Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 46
54 LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001 Íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________x>V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson Stórafmæli 85 ára________________________________ Jón Jóhannsson, Lindarbrekku, Hofsósi. Sigríóur Stefánsdóttir, Hofi 4, Hofskoti, Fagurhólsmýri. 80 ára________________________________ Tala Klemenzdóttir, Suöurhólum 26, Reykjavík. ftögnvaldur Rögnvaldsson, Víghólastíg 17, Kópavogi. tyvindur Valdimarsson, Fannborg 8, Kópavogi. Ásta Sigurðardóttir, Sæunnargötu 12, Borgarnesi. Magnús Kolbeinsson, Stóra-Ási, Reykholti. BJarney Jónsdóttir, Lagarási 17, Egilsstööum. Baldur Björnsson, Hafnargötu 15, Fáskrúösfiröi. 75 ára________________________________ Ingunn Helgadóttir, Kambsvegi 4, Reykjavík. Elinbergur Sveinsson, Skálholti 11, Ólafsvík. Frosti Gíslason, Gilstúni 17, Sauðárkróki. 70 ára________________________________ Hebba Herbertsdóttir, Tómasarhaga 35, Reykjavík. Guörún Valgarösdóttir, Miðvangi 41, Hafnarfiröi. Jóhann Björn Dagsson, Heiöarvegi 24, Keflavík. Hallgrímur Sigurösson, Bárugötu 22, Akranesi. Fanney Jóhannsdóttir, Berustööum 1, Hellu. Fanney veröur að heiman á afmælisdaginn. 60 ára________________________________ Hrafnhildur Heba Wilde, Skaftahlíö 40, Reykjavík. 50ára_._______________________________ Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Látraströnd 22, Seltjarnarnesi. Sigríöur Einarsdóttir, Efstahjalla 17, Kópavogi. Sigrún Margrét Jónasdóttir, Oerðavöllum 15, Grindavík. i 'gríður Þórarinsdóttir, Lrekkugötu 26, Þingeyri. 'va M. Ásgeirsdóttir, aöbrekku, Egilsstöðum. ♦0 ára________________________________ . irmann Óskar Sigurðsson, Álfheimum 9, Reykjavík. Snorri Bergmann, Aflagranda 36, Reykjavík. Sólrún Ósk Sigurðardóttir, Kjarrhólma 28, Kópavogi. Danuta Rogozinska, Freyjugötu 2, Suðureyri. GunnarJónsson, Mosateigi 11, Akureyri. Kolbrún Steingrímsdóttir, Fagrahjalla 20, Vopnafirði. Margrét Gyöa Jóhannsdóttir, Laufskógum 4a, Hveragerði. Guörún Fanney Hjálmarsdóttir, til heim- ilis í Hraunbæ 118, lést á hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ miövikudaginn 4. júlí síðastliðinn. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Guösteinn Sigurþór Sigurjónsson, Þor- steinsgötu 7, Borgarnesi, andaðist þriðjudaginn 10. júlí. Smáauglýsingar DV Þjónustu- auglýsingar ► 550 5000 Sextugur Elías Jóhannesson húsasmídameistari og útfararstjóri Elias Jóhannesson, húsasmíða- meistari og útfarastjóri, Hjarðar- holti 8, Akranesi verður sextugur á morgun. Starfsferill Elías fæddist á Akranesi, ólst þar upp og hefur dvalið þar allan sinn aldur. Á unglingsárunum vann hann ýmis störf, við byggingar- vinnu og fleira. Hann hóf síðan nám í húsasmíði hjá Akraneskaupstað og lauk sveinsprófi 1964. Meistara- réttindi fékk hann 1968. Elías starf- aði sem húsasmiður hjá Akranes- kaupstað 1960-1975, hjá Húsverki hf. á Akranesi 1976-1977 og við bygg- ingu íslensku jámblendiverksmiöj- unnar á Grundartanga 1977-1979. Hann starfaði sem ofngæslumaður hjá íslenska járnblendifélaginu 1979-1992. Elías var útfararstjóri Akraneskirkju, umsjónarmaður kirkjugarðs og gjaldkeri safnaðar- ins 1994-2001. Elías hefur síðan ann- ast útfararþjónustu og gegnt af- greiðslustörfum hjá Versluninni Axel Sveinbjörnsson ehf. á Akra- nesi. Elías var félagi í Lionsklúbbi Akraness 1991 til 2001. Hann átti sæti í stjórn Golfklúbbsins Leynis á Akranesi og íþróttabandalags Akra- ness um skeið. Fjölskylda Þann 8.5. 1965 giftist Elías, Dröfn Einarsdóttur stuðningsfulltrúa, f. 19.9.1945. Foreldrar hennar eru Ein- ar Magnússon, f. 26.8. 1917, d. 28.12. 1971, sjómaður á Akranesi, og kona hans Elín Elíasdóttir, f. 20.2. 