Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
Fréttir
15
DV
Norðurland eystra:
Aukið atvinnu-
leysi að venju
DV, AKUREYRI:_______________________
„Þaö aö atvinnulausum fjölgi á
skrá hjá okkur í nóvember og des-
ember kemur ekkert á óvart, það er
árvisst. Á árinu hafa verið færri á
atvinnuleysisskrá hjá okkur en
áður og fjölgunin á skránni núna er
í samræmi við það, hún er minni en
t.d. í fyrra,“ segir Helena Karlsdótt-
ir hjá Svæðisvinnumiðluninni á
Norðurlandi eystra.
Um síðustu mánaðamót voru 114
á atvinnuleysisskrá á Akureyri og
hafði fjölgað um 21 frá síðustu mán-
aðamótum. Að sögn Helenu hefur
verið nokkuð um uppsagnir að und-
anförnu og sagði hún að ýmislegt
gæti spilað þar inn í, s.s. hráefnis-
skortur í fiskvinnslu. „Við sjáum
sennilega ekki fyrr en í lok janúar
hvort þessi aukn-
ing núna er varan-
leg eða hvort þetta
gengur til baka. Þá
er það líka spurn-
ing hvort verkfall
kennara í fram-
haldsskólum hefur
þama áhrif og
nemendur skól-
anna séu í störfum
sem aðrir hefðu
annars tekið.“
Á Húsavík var
21 atvinnulaus um
mánaðamótin og
haföi fjölgað um 5
frá 1. nóvember. Á
Dalvík fjölgaði á at-
vinnuleysisskrá úr
5 í 13 en langmest var íjölgunin á
Ólafsfírði. Þar vom 19 á atvinnu-
leysisskrá 1. nóvember en 43 um
síðustu mánaðamót. Þar hefur mik-
il áhrrif að fiskvinnslan í bænum
dregur saman seglin þegar jól nálg-
ast eins og gerst hefur undanfarin
ár. -gk
DV-MYNDIR GYLH
Langþráð sundlaug
Sundlaugin í Hrafnagili gjörbreytir aðstöðu til endurhæfingar i Eyjafiröi.
Stór áfangi í heilbrigðisþjónustu í Eyjafirði:
Ný barnadeild
og sundlaug
og félagsmiðstöð fyrir geðfatlaða vígð
Barnadeildin
viö Fjóröungssjúkrahúsið var sérstaklega hönnuö og
uppbyggö sem stík.
DV, AKUREYRI:_______
Það var stór dag-
ur í heilbrigðisþjón-
ustu í Eyjafirði sl.
föstudag. Þann dag
var vígð ný barna-
deild við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akur-
eyri, ný sundlaug
var vígð í Kristnesi
og tekin í notkun ný
félagsmiðstöö við
Þingvallastræti á
Akureyri.
Ný bamadeild við
Fjórðungssjúkrahús-
ið er langþráöur
draumur og hefur tekið mörg ár að
koma deildinni á fót. Deildin flytur
nú úr um 300 fermetra húsnæði í
um 800 fermetra rými í nýjustu
álmu sjúkrahússins. Á nýju deild-
inni eru 13 sjúkrarúm, sjö á legu-
deild, fjögur á dagdeild og tvö rúm
vegna sérstakra hlutverka. Nýja
deildin er sérstaklega hönnuð fyrir
það hlutverk og vinnuaðstaða
starfsfólks batnar geysilega.
Nýja þjálfunarsundlaugin við
öldrunar- og endurhæfingadeildir
Fjórðungssjúkrahússins í Kristnesi
í Eyjafjarðarsveit var ekki síður
langþráð mannvirki en bamádeild-
in, en bygging sundlaugarinnar hef-
ur tekið hátt i áratug. Kostnaður við
laugina nemur um 56 milljónum
króna, og vekur mikla athygli að
einstaklingar og félagssammtök, s.s.
lionsklúbbar, hafa safnað alls 22,5
milljónum vegna laugarinnar, Ak-
ureyrarbær hefur lagt fram 15,5
milljónir en um 14 milljónir vantar
enn til að ná endum saman. Við til-
komu laugarinnar gjörbreytist aö-
staða til endurhæfmgar. -gk
II
5
0
a
5
5
o
a
ui
Gerðu sleðann þinn
persónulegri
Hverjir eru þínir uppáhaldslitir? Nú getur þú breytt POLARIS sleðanum þínum
eftir þínu höfði og möguleikarnir eru margir. Nú þarf enginn að vera eins.
PQLRRIS
Vígalegir vélsleðar,
fylgihlutir og fatnaður
Snjósokkar
Skíðaplöst
Framstuðarar
Búkkahjól
m
Stigbretti
Stigbretti með
hálkuvörn ^
Afturstuðarar
Allt frá hjálmi ofan í skó
Auk þeirra hluta, sem sýndir eru
hér að ofan, eigum við mikið úrval
af allskonar hlífðar- og kuldafatnaði
sem er sérsniðinn að
vélsleðaíþróttinni.
Töff fatnaður sem gerir þig
persónulegri!
Má þar nefna samfestinga, buxur,
jakka úlpur peysur, boli, húfur,
vettlinga o.fl. o.fl.
BOSCH
HÚSIÐ
BRÆBURNIR ORMSSON
Lágmúla 9,
sími 530 2800