Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2001, Page 49
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 2001
57
Tilvera
Afmælisbörn
James Fox 62 ára
Hinn kunni breski leikari, James Fox, er af-
mælisbarn dagsins. Fox, sem lék stór hlutverk
í nokkrum úrvalsmyndum og var talinn meöal
vinsælustu og efnilegustu leikara Breta á átt-
unda áratugnum, hætti snögglega að leika árið
1980 og í ein tíu ár starfaði hann sem sjálfboða-
liði við hjálparstörf i Þriðja heiminum. Hann
kom aftur fram á sjónarsviðið á níunda ára-
tugnum og var fljótur að festa sig í sessi sem
karakterleikari og sést yfirleitt í bitastæðum
hlutverkum í kvikmyndum og sjónvarpi. Bróð-
ir hans, Edward Fox, er einnig þekktur leikari.
Cher 55 ára
Söng- og leikkonan Cher er 55 ára á morgun. Ekki
er vitað hvort hún heldur upp á daginn. Það er þó
ólíklegt þvi fáar eða engar konur hafa verið jafniðn-
ar við að fara til lýtalæknis, enda er andlit hennar í
dag eins og vel hefluð fjöl. Cher hlaut heimsfrægð á
sjöunda áratugnum er hún söng lagið I Got You
Babe ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Sonny.
Þau skötuhjúin nutu gríðarlegra vinsælda í nokkur
ár, bæði sem söngvarar og sjónvarpsstjörnur. Eftir
að slitnaði upp úr sambandi þeirra hóf Cher sólófer-
il í músíkinni auk þess sem hún fór að leika í kvik-
myndum með góðum árangri.
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
' Þér gengur vel að ein-
beita þér í vinnunni 1
dag og fá fólk á þitt
band en einkalífið gengur ekki sem
skyldi. Farðu varlega í viðskiptum.
Spa mánudagsins:
Verkefni sem þú átt fyrir höndum
veldur þér talsverðum áhyggjum.
Það reynist þó óþarfi þar sem allt
gengur mjög vel þegar á reynir.
Hrúturinn (21. mars-19. aaríl):
^"^kW^Leiddu hugann að
sjálfum þér í dag og
m sjáðu hvort ekki er
eitthvað sem mætti betur fara.
Happatölur þínar eru 8,19 og 35.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 20. maí og mánudaginn 21. maí
t Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Spa sunnudagsins:
•hú verður fyrir ein-
hverri truflun í dag og
hún raskar deginum að-
eins. Það er aðeins tímabundið og þú
þarft ekki að hafa neinar áhyggjur.
pá manudagsins:
Þú hefur beðið lengi eftir því að fá
ósk þína uppfyllta í ákveðnu máli.
Þú þarft líklega að bíða enn um
sinn en ekki fara þó að örvænta.
Nautlð 120. apríl-20. maí.l:
L mawm
Ef þú ert sjálfsöruggur
í fasi áttu auðveldar
með að fá aðra til að
hjálpa þér við að framkvæma
hugmyndir þínar.
Spa mánudagsins:
Glaðværð rikir í kringum þig og þú
nýtur lífsins. Þér hefur orðið nokkuð
ágengt í að þoka málunum áleiðis.
Happatölur þfnar eru 7,14 og 19.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúnín
f’ú átt auðvelt með að
mmJ/ gera öðrum til geðs í
dag og fólk kann vel
að meta starf þitt. Happatölur þín-
ar eru 3, 25 og 27.
Spa manudagsins:
Samkvæmi sem þú ferð í verður
þér og fleirum eftirminnilegt. Þar
kynnist þú mjög áhugaverðum
manneskjum.
Liónið (23. iúli- 22. áeúst):
Spá sunnudagsins:
g Þér bjóðast óvenjulega
r mörg tækifæri í dag f
vinnunni en það krefst
þess hins vegar að þú leggir tölu-
vert á þig og vinnir mikið.
