Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
Fréttir
DV
Tveir lögreglumenn sendir til Mexíkós á sunnudaginn:
Flugdólgarnir fá ekki að
drekka á heimleiðinni
- lögreglumennirnir albúnir að grípa inn í atburðarásina fari hún úr böndunum
Tveir lögreglumenn frá
embætti sýslumannsins á
Keflavíkurílugvelli halda af
landi brott sunnudaginn 17.
desember til móts viö flug-
dólgana sem nú dvelja í góðu
yfirlæti á sólarströnd í
Mexíkó. Flugdólgarnir
hleyptu sem kunnugt er öllu í
loft upp í Flugleiðaþotu yfir
Atlantshafi fyrir skemmstu og
lögðu hendur á flugfreyju í öl-
æði. Voru þeir fyrir bragðið skildir
eftir i Minneapolis þaðan sem þeir
flugu á eigin reikning til Mexíkó og
sameinuðust ferðafélögum sínum.
Oskar
Þórmundsson.
flogið
Dýrt ferðalag
„Það er dýrt að ferðast
með tvo lögregluþjóna með
sér í fríinu,“ sagði Óskar
Þórmundsson, yfirlögreglu-
þjónn á Keflavíkurflugvelli,
sem skipulagt hefur för lög-
regluþjónanna tveggja til
Mexíkó. „Lögregluþjónarnir
hafa sínar fyrirskipanir og
þeir munu leggja umræddu
fólki lífsreglurnar áður en
verður heim. Það er alveg
ljóst að fólkinu verður ekki leyft að
drekka á heimleiðinni." sagði ðskar
yfirlögregluþj ónn.
Vel þjálfaðir
Lögregluþjónarnir verða borgara-
lega klæddir og munu halda sig í
námunda við flugdólgana á leiðinni
heim frá Mexíkó, albúnir að grípa
inn i atburðarásina fari hún úr
böndunum. Hér er um þrekmikla og
þjálfaða lögreglumenn að ræða sem
eiga í fullu tré við flugdólgana geri
þeir sig líklega til drykkju og óláta.
Enginn uggur
Flugfreyja sú sem varð fyrir árás
fólksins á leiðinni út til Mexikó er
komin í vetrarfrí en hefur tryggt sér
áverkavottorð hjá lækni. Verður
málið rekið áfram af vinnuveitend-
um hennar sem ætla ekki að líða þá
framkomu sem farþegamir sýndu í
Mexíkófluginu. Sjálf segist flugfreyj-
an vera í ágætu ásigkomulagi þrátt
fyrir árásina í háloftunum og engan
ugg bera í brjósti varðandi frekara
flug í framtíðinni. Hún hafi flogið
lengi, margt séð en þó aldrei lent í
neinu viðlíka og því sem átti sér
stað í Flugleiðaþotunni á leið til
Mexíkó mánudaginn 4. desember.
Mexíkósfararnir eru væntanlegir
til landsins næstkomandi mánudag.
-EIR
Önundarfjörður:
Tvær kýr
brunnu inni
Eldur kom upp i útihúsi á bæn-
um Tröð í Önundarfirði um
klukkan 17 í gærdag. Slökkvilið
ísafjarðarbæjar kom á vettvang á
bílum frá Flateyri og ísafirði, en
töluverður eldur var í fjósinu
þegar það mætti á staðinn. Fjós,
fjárhús og tvær hlöður er samfast
á Tröð og hafði bóndanum og
öðru fólki sem kom til hjálpar
tekist að bjarga flestu búfénu út
úr brennandi húsunum áður en
slökkviliðið kom á staðinn. Tvær
kýr á básum brunnu inni en öðr-
um nautgripum tókst að bjarga,
sem og á annað hundrað kindum
úr fjárhúsinu. Slökkviliðinu tókst
að ráða niöurlögum eldsins um
kvöldmatarleytið en þá var fjósið
svo illa farið að það er talið vera
ónýtt. Önnur hús eru að mestu
leyti heil. íbúðarhúsið stendur
ekki á sama stað og útihúsin á
Tröð, og komst eldurinn ekki í
það.
