Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Qupperneq 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
DV
Ýmislegt ber á góma í erfiðri rannsókn lögreglu á hvarfi Valgeirs Víðissonar:
Vitni segja tvo menn
hafa banað Valgeiri
- framburðirnir ekki nægilegir til að gefa út ákæru á hendur hinum grunuðu
Valgeir hvarf daginn eftir umferöarteppuna.
Þaö hve langur tími er liöinn frá því síöast sást til hins horfna manns, 7 ár,
gerir rannsóknina erfiöari en ella.
Samkvæmt heimildum DV hafa
vitni sem lögreglan hefur rætt viö í
máli Valgeirs Víðissonar sagt að tveir
menn hafi sagt þeim að þeir hafi stað-
ið að því að bana Valgeiri árið 1994.
Vitnisburðir þó nokkurra aðila sem
hafa borið vitni hjá lögreglu eru með
mismunandi hætti í málinu en eru
ekki taldir rekast á. Þeir tveir menn
sem um er að ræða eru íslendingur
sem lögreglan freistaði að reyna að yf-
irheyra i Hollandi vegna Valgeirs-
málsins í desember og félagi hans sem
býr hér á landi. Báðir eiga sér sögu í
fíkniefnamálum.
Þrátt fyrir þessa vitnisburði eru
þeir ekki nægt efni til að gefa út
ákæru á hendur mönnunum, a.m.k. ef
þeir neita sjálfir alfarið að hafa átt
þátt í hvarfí Valgeirs. Annar þeirra
hefur reyndar ekki verið yfirheyrður
enn þá.
Framburður eins eða fleiri aðila,
jafnvel mjög margra, um aö einhver
hafi sagt sér eitthvað um ákveðinn
verknað telst einungis rökstuddur
grunur. Meira þarf til að verknaður
sannist. Komi einhver fram og segist
hafa verið á vettvangi og séð sjálfur
þegar maðurinn var drepinn myndi
sönnunin styrkjast mjög. Það sem ger-
ir mál þetta erfiðara í rannsókn en
önnur manndrápsmál er hve gamalt
það er og ekkert lík hefur fundist þar
sem t.a.m. væri hægt að greina
áverka af mannavöldum.
Eitthvaö dularfullt hafði
gerst
Daginn eftir að óralangar bílaraðir
mynduðust kringum stórþjóðhátíð ís-
lendinga á Þingvöllum árið 1994 - þeg-
ar 50 ár voru liðin frá stofnun lýðveld-
isins - yfirgaf Valgeir Víðisson heim-
ili sitt i hinsta sinn. Þrítugsafmæli
hans átti að vera í næsta mánuði.
Þetta var á þeim tíma sem Ólafur
Ragnar Grímsson var enn formaður
Alþýðubandalagsins og var hann þá
einn þeirra stjórnmálamanna sem
stóðu í ströngu við að gagnrýna
harkalega framgöngu norsku strand-
gæslunnar í garð íslenskra togarasjó-
manna við Svalbarða.
Valgeir hafði aðsetur hjá öðru fólki
í herbergi íbúðar ofanvert við Lauga-
veginn. Það var löng helgi. Þjóðhátíð-
ardagurinn var á föstudegi en á laug-
ardagskvöldið var verið að sýna frá
leik Rúmena og Kólumbíumanna í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu sem í þetta sinn var haldin í
Tiltekt í Kvosinni aö morgni 18. júní.
Um kvöldiö fór Valgeir Víöisson aö heiman frá sér í síðasta skiptiö. Framburöur vitna bendir til aö hann hafi fariö niö-
ur aö Lækjargötu og síöan veriö ráöinn bani einhvers staöar nálægt þeim staö þar sem þessi mynd er tekin.
msmmsmr
Óttar Sveinsson
blaöamaöur
Bandaríkjunum. Valgeir er talinn
hafa verið að horfa á þennan leik þeg-
ar einhver hafði við hann símasam-
band. Húsráðendur sem íeigðu íbúð-
ina komu heim um nóttina en þá var
enn kveikt á sjónvarpinu og teikning
sém Valgeir var að gera lá á borðinu.
Síðan kom Valgeir ekkert heim.
Faðir hans, Víðir Valgeirsson vél-
stjóri, fór út á sjó á laugardagskvöld-
ið. Þegar hann kom til baka nokkrum
dögum síðar var fólk farið að verða
mjög áhyggjufullt - ekkert hafði
spurst til Valgeirs. Víðir fór þegar í
stað í íbúðina á Laugavegi og sá þá
hvernig umhorfs var.
„Ég sá strax að eitthvað dularfullt
hafði átt sér stað,“ segir Víðir. Um 8
þúsund ánamaðkar, sem Valgeir hafði
tint til að selja, lágu i ilátum niðri í
kjallara hússins. Allt benti til að hann
heföi ætlað að koma til baka eftir að
hafa skroppið út.
Víðir telur fullvíst að Valgeir hafi
verið ginntur niður í bæ - sennilega
niður að Lækjargötu - honum hafi
verið sagt að menn sem skulduðu
honum peninga ætluðu að greiða hon-
um. Upplýsingar hafa borist um aö
menn hafi banað Valgeiri, sett hann í
farangursgeymslu bifreiðar og ekið á
brott. Oftast hefur verið nefnt að ekið
hafi verið með hann austur fyrir fjall.