Spa manudagsins:
Þú hefur tilhneigingu til að vera tor-
trygginn gagnvart þeim sem þú
þekkir ekki mikið. Það væri skyn-
samlegast að láta ekki á neinu bera.
Voein (23. sept.-23. okt.):
Þú ert of viðkvæmur
fyrir gagnrýni og ættir
' f að reyna að taka henni
betur. Ferðalag gæti valdið von-
brigðum.
Spá manudagsins:
Þú skalt ekki láta á neinu bera ef þér
finnst einhver vera leiðinlegur við þig
og vera að reyna að ögra þér. Þessi
framkoma í þinn garð stafar af öfund.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiít
lEggnaimiia
| Fjármál íjölskyldunn-
ar fara batnandi. Ef
þér finnst þú þurfa á
hjálp að halda skaltu ekki hika
við að biðja um hana.
Spá mánudagsins:
Þér berst óvænt boð í samkvæmi
sem þú hélst að þú værir ekki vel-
kominn í. Þú ert ekki alveg viss
um hvemig þú átt að taka þessu.
Mevian (23. áeúst-22. seot.i:
Þú skalt gæta þin að
^^^►sökkva þér ekki í of
' mikla vinnu. Taktu
þér hlé og \innan gengur betur á
eftir.
Spa manudagsms:
Þú þarft að gera þér grein fyrir
hver staða þín er í ákveðnu máli.
Verið getur að einhver sé ekki
með hreint mjöl í pokahominu.
Soorðdreki (24. okt.-2i. nóv.i:
pá sunnudagsins: I L pá sunnudagsins:
Spá mánudagsins:
Einhver þarfnast hjálpar þinnar
en kemur sér ekki að því að biðja
um hana. Þú færð vísbendingar
annars staðar frá.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.i:
'Atburöur sem gerðist
fyrir nokkm gæti haft
áhrif á daginn. Þú
þarft að vera viöbúinn breyttri
dagskrá.
Spá mánudagsins:
Mikil samkeppni ríkir í kringum
þig og það er vel fylgst með öllu
sem þú gerir. Þú þarft að gæta þess
að láta ekki misnota dugnað þinn.
Spá sunnudagsms:
Þú gætir lent í vand-
præðum með að fá fólk
S til að hjálpa þér við
verkefhi sem þú vinnur af þvi að
allir virðast vera uppteknir.
Spa manudagsins:
Greiðvikinn vinur kemur þér í opna
skjöldu og þér hður eins og þú skuldir
honum greiða. Traust og heiðarleiki er
þó allt sem þú þarft að sýna af þér.
Steingeitin (22. des.-19. ian.i:
Fyrri helmingur dags-
ins verður rólegur en
eitthvað óvænt blður
þin í kvöld, líklega í sambandi við
félagslifið.
Spa mánudagsins:
Hætta er á mistökum í dag, bæði
hjá þér og öðrum. Þess vegna er
nauðsynlegt að fara varlega í allt
sem þú tekur þér fyrir hendur.
Katý innan um fantasíuhúsgögnin
„Bæöi nytjahlutir og listaverk“
Gripir úr gömlum hlutum:
Stólar í
sparifötum
„Ég bý til ýmsa furðuhluti upp úr
gömlum húsgögnum sem aðrir hafa
ætlað að henda," segir Katrín Haf-
steins (Katý) sem ætlar sýna þessi fyr-
irbæri í Ráðhúsi Reykjavíkur nú um
helgina frá kl. 12-18. Sýninguna kallar
hún „Fantasiu-húsgögn og munir“.
Katý kveðst á undanfómum árum hafa
safnað gömlum hlutum af ástríðu og
þeim raði hún saman eftir sínu höfði.
