Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Síða 47
55 r' LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 DV Tilvera Asterix og Obelix í Belgíu Þeir óaðskiljanlegu Asterix og Obelix hafa löngum staðið í stríði við Rómverja, sem ætíð eru að reyna að hertaka bæinn þeirra en alltaf án árangurs. Eftir hverja sigraða orrustu halda þeir alltaf heilmikla veislu, þar sem þeir úða í sig girnilegum villisvínum og þamba töfradrykkinn góða sem gefur þeim kraftana sem ger- ir þá ósigrandi. Þetta vita allir sem lesa teikniseríurnar um Asterix en hvað liggur á bak við þessar skemmtilegu sögur, eru þær byggðar á sannsögulegum heimildum? Það er hægt að fá svar við því á sýningunni Asterix og Europa sem stendur yfir í Gallo-Romeins safninu í Tongeren í Belgiu fram til 16. september næstkomandi. Fyrir ferðalanga sem eiga leið um Tongeren er heimilisfangið: Kielenstraat 15 B- 3700 Tongeren. Aðgangseyrir er 100 belgískar frankar og safnið er opið á mánudögum frá kl. 12-17, þriðjudaga frá kl. 9-17 og frá kl. Ferðalög til Noregs Ekki er nú um margan far- kostinn að velja þegar ferðinni er heitið frá íslandi til Noregs nema einna helst gömlu góðu Flugleiðir sem fljúga þangað reglulega allt árið, nú eða bíla- ferjuna Norrænu sem hefur við- komu í Bergen. Nú í sumar býðst ferðalöngum hins vegar nýr kostur og það er flugfrelsi.is sem býður mjög ódýrt flug til og frá Kaupmannahöfn þaðan sem hægt er að fá ódýrar lestar- eða rútuferðir til Noregs. Loftleikfimi gegn blóðtappa Flugferðir geta haft ýmis áhrif á líkamann og raskað jafnvægi hans, m.a. blóðrásinni. Margir kannast sjálfsagt við að fá t.d. mikinn bjúg á flugi og þá sér- staklega í fætuma og upp á síðkastið hefur umræðan um hættuna á að fá blóðtappa á flugi aukist jafnt og þétt. Nú hef- ur fyrirtæki sem kallar sig Airogym sett á markað sérstaka loftskipta púða sem eiga að þjóna þeim tilgangi að hægt sé að gera æfingar meðan fólk situr í sætunum á flugi. Það virkar þannig að blásið er lofti í helm- inginn af púðanum og fætumir notaðir (skólausir auðvitað) til að þrýsta loftinu á milli helm- inganna, sömu aðferð má nota á púðann með höndunum. Hægt er að fá nánari uppl. um flugleik- fimipúðann sem kostar ca. 1.200 kr. á vefsíðunni airogym.com. Hótelherbergi í 24 tíma Hótel bjóða gjarnan í auglýs- ingum hótelhergi á X krónur á sólarhring. Ekki er nú sólar- hringurinn lengri hjá vel fiest- um hótelum en 12 klst. og varla það því ef maður skráir sig t.d. inn á hótelherbergi kl. 21 að kvöldi þá þarf maður samt sem áður að yfirgefa það kl. 12 á há- degi næsta dag. Þó er eitt hótel í Singapore, hótel Gallery Evason, sem veit hvað eru margar klst. í sólarhringnum því það auglýsir að þar fái hótelgestir að vera 24 tíma í hótelherbergjunum frá þeim tíma sem þeir skrá sig inn. Tveggja manna herbergi á áður- nefndu hóteli kostar ca. 9.000 krónur á sólarhring. -W Útsöluaðilar á bamafatnaði frá 66°Norður Axel Sveinbjörnsson, Suðurgötu 7-9, Akranesi. Akrasport, Skólabraut 28, Akranesi. 66°Norður verslunin, Glerárgötu 32, Akureyri. Vöruhús KB, Egilsgötu 11, Borgarnesi. Vöruhús KHB, Kaupvangi 6, Egilstöðum. Sjómann, Eskifiröi. Fjöll og Flúðir, Höfn Homafirði. Hafnarbúðin, Hafnarhúsinu, ísafirði. SÚN - búðin Hafnabraut 6, Neskaupsstað. Verslunun Hamrar, Nesvegi 5. Grundarfirði. Skipaþjónusta Esso, Kirkjutúni 2. ólafsvík. 66*Norður verslun, Faxafeni 12, Reykjavlk. Spékoppar, Hverafold 1-3 Grafavogi, Reykjavfk. Dimmalimm, Skólavörðustíg 10, Reykjavík. Verslunin Ábœr, Sauðakróki. 