Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002
DV
einhverja leiðtoga sem við viljum
ekki vita að viti ekki neitt, viti
hæfilega mikið til að hanga inni
en alltof lítið til að geta staðið und-
ir ábyrgðinni."
Vændur um jesúkomplex
„Þegar þú lítur yfir höfundar-
verk þitt og sérð þennan undir-
liggjandi óhugnað, Finnst þér það
ekkert óþægilegt? Þetta hlýtur að
lýsa því sem þú hugsar?" spyr ég.
„Þetta er ansi svart.“
„Já,“ segir Þorvaldur, þegir
smástund og heldur svo áfram:
„Nei, nú skal ég segja þér. Ég held
ég hefði ástæðu til að hafa miklu
meiri áhyggjur ef ég hefði þrátt
fyrir allt ekki leyft þessu að hafa
sinn gang. Setjum þetta i sam-
hengi, kennslima sem ég hef mikla
ást á, myndlistina og skrifin. Ef
þetta er allt vegið er ég viss um að
þessar dekkri hliðar fá nægilegt
mótvægi í allt að því bamslegri
bjartsýni kennslunnar og virki-
lega hreinni og næstum naívri sýn
minni á möguleika okkar til að
fara inn í ævintýraheim eins og
böm.“
„Myndlistin þín er miklu bjart-
sýnni en ritverkin?“-
„Myndlistin mín er gríðarlega
bjartsýn því hún byggir á virki-
lega sterkri þörf til að nálgast
áhorfandann. Ég vil að áhorfendur
upplifl verk mín þannig að þeim
finnist að þeir séu betri en höfund-
ur verkanna eða stærri en þeir
töldu sig vera. Verk mín eru
„empowering", efla trú fólks á
sjálfu sér og umhverfinu, auka
verðmæti raunveruieikans. Þau
eru nánast taóísk í hversdagslegri
framkvæmd. Ég hef verið vændur
um jesúkomplex í sumum tilfell-
um og gengist inn á það. Munur-
inn á okkur Jesú, fyrir utan fað-
emið, er bara sá að hann hafði
engan húmor.“
Mikill harmur
„Maður fær í And Björk, of
course ... sterka tilfinningu fyrir
því að enginn standist nána skoð-
un. Það er svolítil svartsýni í
þessu viðhorfi ... eða er það
kann,ski raunsæi?"
„Já, jú,“ svarar Þorvaldur, „ég
er kominn í svolitla mótsögn við
margt sem ég hef haldið fram. Ég
verð að fara að endurskoða þetta
allt saman því ég er að missa tök-
in, hef ekki lengur heildarlausn að
bjóða. Ég er búinn að gefast upp
gagnvart þversögnunum í sjálfum
mér og verkum mínum, treysti
mér ekki lengur í alhæfingar ufn
hvað ég sé að meina með þessu.
Ég veit ekki hvaðan þau koma,
þessi samtöl sem eru ófullkomin í
þeim skilningi að þau em eins og
eintöl sem hafa verið fléttuð sam-
an. Ég hef aldrei upplifað það sem
neikvætt heldur frekar eins og
eitthvað sem sýnir fegurðina í því
hvað við erum ófullkomin og
hrædd við aff fara alla leið í að
hlusta og svara. Ég hef mikla sam-
úð með þessu fólki því ég þekki
þetta sjálfur. Kannski er það þessi
gamli ótti við að vera ekki heill,
óttinn við að vera heimskur, koma
upp um sig. Koma upp um hvem
þá?“ Þorvaldur setur í snarheitum
upp litið leikrit:
Djöfull kom hann upp um sig í
dag!
Já, hann kom upp um slökkvi-
Helgarblað
liðsmanninn í sér, hann er ekki
búinn að koma upp um pabbann í
sér og enn þá er fjallgöngumaður-
inn í honum alveg ósnertur.
„Samtölin í verkum mínum,“
heldur Þorvaldur áfram, „eru oft
oftúlkuð sem merki um hversu
samskipti eru innihaldslaus, til-
gangslaus eða misheppnuð. Ég hef
aldrei komist til að verja mig varð-
andi það. Ég minnist þess aldrei
að hafa skrifað samtal eða texta í
„Maður á ekki á unga
aldri að vera upptekinn af
því að vera sannur því
maður veit svo lítið um
sjálfan sig á þessum aldri,
þekkir ekki möguleikana.
Maður verður að prófa og
gera mistök til að vita
eitthvað. Við erum svo
upptekin af þessum heið-
arleika og því að vera
sönn. Hvenœr er maður í
þessu eina sanna hlut-
verki? Er ekki réttast að
gefast upp og sœtta sig við
það að á hverju augna-
bliki erum við bara brot
af okkur sjálfum ? Er það
ekki fallegast, langheil-
brigðast og best fyrir melt-
inguna?“
þeim tilgangi að sýna hvað ein-
hver er vitlaus heldur fyrst og
fremst til að sýna hversu mennsk-
ur hann er og líkur okkur öllum.
Það er oft misskilið og túlkað eins
og fólk sé óhæft, illa máli farið,
heimskt eða tali í klisjum."
