
Eins og kunnugt er, er ekki talið að
bíll Einars Arnar hafi verið á bíla-
stæðinu við Hótel Loftleiðir á mið-
vikudagskvöldið, en bíllinn fannst
þar morguninn eftir, og talið er að
Atli hafi komið honum fyrir þá um
nóttina. Foreldrar Einars Amar vom
kölluð að bílnum þegar hann fannst
og sagði Aldís að hún hefði strax séð
að Einar hefði ekki lagt bilnum þar,
því honum var lagt of langt frá hótel-
inu, en Einar hefði lagt honum eins
nálægt og hægt var ef hann ætlaði sér
inn á hótelið. Eins var bíllinn læstur
en Einar læsti bíl sínum sjaldan.
Mikil leit var gerð að Einari Emi í
Öskjuhlíðinni og víðar um helgina en
hún var árangurslaus. Á þriðjudags-
kvöldið var Atli Helgason svo hand-
tekinn og húsleit gerð heima hjá hon-
um. Sólarhring síðar játaði Atli að
hafa orðið Einari Emi að bana og vís-
aði lögreglu á hraungjótuna þar sem
hann hafði falið líkið. Einar örn
fannst svo snemma á fimmtudags-
morguninn. Atli hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 15. desem-
ber.
Hlýja og styrkur
Aldis og Birgir Örn em afskaplega
þakklát fyrir þann mikla styrk og
samhug sem fólk hefur auðsýnt þeim
síðustu dagana. Hundruð manna tóku
þátt 1 leitinni að Einari Emi og fjöldi
fólks hefur sent þeim blóm, hringt í
þau og sýnt þeim samúð sína á annan
hátt.
„Við eram innilega þakklát og biðj-
um guð að blessa allt þetta góða fólk
sem hefur sýnt okkur hlýju og styrk,“
sagði Aldís. -SMK
Þakka þann styrk sem auösýndur hefur veriö
Foreldrar Einars Arnar, Aldís Einarsdóttir og Birgir Örn Birgisson. Myndin
á milli þeirra er af Einari Erni.
Aö loknum hörkuleik
Einar Örn var mikill áhugamaður um fótbolta og lagði hart að sér í leikjum. Hér
sést hann á tali viö Atla Eðvaldsson landsliðsþjálfara og þáverandi þjálfara KR
að loknum leik KR við Keflavík í fyrra sem gaf KR íslandsmeistaratitilinn.
Keppnin besta módel í heimi
Fyrir fjórum árum tók Einar Örn þátt í keppninni um besta módel í heimi.
Hann hreppti annað sæti, því þar sem íslendingur vann árið áöur máttu
dómarar ekki gefa Einari Erni titilinn.
Kvöldið áöur en Einar Örn lést tók Ijósmyndari DV þessa mynd af honum eftir
handboltaleik meö gömlum félögum í Valsheimilinu.