Þannig búi hún til einn nýjan grip upp
úr nokkrum gömlum. „Ég tek kannski
dívan og geri úr honum sessalón með
því að nota stigahandrið í bakið og
ýkja formið," segir hún. Stólar em í
sérlegu uppáhaldi hjá Katý og þá setur
hún gjaman í „sparifótin". Svo segist
hún elska að horfa á veröldina gegnum
spegil enda býr hún til margt fallegt úr
speglum. En skyldi vera óhætt að nota
þessi húsgögn eða eru þau bara fyrir
augað? „Þetta em bæöi nytjahlutir og
listaverk," svarar hún. Henni ofbýður
sóunin í þjóðfélaginu og segir heilu
dýrgripina stundum lenda á haugun-
um. „Reyndar þorir fólk í kringum
mig ekki lengur að henda neinu án
þess að tala við mig áður!“ segir hún
að lokum. Gun.
Dixieland í Ráðhúsinu:
Sýslumenn af
Suðurlandi
Sýslumenn af Suðurlandi em
á vísitasíuferð í höfuðborginni
og bjóða hveijum sem viil að
hlýða á hressandi dixielandtón-
iist i Ráðhúsi Reykjavíkur síð-
degis á morgun, srmnudag.
Sýslumennimir eru sunnlenskir
hljóðfæraleikarar og spannar
þeirra umdæmi ailt neðan frá
Þorlákshöfn upp i Biskupstung-
ur. Þeir eru Skúli Thoroddsen
sópransaxófónleikari, Jóhann I.
Stefánsson sem leikur á trompet,
Gestur Áskelsson er spilar á ten-
órsaxófón, Hermann Jónsson
básúnuleikari, Helgi E. Krist-
jánsson sem bregður fyrir sig
bæði banjó og gítar, Hilmar Örn Agn-
arsson sem kann best við sig bak við
píanóið, Smári Kristjánsson bassaleik-
ari og Gunnar Jónsson trommuleikari.
Glaðbeittir sýsiumenn
Þeir koma af svæöinu frá Þorlákshöfn upp
í Biskupstungur en stefna aö sjálfsögðu aö
heimsyfirráöum.
Tónleikamir í Ráðhúsinu hefjast kl. 16
og á efnisskránni era margir klassísk-
ir standardar.
DV-MYND SIGURÐUR HJÁLMARSSON
Fýllinn farinn að verpa
Voriö viröist vera komiö í Mýrdalnum því tyllinn er farinn aö verpa. Þessir pilt-
ar voru aö koma úr fýlsegglatöku í Reynisljalli kvöld eitt þegar Ijósmyndari DV
rakst á þá en þeir eru t.f.v. Siguröur Jónsson og Eiríkur V. Siguröarson ásamt
tíkinni Pílu. Þeir sögöust ekki mega klifra neitt í fjallinu en þaö væri hægt aö
fá aöeins af eggjum meö því aö ganga neöan viö hamrana. Þeir voru mjög
ánægöir meö feng sinn en þeir voru meö hátt í 30 egg eftir kvöldiö.
Kawasaki
fjórhjólin
traust & lipur
KLF 220 2WD. 620.000 m/vsk.
KVF 300 4WD, h/l drif. 839.000 m/vsk.
KVF 400 4WD, h/l drif. 949.000 m/vsk.
Ball í
Gúttó
Höfundur og leikstjóri
Maja Árdal
Næstu sýningar
laugard. 19. maí,
næstsíðasta sýningarhelgi.
Föstud. 25. maí og
laugard. 26. maí,
síðustu sýningar
sýningar hefjast kl. 20
Leikhúskórinn sýnir:
Sígaunabaróninn
eftir Johann Strauss.
Leikstjóri Skúli Gautason.
Tónlistarstjórn Roar Kvam.
Einsöngvarar:
Alda Ingibergsdóttir,
Ari J. Sigurðsson,
Baldvin Kr. Baldvinsson,
Haukur Steinbergsson,
Hildur Tryggvadóttir,
Sigríður Elliðadóttir,
Steinþór Þráinsson,
Sveinn Arnar Sæmundsson
og Þórhildur Örvarsdóttir.
sunnudaginn 20. maí,
næstsíðasta sýning.
Miðvikud. 23. maí,
síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.30
Sniglaveislan
eftir:_
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Sigurður Sigurjónsson.
Sýningar í
Loftkastalanum
Miðasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is