Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2001, Blaðsíða 50
xyidwr'y ****««»>•<
* 58
Pilvera
LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2001
I>V
1 i f 1 ft
Gítartónlist á
Noröurlandi
Gítarleikararnir Símon H. ívars-
son og Jörgen Brilling spila í
Reykjahlíöarkirkju við Mývatn í
kvöld kl. 21 og Húsavík annað
kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni eru
meðal annars verk eftir Mozart,
Beethoven og Gunnar Reyni
Sveinsson. Einnig íslensk þjóölög í
útsetningu Jóns Ásgeirssonar.
Klassík
SUMARTONLHIKAR I SKALHOLTS-
KIRKJU I dag og á morgun veröa
flutt söng- og einleiksverk eftir stað-
artónskáld Skálholts, Karólínu Ei-
ríksdóttur. Barnagæsla.
n SUMARTÓNLEIKAR í AKUREYR-
ARKIRKJU Klukkan 17 á morgun,
sunnudag, veröa tónleikar i Akureyr-
arkirkju. Flytjandi veröur danski org-
elleikarinn Niels Henrik Jessen ...
n ORGELTÓNLEIKAR í
HALLGRIMSKIRKJU Ulf Norberg,
einn efnilegasti organisti Svía, leikur
' kl. 12 í dag og á morgun kl. 20 á
tónleikum í Hallgrímskirkju.
nSKALDSAGNAVAKA AÐ
SKRIÐUKLAUSTRI Lesiö veröur úr
fjórum íslenskum skáldsögum að
Skriðuklaustrl í kvöld og fluttir fyrir-
lestrar um þær. Vakan hefst kl. 20.
n ÞJÓÐLAGAHÁTÍÐ Á SIGLÓ
Sýning á þjóðbúningnum er í Grána
kl.14-17 í dag og síldarsöltun á
plani kl. 15. Tónleikar eru í kirkjunni
kl. 16 og aðrir í íþróttahúsinu kl. 20.
Á morgun er bæöi þjóölagamessa
og sálmaspuni í kirkjunni.
n FJÓLSKYLPUHÁTÍÐ Á
EIRIKSSTOPUM í Dölum hefst kl.
13 í dag og stendur til 17 á
morgun.
Göngur
n SOGUGANGA UM AKUREYRI
Klukkan 14 í dag veröur lagt upp í
sögugöngu á vegum Minjasafnsins
á Akureyri um Innbæinn og Fjöruna.
n ÞINGVALLAGANGA Gengiö
veröur í Snóku, eina dýpstu og
gróöursælustu gjá Þingvalla í dag kl.
13 frá þjónustumiðstöö.
n VIÐEYJARGANGAGeneiö veröur
um vesturenda Viöeyjar í dag og
skoöaöar höggmyndir Richard
Serra. Fariö ur Sundahöfn kl. 11.15.
n RATLEIKUR í HEIÐMÓRK
A fjölskylduhátíö í Fleiömörk í dag er
ratleikur og fjársjóðsleit á dagskrá.
.Opnanir
n MARKMH) I GALLERI SÆVÁRS
KARLS Þeir Pétur Orn Friðriksson
og Helgi Eyjólfsson opna myndlistar-
syninguna Markmiö f Galleríi Sæv-
ars Karls í dag.
n LÍF OG DAUÐI i MAN Þær Helga
Birgisdóttir og Olga Pálsdóttir opna
' í dag sýningu í listasalnum MAN,
Skólavóröustíg 14. Yfirskriftin er Líf
( og dauðl - Hvaðan komum vlð? -
v Hvert förum vlð?
n MYNPLIST Á AKUREYRI í
Ketilhúsinu á Akureyri. sýna nemar
LHI „Bæjó, hver vegar að heiman er
vegurinn helm“. og Rnninn Elín
Koskimles er einnig meö sýningu.
n ÞÓRPUR Á MOKKA Þórður Ingv-
arsson (f. 1979) opnar á morgun,
J sunnudag, sýningu á Mokka.
n KRISTBERGUR í BORGARNESI
Kristbergur 0. Pétursson opnar
sýningu á olíumálverkum í
Borgarnesi í dag.
i ' SJá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.ls
Er alltaf að krota
- myndagátuteiknari DV hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
laununum og þá fæ ég tækifæri til
að kynna efnið mitt betur.
Myndagátan í DV
Eyþór segir að i sínu tilfelli sé
erfltt að vera kartúnisti á íslandi
„Ég hef nóg að gera í kennslu og
með myndagátuna í DV og svo vinn
ég líka „freelance“.“ Hann segist
eiga nokkur hundruð brandara á
lager og rissa hjá sér hugmyndir
um leið og þær skjóta upp kollinum.
„Ég gríp svo rissið seinna og vinn
meira í því.
Ég byrjaði að teikna myndagát-
urnar þegar ég var við nám í lista-
háskólanum í Ósló. Til að byrja með
lágu þær bara heima og ég hafði
gaman af því að leggja þær fyrir
vini og kunningja. Eftir að ég kom
heim fór ég að kenna myndlist við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti og
lagði stundum svona gátur fyrir
nemendur og það voru þeir sem
hvöttu mig til að hafa samband við
DV og síöan hef ég ekki hætt.“
-Kip
DV-MYND GVA
Við teikniborðiö
Eyþór Stefánsson hefur teiknaö
myndagátuna í DV í rúm tíu ár og
fyrir skömmu hlaut hann fyrstu
verðlaun í alþjóðlegri keppni teikn-
ara.
