Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Page 40
48 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 DV Formúla 1 rspjalliö Trúir á Coulthard Steingrímur Ingason er öllum akst- ursíþróttamönnum á íslandi kunn- ugur fyrir elju sína í yfir 100 rall- keppnum síðan 1978. Hann hefur um árabil rekið formulal .is og hefur mikla þekkingu og innsýn í það sem er að gerast í Formúlu 1. DV spurði hann um „þema" dagslns. Michael Schumacher. Michael Schumacher er með 31 stigs forystu á David Coulthard. Á Skotinn einhverja raunhœfa möguleika? „Já, á meðan hann á stœrð- frœðilegan möguleika má ekki afskrifa hann. Hann hefur ekki bugast enn þó liðið hafi klúðrað meiru en nokkru sinni áður og óheppni elt hann 1 ár. Hann er til- búlnn ef Michael gerir minnstu mistök." Fimmtíu sigrar í 155 keppnum og nýbúinn að framlengja samning sinn við Ferrari út 2004. Hvar end- ar þetta? „Hvað varðar framtíðina þá cetl- ar hann ábyggilega að slá öll met sem hœgt er að slá 1 Formúl- unni. Ég held hins vegar að það takist ekki því ég hef ekkl trú á að Ferrari-liðið sem heild haldi þetta út svo lengi.” Er hann lifandi goðsögn? „Já, hann er lifandi goðsögn, allavega 1 Þýskalandi. Ég er samt alveg viss um að vinsœidir hans hafa dvínað af því að markmið- inu hjá Ferrari er náð og hann á engar stórkarakter sem mótherja eftir að Hakkinen fór að ganga svona illa." Getur þú lýst eiginleikum hans sem ökumanns? „Hann leggur allt 1 sölurnar til að setja bílinn sem best upp og ef það tekst ekki sem skyldi þá hefur hann hœfileika til að laga sig að göllunum. Svo er hann djarfur en hefur lika ögun og margoft hefur hann gefið eftir og sigrað með litl- um mun til að hlífa bílnum. Ég lít á mótorsport eins og skóiagöngu, keppnin sjálf er eins og próf. Ef maður hefur stundað heimavinn- una og kemur betur undirbúinn en aðrir þá verður árangurinn 1 samrœmi við það. Keppnin sjálf er aðeins hinn sýnilegi toppur margra ára undirbúnings." Spá fyrir breska kappaksturinn? 1. Coulthard, 2. Montoya, 3. Hákkinen, 4. Barrichello, 5. Trulli, 6. Villeneuve. Nú ert þú eigandi og fram- kvœmdastjóri formulal.is. Ertu ánœgður með viðtökurnar? „Já, þœr eru frábœrar, takk. Við kunnum lesendum okkar bestu þakkir fyrir innlitin. Við erum með 1 „Samrœmdri vefmœlingu" Versl- unarráðs og vitum því vel um heimsóknafjöldann. Á síðustu 10 vikum hafa verið að meðaltali 50.604 flettingar (klikk) á viku og 12.528 heimsóknir og lýsir kannsi best feikna vinsceldum Formúl- unnar." Fyrir hálfum mánuði náði Michael Schu- macher þeim merka áfanga á ferli sínum að vinna fimmtugustu keppni sína. Árangur hans i ár hefur verið með eindæmum og með sigri í breska kappakstrinum á Silver- stone á morgun gæti hann bætt öðrum áfanga við og jafnað átta ára gamalt met Alains Prosts. Haldi sigurganga Schumachers áfram á Hockenheim í lok mánað- arins getur hann náð þeim stór- kostlega árangri að verða sigur- sælasti ökumaður allra tíma áður en júlí er liðinn. Vakti strax eftirtekt Þegar Alain Prost hætti í kappakstri áriö 1993 með 51 sigur að baki og fjóra meistaratitla þótti árangur hans vera með því- líkum ólíkindum aö menn stóðu á öndinni. Aðeins einn ökumaður hafði þá raunhæfa möguleika á að bæta met hans en meistari Senna, eins og hann var oft kall- aður, lést á Imola ári síðar með 41 sigur á ferilskrá sinni. Engum flaug það í hug að ungi brjálæð- ingurinn á Benetton-bílnum sem þá hafði unnið tvær keppnir ætti eftir að brjóta blað í sögu For- múlu 1 eins og raunin er orðin í dag. Michael Schumacher sýndi strax að hann var enginn venju- legur bílstjóri. Eddie Jordan, eig- andi Jordan-liðsins, gaf honum gullna tækifærið í ágústmánuði 1991 eftir að öðrum ökumanni hans hafði verið stungið í stein- inn fyrir barsmíðar. Schumacher var kallaður í prufuakstur en var vinsamlegast beðinn um að fara rólega af stað, bæði til að hlífa mótornum og til að yfirkeyra ekki. Áður en varði var Michael búinn að bæta æfingamet félaga síns um tvær sekúndur en þó sagðist hann enn vera að hita upp. í tímatökunni fyrir sína fyrstu keppni fór kappinn, sem þá var tuttugu og tveggja ára gamall, Spa-brautina á sjöunda besta tíma og eftir það vissu allir sem eitthvað vissu um Formúlu 1 hver Michael Schumacher