Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Síða 11
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
11
I>V
Útlönd
Njósnaforinginn Montesinos flúinn frá Perú:
Laumaðist á segl-
skútu til Kostaríku
Fyrrum yílrmaður leyniþjónust-
unnar í Perú, sem hefur verið á
flótta undan réttvísinni í tvo mán-
uði, stakk af í októberlok og sigldi á
skútu alla leið til Kostaríku. Þetta
kemur fram í framburði öryggis-
varða njósnaforingjans sem gerður
var opinber í gær.
Ef rétt reynist, tókst Vladimiro
Montesinos að laumast úr landi að-
eins sex dögum eftir að hann sneri
heim eftir misheppnaða tilraun til
að fá pólitiskt hæli í Panama.
Montesinos hefur verið ákærður
fyrir spillingu en hneykslismálið
sem hann varð valdur að kostaði Al-
berto Fujimori forsetaembættið.
Öryggisverðimir sögðu lögmanni
sem rannsakar meint peninga-
þvætti njósnaforingjans fyrrverandi
að Montesinos hefði siglt frá Perú
þann 29. október og að hann hefði
haft viðkomu á Galapagoseyjum,
sem tilheyra Ekvador, sex dögum
síðar.
Vladimiro Montesinos
Njósnaforinginn fyrrverandi úr Perú
komst úr landi á ævintýralegan hátt,
ef marka má framburð embættis-
manna í her landsins. Montesinos
flúði til Kostaríku á seglskútu.
Framburður öryggisvarðanna er
vís með að valda starfandi forseta
Perús, Valentin Paniagua, erfiðleik-
um í að bola skósveinum Montesin-
os úr herafla landsins, fjölmiðlum
og dómstólum.
Montesinos hefur verið sakaður
um tengsl við bandarísku leyniþjón-
ustuna CIA, eiturlyfjasmyglara og
dauðasveitir. Hneykslið sem hann
er miðpunkturinn í komst í hámæli
í september þegar fram kom mynd-
bandsupptaka af Montesinos þar
sem hann afhenti þingmanni mút-
ur. Þvi lauk síðan með brottrekstri
Fujimoris úr forsetaembættinu í
síðasta mánuði.
„Stundum hvarflar að manni
hvort allt sem gerst hefur sé raun-
verulegt eða bara vel gerð kvik-
mynd. Þessi saga gæti verið ein
besta spennukvikmyndin," segir ör-
yggismálasérfræðingurinn Carlos
Tapia í samtali við fréttamann
Reuters.
Lögregluþjónn borlnn til grafar á Gaza
Þaö var heitt í kolunum á Gazaströndinni í gær þegar 27 ára gamall palestínskur lögregluþjónn, Mahdi Ramadan, var
borinn til grafar. Lögregluþjónninn féll í átökum við ísraelska hermenn fyrr um daginn, ásamt þremur starfsbræðrum
sínum. Tugir Palestínumanna særðust í átökum á heimastjórnarsvæðunum í gær.
Nýtt hneyksli í upp-
siglingu I Frakklandi
Þegar skattayfírvöld í París voru
að rannsaka fasteignakaup vopna-
salans Pierres Falcones, sem með
viðskiptum sínum hefur haldið
borgarastríðinu I Angóla gangandi,
afhjúpuðu þau nýtt hneyksli í
Frakklandi. Þegar disklingar
Falcones voru skoðaðir i tölvu birt-
ust athyglisverð nöfn á skjánum.
Jean-Christophe, sonur Mitterrands
fyrrverandi Frakklandsforseta, sem
á árunum 1986 til 1992 sinnti hags-
munum Frakka í Afríku, svo að
segja á vegum foður síns. Jacques
Attali, persónulegur ráðgjafi Mitt-
errands 1981 til 1991. Hann er nú
fjármálaráðgjafi og rithöfundur.
Charles Pasqua, fyrrverandi innan-
ríkisráðherra. Og Jean-Charles
Marchiani, samstarfsmaður Pasqua,
sem starfaði í leyniþjónustunni.
Þeir hafa allir verið kallaðir sem
vitni í málinu gegn Falcone. Jafn-
framt hefur rannsókn verið gerð á
heimilum og skrifstofum fjórmenn-
inganna. Rannsóknardómarar rann-
saka nú að hve mikli leyti þeir
vissu um ólögleg viðskipti Falcones.
Vopnasalan, sem um ræðir, fór
fram 1993 til 1994. Slóvakískt fyrir-
tæki, Zts-Ozos, sem gert hafði inn-
kaup í birgðageymslum í Rússlandi,
afhenti vöruna. Falcone var millilið-
ur. Ólíklegt þykir að franska ríkið
hafi átt aðild að vopnasölunni. En
Pierre Falcone var á þessum tíma
fastur ráðgjafi Sofremi, samtaka
sem flytja út franskan öryggisbúnað
til fjölda landa. Franska ríkið á 35
prósent í samtökunum. Sofremi
heyrði undir Pasqua.
Falcone var einnig í sambandi
við son Mitterrands sem er sagður
hafa sýnt mikla kurteisi. Attali, sem
á síðari árum hefur verið ráðgjafi
margra þjóðarleiðtoga í Afríku,
vildi einnig gjaman bjóða forseta
Angóla þjónustu sína. Falcone var
maðurinn sem gat komið á sam-
bandi.
í Angóla starfaði Falcone náið
með Arkadí Gajdamak sem fæddist
í Sovétríkjunum en flutti til ísraels
og fékk ríkisborgararétt þar. Gajda-
mak starfaði sem túlkur á alþjóðleg-
um ráðstefnum og í viðskiptalífmu.
Þannig aflaði hann sér margra sam-
banda. Nokkrir tengiliða hans voru
í hergagnaiðnaðinum í Sovétrikjun-
um. Við hrun þeirra komust við-
skiptin i gang fyrir alvöru. Hann
seldi Angólamönnum vopn, fóður og
áburð og fékk í staðinn olíu og dem-
anta. Frönsk yflrvöld hafa
árangurslaust kallað Gajdamak til
yfirheyrslu.
Toyota
Nissan
Musso
Chevrolet
Suzuki
Isuzu
Cherokee yyy
Jeep Willys //
Land Rover
Range Rover
Ford
Leiðiskrossar
ALLT PLAST
heimasíða:
www.simnet.is/aplast
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
Framleiðum brettakanta, sólskyggni og boddíhluti á flestar gerðir jeppa,
einnig boddíhluti I vörubíla og vanbíla. Sórsmíði og viðgerðir
ólagjöfin hennar!
Stuttir og síðir
pelsar i úrvali
Minkíipelsttr
Tilboð
50% útborgun
og eftirstöðvur
voxtalaust ullt ttð
12 nuimtðunt.
Pelsfóðurs-
kápur og jakkar
Ullarkápur og
jakkar með
loðskinni
Loðskinnshúfur
Loðskinnstrejlar
Loðskinnshárbönd
Klassískur fatnaður
Bocace-skór
Þar sem
vandlátir
versla
PELSXNN
Kirkjuhvoli, sími 552 0160
K Raðgreiðslur í allt að 36 mónuði