Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Page 27
27 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001________________________________________________________________ PV____________________________________________________________________________Helgarblað Torfi Geirmundson. Þaö er ekkert sem göfgar hugartn meira en aö lesa Ijóö. Mér finnst líka þægilegt aö hafa Ijóöabækur nálægt mér þegar ég er aö spjalla viö viöskiptavinina. Ljóðelskur rakari G\eðilegt s Öll tæki drifin m. 12 volta rafmótor. Hleðslutæki fylgir. Áfram og afturábak / hæg/hraðar stilling. Ljós-hljóð-speglar-símar o.fl. Verð frá kr. 30.000 - 40.000 Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 L Þjónustu- auglýsingar ►I 550 5000 Torfi Geirmundsson hefur í fjögur ár rekið rakarastofuna Hár- homið á Hlemmi. Meðan við- skiptavinir bíða eftir klippingu geta þeir litið í tímarit, rétt eins og á öðrum hárgreiðslustofum. En tímaritin eru ekki eina lesefnið í boðstólnum hjá Torfa, því hillur rakarastofunnar eru fullar af ljóðabókum. „Ég safnaði ljóðabókum í gamla daga og ákvað að setja þær hérna upp og gefa viðskiptavinum tæki- færi til að lesa þær. Það hefur oft komið sér vel, því viðskiptavinir taka eftir þeim og umræða spinnst um annað en bara klippinguna," segir Torfi. „Eitt sinn var ég að klippa mann og spurði hann hvort hann hefði áhuga á ljóðabókum. Hann sagði mér að hann hefði gef- ið út ljóðabækurr. Þetta var ísak Haröarson. Ég er með nokkrar af bókum hans í hiliunum, hann er mjög gott ljóðskáld. Sjádfur ætlaði ég að verða ljóð- skáld og var duglegur við að yrkja. Þegar ég var ritstjóri Iðn- nemans vildi ég að nota tækifærið og birta ljóð eftir sjálfan mig en Stefán Ögmundsson setjari sagði ljóðin vera leirburð og neitaði að setja þau á blý. Þá hætti ég að við að verða ljóðskáld og hef síðan einungis verið unnandi ljóða." Þegar Torfi er spurður um eftir- lætisljóðskáld og ljóð segist hann alltaf hafa verið fyrir róttæk ljóð: „Jóhannes úr Kötlum var uppá- haldið mitt lengi vel. Síðan Guð- mundur Böðvarsson. Svo náttúr- lega Megas, sem varð seinna núm- er eitt, tvö og þrjú. Ég hef líka haldið mikið upp á ljóð Þórarins Eldjárns. Fyrstu ljóðabækurnar sem ég eignaðist og var hrifnastur af voru eftir Káinn og Öm Arnar- son.“ - Vilja viðskiptavinir skoða bækurnar? „Ekki yngra fólkið, því finnst hallærislegt að vera með bækur uppi í hillum en ekki vörur til að selja. Halli sem vinnur hérna með mér er einnig ljóðelskur og þegar ekkert er að gera gripum við stundum í bækumar og lesum, jafnvel hvor fyrir annan. Það er ekkert sem göfgar hugann meira en að lesa ljóð. Mér finnst líka þægilegt að hafa ljóöabækur ná- lægt mér þegar ég er að spjalla við viðskiptavinina. Ef ljóð kemur upp í hugann og ég kann það ekki lengur utanaf þá getur maður gripið í bókina og sýnt kúnnan- um.“ Mikilvægt að skrifa um samtímann Stundum er haft á orði að ljóð- listin sé í lægð nú sem stendur, en Torfi tekur ekki undir það. „Ég held að þær ljóðabækur sem hafa komið út að undafömu séu miklu betri en þær voru áður fyrr. Þess- ar gömlu ljóðabækur eins og þær sem byltingarsinnar gáfu út á ár- unum 1970-1975 em sumar hverj- ar óttalegt bull og vart lesandi. í dag eru ljóðabækurnar betri, kveðskapurinn vandaðri og skemmtilegri aflestrar." Torfi er faðir Mikaels Torfason- ar rithöfunds. Hann segist stoltur af syni sínum og lýsir síðustu bók hans, Heimsins heimskasti pabbi, sem frábærri. „Ég hef alltaf hvatt Mikael til að skrifa um samtím- ann. Mér finnst að rithöfundar hafi ekki gert nógu mikið af því. í stað þess að skrifa um eigin sam- tíma eru þeir að velta sér upp úr fortíðinni og jafnvel að skrifa bækur sem eiga að gerast á 17. og 18. öld, tímabil sem þeir vita ekk- ert um. Halldór Laxness sagði eitt sinn að mismunurinn á rithöfundi og sagnfræðingi væri að rithöf- undurinn lygi vísvitandi en sagn- fræðingur ómeðvitað. Ég held að það sé nokkuð til í því. Ég held að það sé betra að skálda upp nútím- ann en að vera að velta sér upp úr fortíðinni." WAG0N 4X4 - Fjölskyldubíllinn —^ Meðaleyðsla 7,41 l Wl 1.875.000,- BALENO SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. RENEÉ ZELLWEGER HUGH GRANT COLIN FIRTH BRIDGET JOIMES'S DIARY ER KOMIN í BÆINN! FRÁ FRAMLEIÐENDUM NOTTING HILL OG FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.