„Þetta er mikil tragík," skýt ég
inn í.
„Þetta er mikill harmur,“ segir
Þorvaldur. „Ég vil meina að ég
hafi mikla samúð með þeim sem
ég skrifa um.“
í alvörunni...
„Fólk vill oft rugla saman per-
sónum verka og höfundinum sjálf-
um. En ert þú í verkum þínum?
Eru þau þerapía fyrir þig? Af
hverju ertu að skrifa? Af hverju
skrifarðu ekki bara gleðilega söng-
leiki?
„Ég er búinn að því og gæti gert
það aftur,“ svarar Þorvaldur. „Mín
reynsla, í alvörunni ... Ég verð að
fara varlega því það er auðvelt að
segja að ég hafi ekkert með þetta
að gera. í myndinni Imagine brýst
maður inn í garð hjá John Lennon
og spyr hann út í texta sem hann
hafði skrifað. Maðurinn hafði til-
einkað sér þennan texta í lifinu og
ekki gengið vel og kenndi Lennon
um. „Hvað ertu að gera mér?“
spurði hann Lennon sem svaraði:
„Ég veit ekki hvað þú ert að tala
um. Ég er poppari. Ég skrifa
bara.“ Þetta er ein leiðin en samt
er þetta ekki svona einfalt. Ég hef
lent í því að átta mig á því eftir á
að verk sem ég hélt að væri fyrst
og fremst skáldskapur og hug-
myndaflug, Maríusögur, var miklu
tengdara mér en ég hafði gert mér
grein fyrir. En maður verður að
fara varlega, maður veit svo lítið.
Það er ekki hægt að sverja þetta af
sér en maður leggur heldur ekki
upp með sjálfan sig sem aðalvið-
fangsefnið og alls ekki egópartinn,
þennan mikla karakter sem allir
burðast með. Við verðum að geta
treyst því að sköpunin snúist ekki
um egóið. Ég hef gagnrýnt mjög
hjá myndlistarmönnum þá leið að
útskýra verkin sín út frá eigin til-
finningum og meðvituðum upplif-
unum. Þannig er maður afvopnað-
ur í allri umræðu; maður gagnrýn-
ir ekki tilfinningar annars manns
ef þær eru komnar á strigann. Ef
ég lendi í því með nemendur mína
tek ég ofan hattinn og óska þeim
til hamingju með það að þekkja sig
svona vel. Það að „dýfa penslinum
í litaspjald sálar sinnar" er
nokkurn veginn samnefnari fyrir
það sem ég reyni að varast sjálf-
ur.“
-sm
25
Orkuveita Reykjavíkur, Gatnamálastofa Reykjavíkur og
Landssími íslands óska eftir tilboöum í verkið: "Endurnýjun
gangstétta og veitukerfa, 3. áfangi 2002, Gerðin". Endurnýja
skal dreifikerfi hitaveitu, vatnsveitu, rafveitu, síma og gangstéttir
í Akurgerði, Breiðagerði og Búðagerði.
Helstu magntölur eru:
Skurðlengd: 2.820 m
Lengd hitaveitulagna: 3.160 m
Strengjalagnir: 32.000 m
Lagning ídráttarröra: 4.420 m
Hellulögn: 500 m2
Steyptar stéttir: 2.880 m2
Malbikun: 900 m2
Verkinu skal lokið 10. september 2002.
Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með 16.
apríl 2002, gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 24. apríl 2002, kl. 15.00, á skrifstofu
Innkaupastofnunar.
Tilkynning
Fró því ó árinu 1996 hef ég rekið réttingaverkstæði
mitt í samstarfi við sprautuverkstæði Auðuns
Hiimarssonar undir nafninu
„Bílasprautun og réttingar Auðuns".
Því samstarfi er nú íokið og verður nafnið á
, verkstæði mínu eftirleiðis
„RETTINGAVERKSTÆÐI HJARTAR".
Eg mun áfram kappkosta að veita sem besta
þjónustu við tjónaviogerðir líkt og verið hefur á
sama stað, að Smiðjuvegi 56, sími 587-9020, og
með sömu starfsmönnum og áður.
Hjörtur
rg/sy Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, ferðaþjónusta,
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, goifvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
550 5000
Hagæða hjalmar fraTTJRJElcUSAmeð viðurkenndum öryggistöðlum
STOFNAÐ 1925
Skeifunni 11. Sími 588 9890
Söluaöilan Útisport, Keflavík - Hjólabær, Selfossi - Sportver. Akureyri
ByggingavöruversLSauðárkr. Olíufélag útvegsmanna, Isafiröi
Eöalsport, Vestmannaeyjum - Pípó, Akranesi
Trek Scout
f.börn og unglinga
Staerðir SmallAnedium, medium/large
Verð kr. 3.974.-
Trek Vapor
f.börn og fullorðna
Staerðir Small-mediurrvtarge
Verð kr. 3.974.-
[visa- og Euroraðgr.
Hjalmar
Verndaðu mestu
verðmætin
Gerðu góð kaup!
Sama verð og í fyrra!
Opið laugard. 10-16