Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 6
6 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 Fréttir DV Eftirlit með bústofni Yfirvöld á Höfða í Þverárhlíð lenti í þæfingi: féllu á tíma - fækkum fénu ekki, segir bóndinn á bænum Ljóst er að eftirlitsmenn með fóðrun og skepnuhaldi munu ekki komast að býlinu Höfða í Þverár- hlíð í Borgarfirði fyrr en í haust. Málið hefur verið þæft milli yfir- valda frá því í febrúar sl. Nú þyk- ir of seint fyrir eftirlitsmenn að fá úrskurð og fara á býlið þar sem sauðburður er hafinn og féð fer að leita til fjalla. Eins og DV hefur greint frá standa fimm systkini að félagsbúi að Höfða. Þau búa með a.m.k. 1200-1400 fjár, um 100 hross, mjólkandi kýr og nautgripi. Bú- skapurinn er ekki „hefðbundinn" vegna fjölda búfjár. Þá hafa bænd- ur á Höfða smám saman komið því á að gefa ánum úti yfir vetrartím- ann og láta þær ganga við opið. Hefur lengi verið uppi ágreiningur milli bænda og embættismanna vegna tiltekinna atriða í búskapar- háttum á Höfða. Seinni hluta febrúar sl. fóru hér- aðsdýralæknir, fulltrúi yfirdýra- læknis og fulltrúi Búnaðarsam- taka Vesturlands í eftirlitsferð að Höfða. Þegar þeir komu að bænum höfðu bændur lagt bíl við hlið heim að honum og bönnuðu eftir- litsmönnunum heimgöngu. Eftir alllöng orðaskipti hurfu hinir síð- arnefndu frá. Þeir skrifuðu sam- dægurs bréf til sýslumannsemb- ættisins í Borgarnesi þar sem þeir óskuðu eftir að hann leitaði úr- skurðar um aðgang þeirra að býl- inu. Stefán Skarphéðinsson sýslu- maður sagði að það væri héraðs- dóms að kveða upp slíkan úrskurð og þangað bæri því að sækja hann. Halldór Runólfsson yfirdýra- læknir sagði að eftir umfjöllun lög- fræðinga hefði niðurstaðan orðið sú að sveitarstjórn skyldi sækja um úrskurð héraðsdóms til að heimila dýralæknum inngöngu á býlið. Stefán Kalmannsson sveitar- stjóri kvaðst ekki telja raunhæft nú að standa í aðgerðum á býlinu þar sem komið væri vor. Málið væri þvi komið í frestun fram til hausts. „Við erum enn með sama vanda- mál, að bústofninn þarna er allt of stór,“ sagði hann.“ Bændurnir hafa ekki aðstæður til að hýsa all- an þennan bústofn. En málið er ekki búið.“ „Það er ekkert á döfinni hjá okk- ur að fækka fénu í haust,“ sagði Sigurður Bergþórsson, bóndi á Höfða, við DV í gær. „Það hefur komið óvenjuvel undan vetri. Við þurfum bara að þróa betur aðstöðu til að gefa eingöngu úti.“ -JSS Reykjanesbær: Nemendur mótmæla sektum DV, SUÐURNESJUM: Nemendur I Fjölbrautaskóla Suðurnesja fjölmenntu á götum Reykjanesbæjar og þeyttu bílflautur í fyrradag. Þeir mót- mæltu því að í allan vetur hefur lögreglan mætt við skólann og látið sektarmiða á bíla sem lagt hefur verið ólöglega. Atli Gylfa- son, talsmaður nemenda, tjáði DV að ófremdarástand ríkti í bíla- stæðamálum skólans, að aðeins væru 80 bílastæði við skólann þrátt fyrir að reglugerðir kvæðu á um að 5 stæði væru fyrir hverja skólastofu og 1 stæði fyrir hvern starfsmann en starfsmenn skól- ans væru 80. Atli var ekki bjart- sýnn á að mótmælin hefðu ein- hver áhrif, sýslumaður hefði bara hrist hausinn og lögreglan og bæjarstjóri bentu hver á annan og hefði bæjarstjóri bent nemend- um á að leggja við bæjarskrifstof- urnar en þær eru í töluverðri fjarlægð frá FS. -ÞGK Skemmdarverk Ljóst er aö mikiö skemmdarverk hefur veriö unniö á húsinu á Breiö- haldsvík og hér má sjá hverniggólf- in fóru. Húsið nán- ast eyðilagt DV, BREIÐDALSVÍK: Brotist var inn í mannlaust ein- býlishús á Breiðdalsvík nýlega og er húsið nánast fokhelt eftir. