Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Side 21
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001
21
I>V
Helgarblað
Laxness sem voru veitt í fyrsta sinn
1996.
„Verðlaunin gefa óþekktum höf-
undum jafna möguleika á við
þekkta höfunda enda er handritum
skilað inn undir nafnleynd," segir
Pétur. „Þessi leið er að mörgu leyti
spennandi fyrir höfundana og er
þáttur í viðleitni forlagsins til að
efla og styrkja menningarstarfsemi
og laða fram nýja höfunda."
Vaka-Helgafell hefur um árabil
rekið bókaklúbba, áskriftarklúbba
með margvíslegu safnefni og tónlist-
arklúbba og er þá fátt eitt talið. Pét-
ur Már segir: „Stjómendur Vöku
gerðu sér grein fyrir því strax á ní-
unda áratugnum aö æskilegt væri
að breikka starfsgrundvöll fyrirtæk-
isins, ef það ætti að dafna vel og lifa
til frambúðar. Þess vegna var útgáf-
an víkkuð út og efni sett á markað
allt árið, í hveijum einasta mánuði,
jafnvel hverri viku. Þar má nefna
auk bóka útgáfu á tímaritum, á
fræðsluefni á spjöldum sem stofnað-
ir voru klúbbar í kringum, efni um
blómarækt, handavinnu, matar-
gerð, auk klúbba með geisladiskum
þar sem fólki var m.a. opnaður
heimur sígiidrar tónlistar og fleira
slikt. Þá má nefna fjölbreytt barna-
efni frá Walt Disney í bókum og
timaritum. Starfssvið fyrirtækisins
urðu sífellt fjölþættari og fyrir all-
mörgum árum skilgreindum við
Vöku-Helgafell sem efnismiðlunar-
fyrirtæki, ekki bara bókaforlag. í
framhaldi af því fórum við að horfa
enn frekar til framtíðar. Nýtt út-
gáfuefni var sent á markaö og önn-
ur útgáfufyritæki keypt, fornritafor-
lagið Lögberg, bókaklúbbar Al-
menna bókafélagsins og bóka- og
timaritaútgáfan Iceland Review."
Þeir félagar eru spuröir hvaða
bók þeir myndu velja ef þeir mættu
aðeins velja til eignar og lestrar
eina bók af öllum þeim fjölda sem
Vaka-HelgafeU hefur gefið út. Ólaf-
ur svarar: „Það yrði úr vöndu að
ráða ef ég ætti að velja eina af út-
gáfubókum Vöku-HelgafeUs til þess
að taka með mér á eyðieyju - aðeins
eina. Mér finnst líklegt að hún yrði
úr smiðju HaUdórs Laxness, senni-
lega Sjálfstætt fólk.“ Pétur Már
svarar: „íslandsklukkuna sem er
mín uppáhaldsbók. Af einhverjum
ástæðum hef ég lesið hana á mörg-
um þeirra staða sem hún gerist á og
það er alveg makalaust hvað manni
opnast stöðugt ný sýn á verkið við
hvern lestur."
Nóbelshöfundurinn
Gunter Grass færir Elínu Bergs, öörum stofnenda Vöku-Helgafeils, Jistræna skreytingu“, íslenskan matarsvepp,
berjalyng og fjaiidrapagrein meö rauöum haustlaufum viö komuna í sumarbústað þeirra Elínar og Ólafs haustið 2000.
Stundum vilja höfundar ræða bæk-
ur sínar meðan þær eru enn aðeins
ómótuð hugmynd, aðrir kjósa held-
ur að sýna fyrsta uppkast og ræða
síðan framhaldið, þannig að það
hefur hver sinn háttinn á. Einnig
þarf maður stundum að leita uppi
fólk til að vinna úr þeim hugmynd-
um sem verða til hjá forlaginu að
handbókum, ævisögum eða fræði-
legri verkum. Við reynum að styðja
eins mikið og viö getum við bakið á
höfundum okkar, enda starfar fjöldi
öflugra ritstjóra hjá Vöku-Helga-
felli. Eftir að bækurnar eru svo
komnar út hér á landi, einkum
skáldsögurnar, leggjum við áherslu
á að kynna þær fyrir erlendum út-
gefendum, ekki síst á stærstu bóka-
kaupstefnum heims, og orðið vel
ágengt."
Grass glaðbeittur og blátt
áfram
- Hvaða höfundur er þér eftir-
minnilegastur á þessum tíu árum
sem þú hefur starfað hjá Vöku-
Helgafelli, Pétur?