1920, húsmóðir. Sonur Elíasar og Drafnar er Jó- hannes, f. 7.7. 1967, hárskerameist- ari i Kópavogi, maki Þuríður Björk Sigurjónsdóttir, f. 9.5.1970, lögfræði- nemi. Dætur þeirra eru Elisa, f. 8.4. 1995, og Sylvía Rut, f. 15.3. 2001. Systkini Elíasar eru: 1) Pétur Steinar, f. 6. 8.1942, múrarameistari og lögregluvarðstjóri á Akranesi; 2) Guðrún, f. 26.6. 1944, hjúkrunar- fræðingur í Reykjavík; 3) Dagbjart- ur, f. 25.10.1946, blikksmiðameistari í Vogum á Vatnsleysuströnd; 4) Ómar Þór, f. 29.4. 1948, blikksmíða- meistari á Akranesi; 5) Elísabet, f. 18. mars 1951, kennari á Akranesi; 6) Hafsteinn, f. 31.10. 1952, verka- maður á Akranesi; 7) Jóhanna Guð- borg, f. 17.7. 1954, húsfreyja á Akur- eyri. Foreldrar Elíasar eru Jóhannes Jónsson, f. 3.6. 1917, d. 18.8. 1985, bakarameistari á Akranesi, og kona hans, Guðborg Elíasdóttir, f. 5.4. 1920, húsmóðir. Ætt Foreldrar Jóhannesar voru Jón Pétursson, fiskmatsmaður og vikt- armaður á Akranesi, og kona hans, Guðrún Jóhannesdóttir. Foreldrar Jóns voru Pétur Jón Daníelsson, bóndi í Vatnsholti í Staðarsveit, síð- ar íshúsvörður í Sjóbúð á Akranesi, og kona hans Steinunn Jónsdóttir. Foreldrar Guðrúnar voru Jóhannes Jónsson, bóndi á Garðabrekku í Staðarsveit, og kona hans Valgerð- ur Magnúsdóttir. Foreldrar Stein- unnar voru Jón Sigurðsson, bóndi i Ysta-Skála og Syðstu-Mörk í V-Eyja- íjallahreppi, og kona hans Ingibjörg Sigurðardóttir frá Barkarstöðum í Fljótshlíð. Jón og Ingibjörg voru systkinabörn en faðir Jóns og móð- ir Ingibjargar voru systkini séra Tómasar Sæmundssonar á Breiða- bólstað í Fljótshlið. Foreldrar Guðborgar voru Elías Borgarsson, bóndi á Tyrðilmýri á Snæijallaströnd og síöar verkamað- ur á Akranesi, og kona hans Elísa- bet Hreggviðsdóttir. Foreldar Elías- ar voru Borgar Bjarnason, sjómað- ur í Borgarshúsi við Berjadalsá á Snæfjallaströnd, og kona hans, Guð- ný Pálsdóttir. Foreldrar Elísabetar voru Hreggviður Þorleifsson frá Flatey, formaður í Bolungarvík, og kona hans Helga Jensdóttir. Elías tekur á móti gestum i sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á afmælisdaginn, sunnu- daginn 15. júlí, frá klukkan 15. Fimmtugur 1 Fimmtugur Birgir Þór Ingólfsson Andrés Valgarð Björnsson Birgir Þór Ingólfsson, Urðar- braut 6, Blönduósi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Birgir er fæddur að Bollastöð- um í A-Húnavatnssýslu og ólst upp í Blöndudal í sömu sýslu. Han gekk í Bamaskóla í Húnaveri og unglingaskóla Jóns Kr. ísfelds í Bólstað. Birgir stundaði einka- flugnám hjá Flugtaki hf. og lauk 1. stigi vélstjórnar hjá VMA. Birgir vann á þungavinnuvél- um og við akstur steypubifreiða til ársins 1987. Á árunum 1987-1998 vann hann við vélgæslu og viðhald á búnaði í sláturhúsi SAH á Blönduósi. Frá 1999 hfur Birgir unnið í Bílaþjónustunni á Blönduósi. Hann sér ásamt fleir- um um afgreiðslu flugvéla á Blönduóssflugvelli. Fjölskylda Þann 27.11.1997 gitist Birgir, Rögnu Árný Björnsdóttur hús- móður, f. 15.6. 1963 í Ólafsfirði. Foreldrar hennar eru Klara Gests- dóttir, f. 27.11. 1942, d. 4.2. 1993, og Bjöm Gunnarsson, nuddari Akur- eyri, f. 6.7. 1942. Sambýliskona hans er Sigríöur Olgeirsdóttir Önnur afmælisbörn helgarinnar Pétur Marteins- son knattspyrnumaö- ur er 28 ára í dag. Pétur hefur undanfar- in ár verið atvinnu- maður í knattspyrnu með norska liðinu Stabæk en hann gekk til liðs við það í nóv- ember 1998. Áður hafði hann með- al annars verið atvinnumaður hjá Hammarby í Svíþjóð og leikmað- ur Fram á íslandi. Pétur hefur einnig verið fastamaður í íslenska landsliðinu í knattspymu síðustu ár og var líka í landsliði íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri á sínum tíma. sjúkraliði. Dóttir Birgis og Rögnu er Klara Rún Birgisdóttir f. 15.5. 