Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002
Helgarblað________________________________________________________________________________________________DV
Samkvæmt skoöanakönnun-
um á R-listinn að vinna borgar-
stjórnarkosningarnar örugg-
lega. Hver heldurðu að sé skýr-
ingin á þessu góða gengi R-list-
ans?
„í fullri einlægni og alvöru þá
skil ég ekki þessa stöðu, en hún er
sú sama og hún var í aðdraganda
kosninganna 1994 og 1998. Auk
þess að hafa búið í borginni í allan
þann tíma sem R-listinn hefur ver-
ið hér við völd hef ég undanfarið
átt þess kost að skoða stöðu borg-
arinnar mjög vel. Hvort tveggja
gerir það að verkum að ég skil
ekki að við borgarbúar viljum
halda áfram á sömu leið. Hins veg-
ar trúi ég því að niðurstaðan verði
önnur þegar hin endanlega skoð-
anakönnun fer fram 25. maí. Ég
veit líka að um leið og umræðan
um borgarmálin verður meira
áberandi þá mun þetta breytast. R-
listinn sýnir með hægagangi sín-
um og því að hafa ekki enn lagt
fram stefnuskrá sína að hann vill
að umræðan um málefni borgar-
innar fari seint af stað. Það finnst
mér ekki ábyrg afstaða, enda
hljóta kjósendur að gera þá kröfu
til stjórnmálamanna að þeir skýri
áherslur sínar fyrir kjósendum.
Ein skýringin á stöðu R-listans í
borginni kann að vera sú að
vinstri menn biðu lengi eftir því
að komast til valda hér. Þeim
finnst mikilvægt að viðhalda
þeirri tilraun til sameiningar
vinstri manna sem hefur verið hér
í Reykjavík. Ég heyri suma segja
að R-listasamstarfiö verði að halda
af þvi að vinstri menn verði að fá
að reyna sig saman. Það tókst ekki
í landsmálunum og þess vegna
leggja menn áherslu á að þetta
samstarf haldi í borginni."
- Límið í þessu samstarfl er
Ingibjörg Sólrún sem er öflugur
leiðtogi og nýtur mikils trausts,
Hvaða skoðun hefurðu á henni?
„Ég held að hennar áherslur í
borginni séu ekki til árangurs
fallnar. Helsta afrek hennar hefur
verið að halda saman í átta ár afar
ólíku fólki með afar ólíkar skoðan-
ir. Við skuliun ekki gleyma því að
þetta er sama fólkið og tekst á af
mikilli hörku í landsmálapólitík-
inni. Vinstri grænir og Framsókn-
arflokkurinn segjast á þeim vett-
vangi ekki eiga neitt sameiginlegt
og það sama er að segja um af-
stöðu beggja til Samfylkingarinn-
ar. Ingibjörgu Sólrúnu tekst að
halda þessu fólki saman fyrst og
fremst með algeru aðgerðaleysi í
málefnum borgarinnar."
- Heldurðu að hún fari fljót-
lega í landsmálapólitíkina?
„Ingibjörg Sólrún er fulltrúi
Samfylkingar í borgarstjórn og
mér sýnist að hún muni á næst-
unni taka við pólitísku forystu-
hlutverki þar. Staða formanns
Samfylkingar er veik og vegna
þess er líklegt að samfylkingarfólk
horfi í aðrar áttir eftir forystu-
manni.“
R-listinn ítrekað gengið á
bak orða sinna
- Er málefnastaða ykkar sjálf-
stæðismanna nægilega traust í
baráttunni um borgina? R-list-
inn segir málefnaskrá ykkur
vera innihaldslausan loforða-
lista.
„Málefnastaða okkar er mjög
sterk og ég hlakka mikið til að
koma þeim áherslum í fram-
kvæmd. Þar kynnum við meöal
annars leiðir til að lækka skatta,
eyða biðlistum eftir þjónustu,
bæta menntun barnanna okkar og
tryggja að Reykjavík verði á ný i
fyrsta sæti. Þessi orð R-listans um
stefnuskrána segja meira um þau
en okkur, enda hefur R-listinn ít-
rekað gengið á bak þeirra loforða
sem hann hefur gengið fram með í
kosningum. Þetta er hins vegar
ekki háttur Sjálfstæðisflokksins og
það vita kjósendur. Þeir vita
einnig að Bjöm Bjarnason er mað-
ur sem stendur við sin orð. Við
munum standa við þennan að-
gerðalista, sem nær til næstu íjög-
urra ára og inniheldur skýra sýn
DV-MYND E.ÓL
Hanna Bima Kristjánsdóttir
„R-listinn hefur rekiö borgina eins og áhættufyrirtæki, takandi lán á lán ofan og veltandi fjármunum á milli
sjóöa, fyrirtækja og stofnana. Hlutverk borgarinnar er aö mínu mati fyrst og fremst aö sinna þjónustu viö borg-
arbúa og ef hún gerir þaö ekki þá er hún aö bregöast. Reykjavík er því miöur oröin borg biölistanna. “
Borgin er rekin eins
og áhættufyrirtæki
- segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, í fjórða sæti D-listans í Reykjavík.
I viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur ræðir hún meðal annars
um stöðu flokksins, verk R-listans og Davíð Oddsson.
okkar á borgina. í honum er ekk-
ert sem við hyggjumst víkja frá
eða víkja okkur undan.“
- Hvar finnst þér R-listinn
helst hafa brugðist?
