Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Side 25
LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001
DV
Helgarblað
25
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs.
„Þaö er ekki okkar stíll aö rjúka til og taka þátt í einhverri æsingu. Meö því heföum viö veriö aö hella olíu á eldinn.
Mér finnst þaö ekki forsvaranlegt.
aðshlutdeild þá aíleiðing fólks-
flutninga utan af landi til þéttbýlis-
ins á undanfornum árum?
„Ég hef ekki sett þetta í samhengi
en þetta hefur sjálfsagt einhver
áhrif. Við höfum verið að bjóða upp
á nýjungar á stöðvum okkar og
aukna þjónustu."
Steinrunniö barn síns tíma
Kristinn hefur oftsinnis gagn-
rýnt starfsemi Flutningsjöfnunar-
sjóðs sem er lögbundinn sjóður
sem jafnar út flutningskostnaði á
olíu og bensíni.
„Þetta er gersamlega úrelt fyrir-
bæri sem ætti að heyra sögunni
til. Þessi sjóður hefur löngum far-
ið huldu höfði en hefur nú hreiðr-
aö um sig hjá Samkeppnisstofnun
sem sér um rekstur hans og stjórn-
arformaður sjóðsins er forstjóri
Samkeppnisstofnunar, Georg
Ólafsson.
Þetta er alger tímaskekkja. Við
greiðum meira i sjóðinn en við
fáum úr honum og erum þannig að
greiða niður flutningskostnað
keppinautanna. Við værum alger-
lega einfærir um að jafna flutn-
ingskostnaði okkar og það myndi
alls ekki þýða hærra verð úti á
landi þótt þessi sjóður hyrfi sem er
steinrunnið barn síns tíma. Sjóð-
urinn er sorgleg tímaskekkja."
Silfurskeiö í munni
Kristinn lærði lögfræði og rak
lögfræðistofu um hríð, m.a. með
Hallgrími Geirssyni, frænda sín-
um, sem nú er forstjóri Árvakurs,
en tók síðan við starfi forstjóra
Nóa-Síríusar og varð forstjóri
Skeljungs fyrir 10 árum eða um
líkt leyti og fyrirtækið var gert að
almenningshlutafélagi. Fjölskylda
Kristins á samanlagt 8-9% hlut í
Skeljungi frá fornu fari og Nói-Sír-
íus tilheyrir einnig fyrirtækjum í
eigu H. Ben.-veldisins sem kennt
er við Hallgrím Benediktsson, afa
Kristins. Var oft sagt við hann að
hann væri fæddur með silfurskeið
í munninum?
„Það heyrði ég oft, meira að
segja í sveitinni í gamla daga.
Kannski átti það sinn þátt í því að
ég hafði engan áhuga á að læra
viðskiptafræði heldur setti stefn-
una á lögfræði og lögmennsku og
hafði gaman af á meðan það var.
Því fer víðs fjarri að hægt sé að
halda því fram að Skeljungur sé
fjölskyldufyrirtæki og ég vona að
ég hafi fengið þetta starf vegna
verka minna en ekki vegna þess
hver ég er og vona að ég sé búinn
að sýna fram á það í dag. Menn
segja þetta nú ekki lengur við mig
og ég á tiltölulega létt með að
brosa að því.“
Er Kolkrabbinn til?
Þegar rætt er um Kolkrabbann í
íslensku viðskiptalífi í þeim skiln-
ingi að hann sé einhvers konar
samsteypa fyrirtækja múruð sam-
an með ættartengslum og pólitísku
bindiefni þá er Skeljungur oft
nefndur sem eitt höfuðvígi hans.
Er Kolkrabbinn til?
„Það er örugglega ekki til nein
stofnskrá eða hluthafasamkomu-
lag fyrir hann. Ég hef heyrt þetta
og veit að margir halda að hann sé
tiL
Ég er sannfærður um að Kol-
krabbinn er fyrst og fremst til í
augum þeirra sem horfa á hann
utan frá en ekki meðal þeirra sem
eru taldir vera innanborðs. Orðið
sjálft og það sem því er tengt í ís-
lenskri þjóðarvitund er eitthvað
sem ég þekki ekki af eigin raun.
Ég þekki hins vegar vel marga
sem eru taldir hluti af Kolkrabb-
anum og það vill svo skringilega
til að sumir þeirra eru meira að
segja frændur mínir. Allir vilja
frekar vinna með þeim sem þeir
þekkja og treysta og ég er þar eng-
in undantekning. Ég þekki marga
menn sem hafa svipaða lífsskoðun
og ég og auðvitað vil ég frekar eiga
samleið og samskipti með þeim.“
-PÁÁ
Við œttum að vera enn gagnscerri. Ég sagði einhvem
tímann að við cettum að vera með dagprísa en með
aulafyndni var nú snúið út úr þeim ummcelum þegar
ég lét það fylgja að við gcetum ekki gert það einir.