2000. Son- ur Rögnu og uppeldissonur Birgis var Björn Ingvar Pétursson, f. 9. 3. 1981, d. 20.1. 1998 í rútuslysi í Hvalfirði. Bróðir Birgis eru Bjarni Brynj- ar Ingólfsson f. 1.1. 1956, bóndi á Bollastöðum. Foreldrar Birgis eru Ingólfur Bjamason. f. 15.3 1921 d. 22.5 2000, bóndi, og Guðrún þórunn Stein- grímsdóttir f. 9.10. 1932, húsmóðir. Guðrún er búsett á Bollastöðum í A-Hún. Ætt Ingólfur var sonur Bjama Jóns- sonar sem bjó i Kálfárdal og á Bollastöðum. Bjami var sonur Jóns Þorlákssonar frá Syðri- Brekkum í Skagafirði. Systur Bjama voru Kristín, gift Stefáni Jónatanssyni á Þorsteinsst., og El- ín, bústýra Jóns Ósmanns ferju- manns. Hálfsystir samf. var Mar- grét, gift Lárusi Ólafssyni, útvegs- bónda á Hofsósi. Birgir verður að heiman á afmælisdaginn. BFilippía Ingibjörg El- ísdóttir fatahönnuður er 32 ára í dag. Filippía hefur síðastliðin tíu ár starfað við hönnun og gerð fatnaðar. Hún rek- ur eigið hönnunarfyrirtæki í Reykjavík. Filippía hefur gert nokkuð að því að hanna búninga fyrir leiksýningar. Hún gerði til að mynda búningana í Rocky Horror í Loftkastalanum og í Hamlet, Leitt að hún skyldi vera skækja og fleiri sýningmn i Þjóðleikhúsinu. Fil- ippía mun koma til með að gera búningana i Vatni lífsins sem frum- sýnt verður í haust. sjómaður Andrés Valgarð Bjömsson sjó- maður, FagrahjaUa 25, Vopnaflrði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Andrés fæddist í Njarðvík í Borgarflrði eystra og ólst þar upp. Hann vann við bústörf hjá foreldr- um sínum til 1970 og starfaði sem verkamaður og sjómaður á Höfn í Hornafirði frá 1970 til 1974. Andr- és var sjómaður á Eskifirði 1975 og verkamaður og sjómaður á smærri bátum á Vopnafirði 1976 til 1980. Þá var hann togarasjó- maður frá Vopnafirði 1980 til 1997. Andrés starfar nú sem sjómaður á nótaskipinu Sunnubergi NS.70. Fjölskylda Sambýliskona Andrésar frá 1976 er Kolbrún Pétursdóttir, starfs- maður á hjúkrunardeild Sunda- búðar, Vopnaflrði, f. 14.7. 1952. Foreldrar hennar voru Pétur Nikulásson, f. 22.12. 1916, d. 6.3. 1992, og Björg M. Sveinsdóttir, f. 20.5. 1923, d. 9.1. 1994. Börn Andrésar eru Sigrún Andrésdóttir, f. 26.11. 1974, ritari í Sendiráði íslands i Vín í Austur- ríki, og Bjöm Andrésson, f. 14.4. 1976, málari í Reykjavík. Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri á Ak- ureyri, verður 44 ára á morgun. Hann varð stúdent frá MA árið 1977 og stundaði síðan nám í Stýrimannaskólanum og síð- ar í Háskóla íslands þar sem hann lauk B.A. námi í íslensku og bók- menntum. Kristján hefur meðal annars unnið sem ritstjóri, kennari og skipstjóri auk þess sem hann hefur átt sæti í ýmsum stjórnum og nefndum. Kristján hefur ekki bara verið bæjarstjóri á Akureyri heldur einnig á Dalvík og á ísafirði. Bróðir Andrésar er Pétur Reyn- ir Björnsson, bæjarstarfsmaöur á Egilsstöðum, f. 17.5. 1948, eigin- kona hans er Anna Gústafsdóttir Kjerúlf. Foreldrar Andrésar eru Bjöm Andrésson, bóndi, póstur og bU- stjóri, f. 3.3. 1919, og Guðrún Ást- hildur Pétursdóttir húsmóðir, f. 1.7. 1924. Þau voru lengst af búsett í Njarövík í Borgarfirði eystra en búa nú í Fellabæ á Egilsstöðum. Afmælisbamið verður að heim- an á afmælisdaginn. Andri Snær Magnason rithöfund- ur er 28 ára í dag. Andri Snær hefur vak- ið mikla athygli fyrir verk sin en hann skrif- aði bókina Söguna um Bláa hnött- inn sem hlaut Islensku bókmennta- verðlaunin á síðasta ári og varð því fyrsta barnabókin tU hljóta þau verðlaun. Síðastliðinn vetur sýndi Þjóðleikhúsið barnaleikritið Bláa hnöttinn sem er fyrsta leikritið sem Andri Snær skrifar. Verkið fékk þriðju verðlaun í leikritasam- keppni Þjóðleikhússins sumarið 1999.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.