Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Side 15
15
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001
X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Þrátt fyrir að vera talin ein fallegasta
kona heims er Julia Roberts ólánsöm
þegar kemur að ástamálum. Hún hefur
átt í nokkrum alvarlegum samböndum
en þau hafa þó yfirleitt ekki reynst lang-
líf.
Nú er rúmlega þriggja ára sambandi
hennar og Benjamins Bratts lokið en
fólk man eftir þeim alsælum saman þeg-
ar Julia hampaði Óskarnum fyrir hlut-
verk sitt i kvikmyndinni Erin
Brockovich nú í febrúar.
Hún á nokkra þekkta fyrrverandi í
heimi kvikmyndanna og má meðal ann-
arra nefna Liam Neeson, Kiefer Suther-
land sem hún giftist næstum þar til hún
stakk af með Jason Patric - en hann
varð síðar kærasti hennar. Til skamms
tíma var Daniel Day Lewis kærasti
hennar og svo var það hjónabandið sem
enginn botnaði í. Julia giftist Lyle
Lowett en það hjónaband stóö í 21 mán-
uð. Ethan Hawke staldraði stutt við, þá
kom Matthew Perry og nú siðast Benja-
min Bratt en Hollywood batt miklar von-
ir við að von væri á brúðkaupi þeirra.
Sagan segir að samband þeirra hafl
ekki enst vegna þess að Benjamin hafi
viljað ganga í það heilaga og eignast
böm en Julia er enn mjög upptekin af
framanum. Julia og Benjamin talast
ekki við þessa dagana en Julia hefur lát-
ið hafa það eftir sér að hún sé ánægð
með það að hún haldi oft vinskap við
fyrrum elskendur sína. Það segir hún
sýna vel að samböndin hafi verið sönn
og djúp.
Ólánsöm í
karlamálum
Boris í vond-
um málum
Tennisstjarnan Boris Becker hef-
ur skýrt frá því að hjónaband hans
við fyrirsætuna Barböru hafi ekki
endað vegna framhjáhalds. Boris
státar af þvi að hafa barnað rúss-
neska konu í kústaskáp og eigin-
kona hans tók það vist frekar
óstinnt upp. Tennisstjarnan heldur
því fram að hjónabandið hafi endað
vegna þess að Barbara hafi haft
meiri áhuga á því að sinna sjálfri
sér en fjölskyldunni. Boris játar að
hafa gerst sekur um mörg mistök en
segist þó aldrei skaða fjölskyldu
sína.
Lögmaður Barböru heldur því
fram að Barbara hafi viljað skilja
eftir að sást til Borisar skrá sig inn
á hótel með rappstjömunni Sabrinu
Setlur. Barbara var ekki par hrifin,
ekki síst í ljósi þess að hótelið var
það sama og þau Boris vörðu brúð-
kaupsnóttinni á.
Sinead ástfangin
írska söngkona Sinead O’Connor
hefur trúlofast blaðamanninum
Nick Sommerland. Það væri svo
sem ekki í frásögur færandi ef ekki
væri fyrir þá staðreynd að Sinead
var búin að lýsa því yfír að hún
væri samkynhneigð. En það virðist
nú breytt. Parið kynntist hjá sam-
eiginlegum vini i febrúar og ástin
var að sögn kunnugra fljót að
kvikna. Ástalíf Sinead hefur verið
ansi skrautlegt í gegnum tíðina en
menn í bransanum halda þvi fram
að hér sé um alvöruást að ræða og
að hjónaband sé í vændum.
Sýndu börnunum heiminn!
London
Innifalið: Flug og flugvallarskattar.
Flug og bíll í eina viku:
Flug og bíll í 10 daga:
Manchester
Innifalið: Flug og flugvallarskattar.
♦ Á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja til 11 ára. Innifalið: flug, bílaleigubíll í A flokki og flugvallarskattar.
Gefiir 3000 ferðapunkta.
Ferðatímabil er til 30. september (Manchester tu 6.sept.)
Lágmarksdvöl: 7 dagar (Manchester - aðfaranótt sunnudags)
Hámarksdvöl: 1 mánuður
Bamaafsláttur: 25%
Ungbamaafsláttur: 90%
Þetta tilboð gildir í flug til 30. sept. (Manchester tíl ó.sept.) Grípið tækifærið!
Enginn bókunarfyrirvari í júlí og ágúst!
Hafið strax samband við söluskrifstofur Flugleiða eða fjarsölu Flugleiða i síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-20, laugard. kl. 9-17 og á sunnudögum kl. 10-16).
Verð frá:
24.975
Verð frá:
37.763
Verð frá:
23.285
Verð frá:
26.993