Lögreglan á ísafirði rannsakar
upptök eldsins í dag. -SMK
Reykjavík:
Náðust á
hlaupum
Tveir ungir menn, 16 og 18 ára,
reyndu að stinga lögreglu af í nótt
en náðust á hlaupum eftir elting-
arleik við lögregluna í Reykjavík.
Skömmu eftir klukkan tvö í
nótt mældu lögregluþjónar á eft-
irlitsferö bíl piltanna a 89 km
hraða á Laugavegi, skammt frá
Hlemmi, þar sem hámarkshraöi
er 50 km/klst. Ökumaðurinn, 18
ára, sinnti ekki stöðvunarmerkj-
um lögreglu heldur reyndi að
stinga af á bílnum. Lögreglan elti
mennina. Þegar þeir komu að
Stýrimannaskólanum i Vatns-
holti stöðvuðu piltarnir bíl sinn
og reyndu að flýja lögregluna á
hlaupum. Lögregluþjónarnir
reyndust þó vera léttari á fæti en
piltarnir og voru þeir yfirbugaðir
eftir stuttan eltingarleik.
Báðir voru fluttir á lögreglu-
stöðina þar sem sá eldri var
handtekinn og vistaður í fanga-
geymslum lögreglunnar en for-
eldrum þess yngri var gert við-
vart og komu þeir og sóttu pilt-
inn. Einnig var félagsþjónustu
gert viðvart. Að sögn lögreglunn-
ar í Reykjavík er ekki talið að
piltarnir hafi verið ölvaðir en í
bíl þeirra fannst ýmiss konar
varningur, GSM-símar og fleira
sem ekki er talið tilheyra þeim.
Lögreglan er með málið í rann-
sókn. -SMK
DV-MYND HARI
Margt smátt gerir eitt stórt
Landsbankinn stendur fyrír átaki um að breyta erlendu klinki sem safnast fyrír á heimilum eftir utanlandsferðir í verð-
mæti fyrir veik börn. Hér er biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, að tæma buddu sína af erlendri smámynt.
Bruninn í ísfélagi Vestmannaeyja:
Líklega íkveikja
- sorglegt, segir framkvæmdastjóri
Rannsókn lögreglunnar í
Vestmannaeyjum á upptök-
um eldsins sem eyðilagði
mikinn hluta isfélags Vest-
mannaeyja síðastliðinn laug-
ardag hefur leitt í ljós að llk-
legt þykir að eldurinn hafi
kviknaö af mannavöldum.
„Ef þetta reynist rétt, þá er
það bara sorglegt. En við höf-
um haft í nógu öðru að snú-
ast heldur en að vera að
velta fyrir okkur upptökum
eldsins. Við höfum frekar
verið að slást við afleiðing-
arnar og reyna að koma ein-
hverjum hlutum í gang aft-
| meta verðmæti tjónsins, en
ljóst er að það er gífurlegt. í
fjölmiðlum hefur verið talað
um að tjónið hafi verið á
annan milljarð króna.
„Það er ekki farið að setja
neinar tölur á blað. Mér
finnst núna við nánari skoð-
un og þegar hlutirnir eru
farnir að róast pínulítið, að
þetta sé kannski ekki jafn
mikið og manni fannst í upp-
hafi. En tölulega þori ég ekk-
J ert að segja til um það,“
dv-mynd ómar sagöi Jóhann Pétur.
í Ijósum logum Að sögn lögreglunnar í
Gífuríegt tjón varð í eldsvoða í ísfélagi Vestmanna- Vestmannaeyjum liggur eng-
ur,“ sagði Jóhann Pétur And- eyja síöastliðinn laugardag. Lögreglan telur líklegt að inn undir grun enn sem kom-
ersen, starfandi fram-
kvæmdastjóri ísfélags Vest-
mannaeyja, í samtali við DV í
morgun.
Lögreglan í Eyjum naut aðstoð-
ar tveggja manna frá tæknideild
lögreglunnar í Reykjavík við
rannsóknina á brunanum, sem
um íkveikju hafi veriö aö ræða.
lauk í gær. Rúmlega hundrað
manns misstu vinnu sína í brun-
anum, og er það mikið áfall fyrir
Vestmannaeyjabæ.
