Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Page 21
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
DV
Helgarblað
21
Með fulla
vasa af grjóti
- sankar að sér verðlaunum:
undir skilgreininguna dugnaður,
en það er misskilningur og þessi
vinnudýrkun hér á landi er óholl
og mannskemmandi. Fyrr má nú
rota en dauðrota heitir það víst,“
segir Vala og hlær.
„Annars er þetta dauðans alvara
og ég hef heyrt um ungt fólk sem
er hreinlega að missa heym og
sjón og heilsu af vinnuálagi og
streitu. Ég held að streita sé miklu
meiri sjúkdómavaldur en almennt
er viðurkennt. Maður þarf að hafa
sama viðhorf til þessara hluta og
alkóhólistinn til áfengisins. Maður
er alltaf í lifshættu ef ekki er
brugðist við á skynsamlegan hátt.
En oftast þarf maður að reka sig
harkalega á áður en maður tekur
eitthvað róttækt til bragðs. Þannig
var það svo sannarlega með mig,
því ég lenti í því einn daginn þeg-
ar ég var í beinni útsendingu fimm
kvöld í viku á Stöð 2 að það leið
yfir mig í miðju viðtali úti í bæ.
Þegar ég rankaði við mér úr yfir-
liðinu var kona að nudda á mér
fæturna til að fá blóðrásina af stað.
Ég heyrði að hún sagðist vera að
fara vestur á Reykhóla að vinna
sem nuddari á heilsubótardögum
þar. Mér fannst ég fá þarna ákveð-
in skilaboð. Nú þyrfti ég að fara á
heilsubótardaga og byggja mig upp
og skoða minn gang. Ég gerði það
og breytti mínu lífemi þannig að
ég gerðist að mestu grænmetisæta
og lærði hugleiðslu og jóga. Þetta
bjargaði lífí mínu og ég nota hæði
jógað og hugleiðsluna reglulega.
En eins og alkarnir verð ég stöðugt
að passa mig. Og það sem er erfið-
ast er hvað mér finnst óskaplega
gaman í vinnunni, enda hef ég
alltaf valið að vinna við það sem
mér finnst skemmtilegt og spenn-
andi og um leið ögrandi."
Rómantíkin
- Hvað um ástarlífið, maður
ímyndar sér þig sem mjög róman-
tíska manneskju?
„Ég er mjög rómantísk, en ég
hef undanfarin ár verið föst i
munstri sem ég hef átt erfitt með
að koma mér út úr. Ég hef leitað
I og orðið ástfangin af mönnum
sem hafa verið erfiðir og ég
greinilega fengið heilmikið út úr
því að kljást við þá. En það er
ekki hollt - allt of miklar sveifl-
ur. Þar af leiðandi hef ég ekki fest
mig í sambandi. En ég er að
vinna í þessu og með hjálp sál-
fræðingsins mins finn ég að ég er
að losa mig út úr þessu vonda
munstri. Þetta hefur bara tekiö
svolítið langan tíma en stendur
allt til bóta,“ segir Vala og brosir
kankvís.
Vala er sérlega glæsileg kona,
en kvíðir hún því að eldast?
„Nei, mér finnst ég vera alveg
kornung. Sérstaklega þegar ég lít
í kringum mig í vinnunni uppi á
Skjá einum þar sem ungir krakk-
ar eru að brillera á þessari frá-
bæru sjónvarpsstöð og enginn er
að spá í hver er á hvaða aldri. Og
stjórnendurnir, þeir Árni Þór og
Kristján Ra., eru hreinlega brillj-
ant í því sem þeir eru að gera og
kunna þá list að blanda saman
reyndu og óreyndu fólki á ýmsum
aldri. Ég ber mikla virðingu fyrir
þeim. Aldur verður algjört auka-
atriði i þessu skapandi umhverfi.
Allavega er það mín reynsla. Ég
held að það sé leit að skemmti-
legri vinnustað en Skjá einum.
Það er því alveg dásamlega
skemmtilegt að vera til,“ segir
Vala að lokum og hlær sínum
dillandi hlátri.
Leikstjóri sýningar Þjóðleik-
hússins á MEÐ FULLA VASA AF
GRJÓTI, írinn Ian McElhinney,
hefur verið tilnefndur besti leik-
stjóri ársins I New York fyrir
sviðsetningu sína á þessu sama
verki þar í borg.