var. Hann kom sannarlega inn með stæl og fyrir næstu keppni var Benetton búið að ræna nýja undradrengnum frá Jordan. Ári síðar var fyrsti sigurinn í höfn á sömu braut og vinningsreikning- urinn var opnaður. Draumar verða að veruleika Á sínum fyrstu árum í For- múlu 1 var: Michael Schumacher að keppa við marga af stærstu köppunum í sögu kappaksturs- ins, oftast á mun lélegri bíl en hafði ótrúlega oft betur gegn hetj- um eins og Prost, Senna, Mansell og Piguet. Því var fyrst og fremst herkænsku og einbeittni að þakka og ekki síst líkamlegu góðu formi. Michael var einn af fyrstu ökumönnunum sem leit á líkamsrækt og þolæflngar sem mikilvægan þátt í velgengni á kappakstursbrautinni og einnig breytti nákvæmni hans í keppnis- áætlunum hugarfari manna til þjónustustoppa. Þótt ótrúlegt megi virðast hefur Michael Schumacher aðeins ekið fyrir þrjú keppnislið á þeim tíu árum sem hann hefur ekið í Formúlu 1. Eina keppni fyrir Jordan, fjögur ár fyrir Benetton og er á sjötta ári fyrir Ferrari. Fyrstu tveir titlar hans unnust tiltölulega létt með liðinu bláa og þótti Schumacher það þvi verðug áskorun að fara til rauðu karlanna hjá Ferrari og færa þá á sigurbraut á ný. Nýtt takmark hans í lífínu var að gera Ferrari að toppliði og færa því fyrsta titil ökumanna síðan 1979. Til þess hefur hann fengið fullan stuðning yflrmanna Ferrari og hefur liðið hreinlega verið byggt í kringum Þjóðverjann þar sem meginhluti tækniliðs Benetton var „keypt“ yfir til Ítalíu. Það var ekki fyrr en eftir fimm ára þrot- lausa baráttu sem draumurinn varð að veruleika og þriðji titill Schumachers og langþráður öku- mannstitill Ferrari varð í höfn. Sumir vilja fullyrða að hann væri þegar búinn að jafna met Juan Manuel Fangio með fimm heims- meistaratitila hefði hann ekið fyrir liö eins og Williams eða McLaren. FERILL SHUMACHER í FORMÚLU 1 1991. Jordan Hart / Benetton Ford. Sex keppnir, 4 stig, 12. í hmk. 1992 Benetton Ford B192 1 sigur, 53 stig, 3. í hmk. 1993 Benetton Ford B193 1 sigur, 52 stig, 4. í hmk. 1994 Benetton Ford B194 8 sigrar, 92 stig, heimsmeist. 1995 Benetton Renault B195 9 sigrar, 108 stig, heimsmeist. 1996 Ferrari F310 3 sigrar, 59 stig, 3. í hmk. 1997 Ferrari F310B 5 sigrar, 78 stig, árangur ógildur af FIA. 1998 Ferrari F300 6 sigrar, 86 stig, 2. í hmk 1999 Ferrari F399 2 sigrar, 44 stig, 5. í hmk 2000 Ferrari F1-2000 9 sigrar, 108 stig, heimsmeist. 2001 Ferrari F2001 6 sigrar, 78 stig, 7 keppnir eftir. Hvert stefnlr Schumacher Það er nokkuð Ijóst að met Alains Prosts fellur á næstu vik- um, þvílíkur er gangurinn á kapp- anum. En hvað svo? Fjórði titill Schumachers er jafnvel rétt inn- an seilingar. Vinni Þjóðverjinn tvær næstu keppnir án þess að David Coulthard takist að fá stig getur Þjóðverjinn farið í frí án þess að hafa áhyggur af McLaren og félögum. En mestar líkur eru á því að úti verði um titilbaráttuna í Belgíu eða Ítalíu þegar tvær til þrjár keppnir verða eftir. Stiga- metið, 108 stig á tímabili, er í mik- illi hættu og eins hefur hann góða möguleika á að sigra tíu keppnir í ár. Michael Schumacher er samn- ingsbundinn Ferrari út árið 2004 sem þýðir að 40 keppnir eru eftir af samningstima þeirra. Með sama vinningshlutfalli og undan- farin ár er ekki ósennilegt að Schumacher endi ferilinn með 65 til 70 sigra á bakinu. „Fátt getur komið í veg fyrir að hann jafni annað sæti Alains Prosts á þessu ári í titlafjölda og vinni fjóröa tit- ilinn. Þá er eftir að jafna met Fangios og vinna þann fimmta. Eftir það er aðeins eftir að slá metið og vinna sjötta titilinn,“ segir Þórhallur Jósepsson, sér- fræðingur Rásar 2 í Formúlu 1, um næstu markmið Schu- machers. Eins og sést á grafinu hér til hliðar eru nokkur met við það að falla og nokkur á hann nú þegar. Þar á meðal hröðustu hringi í keppni en í 43 skipti hef- ur hann verði fljótastur. En hvað sem blaðamenn og tölfræðingar segja um árangur Michaels Schumachers í gegnum tíðina þá segir hann að öll þessi met skipti hann engu. „Kannski þegar ég er hættur og lít til baka á feril minn,“ segir Schumacher og bros- ir út í annað með beygluðum munni sínum og innst inn veit hann að hann er bestur. Goðsögn í lifandi lífi. -ÓSG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.