Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2000, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000
DV
Helgarblaö
33
Landafundir
Síðan Benedikta hætti afskipt-
um af stjórnmálum hefur hún
sinnt ýmsum sérverkefnum og
hafði nú síðast umsjón með
landafundaverkefni Grænlend-
inga sem er nýlokið.
„Þetta var sérlega skemmtilegt
starf. Sumt var unnið í samstarfi
við íslendinga eins og bygging
Þjóðhildarkirkju og bæjar Eiríks
rauða í Qassiarsuk.," segir Bene-
dikta.
Mörgum finnst að ísland og
Grænland ættu að hafa meiri
samskipti sin á milli.
„Það er margt líkt með þessum
löndum," segir Benedikta.
„Þau eru bæði afskekkt, strjál-
býl og íbúarnir lifa af fiskveiðum
auk þess að hafa bæði verið
danskar nýlendur. En það er
ekki sérlega auðvelt að komast á
milli landanna. Samgöngurnar
eru líkar því sem þær voru á dög-
um Eiríks rauða. Það liggur við
að besta leiðin sé að leigja sér
víkingaskip."
Þarna vísar Benedikta til þess
að nýlega var dregið verulega úr
flugsamgöngum til Grænlands og
nú er t.d. aðeins hægt að fljúga
beint frá Reykjavík til Nuuk einu
sinni í viku. Stofnun nýs flugfé-
lags í meirihlutaeign Grænlend-
inga mun vera í undirbúningi.
Hreindýrið góða
En hvað hyggst Benedikta taka
sér fyrir hendur nú þegar hún er
flutt til íslands?
„Það er margt. Ég mun starfa
eitthvað að rekstri Vest-Norden
hússins í Hafnarfirði sem er ætl-
að að vera nokkurs konar menn-
ingarmiðstöð fyrir Vest-Norden
svæðið, Færeyjar, Grænland og
ísland. En ég hef einnig áhuga á
að setjast á skólabekk og mun
byrja í viðskiptafræði í Háskóla
íslands eftir áramótin. Ég gæti
vel hugsað mér að fást við ein-
hvers konar rekstur, t.d. að flytja
inn vörur frá Grænlandi til ís-
lands. í Grænlandi er t.d. mikið
framboð á hreindýrakjöti en lítið
framboð hér en það er afskaplega
erfitt að fá leyfi til að flytja það á
milli.“
Það verður þó alveg örugglega
hægt þegar haldnir verða Græn-
lenskir dagar í Vest-Norden hús-
inu í mars nk. en þá er ætlunin
að bjóða upp á ýmislegt gómsætt
frá Grænlandi.
„Það er margt í grænlenskri
menningu sem íslendingar hefðu
gaman af að kynnast betur, ég
nefni sauðnautakjöt og hrein-
dýrakjöt aðeins sem dæmi. En
vonandi verður Vest-Norden hús-
ið til þess að þjóðirnar kynnist
enn betur.
Það hefur árum saman staðið
pólitískt samstarf undir merkj-
um Vest-Norden en húsið sjálft
er einkaframtak."
Litla ísland og stóra
Grænland
Grænlendingar og íslendingar
eru afskaplega ólikar þjóðir og
t.d. búa 55 þúsund Grænlending-
ar í landi sem er margfalt stærra
en ísland. Grænlendingar koma
úr vestri en íslendingar úr
austri. Island varð kristið árið
1000 en Grænlendingar árið 1721
og siðustu heiðingjarnir snerust
til kristinnar trúar í kringum
1920. Grænland var mjög lokað
land allt fram til 1950.
„Okkar þjóðfélag er geysilega
dýrt í rekstri," segir Benedikta.
„í samanburðinum er ísland í
rauninni mjög lítið.“
í Grænlandi er heimastjórn
síðan 1979 en hægt og hægt þok-
ast landið í átt til sjálfstæðis.
Hefur þessi barátta gengið nógu
hratt?
„Ég held aö hún hafi gengið
hæfilega hratt. Þaö er margt í
samskiptum okkar við Dani við-
kvæm mál og engin sérstök
ástæða til þess að rasa um ráð
fram í átt til sjálfstæðis."
Aö flýta sér hægt
En er ekki eitthvað sem íslend-
ingar geta lært af Grænlending-
um?
„Það er kannski helst að flýta
sér hægt og hugsa ekki alltaf
svona mikið um morgundaginn."
Yngsti sonur Benediktu og
Guðmundar, Eqalunnguaq, er
gríðarlegur handboltaáhugamað-
ur og hefur fylgst með íþróttinni
og keppt í nokkur ár. Hann æfir
nú með FH í Hafnarfirði en Guð-
mundur beitti sér talsvert á sviði
íþróttamála meðan þau hjónin
bjuggu á Grænlandi og átti með-
al annars sinn þátt í því að græn-
lenska kvennaliðið í handbolta er
nú komið í úrslit í heimsmeist-
arakeppninni og hefur beitt sér
fyrir því að grænlenskir hand-
boltamenn þjálfa með islenskum
liðum.
-PÁÁ
• Sjónvarpssófinn er frábærlega
vel hannaður.
Sjónvarpssófinn er ein skemmtilegasta nýjung í húsgögnum hin
• Sjónvarpssófinn er með innbyggðu
skammeli í báðum endasætum.
• Sjónvarpssófinn er með niðurfeltantegu
baki í miðjunni sem breytist í borð með
einu handtaki.
síðari ár. Hann er sérstaktega hannaður tit að mæta kröfum
nútímans um aukin þægindi og góða hönnun. Upptifðu vellíðan
og afslöppun á nýjan hátt.
• Sjónvarpssðfinn er framteiddur i USA.
• Sjónvarpssófinn fæst hjá okkur.
HÚSGAGNAHÖLLIN
Raðgreiðslur f allt að 36 mánuði
Bíldshöfða, 110 Reykjavík, s.510 8000
www.husgagnahollin.is
Opið til kl. 18:00 um helgina