„Það er án efa þýska nóbelsskáld-
ið Gúnter Grass. Hann kom hingað
í fyrra á bókmenntahátíð i tilefni af
því að við vorum að gefa út loka-
hluta Blikktrommunnar. Ég hafði
alltaf haft þá mynd af Grass að þar
færi heldur fúllyndur náungi en
hann reyndist afar glaðbeittur og
djúpur karakter. Auk þess að skrifa
er hann frábær myndlistarmaður,
teiknar og málar, og sá hann raun-
ar einna mest eftir því að hafa bara
tekið með sér rissblokkina hingað
til lands en ekki vatnslitina, þvi
hann hefði viljað mála þessa ein-
stöku birtu sem hann var uppnum-
inn yfir. Þegar hann kom hingað
var hann í raun bara með eina ósk
og það var að heimsækja fiskmark-
að. Ég sýndi honum Faxamarkað og
var hann geysilega ánægður með að
Forleggjarinn og skáldið
Ólafur Ragnarsson og Halldór Laxness i vinnustofu Halldórs á Gljúfrasteini.
eðlilega starfsemi eins og í hinum
sýnilega heimi. Það er þá sennilega
helmingi fleira fólk í landinu en er
sýnilegt því huldufólkið hlýtur að
vera álíka fjölmennt og þið sem sjá-
ist.“
Þetta fannst mér afar áhugavert
sjónarhorn gagnvart huliðsheimi
huldufólksins en í þjóðsögunum
koma helst við sögu af þeim kyn-
stofni sjómenn, bændur og stöku
embættismenn. Grass notaði þessa
hugmynd síðan sem ákveðið stef í
ávarpi sem hann flutti við setningu
bókmenntahátíðar í Reykjavík dag-
inn eftir að við sátum að skrafi.
Þetta sýndi okkur glöggt hve frjór
og skapandi hann er í hugsun."
Eitthvað gefið út í hverri
viku
Einn af merkum áföngum í sögu
Vöku-Helgafells er stofnun íslensku
barnabókaverðlaunanna árið 1985,
en þau hafa sannarlega verið ís-
lenskum barnabókmenntum lyfti-
stöng. Verðlaunabækurnar eru nú
orðnar 16. Forlagið stofnaði einnig
til Bókmenntaverðlauna Halldórs
fá að sjá nokkra undarlega fiska
sem hann teiknaði í rissblokkina
sína.“
„Það sem mér fannst líka
skemmtilegt við Gúnter Grass var
hvað hann var blátt áfram, þægileg-
ur i viðmóti og með góða kímni-
gáfu,“ segir Ólafur, „í því sambandi
er mér minnisstætt kvöld sem við
áttum með honum og útgefanda
hans í Þýskalandi, Gerhard Steidl, í
sumarbústað okkar Elínar í Skorra-
dal eftir dagsferð um vestanvert
landið. Þarna bar margt á góma,
æsku skáldsins og ritstörf.'íslenska
menningu og þjóðlíf. Það sem heill-
aði Grass mest var huldufólkið og
þjóðsagnaarfur okkar. Eftir umræð-
ur um það efni virtist hann sjá heim
þjóðtrúarinnar í nýju ljósi og sagði:
„Ef huldufólkið er önnur þjóð í
landinu þá hljóta að vera jafnmörg
störf og starfsheiti í þeirra veröld
eins og í hinum mannlega sýnilega
heimi. Um leið hljóta að vera til
huldurithöfundar og ósýnilegir les-
endur, hulduútgefendur sem sinna
bókaútgáfu fyrir fólkið í þessu
hulda samfélagi og annað fólk sem
ekki er sýnilegt og annast alla aðra
Gítarinn ehf.Ý
Stórhöfða 27 y?
Kassagítarar
frá 7.900 kr.
sími 552-2125 og 895-9376
og snupa.
Áður 40.400 kr.
Nú 27.900 kr.
Rafmagnsgítarar
frá 15.900
t
Hljómborð
f rá 3.900
Frjáls bílafjármögnun Glitnis
kemur þér í samband við rétta bíiinn
♦ Þú ræíur hvar þú tryggir
• Lántð getur fylgt bílnum við sölu
* Abyrgðarmenn alla jafna óþarfir
♦ Hagkvæmt
• Fljótíegt og þægilegt
www.giitnir.is j
Glitnir
Traustur samstarfsaöili í bílafjármögnun