Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2000, Side 33
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000
37
DV
Tilvera
'Ö5soJ>Kv
Nýta veröur allt pláss
Bjarni Haraldsson og aöstoðarmanneskja hans, Hrefna Skarphéðinsdóttir,
innan við búðarborð enframan við staflar af kertum og öörum varningi til jólanna.
áður fyrr þegar verslað var í hverju
húsi við Aðalgötuna."
„Ég næ því bara upp
á veltunni"
Bjarni fór að starfa með fóður sín-
um, Haraldi Júlíussyni, í krambúð-
inni við lok sjötta áratugar aldarinn-
ar og tók við rekstri hennar. við lát
hans rúmum áratug síðar. Verslun-
in er með svipuðu sniði og áður. Þar
fæst allur algengasti vinnu- og hlífð-
arfatnaður, frá gúmmiskóm upp i
úlpur, og nýlenduvörur frá dropa-
glösum upp í hveiti, sykur, kaffl og
harðfisk, ásamt niðursuðuvörunum.
Hjá mörgum var það árvisst að fara
í krambúðina til Bjama áður en
krakkamir vora sendir í sveitina á
vorin og kaupa þar vinnuklæðnað-
inn og gúmmískóna ómissandi með
hvíta botnunum, það er að segja ef
Tómas Hallgrímsson, vinur Bjama
hjá vefnaðarvöradeild kaupfélagsins
á hominu hinum megin, hafði þá
ekki dumpað verðinu niður.
Bjarni þóttist samt yfirleitt vera
með besta verðið og einhvem tíma
var hann spurður hvemig hann færi
að því að bjóða svona ódýra vöru,
þar sem smásöluverðið var jafnvel
undir heildsöluverðinu. „Ég næ þvi
bara upp á veltunni," sagði Bjarni
þá.
- Nærðu því enn þá upp á velt-
unni, Bjami?
„Það er nú kannski bara orðið úr-
elt að vera að grobba sig af því,“
sagði kramkaupmaðurinn á Krókn-
um og enn virðist enginn bilbugur á
honum þótt kominn sé á áttunda
áratuginn, enda getur ekki hver sem
14. desember
Stúfur litli er líka kallaður Pönnu-
skefill því hann reynir að hnupla
matarögnum af steikarpönnunni.
Stúfur
Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krœkti sér í pönnu
þegar kostur var á.
Hann hljóp meó hana í burtu
og hirti agnirnar
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Höf.: Jóhannes úr Kötlum
Litið inn hjá Bjarna Haraldssyni í krambúðinni á Króknum:
Oft bankað upp á eftir
hádegi á aðfangadag
„Það er alltaf svolítill fiðringur
sem færist í mann þegar jólin nálg-
ast. Annars er jólaverslunin sjálf
ekki nema svona tvær til þrjár vik-
ur fyrir jólin. Og það er nú þannig
hjá kaupmanninum á horninu í
öllu þessu annríki sem oft er síð-
ustu vikurnar fyrir jólin að
jólastemningin kemur ekki yfir
mann af alvöru fyrr en búið er að
loka upp úr hádeginu á aðfangadag.
Þá fer maður að gera sjálfan sig
kláran áður en hátíðin gengur í
garð. Að vísu kemur það oft fyrir að
bankað er upp á þegar búið er að
loka. Þá hefur fólk gleymt ein-
hverju á lokasprettinum og það er
svo þægilegt að fara til Bjarna því
hann býr í sama húsi og verslun-
in,“ segir Bjami Haraldsson, kaup-
maðurinn í krambúðinni á Krókn-
um, sem er með þeim allra elstu á
landinu, var opnuð árið 1919.
Komin í jólabúninginn
Það er orðið mjög jólalegt í Versl-
un Haraldar Júlíussonar á Krókn-
um. Þegar blaðamaður DV leit inn
á dögunum var stór stafli að friðar-
og jólakertum fyrir framan búðar-
Hljómplötur
Jólaplötu Borgardætra lýsa best
orðin fágun og fagmennska. Laga-
valið hefur tekist vel. Hæfilega mik-
ið af gamalkunnum jólalögum en
síðan.innan um lög sem ekki hafa
heyrst á hérlendum jólaplötum fyrr.
Það hefði verið hægur vandi fyrir
Borgardætur að safna saman þekkt-
ustu lögum Andrews systra, láta
semja texta við það sem ekki hefur
komið út áður, biðja útsetjarann,
Eyþór Gunnarsson, að stæla gamla
Andrews-stílinn og syngja síðan allt
inn á mettíma. Sú leið var sem bet-
ur fer ekki farin og fyrir bragðið er
borðið og ýmis annar varningur til
jólanna. Það þarf að nota allt pláss
á þessum tíma ársins þar sem hillu-
og gólfrými er af skornum
skammti.