Lesendur DV kannast flestir við
myndagátuna sem birtist daglega á
tilverusíðum blaðsins. Listamaöur-
inn Eyþór Stefánsson hefur í rúm
tíu ár teiknað og birt rúmlega þrjú
þúsund myndagátur. Eyþór starfar
einnig sem „freelance" teiknari og
teiknar skrýtlur, eins og hann kail-
ar þær, fyrir danskt dagblað.
Fyrir skömmu sigraði hann í al-
þjóölegri teiknimyndasamkeppni
sem haldin var á vegum Federation
og European Cartoonist Organ-
isations (FECO) sem haldin var í
Tyrklandi.
Alþjóðleg viðurkenning
Eyþór segir aö hann hafi verið
með blýantinn á lofti og eitthvað að
krota frá því að hann man eftir sér.
„Þorsteinn Eggertsson, sem er í for-
svari fyrir FECO á íslandi, hafði
samband við mig í vetur og bauð
mér að ganga í félagið. í framhaldi
af því sendi ég tvær teikningar í al-
þjóðlega keppni fyrir kartúnista í
Istanbul og í byrjun júlí var mér til-
kynnt aö ég hefði sigrað.
Það er búið aö bjóða mér til Istan-
bul í nóvember til að taka við verð-
EyÍHOR
Vinnum saman
Þrátt fyrir allt eru mennirnir eins þegar upp er staðið. „Ég sendi tvær
myndir í keppnina og mér finnst líklegra að þessi hafi hlotið náð fyrir
augum dómnefndarinnar."
Bíógagnrýní
Síðasta tré
Myndir Eyþórs eru oft hápólitískar og á þessari sýnir hann skógareyöingu
af mannavöldum og afleiðingar hennar á táknrænan hátt.
-
1 I
Laugaeásbíó/Stjörnubió/Bíóhöllin - Evolution -*•
Gamalt vín á nýjum belgjum
Hilmar
Karlsson
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
Óboöinn gestur
Það þarfgömul læknisráð til að losa Harry við framandi gest sem hefur leit-
að undir húð hans. Orlando Jones og Julianne Moore í hlutverkum sínum.
Þegar Ivan Reitman bregður sér í
hlutverk leikstjórans tekst honum
best upp í kvikmyndum sem eru á
mörkum þess að vera farsar, saman-
ber Ghostbusters-myndirnar. Eftir
því sem alvaran er meiri er árang-
urinn minni. Reitman ætti því að
vera á heimavígstöðvum í
Evolution sem flokkast undir hrein-
an farsa. Samt er það nú svo að
Reitman hefur ekkert nýtt fram að
færa. Brandararnir eru kunnuglegir
og alls konar figúrur utan úr geimn-
um, sem boðið er upp á, hafa sést í
betri myndum. Má þar nefna Men
in Black og Mars Attacks. Reitman
tekst þó að blása lífi i slitinn sögu-
þráð eins og góðum farashöfundum
er einum lagið og nýtur þar aðstoð-
ar ágæts leikarahóps sem nær vel
saman þannig að Evolution er oft á
tíöum hin skemmtilegasta afþrey-
ing, mjög fyndin í sumum atriðum,
þó er alltaf sé fyrirsjáanlegt hvað
skeður.
I upphafi fylgjumst við með loft-
steini sem skellur á jörðina í Nýju-
Mexíkó. Tveir framhaldsskólakenn-
arar, Harry (Orlando Jones) og Ira
(David Duchnovy), eru boðaðir á
vettvang. Þegar þeir höggva í stein-
inn ílýtur vökvi úr honum sem þeir,
með stjörnur í augunum yfir vænt-
anlegri frægð, taka með sér á rann-
sóknarstofu skólans. í smásjánni sjá
þeir vökvann breytast í einfrum-
unga, úr einfrumungum í fjölfrum-
unga og úr fjölfrumungum í frum-
stæð skordýr. Ira er ljóst að hér á
sér stað þróun sem tók mörg þús-
und ár á jörðinni. Þeir félagar ætla
að halda þessari uppgötvun leyndri
en fiskisagan flýgur fljótt og áður en
þeir vita af er herinn kominn í mál-
ið og þeir útilokaðir frá verkinu. Á
meðan þróast verumar i alls konar
skrímsli sem gera öllum lífið leitt og
ljóst er að ef ekki verður eitthvað að
gert missir mannkynið völdin á
jörðinni.
Það sem maður saknar hjá Ivan
Reitman er að hann tekur enga
áhættu. Reitman, sem á árum áður
var skæður framúrstefnumaður
þegar kom að gríni í leikhúsum og
kvikmyndum, var meðal annars
einn aðalhöfundur og stofnandi
National Lampoons House, fer hér
troðnar slóðir og hafði ég það á til-
finningunni að hann væri að reyna
að endurgera Ghostbuster upp á nú-
tímamáta. Hvað um það. Evolution
er lífleg kvikmynd, tæknibrellur
góðar og Orlando Jones og David
Duchovny ná vel saman og þegar
Seann Willliam Scott bætist við
verður úr nokkurs konar Bakka-
bræðrahúmor sem vel má hlæja að.
Leikstjóri: Ivan Reitman. Handrit: Don
Jakoby og David Dimond. Kvikmynda-
taka: Michael Chapman. Tónlist: John
Powell. Aöalleikarar: David Duchovny, Or-
lando Jones, Julianne Moore, Dan
Aykroyd og Seann William Scott.