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær innbrot- ið var framið, en farið var inn um glugga á bakhlið og virðist sem við- komandi, einn eða fleiri, hafi gefiö sér nægan tíma. Lokað var fyrir niðurföll á baði og skrúfað frá krönum áður en hús- ið var yfírgefið og brá eigandanum illa í brún þegar hann opnaöi og á móti honum kom vatnsgusa. Vatns- skemmdir eru miklar, öll gólfefni ónýt sem og húsgögn, rafmagn hafði slegið út og húsið allt gegnblautt svo vætlaði út í gegnum veggina. Einnig flæddi niður á neðri hæðina og urðu miklar skemmdir þar. Ekki er vitað til að neinu hafi verið stolið. Lögregla er með málið í rann- sókn. -Hanna Mótmæli Nemendur í Fjölbrautaskóla Suöurnesja fjölmenntu á götum Reykjanesbæjar og þeyttu bílflautur í fyrradag. Þeir mót- mæltu því aö í allan vetur hefur lögreglan mætt viö skólann. Bátasmiðja Guðmundar stefnir hraðbyri á Færeyjamarkað: Færeyingum sýndur Sómi - forstjórinn siglir milli landa Óskar Guðmundsson, eigandi og forstjóri Bátasmiðju Guðmundar, hyggst sigla á Sómabáti frá Hafnar- firði til Grímseyjar næstu vikuna - með viðkomu í Færeyjum. Með hon- um i for verða Valdimar Long, starfs- maður Bátasmiðjunnar, og Sigurður Bjarnason, vélstjóri í Grímsey. Hann segir ferðina fela í sér tví- þættan tilgang. „Bátasmiðjan er framleiðandi Sómabátanna og ég ætla að keyra einum tO Grímseyjar þar sem hann er til afhendingar. Ég ákvað að nota tækifærið og fara með hann á sjávar- útvegssýningu í Rúnavík í Færeyjum enda er draumurinn að selja eyja- skeggjum Sómabáta," segir hann. Óskar reiknar með fimm dögum í ferðina en megninu af tímanum verð- ur eytt í Rúnavík. Fyrsti áfangi ferð- arinnar er sigling frá Hafnarflrði til Vestmannaeyja þar sem tekin verður olía. Þaðan er lagt í 400 sjómílna ferð tO Færeyja á sex tonna smábáti. „Við ætlum að kynna Færeyingun- um nýjustu gerðina af Sómabátum sem er hraðskreiðastur sambæri- legra báta í heiminum. Hann er með 450 hestafla vél á meðan flestir smá- bátar í Noregi hafa einungis 150 hest- afla vél. Efnahagslífið hefur verið á uppleið í Færeyjum og þetta gæti orð- ið vaxandi markaður fyrir íslenska smábáta," segir hann en um 360 Sómabátar hafa verið smíðaðir á ís- landi síðustu 20 árin. Smábátur á ballarhafi Óskar Guömundsson og Valdimar Long ætla á Sómabáti til Færeyja um helgina. Báturinn gengur mest á um 30 mílna hraða á klukkustund og reikna félagarnir með því að vera rúman sól- arhring á leiðinni frá Hafnarflrði tO Rúnavíkur. Óskar segist sækja í það að prófa Sómabátana sjálfur á sjó. „Maður finnur þaö strax þegar maður notar bátinn hvort einhverjir gallar eru á honum og ég hef reynt að kynnast bátunum sjálfur. Það reynir þó ekki fyUOega á bátinn í svona skemmtiferð tO Færeyja. Smábátasjó- menn þurfa reglulega að ganga í gegnum brælur og hasar á sjó. Eftir minni reynslu eru Vestfjarðamiðin mun verri hvað sjófærð varðar held- ur en úthafið miUi íslands og Fær- eyja,“ segir hann. Þeir