Tilkynnt var um tilnefningar
til hinna virtu TONY-leiklistar-
verðlauna í vikunni og er Ian
McElhinney tilnefndur til verð-
launa sem besti leikstjórinn. Þá
eru báðir leikendur sýningarinn-
ar, írsku leikararnir Sean
Champion og Conleth Hill, sem
léku frumuppfærslu verksins á
írlandi og hafa síðar leikið það í
London, Toronto og nú á Broad-
way, tilnefndir sem bestu aðal-
leikarar.
Áður hafði Ian McElhinney
verið tilnefndur til ýmissa ann-
arra virtra bandarískra verð-
launa fyrir þessa sýningu, þ.ám.
Outer Critics Circle-verðlaun-
anna og Drama Desk-verðlaun-
anna. Sömuleiðis var verkið
sjálft, sem samið er af Marie Jo-
nes, tilnefnt til Outer Critics
Circle-verðlaunanna og báðir
leikararnir og verkið í heild
hlutu á dögunum bandarísku
Theatre World-verðlaunin.
Fyrr í vor hlaut leikritið
bresku Olivier-verðlaunin, sem
kennd eru við Laurence Olivier,
sem besta nýja gamanleikrit árs-
ins, svo og Evening Standard-
verðlaunin. Þá hlaut Conleth Hill
Olivier-verðlaunin sem besti leik-
arinn í aðalhlutverki fyrir hlut-
verk Charlies o.fl.
Það er óvenjulegt að íslensku
leikhúsi takist að krækja 1 jafn
eftirsóttan leikstjóra og Ian Mc-
Elhinney varð strax að lokinni
frumuppfærslu þessa verks í
Belfast. Verkið sló rækilega í
gegn og þessi uppfærsla Ians hef-
ur síðan gert víöreist, verið sýnd
með sömu leikurunum tveimur í
London, í Kanada og loks nú í vor
á Broadway.
Ian McElhinney vann að ís-
lenskri sviðsetningu verksins í
nóvember og desember áður en
hann hélt vestur um haf til að
æfa sýningu verksins í Kanada og
New York. Aðstoðarleikstjóri
hans var Björn Gunnlaugsson.
Með fulla vasa af grjóti hefur
nú veriö sýnt frá áramótum fyrir
troðfullu húsi ýmist á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins eða Stóra
sviði. Leikritið hefur nú alfarið
verið flutt yfir á Stóra sviðið og
verða þrjár sýningar nú um helg-
ina.
Þeir Hilmir Snær Guðnason og
Stefán Karl Stefánsson leika öll
hlutverk verksins sem alls eru 15
talsins.
! júlí verður farið með leikrit-
ið í leikferð um landsbyggðina.
Hengikörfur eru
vinsælar í dag!
Að útbúa eina
slíka er einfaldara
en þú heldur:
Oddný Guðmundsdóttir
garðyrkjufræðingur verður
með sýnikennslu um gerð
hengikarfa laugardag
og sunnudag milli
kl 13.00 og 17.00.
Jt-Ý-
Vortilboð á
bóndarósum
„Paeonia officinális“
Þessi gamla góða
sem var stærsta og
fallegasta blómið í
garðinum hennar ömmu.
GOÐ VERÐ*GÓÐ VERÐ*GÓÐ VER0 í GARÐHEIMUM!
Við viljum létta þér vorhreinsunina.
f Garðheimum færðu allt sem til þarf á góðu verði.
Hrífur • mosatætara • illgresiseyða • hjólbörur
ruslapoka • safnkassa • laufsugur • hekkklippur • áburð
____
Tilboð
Urval garðhanska:
Sahara 495,-.
Fjöldi annarra
tilboöa”
ISOttí Rð'1
Vorlaukatilboð
30% afsláttur meðan
birgðir endast.
GARÐHEIMAR
Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta
Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • Fax: 540 33 01 • Veffang: www.grodur.is
Grill Og
garðhúsgögn
Flottir pottar
Franska hornið
Sælkeravörur
Gjafavöruúi’val
Gæludýravörur
Limgerðisklippur
Molta í beðin
Spennandi
garðskálaplöntur
Guggu ráð:
Munið að gefa
grasflötinni
kalk á vorin
wV\j\ - allavega
10 kg á
100 fm.
FULLT AF
SPENNANDI
TILBOÐUM!!
Optð alla daga
til kluhkan 21l
My$vnéin§
ifí afgr<®&§$hs
ritx /
CB IIOO
X-Eleven
f,