Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
Útlönd
I>V
Tony Blair
Breski forsætisráöherrann er búinn
aö senda Bush heillaóskaskeyti.
Þjóðarleiðtogar
óska George W.
Bush til hamingju
Þjóðarleiðtogar hafa margir sent
George W. Bush, verðandi forseta
Bandarikjanna, árnaðaróskir sínar.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagöist vera þess fullviss
um að þjóðirnar tvær myndu
styrkja enn frekar sérstök vináttu-
tengsl sín. Blair og Bill Clinton, frá-
farandi forseti, voru miklir mátar.
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari sendi Bush heilla-
óskaskeyti skömmu eftir að A1
Gore, forsetaframbjóðandi
demókrata, játaði sig sigraðan í
nótt. í skeytinu sagði Schröder að
Bush-nafnið væri vinsælt í Þýska-
landi vegna föður hans sem átti þátt
í sameiningu þýsku ríkjanna 1990.
Hæstaréttardóm-
arar segja pólitík
ekki hafa ráðið
William Rehnquist, forseti Hæsta-
réttar Bandaríkjanna, og Clarence
Thomas dómari lýstu því yfir i gær
að stjómmál gegndu engu hlutverki
þegar rétturinn tæki ákvarðanir
sínar. Daginn áður hafði klofmn
Hæstiréttur með úrskurði sínum
tryggt George W. Bush forsetaemb-
ættið.
Thomas svaraði spurningum
framhaldsskólanema um áhrif
flokkspólitíkur á dómana með þeim
orðum aö þau væru engin. „Ég er
búinn að vera hér í niu ár og ég hef
ekki orðið var við það,“ sagði
Thomas. Rehnquist tók undir orð
hans. Báðir eru íhaldssamir.
I fótspor pabba
George W. Bush hefur náö þeim
merka áfanga aö feta í fórspor fööur
síns og veröa forseti Bandaríkjanna.
Bush annar for-
setinn til að feta
í fótspor pabba
George. W. Bush verður aðeins
annar forsetinn í sögu Bandaríkj-
anna sem fetar í fótspor föður síns.
Verðandi forseti Bandaríkjanna er
sem kunnugt er sonur Georges
Bush, fyrrum forseta. Hinn eini sem
til þessa hafði fetað í fótspor föður
síns var John Quincy Adams, sonur
Johns Adams. Hann var kjörinn for-
seti árið 1824 og háði harða kosn-
ingabaráttu eins og Bush.
George W. Bush verður næsti forseti Bandaríkjanna:
Hvatti þjóðina til
sátta og einingar
George W. Bush ætlar að láta það
verða fyrsta verk sitt í dag sem
væntanlegur forseti Bandaríkjanna
að hlýða á messu með fjölskyldu
sinni, starfsmönnum og vinum í
meþódistakirkju í úthverfi Austin,
höfuðborgar Texas.
„Ég veit að bandaríska þjóðin vill
sættir og einingu," sagði Bush i
ávarpi á ríkisþingi Texas, sem var
sjónvarpað um öll Bandaríkin í
nótt. Bush flutti ræðuna tæpri
klukkustund eftir að A1 Gore vara-
forseti, forsetaframbjóðandi demó-
krata, játaði ósigur sinn I forseta-
kosningunum eftir margra vikna
harðvítuga baráttu fyrir dómstólum
landsins.
Bush þakkaði Gore fyrir að viður-
kenna ósigur sinn og hvatti Banda-
ríkjamenn til að láta stjómmál lönd
og leið og sameinast. Bush tilkynnti
einnig að þeir Gore myndu hittast í
Washington í næstu viku.
Með yfirlýsingu Gores i nótt lauk
einhverjum tvísýnustu forsetakosn-
ingum í sögu Bandaríkjanna 36 dög-
um eftir kjördag. Hæstiréttur
Bandaríkjanna gerði endanlega út
um vonir Gores um að setjast að í
Hvíta húsinu í fyrrinótt þegar hann
úrskurðaði að ekki mætti endur-
telja vafaatkvæði í Flórída.
Bush tekur formlega við embætt-
inu þann 20. janúar næstkomandi.
Hann hefur því ekki nema rúmar
fimm vikur til stefnu til að ljúka
undirbúningi valdaskiptanna.
Búist er við að á allra nælstu dög-
um muni Bush tilkynna hverjir
komi til með að vera í helstu emb-
ættum nýrrar stjómar hans. Næsta
víst þykir að Colin Powell, fyrrum
hershöfðingi, taki við embætti utan-
ríkisráðherra og að Condoleezza
Rice verði gerð að þjóðaröryggisráð-
gjafa.
„Á morgun byrjar alveg ný bók,“
sagði Bob Dole, fyrrum forsetafram-
bjóðandi repúblikana, í viðtali við
sjónvarpsmanninn Larry King í
gærkvöld.
Dick Cheney, verðandi varafor-
seti, hefur verið í Washington að
undanfömu að undirbúa valdatök-
una. Reiknað er með því að undir-
búningshópurinn fái opinbert fjár-
magn í dag til að standa straum af
kostnaðinum við valdaskiptin.
George W. Bush fetar nú í fótspor
föður síns, Georges Bush, sem tók
við forsetaembættinu af Ronald
Reagan en tapaði síðan fyrir Bill
Clinton í kosningunum 1992.
Hinn 54 ára gamli verðandi for-
seti byggði framboð sitt til forseta-
embættisins á þeirri óbifanlegu trú
sinni að hann gæti brúað bilið milli
ólíkra pólitískra afla. Hann mun
svo sannarlega þurfa á þessum
hæfileikum sínum að halda í kjölfar
hatrammrar baráttu undanfarinna
fimm vikna. Bush er kvæntur
Lauru Bush bókasafnsfræðingi og
eiga þau tvær dætur.
