Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Síða 17
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001
DV
17
Helgarblað
Þessar frægu tær
- En hafði hann aldrei áhuga á
því að læra leiklist á sínum
yngri árum?
„Nei, það var eiginlega aldrei í
sigtinu. Ég var ungur maður og
ég var bara eitthvað að bóhemast
og í tónlist þangað til ég lenti í
þessu fyrir tilviljun en það kom
mér samt ekki á óvart. Ég kann-
aðist einhvern veginn strax við
mig. Ég hafði mikinn áhuga á
kvikmyndum sem krakki og ung-
lingur þótt ég tilheyri eiginlega
bókakynslóð frekar en sjón-
varpskynslóð."
Stærðin skiptir ekki máli
Eggert hefur leikið aragrúa
hlutverka á sínum ferli ekki síð-
ur alvarlegs eðlis en gamanleik-
rit. Þótt það sé klisja að spyrja
leikara út í uppáhaldshlutverk
stenst ég ekki freistinguna.
Hvert er eftirlætishlutverkið?
„Það fer alls ekki eftir stærð
eða umfangi. Sum eru leiðinleg
þótt þau séu aðalhlutverk og
voðalega stór en sum eru eftir-
minnileg og hafa fært mér mikla
hamingju þótt þau hafi verið lít-
il. Leikarinn þarf að ná sam-
bandi við hlutverkið og ekki síð-
ur leikritið sjálft og erindi þess
til þess að njóta sin.
Það skiptir engu máli hvort
hlutverkið er risastórt eða færi
leikaranum vegsemd og virð-
ingu. Stór hlutverk eru stundum
notuð sem mælikvarði á vel-
gengni. Þegar maður les eða
heyrir þetta haft eftir leikara sér
maður glitta í hégómagirndina
sem fylgir hinum öryggislausa
manni sem leikur og hefur ekk-
ert að bjóða nema sjálfan sig og
líf sitt og freistast til þess að
kíkja í spegil frægðar og vin-
sælda. Þar vill hann gjarnan
spegla sig, ekkert ólíkt öðru
Eggert Þorleifsson kemur
okkur til að hlæja
„Áhorfendur gegna sama hlutverki
fyrir leikara og trampólín fyrir fim-
leikamann. Þegar allir vinna saman
stekkur leikarinn hærra og hærra
uns hann springur í tætiur og
bomburnar, litirnir og reykurinn fyiia
loftiö. Svo fellur tjaldiö og allir fara
glaöir út í lífiö."
fólki. Lífið streymir gegnum
leikarann og lítiö eða stórt hlut-
verk skiptir þar engu máli.
Það er aðeins eitt markmið í
lífinu og það er að verða að
sæmilegri manneskju, að gera
eitthvað vel, án þess að meiða
aðra.“
Velgerðamaöur skopsins
Þórbergur Þórðarson rithöf-
undur setti viðhorf sitt til hlát-
urs og kímni í orð á eftirminni-
legan hátt i Bréfi til Láru sem
kom út árið 1924.
„Sá sem veitir mannkyninu
fegurð, er mikill velgerðamaður
þess. Sá sem veitir því speki, er
meiri velgerðamaður þess. En, sá
sem veitir því hlátur, er mestur
velgerðamaður þess.“
Kaflanum um skop og hlátur
lýkur Þórbergur sem kjarnyrtri
yfirlýsingu:
„Grunntónn tilverunnar er
meinlaust grín.“
- Eggert, hvað er það sem þér
finnst fyndið í lífinu?
„Það er nú ýmislegt. Mér hefur
alltaf fundist grín sem sprettur
af mótlæti og óhamingju manna
með einhverjum hætti ákaflega
heillandi. Þetta sér maður af-
skaplega vel hjá Charlie Chaplin
sem stríðir við slíkt mótlæti að
hann getur varla neitt nema
deyja eða fara í hundana."
Uppskrift Chaplins
„Chaplin ólst upp við mikla ör-
birgð hjá geðveikri móður sinni.
Grínið var hans aöferð til að afla
sér vina og öryggis í vondum
heimi og með blöndu af samúð
með lítilmagnanum, óbilandi
bjartsýni og eftirfarandi grunn-
uppskrift eignaðist hann allan
heiminn að vini. Nú er hann svo-
lítið að gleymast, kallinn, í öll-
um skarkalanum í heiminum en
grunnuppskriftin er svona:
Takið óvæntar tengingar, ná-
kvæma tímasetningu og
áreynslulausa afburða tækni.
Blandið þessu vandlega saman
við góðan texta og notið eftir
smekk.“
Niðurinn í lífinu
Það er lífseig goðsögn í leik-
húsinu og lífinu að trúðar og
gamanleikarar séu allir þung-
lyndir og daprir bak við brosið
og undir grímunni leynist kvik
depurð. Heldurðu að þetta sé
satt, Eggert?
„Ég vona að það séu ekki allir
gamanleikarar þunglyndir en
það getur gert hvern sem er
dapran að vera maður. Niðurinn
í lífinu getur auðveldlega gert
mann dapran og þá er ekkert
sem fróar manni eins mikið og
saklaust grín. Það er ekkert grín
að vera fyndinn, alls ekki,“ segir
Eggert og verður mjög alvarleg-
ur á svip.
Eggert er í hópi þeirra íslend-
inga sem hafa orðið afskaplega
frægir af störfum sínum og getur
án efa ekki gengið um þvera
kjörbúðina án þess að einhver
beri kennsl á hann. Samt sem
áður eru viðtöl eins og þetta við
hann frekar fáséð og hann er
ekki i hópi „áberandi" íslend-
inga.
„Ég hef í rauninni kosið að
standa álengdar. Ég vil frekar
sitja á árbakkanum og horfa á
vatniö streyma hjá heldur en að
kastast niður flúðirnar í fljót-
areið. Mér finnst að í þessu
starfi fái ég alla þá athygli sem
ég vil og kæri mig um og vil þess
vegna búa mér skjól utan starfs-
ins og eiga þar mitt líf.
-PÁÁ
Eirin kraftmesti
--n > “
bíll á Islandi
••• er þessi f jarstýrði
bíll frá
Tómstundahúsinu,
Netyhyl 2, s. 587 0600
www.hobby.is
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
STÓRSÝNING
um helgina kl. 14-17 - kaffi og meðlæti - verið velkomin í reynsluakstur
NY MICRA
Kraftmikil og skörp 1400 vé
Sportstilling á sjálfskiptingu
Fjarstýrðar samlæsingar í lykli
ISOFIX festingar fyrir barnabílstóla
Nýtt sætaáklæði
Nýtt stýri
2 loftpúðar
Vindskeið
Krómlistar á grilli og stuðurum
Sportrendur á sílsum
Nýir stuðarar
Og margt fleira
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
www.ih.is
( NISSAN )