Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
Fréttir
ÐV
íbúar á snjóflóðahættusvæði í Bolungarvík:
Erum í gíslingu
átthagafjötra
- alrangt, segir bæjarstjóri - uppkaup óheimil, segir ráðuneytið
DV-MYND HKR.
Dísarland 10 og 14 í Bolungarvík
Snjóftóö skall á húsunum viö Dísarland 8, 10 og 14 um kl. 22 aö kvöldi 21.
febrúar 1997. Flóöiö braut sér leiö inn um glugga á barnaherbergjum aö Dís-
arlandi 10 (húsiö nær á myndinni) og stórskemmdist efri hæö hússins.
„Það má segja að
við séum í gíslingu
átthagafjötra með
okkar hús. Þeir
halda víst að við
munum nota tæki-
færið og flytja burt
úr bænum. Það er
bara rugl, við vild-
um bara fá að flytja
okkur neðar í pláss-
ið, á öruggara
svæði,“ segir Olgeir Hávarðarson,
íbúi við Disarland í Bolungarvík,
sem fær ekki uppkaup á hús sitt
sem stendur á snjóflóðahættusvæði
undir Traðarhyrnu. Ákveðið hefur
verið að verja byggöina með bygg-
ingu snjóflóðagarðs sem áætlað er
að kosti hundruð milljóna króna.
Olgeir Hávarðarson býr ásamt
fjölskyldu sinni í Disarlandi 10 en
við götuna standa 6 hús. „Ég veit
ekki annað en það sé alveg búið að
gefa það upp á bátinn að kaupa upp
hús á svæðinu. Húsið okkar er ann-
að tveggja sem fékk á sig snjóflóð i
febrúar 1997. Þá lögðust bamaher-
bergin þrjú í rúst ásamt gangi og
bókaherbergi. Sem betur fer höfðum
við nokkru áður yfirgefið húsið án
þess að aðvörun hefði verið gefin
um hættu á snjóflóði. f apríl þetta
sama ár gátum við ekki lengur sætt
okkur við að þurfa sífellt að flytja út
úr húsinu vegna snjóflóðahættu.
Við sóttum því um uppkaup. Erind-
ið fór til bæjarins og síðan til Ofan-
flóðasjóðs. Sjóðurinn sagðist þá
hvorki geta neitað né samþykkt er-
indið þar sem úttekt á fjallinu hafði
ekki farið fram.
Á þessum tíma var verið að taka
í notkun varnargarða á Flateyri og
þar voru keypt upp hús neðan
garðanna. Var þá opnað á þann
möguleika að sveitarfélög gætu
fengið lán frá Ofanflóðasjóði til aö
kaupa upp hús á hættusvæðum. Ef
sveitarfélögin gætu síðan ekki selt
húsin aftur á frjálsum markaði
innan fimm ára myndi sjóðurinn
leysa þau til sín. Þegar ný lög um
íbúðalán voru sett tveim árum
seinna féll þessi regla úr gildi. All-
an tímann sem þetta stóð til boða
reyndi bærinn ekki einu sinni að
fara þessa leið fyrir okkur. í dag
segja menn svo að þetta sé ekki
hægt.
Ég spyr því: Hvar er jafnræðis-
reglan nú?“
Mikið unnið í málinu
„Það er alrangt að ekkert hafi verið
unnið í málinu," segir Ólafur Krist-
jánsson, bæjarstjóri í Bolungarvík.
„Sennilega eru fá mál sem hafa fengið
eins mikla umfjöllun og einmitt þetta.
Þrátt fyrir margar tilraunir til að fá
þetta í gegn reyndust lögin ekki heim-
ila það. Reyndar er nokkurt vafamál i
þessu og Andri Ámason lögfræðingur
hefur skrifað minnisblað sem nú er til
umfjöllunar hjá félagsmálaráðuneyti.
Sérstök reglugerð var sett vegna slyss-
ins á Flateyri og átti hún stoð í eldri
lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins.
Þegar þeim lögum var breytt og íbúða-
lánasjóður tók við hlutverki stofnun-
arinnar féll á brott lagagrein sem
reglugerðin var byggð á. Það var því
mat umhverfisráðuneytisins að þetta
væri ekki heimilt. Við höfum því vilj-
að láta skoða hvort þar væri ekki ver-
ið að mismuna íbúum í þessum byggð-
arlögum. Svar hefur enn ekki borist
frá ráðuneytinu hvað þetta varðar."
Að sögn Smára Þorvaldssonar hjá
umhverfisráðuneytinu, er það alveg
klárt að stjóm Ofanflóðasjóðs hefur
engar heimildir í lögum til að bæði
verja byggð og kaupa upp hús. „Reglu-
gerðin sem gilti fyrir Flateyri er úr
gildi fallin." Hann sagðist hins vegar
ekki geta sagt til um hvort vænta
mætti lagabreytinga eða annarra úr-
ræða varðandi Bolungarvík. -HKr.
Samkeppnisráð:
Enn beðið
niðurstöðu
Engin niðurstaða var lögð fram á
fundi Samkeppnisráðs varðandi
sameiningu ríkisbankanna siðdegis
í gær. Að sögn Georgs Ólafssonar,
forstjóra Samkeppnisstofnunar, var
enn unnið að málinu á fullu og von-
uðust menn til að komast að niöur-
stöðu fyrir helgi. Annar fundur er í
ráðinu í dag og er þá jafnvel búist
við að botn fáist í hvort sameining
bankanna stenst samkeppnislög og
þá hvaða skilyrði ráðið setur fyrir
sameiningu þeirra. -HKr.