Verðandi Bandaríkjaforseti kyssir eiginkonuna
George W. Bush, veröandi forseti Bandaríkjanna, gat ekki stiilt sig um aö smella kossi á eiginkonuna Lauru eftir að
hann hafði lýst yfír sigrí sínum í forsetakosningunum í ræöu sem hann hélt í ríkisþingi Texas í nótt. Bush er mjög
stoltur af eiginkonunni og lýsti því yfír aö hún yröi fráþær forsetafrú. Rúmar fímm vikur eru til embættistökunnar.
Neita að afskrifa Gore
eftir sáttaræðu hans
Stjórnmálaskýrendur neita að af-
skrifa A1 Gore sem forsetaframbjóð-
anda eftir fjögur ár eftir ræðu hans
í nótt þegar hann viðurkenndi ósig-
ur sinn. Þótti varaforsetanum
takast vel að ýta beiskju sinni til
hliðar og hvetja þjóðina til að sam-
einast aö baki George W. Bush.
Gore kvaðst þó harma að hann
skyldi ekki geta barist fyrir þjóðina
og málin sem voru á stefnuskrá.
„Ég verð að hrósa A1 Gore fyrir
ræðu hans. Hún innihélt allt sem
átti að vera i henni,“ sagði
repúblikaninn og öldungadeildar-
þingmaðurinn Orria Hatch strax
eftir að Gore lýsti því yfir opinber-
lega að hann hefði hætt baráttunni
fyrir því að verða næsti forseti
Bandaríkjanna.
„Ég hef aldrei séð hann betri,“
sagði öldungadeildarþingmaðurinn
Hrósað fyrir ræðuna
Gore þótti hafa flutt góöa ræöu þeg-
ar hann viöurkenndi ósigur sinn.
John McCain. Sagði hann ræðuna
hafa verið lið í því að fá þjóðina aft-
ur á rétt spor. McCain bætti þvi þó
við að Gore fengi líklega harða
keppni byði hann sig fram á ný til
forsetaembættisins. „Frú Clinton er
öflugur keppinautur," tók McCain
fram.
Gert er ráð fyrir að demókratar
vilji ekki fá Gore fyrir forsetafram-
bjóðanda í næstu kosningum. Bent
er á að hann hafi óvænt tapað kosn-
ingabaráttunni gegn. George W.
Bush sem hafði miklu minni
reynslu. Skömmu fyrir kosningarn-
ar sagði A1 Gore í gríni að ef hann
tapaði kynni hann að snúa sér aftur
að ritstörfum. Gore var rannsóknar-
blaðamaður áður en hann var kjör-
inn á þing 1976. Árið 1990 skrifaði
Gore bókina Earth in the Balance
sem náði metsölu.
Stuttar fréttir
Barak þrýstir á CNN
Ehud Barak, for-
sætisráðherra ísra-
els, reyndi á fundi
með fulltrúum
bandarisku sjón-
varpsstöðvarinnar
CNN að fá breytt
fréttaflutningi af
átökunum á her-
teknu svæðunum, að því er Jerusal-
em Post greinir frá. Fulltrúamir
greindu frá áhyggjum sínum vegna
sölu gyðinga á hlutabréfum í móð-
urfyrirtæki CNN. Sjónvarpsstöðin
hætti nýlega að senda fréttir frá
fréttaritara sem sendi næstum dag-
lega fréttir frá Gazasvæðinu. Einnig
var hætt að kalla Gilo, sem er út-
hverfi Jerúsalem, gyðingabyggð.
Skattalækkun í Færeyjum
Landstjórnin í Færeyjum er í
jólaskapi. Samkvæmt lagafrum-
varpi munu skattar verða lækkaður
um jafnvirði 30 þúsunda íslenskra
króna næstu tvö árin.
Heitir stuðningi
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hét
því í ræðu í Belfast á N-írlandi í
gær að stjóm hans myndi veita frið-
arviðræðum allan mögulegan stuðn-
ing þær vikur sem eftir eru af setu
hans í forsetastóli.
Pútín náðaði Pope
Vladímír Pútin Rússlandsforseti
náðaði bandaríska kaupsýslumann-
inn Edmond Pope og hann var lát-
inn laus í morgun.
Carla til Júgóslavíu
Aðalsaksóknari
stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag,
Carla Del Ponte,
ráðgerir heimsókn
til Júgóslaviu í
næsta mánuði. Ætl-
ar hún að þrýsta á
handtöku Slobod-
ans Milosevics, fyrrverandi
Júgóslavíuforseta.
9800 sýktir gripir étnir
Allt að 9800 nautgripir í Frakk-
landi, sýktir af kúariðu, lentu á
matarborðum Frakka, að því er
bresk rannsókn sýnir.
ESB gegn tóbaki
Evrópuþingið samþykkti í gær
hertar reglur um framleiðslu og
sölu á tóbaki sem taka eiga gildi
2004.
Handtökur vegna morðs
Lögreglan í
London handtók
snemma i morgun
átta drengi, 10 til 14
ára, vegna morðs-
ins á Damilola
Taylor, 10 ára
dreng frá Nígeriu.
Honum blæddi út
27. nóvember síðastliðinn eftir að
hafa verið stunginn í fótinn. Taylor,
sem hafði búið í nokkra mánuði í
London, hafði orðið fyrir einelti.
Peningana á borðið
Hillary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, krefst peninga á borðið
um áramót frá þeim sem keppa um
að gefa út endurminningar hennar.
Hæsta boð hljóðar nú upp á
jafnvirði rúmlega 600 milljóna
króna.