Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Qupperneq 13
13 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað 'tm Súpermódeliö Jerry Hall, sem þekktust er fyrir það að vera eigin- kona og barnsmóðir Mick Jagger, dvaldi nýverið á St Tropez með tveimur yngstu börnum sínum, Ge- orgíu, 10 ára, og Gabríel, 3 ára. Þar virtist Qölskyldan litla skemmta sér vel þrátt fyrir að sag- an segi að Jerry sé í sárum eftir að Mick tók saman við hina 24 ára gömiu fyrirsætu Sophie Dahl. Sophie þessi er nákvæmlega tveim- ur áratugum yngri en Jerry. Jerry Hall hefur vakið undrun og aðdáun fyrir það hve vel henni tekst að halda vináttu við Mick en það ku hún gera með hagsmuni barna þeirra í huga. Mick og Jerry hafa farið saman í frí og virst sátt þrátt fyrir að Jerry hafl ekki vandað Mick kveðjurnar þegar hann bam- aði brasilísku fyrirsætuna Luciönu Morad. Jade, dóttir Jagger úr hjónabandi hans við Biöncu, er ekki heldur sátt við ráðahag föður síns, þar sem það var hún sem kynnti Sophie fyrir 57 ára gömlum fóður sínum. Jade og Sophie voru vinkonur en talast ekki við eftir að upp komst að Sophie væri farin að vera með pabba vin- konu sinnar. Minnie, Barbra og kjóllinn Breska leikkonan Minnie Driver og verðandi tengdamóðir hennar, Barbra Streisand, eru þessa dagana að reyna að fmna heppilegan brúð- arkjól handa Minnie. Brúðkaup Minnie og Josh Brolinsonar Barbrö er áætlað i lok sumars. Minnie er sögð veik fyrir hönnun Veru Wang en Barbra vill helst að Donna Karan sníði klæðin. Minnie hefur fram að þessu leyft verðandi tengdamóður sinni að skipuleggja brúðkaupið en er sögð ósátt við það að geta ekki valið kjól sinn sjáif. Fróðlegt verður að fylgjast með því hver útkoman verður, enda eru konumar báðar sagðar hafa skap. Kim og Alec tekin saman aftur? Fyrrverandi parið Alec Baldwin og Kim Basinger hafa sést mikið saman nýverið. Svo mikið að menn eru farnir að velta því fyrir sér hvort þau séu samantekin á ný. Því hefur meira aö segja verið fleygt fram að Alec sé fluttur til Kim og að þau búi nú saman sem hjón aftur eftir stuttan aðskilnað. Talsmenn þeirra beggja hafa neitað að stað- festa þessar fregnir en það þykir renna stoðum undir söguna að þeir fást heldur ekki til að neita því að rétt sé. Þá herma fregnir að parið langi í annað b'arn, enda á dóttir þeirra Ireland ekkert systkin. Sagan segir þó að nú séu þau að gæla við ættleiðingu enda komin yfir fertugt og víst ekki spennt fyrir annarri meðgöngu. Jerry Hall í sárum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.