A.m.k. tveir menn sem grunaðir
eru í málinu segjast hafa að hluta til
dvalið í sumarhúsi á Suðurlandi
þessa helgi.
Lögreglan í málið eftir 11
daga
Þann 30. júni 1994 bárust lögregl-
unni i Reykjavík fyrst upplýsingar
Var aö veröa
þrítugur
Valgeir Víöisson
heföi oröiö þrí-
tugur í júlí 1994.
um að Valgeir
væri týndur og
óvissa væri um
hvar hann væri.
Formleg leit sem
stjórnað var af al-
mennu lögregl-
unni hófst sjö dög-
um síðar þar sem
björgunarsveitir
og hundar tóku
þátt. Fíkniefna-
deild lögreglunnar
í Reykjavík tók
virkan þátt í að “
spyrjast fyrir um það í „undirheimin-
um“ hvað orðið hefði af Valgeiri. Því
meira sem málið var rannsakað því
fleira benti til að Valgeir hefði ekki
tekið eigið líf og einhver eða einhveij-
ir hefðu framið afbrot.
Þegar lýst var eftir Valgeiri í flöl-
miðlum barst mikið af mismunandi
upplýsingum. Á tímabili taldi lögregl-
an að svo mikið hefði borist af mis-
vísandi upplýsingum að grunur fór að
leika á að einhverjir væru gagngert
að reyna að villa um fyrir rannsókn-
araðilum.
Áfram hélt rannsóknin, mánuð fyr-
ir mánuð, en aldrei haföi lögreglan
beina þræöi til að fara eftir, ekkert
lík, enga skjalfesta og áreiðanlega
framburði um að einhver hefði drepið
mann og svo framvegis. Kannski
mætti orða það svo að alltaf hafi
herslumun skort upp á fullvissu um
morð.
Minningarathöfn endurvakti
máliö
Rannsókn Valgeirsmálsins hefur
verið á ýmsum stöðum hjá lögreglu
eftir að hann hvarf. í fyrstu unnu al-
menn deild lögreglunnar í Reykjavík
og fíkniefnadeildin að því að reyna að
fínna manninn eða upplýsingar um
hvað um hann varð. Málið var síðan
sent til þáverandi Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Þegar RLR var síðan
lögð niður árið 1997 var málið enn á
ný flutt og þá til rannsóknardeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Á síðasta ári var haldin minningar-
athöfn um Valgeir í Grafarvogskirkju.
Komst þá aftur skriður á málið í íjöl-
miðlum og upplýsingar tóku að berast
til lögreglu á ný. I framhaldi af því
komu svo fyrst fram hreinir og klárir
vitnisburðir sem vísa á ákveðna aðila
í málinu. En hvað sem vitnin eru
mörg og framburðirnir margir gildir
það í rauninni einu á meðan enginn
þeirra er beinlínis á þá leið að við-
komandi hafi séö einhvern eða ein-
hverja fremja verknaðinn. Með öðrum
orðum - vitnið þarf helst að hafa ver-
ið á vettvangi til að framburður þess
teljist sönnun - ekki sist á meðan játn-
ingar liggja ekki fyrir og ekki er hægt
að tengja hina grunuðu viö verknað-
inn með beinum hætti, s.s. eins og
með lífssýnum eða einhverju öðru. Og
enn verra er þegar ekkert lík fmnst.
Lögreglan vill framsal
Lögreglan heldur áfram að rann-
saka málið. Enn á eftir að yfirheyra
annan hinna grunuðu, íslending sem
situr í fangelsi í Assen í Hollandi í
þarlendu fíkniefnamáli. Þegar ís-
lenska lögreglan yfírheyrði hann í
desember neitaöi hann að tjá sig þar
sem hann hefði engan íslenskan lög-
mann sér við hlið. Fóru lögreglumenn
þá heim til íslands á ný. Nokkrum
mánuðum síðar var ákveðið að leggja
fram kröfu um að maðurinn yrði
framseldur til íslands vegna rök-
studds gruns um að hann væri viðrið-
inn mannshvarf hérlendis árið 1994.
Lögmenn fangans hafa boðið lög-
reglunni hér heima að íslenskur lög-
maður fari utan með iögreglumönn-
um á ný til að hægt verði að ljúka yf-
irheyrslum yfir manninum. Sam-
kvæmt upplýsingum DV verður það
boð ekki þegið af hálfu lögreglu.
Áfram verður knúið á um að maður-
inn verði framseldur til íslands. Hann
á 10-12 mánuði eftir af afplánun dóms-
ins í Hollandi. Hvort framsalskrafan
verður gengin í gegn þá verður að
koma í ljós. Hitt er víst að DV hefur
upplýsingar um að maðurinn komi
ekki sjálfviljugur heim til íslands.
tlU' OFNASMIÐJA REYKJAVÍKUR HF ‘0'
FRIKKIAMATTI
STÝRANLEGUR - BOR
BORARALLTAÐ 300metra
150 til 450mm