Jóhann Pétur sagði að yfir-
menn ísfélagsins fari varlega í að
ið er og leitar hún nú hugsan-
legra gerenda. Hún biður þá
sem kynnu að hafa orðið varir við
mannaferðir við húsnæði ísfélags
Vestmannaeyja eftir klukkan 17 á
laugardag um að hafa samband
við sig í síma 481 1666.
-SMK
7% hækkun hjá RÚV
Menntamálaráðu-
neytiö hefur sam-
þykkt 7% hækkun á
afnotagjöldum Ríkis-
útvarpsins frá og með
áramótum. Mánaðar-
gjaldið hækkar þvi úr
2.100 krónum í 2.250
krónur með virðis-
aukaskatti.
Stofnunin mun hins vegar hafa talið
sig þurfa 15% hækkun.
Kveikt í skúr
Kveikt var í skúr Tennisdeildar Vik-
ings við Fossvogsdal um um kvöldmat-
arleytið í kvöld. Slökkvistarf gekk vel
en töluvert tjón varð af eldinum. Málið
er nú í rannsókn hjá lögreglu.
Minni slysatíðni
Slys á Reykjanesbraut eru færri en
bæði á Suðurlandsvegi og Vesturlands-
vegi. Þetta kemur fram í skýrslu sem
Vegagegðm lét gera um samanburð á
þessum'ýegum í haust. Skýrslan verð-
ur knint þingmönnum.
Krónan ódýrust á Suðurlandi
Útvarp Suðurlands gerði verðkönn-
un í öllum 5 matvöruversiununum á
Selfossi á þriðjudag. Kannað var verð á
20 vörutegundum. í ljós kom að þessar
vörur voru langódýrastar í Krónunni
en heildarverðmunur á þeim milli
hinna verslananna var mestur 7%.
sölu Orkubús
Sveitarfélögin á
Vestflörðum hafa
skipað nýja nefnd til
að ræða við ríkið um
hugsanlega sölu á
Orkubúi Vestflarða.
Á almennum borg-
arafúndi á ísafirði í
fyrrakvöld kom fram
hörð andstaða við söluna.
Ísaíjarðarbær íhugar að segja upp
um 20-30 starfsmönnum verði ekki af
sölunni.
íslendingur vann 14 milljónir
íslendingur sem keypti lottómiða
sinn í söluturninum í Iðufelli í Reykja-
vik var meðal þeirra heppnu sem unnu
í Víkingalottóinu í gærkvöld. Fyrsti
vinningur var 42 milljónir og tíu þús-
und krónur og skiptist hann á milli ís-
lendings, Dana og Eistlendings og
fengu þeir 14 milljónir hver.
Vaxandi þörf fyrir aðstoð
Alls hafa um 500 umsóknir borist tO
mæðrastyrksnefndar um aðstoð um jól-
in. í síöustu viku fékk mæðrastyrks-
nefnd 300 kjötlæri að gjöf frá Ingvari
Helgasyni hf. sem deOt verður meðal
skjólstæðinga nefndarinnar. Er þetta í
sjötta sinn sem fyrirtækið færir nefnd-
inni slíka gjöf í byrjun aðventu.
Standa fyrir „friðargöngu"
Félag framhaldsskólanema, Iðn-
nemasamband íslands og Bandalag ís-
lenskra sérskólanema standa fyrir
„friðar-göngu“ frá Hallgrimskirkju að
Ingólfstorgi á föstudaginn.
í heimsókn frá Ítalíu
Aðalheiður Elín
Pétursdóttir
söngkona sem starfar
á Italiu er í stuttri
heimsókn á
heimaslóð og heldur
einsöngstónleika i
Víðistaðakirkju í
kvöld kl 20.30. Hún
gaf nýlega út geisladisk á Ítalíu.
Fölsuð ávísun fýrir kött
Rúmlega fertug kona í Reykjavík var
dæmd í 30 daga skOorðsbundið fang-
elsi, tO greiðslu skaðabóta og sakar-
kostnaðar fyrir að kaupa persneskan
kött af fimmtugri konu með falsaðri
ávísun. -HKr./-SMK/-SA
Viðræður um