félagamir taka samanlagt með sér um 2000 lítra af olíu í ferðina, þó þeir reikni með að nota einungis 1000 lítra. „Þetta er gert tO öryggis. Það er lík- lega fátt aulalegra en að verða olíu- laus úti á sjó,“ segir Óskar Guð- mundsson á leið i víking. -jtr Heiti potturinn Umsjón: Hörður Kristjánsson hkrist@ff.is Siv flottust I nýjasta tölublaði auglýsinga- ritsins „Af netinu" er greint frá þeirri merkilegu netsíðu hotorn- ot.com. Þar geta menn gefið upp slóð á eigin heimasíðu með tilvísun á ljós- mynd af sjálfum sér eða öðrum. Þeir sem heim- sækja síðan síðuna á Netinu gefa viðkomandi síðan einkunn frá 1-10. Eftir einn sólar- hring liggur síðan niðurstaðan fyr- ir. Útgefendur „Af netinu" stóðust ekki mátið og settu inn tOvísun á hotomot.com inn á vefsíðu Alþing- is. Þar eru myndir af öOum þing- mönnum íslendinga. Þrátt fyrir að 85.000 vafrarar gæfu þingmönnun- um fegurðareinkunn þá fengu þeir fæstir góða útkomu og var meðal- einkunn aðeins 4,5. Siv Friðleifs- dóttir fékk þó áberandi besta kosn- ingu sem faUegasti þingmaður ís- lendinga með einkunnina 8,9. Af tillitssemi sleppir blaðið þó að minnast á herfilega útreið sumra annarra þingmanna... Bjarga gengi krónunnar Einar Bárðarson og Eurovision- bandið hans Two Tricky munu leggja landann að fótum sér í kvöld. Víst er að ) margir pólitíkus- ar munu öfunda þá fyrir aOa at- hyglina. Two Tricky og Eurovisionkeppn- in í Kaupmanna- höfn munu gjör- samlega lama þjóðfélagið svo að meira að segja bensínstríðið mun gufa upp út af ástandinu. Sagt er að Geir H. Haarde Qármálaráð- herra, sem sjálfur er liðtækur söngvari, bindi miklar vonir við að Einar og félagar sigri í kvöld því þá sé gengi krónunnar borgið, alla- vega fram á næsta vor... Óskar í „Strætó“? Helgi Pétursson, stjórnarformaður SVR, er nú talinn líklegastur sem fyrsti forstjóri hins nýja sameinaða strætisvagnafyrir- tækis Strætó hf. á höfuðborgarsvæð- inu. í heita pottin- um hafa menn þó bent á aðra lausn. Einn þjóðþekktur maður sem hafi það fram yfir Helga að keyra rútur dagsdaglega sé aOt eins boðlegur í stöðuna. Hann hafi auk þess mikla reynslu af félagsmálum og núverandi vinnuveitendur hans séu meira en tObúnir leyfa honum að hætta og það strax. Þessi reynslu- mikli maður sé enginn annar en Ósk- ar Stefánsson, formaður Sleipnis... No Such Thing? KvikmyndamógúOinn Friðrik Þór Friðriksson sagði í sjónvarps- viðtali á dögunum að hann væri á leið tO Cannes þar sem hann í félagi við Coppola hygð- ist frumsýna myndina Monster, sem heitir núna No Such Thing, en hún var tekin upp og gerist hérlendis. Gróa gamla á Leiti telur sig hins vegar hafa heimOdir fyrir því að Friðrik Þór hafi hætt þátttöku í myndinni strax í upphafi og gert samning þess eðlis að hann fengi endurgreiddan virðisaukaskattinn frá iðnaðarráðuneytinu fyrir sinn snúð. I ráðuneytinu sitja menn hins vegar sveittir því Finnur Ingólfs- son sem setti þessa reglu á gleymdi að ákveða hvernig eigi að reikna ósköpin út. Kurr mun hins vegar meðal kvikmyndagerðarmanna sem þykir ljótt af Frikka að skrökva um meint samstarf við Coppola. í því samhengi þykir nafn myndarinnar í hæsta máta kaldhæðnislegt enda No Such Thing á ferðinni...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.