Miðbær Reykjavíkur:
Ógnaði manni
með hníf
Karlmaður veittist að öðrum á
Vatnsstíg í Reykjavík um hálf-
sjöleytið á þriðjudag, ógnaði honum
með hníf og heimtaði peninga hans.
Fórnarlambið komst undan í bíl
sinn og ók á lögreglustöðina þar
sem hann kærði atvikið. Lögreglan
er með málið í rannsókn, en árás-
armaðurinn hefur ekki fundist.
-SMK
Ölvaður ökumaður:
Ók utan í
tvo bíla
Ökumaður, sem er grunaður um
ölvun við akstur, fór út af veginum
við gatnamót Bústaðavegar, Grens-
ásvegar og Aðaflands og ók síðan
utan í tvo kyrrstæða bíla aðfaranótt
miðvikudagsins. íbúi í nálægu húsi
vaknaði við hávaðann sem varð af
árekstrinum og hringdi í lögreglu.
Ökumaðurinn var enn á staðnum
þegar lögreglan kom á staðinn en
reyndist ekki hafa slasað sig. Hann
var fluttur á sjúkrahús þar sem tek-
ið var úr honum blóðsýni vegna
gruns lögreglunnar um að maður-
inn væri drukkinn. Bílarnir þrír
skemmdust talsvert. -SMK
Veðrið ki. 6 WmrrZ,.'
AKUREYRI skýjaö -2
BERGSSTAÐIR skýjaö -5
BOLUNGARVÍK alskýjaö -3
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -1
KEFLAVÍK léttskýjaö -2
RAUFARHÖFN skýjaö -4
REYKJAVÍK léttskýjaö -4
STÓRHÖFÐI léttskýjaö -1
BERGEN skúrir 6
HELSINKI rigning 6
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 6
ÓSLÓ skýjaö 5
STOKKHÓLMUR 4
ÞÓRSHÖFN rigning 3
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 3
ALGARVE skýjaö 12
AMSTERDAM léttskýjaö 8
BARCELONA léttskýjaö 8
BERLÍN skýjaö 8
CHICAGO snjókoma -9
DUBLIN súld 4
HAUFAX heiösktrt -7
FRANKFURT skýjaö 8
HAMBORG skýjaö 6
JAN MAYEN skýjaö -10
LONDON skýjaö 5
LÚXEMBORG skýjaö 7
MALLORCA þokumóöa 8
MONTREAL alskýjaö -12
NARSSARSSUAQ snjókoma -1
NEW YORK alskýjaö -1
ORLANDO heiöskírt 20
PARÍS skýjaö 10
VÍN hálfskýjaö 9
WASHINGTON þokumóöa -2
WINNIPEG heiöskírt -25
Glens og gaman dv-mynd ingö
Jólasveinar hér og jólasveinar þar, jólasveinar alls staöar. Þessir kátu sveinar spígsporuöu um í Kringlunni í gær og skemmtu kaupglööum viöskiptavinum
meö glensi og gamanmálum.
Sötargangur og sjávarföll I Veöriö á srnorgun
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.32 16.18
Sólarupprás á morgun 11.10 11.20
Síódeglsflóö 20.45 01.15
Árdegisflóö á morgun 09.08 13.54
Hlýjast meö suðausturströndinni
í kvöld er gert ráð fyrir noröaustanátt, 8 til 10
m/s en austlægari síðdegis. Vaxandi
suðaustanátt vestanlands, 13 til 20 m/s, og
snjókoma eða slydda T nótt. Hiti verður 1 til 4
stig meö suöausturströndinni en annars 0 til
8 stiga frost, kaldast inn til lands.
i*''' ViNDATT 10.— Hm 10“
> VINDSTYRRUR i metrum 5 sekfmdu ^FROST HÐÐSKÍRT
•$> :0
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
; w W :
RIGNING SKÚRIR SLYÐDA SNJÓKOMA
W ■s -t*
ÉUAGANGUR RRUMU- VEOUR SKAF- RENNÍNGUR ÞOKA
Mokstur hafinn á Vestfjörðum
Á Vestfjörðum er hafinn mokstur um
Klettsháls, Dynjandisheiði og Hrafnseyr-
arheiði. Einnig er verið aö hreinsa vegi
á Norður- og Austurlandi, svo sem yfir
Möörudalsöræfi og Vopnafjarðarheiöi.
Ófært er um Breiðdalsheiði. Greiöfært
er svo um Suðurland og Vesturland.
Snjókoma eða slydda Á morgun er gert ráö suðaustanátt, 15 til
20 m/s og slyddu eða snjókomu sunnan- og vestanlands. Norðaustantil
verður hiti 8 til 13 stig og skýjað. Snýst í vestan 8 til 13 m/s síöar um
daginn en hvessir austantil. Frost verður 0 til stig, frostlaust suðvestantil.
Lnugard
Sunmidagnr
J
Vindur:
5-10
HHÍO'til-*1
Á laugardag er gert ráö
fyrlr suövestlægrl átt, 5 -
10 m/s og slydduéljum og
skúrum. Frost víöa 0 til 4
stlg en sums staöar
frostlaust vlö sjólnn.
Vindur:
8-13
Hiti 0° tiNT
Gert er ráö fyrlr suölægri
átt, 8-13 m/s og skúrum
sunnanlands en skýjaö
noröantll. Vaxandl suö-
austanátt og rlgnlng sunn-
anlands. Hlýnandl veöur.
Mámidagar
Vindur:
X-X m>* >
Hiti 1* til 6°
Á mánudag er útlit fyrlr
suöaustanátt meö
rigningu, elnkum
suöaustantll. Hlti veröur á
blllnu 1 tll 6 stlg.
Ólafur
Krlstiánsson.