„Faðir minn stofnaði þessa versl-
un og það var vitaskuld spennandi
fyrir gutta eins og mig að trítla inn-
an við búðarborðið, sérstaklega
þegar jólin nálguðust. Það var eini
tími ársins sem hægt var að fá
ferska ávexti og alltaf mikil eftir-
vænting sem fylgdi því þegar jóla-
eplin komu. Þá fylltist húsið af
þessum góða eplailmi, að maður
tali nú ekki um leikfóngin öll. Það
var spennandi að íylgjast með því
hvaða ný leikfóng kæmu nú þetta
árið. Sérstaklega fannst mér nú bíl-
arnir tilkomumiklir en snemma
beygðist krókurinn i þeim efnum.
Ég held ég hafi varla orðið ánægð-
ari í lifinu en þegar ég eignaðist á
einum jólunum kassabíl sem hægt
var að sitja í og keyra, með stýris-
gangi og öllu tilheyrandi."
- En er jólaverslunin eins mikil
og hún var hér áður fyrr?
„Nei, traffikin hefur náttúrlega
minnkað mikið héma í útbænum.
Nú er Bjami bara einn orðinn
hérna á norðurendanum og það var
náttúrlega miklu meira líf héma
útkoman aldeilis prýðileg. Hátíð-
legu lögin eru í minnihluta en þeim
mun meira af íjöri. Gamli slagarinn
Botch-a-me er orðinn að bráð-
skemmtilegum Þorláksmessusöng.
Amma engill er með smellnum texta
sem maður þarf aðeins að velta
vöngum yfir áöur en áfram er hald-
ið og Jólasparifotin og Nýárspolka
eru aldeilis hressileg á að hlýða.
Svo koma þessi hugljúfu inn á milli,
svo sem Jólaljósin og Litli stúfur.
Borgardætumar Andrea, Berg-
lind Björk og Ellen hafa sent frá sér
þrjár plötur og hafa aldrei náð bet-
er rekið krambúð í dag á tímum
stórmarkaða og verslanakeðja.
-ÞÁ
ur saman en núna. Allar fremstar
meðal jafningja og mynda áheyri-
lega heild. Undirleikarar eru hóf-
lega lágstemmdir og stela aldrei
showinu frá aðal pæjunum í hópn-
um. Handbragð Eyþórs Gunnars-
sonar er hvarvetna og má hiklaust
segja að Jólaplatan sé enn ein rósin
í hnappagat hans. Diskar með jóla-
og hátiðartónlist hafa streymt á
markaðinn á liönum árum. Sá sem
hér er fjallað um er hiklaust í hópi
hinna bestu úr veraldlega geiran-
um.
Ásgeir Tómasson
Margt til lista lagt:
Sigu niður
Lands-
bankann
DV, AKRANESI:________
Það hefur löngum verið sagt að
jólasveinum sé ýmislegt til lista^-
lagt. Akurnesingar vissu ekki hvað-
an á þá stóð veðrið á dögunum þeg-
ar að tveir sveinar voru komnir upp
á þakið á Landsbanka íslands á
Akranesi. Margir héldu að þeir ætl-
uðu að syngja á þaki hússins en það
var öðru nær. Sveinamir bundu um
sig gild bönd og létu sig síga með
gjafir handa ungum Akumesingum,
þeir höfðu fengið gefins svaladrykki
sem þeir dreifðu meðal barnanna.
Þeir sveinar sögðu DV-manni að
þeir þyrftu oft að síga í Akrafjalli og
Esjunni þar sem þeir búa og því
heföi það ekki verið tiltökumál að
síga niður Landsbankahúsið. Mynd-
irnar voru teknar þegar jólasvein-
amir voru að búa sig undir sigið og ^
greinilegt að þeir kunna vel til
verka. -DVÓ
Súfistinn:
Forskot
a jolin
í kvöld verður glatt á hjalla á
Súfistanum, bókakaffi í verslun f
Máls og menningar, Laugavegi. Þar *
verður tekið forskot á jólin, lesið úr
bókinni Jesús Kristur: Jesús sög-
unnar - Kristur trúarinnar og
kynntur ýmis annar jólafróðleikur.
Einnig verður hið sívinsæla jóla-
happdrætti Máls og menningar og
Súfistans og Kór Flensborgarskóla
syngur jólalög undir stjóm Hrafn-r
hildar Blomsterberg. Dagskráin
hefst kl. 20 og er aðgangur ókeypis
og öllum heimill.
Bjarnl á bak við búðarborðið
Hjá mörgum var þaö árvisst að fara í krambúöina til Bjarna áður en krakkarnir
voru sendir í sveitina á vorin og kaupa þar vinnuklæönaöinn oggúmmískóna
ómissandi með hvíta botnunum.
Borgardætur - Jólaplatan ★ ★★★
Jólaplata í sérflokki