66*Norður vorslunin, Vestmannabraut 30. Vestmannaeyjum. Tákn, Húsavík. Kf. Húnvetninga, Blöndósi. Músik & sport, Reykjavlkurvegi 60, Hafnarfiröi. NORÐUR Höfum þörf fyrir lífrænan úrgang á auðnirnar Landnám Ingólfs nær frá Botnsá í Hvalfirði eftir Leggjabrjót yfir á Þingvöll og með fram Soginu og Ölf- usá í sjó fram. Á þetta svæði hafa um 70% þjóðarinnar hnappast og á því skapast gríðarlega mikill líf- rænn úrgangur." Ingvi nefnir sem dæmi að þar séu um 10.000 hross og stórfelld svína- og hænsnarækt þannig að húsdýraáburðurinn sem til falli nemi hundruðum þúsundum tonna árlega. „Við höfum svo mikla þörf fyrir lífrænan úrgang á auðn- irnar,“ segir Ingvi með áherslu og segir samtökin GFF hafa barist fyr- ir því að fyrirtæki í ýmsum iðnaði aðgreini sitt sorp og breyttu meng- un í grænan gróður. „Við höfum fengið því áorkað að 15-16 fyrir- tæki, stór og smá, flokka nú það sem frá þeim kemur og lífræni hlut- inn fer á landið. Tökum þar upp merki hins vitra Njáls á Bergþórs- hvoli sem ók skarni á hóla.“ Svo er talað um óspillt víðerni Ingvi þvældist um landið þvert og endilangt er hann veitti gróður- kortadeild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins forstöðu. Hann kortlagði gróður í tveimur þriðju hlutum landsins þar með töldu mið- hálendinu. „Við íslendingar vitum meira um gróðurfar í eigin landi en flestar aðrar þjóðir í heiminum," segir hann brosandi en bætir við ei- lítið daprari í bragði. „Meðal ann- ars vegna þess, auðvitað að það er ekki nema fjórðungur íslands þak- inn gróðri." Hann segir miðhálend- ið eitthvert spilltasta landssvæði veraldar því fyrir landnám hafi það verið gróið allt upp í 6-700 m hæð en nú séu þar gróðurleifar á aðeins 5-10%. „Svo er talað um „óspillt víð- erni“,“ segir hann hneykslaður. „Hið raunalega er að ísland er eitt spilltasta land í heimi.“ Hann viður- kennir að breytingar á gróðrinum séu að hluta til vegna kaldari veðr- áttu og náttúruhamfara en telur því meiri ástæðu fyrir manninn að fara varlega fram. Að hans áliti er það hneisa að hálendið skuli enn nýtt sem afréttur fyrir búfé. „Það verður að taka upp nýja hugsun í þeim efn- um, hún væri öllum til bóta, land- inu, fénu og fólkinu," segir hann. Minn reitur er landlð En hvað ætlar Ingvi að fara að stússa nú þegar um hægist? Á hann sér kannski reit til að sýsla við? „Minn reitur er landið. Öll manns hugsun snýst um þetta rosalega verkefni sem uppgræðsl- an er og maður fær það ekkert út Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðingur Frá heimili sínu sér hann yfir stóran hluta af landnámi Ingólfs. Ingvi Þorsteinsson ómyrkur í máli um gróöur landsins: Víðernin eru ekki óspillt úr kollinum. Kannski get ég farið að setjast niöur, skrifa eitthvað og láta í mér heyra. Ég verð eins og Kató gamli sem endaði allar sínar ræður á frægri setningu. Min loka- setning verður ugglaust: „Auk þess „Hér var land skógi vaxið allt upp í 400 m hæð þegar Ingólfur kom. Nú er öðruvísi um að litast," segir Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðing- ur og bendir út um stofugluggann á heimili sínu í Kópavogi - í átt að Sandskeiði og Bláfjöllum. Ingvi hef- ur lengi borið gróður landsins fyrir brjósti og var einn þeirra sem fyrir fjórum árum kom á legg samtökun- um „Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs," skammstafað GFF. Hann hefur gegnt formennsku i þeim sam- tökum þar til nýlega að hann lét af embætti. „Það var timabært fyrir mig að hætta í ljósi aldurs og hrum- leika,“ segir hann en er allt annað en trúverðugur. Hins vegar er hann sannfærandi þegar hann heldur áfram: „Samtökin voru stofnuð af hugsjón og þau eru komin til aö vera. Stærstur hluti þess lands sem fngólfur helgaði sér er illa faUinn til landbúnaðar og því hefur lítil áhersla verið lögð á uppgræðslu á honum." legg ég til að miðhálendi íslands verði friðað og afhent landgræðsl- unni.“ -Gun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.