„Fyrst og fremst hefur R-listan-
um mistekist að treysta stöðu
borgarinnar sem fyrsta valkost
fólks og fyrirtækja. Reykjavík er
höfuðborg landsins og hefur
ákveðnum skyldum að gegna en
Ingibjörg Sólrún segir engu skipta
hvort fyrirtæki eða fólk komi
hingað eða fari í Kópavog og Hafn-
arfjörð því allt sé þetta eitt svæði
og það sé einfaldlega of dýrt fyrir
borgina að fá fleiri íbúa. Mér
finnst þetta sérkennileg afstaða,
enda eigum við að nálgast verk-
efni borgarinnar af miklu meiri
metnaði og tryggja að aðstæður
hér séu eins góðar og þær best
geta orðið.“
R-listinn hefur rekið borgina
eins og áhættufyrirtæki, takandi
lán á lán ofan og veltandi fjármun-
um á milli sjóða, fyrirtækja og
stofnana. Hlutverk borgarinnar er
að minu mati fyrst og fremst að
sinna þjónustu við borgarbúa og ef
hún gerir það ekki þá er hún að
bregðast. Reykjavík er þvi miður
orðin borg biðlistanna. Hér eru
biðlistar eftir leikskólaplássum,
biðlistar eftir hjúkrunarrýmum,
biðlistar eftir lóðum og biðlistar
eftir félagslegum íbúðum. Og það
sem verst er er að R-listinn talar
um þetta ástand eins og það sé
óumbreytanlegt lögmál. Ég segi að
þetta sé ekkert lögmál. Ástandið er
ekki svona hjá nágrannasveitarfé-
lögunum. Mér finnst því R-listinn
hafa fengið sitt tækifæri hér í
Reykjavík, það hefur staðið í átta
ár og þeir hafa því miður ekki nýtt
þann tíma nægilega vel.“
„Við skulum ekki gleyma
því að þetta er sama fólk-
ið og tekst á af mikilli
hörku í landsmálapólitik-
inni. Vinstri grœnir og
Framsóknarflokkurinn
segjast á þeim vettvangi
ekki eiga neitt sameigin-
legt og það sama er að
segja um afstöðu beggja
til Samfylkingarinnar.
Ingibjörgu Sólrúnu tekst
að halda þessu fólki sam-
an fyrst og fremst með al-
geru aðgerðaleysi í mál-
efnum borgarinnar. “
Verðum ekki í minnihluta
Einn aðaUykillinn að
sterkri stööu Sjálfstæðisflokks-
ins í landsmálum er leiðtoginn,
Davíð Oddsson. Andstæðingarn-
ir tala hins vegar um yfirgang
hans, hroka og ráðriki. Hvert er
þitt mat á Davíð sem leiðtoga og
persónu?
„Ég er sannfærð um að Davíð er
í hópi allra öflugustu leiðtoga sem
Sjálfstæðisflokkurinn og þjóðin
hefur átt, ef ekki sá öflugasti. Þaö
ræðst ekki bara af því hversu
skýra pólitíska stefnu og sýn hann
hefur heldur ekki síður af því
hvað hann hefur gott skynbragð á
fólk og les vel í stöðuna hverju
sinni. Davíð er því í mínum huga
leiðtogi i besta skilningi þess orðs,
hann er næmur og hlýr maður og
vill af miklum metnaði tryggja ís-
landi stöðu meðal þeirra þjóöa
sem best standa. Það eru þessir
eiginlegar hans sem hafa skapað
honum þá stöðu sem hann hefur i
íslenskum stjómmálum."
- Þetta er í fyrsta sinn sem þú
ferð út í harða pólitíska bar-
áttu. Hvernig kanntu við það?
„Mér finnst það bæði lærdóms-
ríkt og gaman. Ég hef mjög mikinn
áhuga á stjórnmálum og mér
finnst frábært að fá að vinna að
þeim með öllu þvi frambærilega
fólki sem er á lista Sjálfstæðis-
flokksins. Ég hef reyndar tekið
þátt í stjórnmálum talsverðan
tíma en þegar mér var boðið sæti
á listanum mat ég það þannig að
ég væri tilbúin til að hella mér út
í pólitík af meiri krafti. Ég er mjög
sátt við þá ákvörðun. Stór þáttur í
henni var sá að mig langar að
vinna með Birni Bjarnasyni, enda
ber ég mikið traust til hans, hef
fylgst með verkum hans og þekki
þann mikla styrk sem hann hefur
til að bera sem stjórnmálamaður.
Ég veit að hann mun treysta stöðu
borgarinnar og vinna að málefn-
um hennar af sama krafti, heiðar-
leika og framsýni og hann sinnir
öðrum verkum. Mér finnst mikil-
vægt að hans áherslur komist að í
þessari borg og í krafti þess fannst
mér þetta tækifæri sem ég gæti
ekki látið mér úr greipum ganga.“
- En það er ekki sérlega lokk-
andi hlutskipti að vera í minni-
hluta í borgarstjórn.
„Við verðum ekki í minnihluta.
Ég er sannfærð um að Björn
Bjamason verður næsti borgar-
stjóri í Reykjavík og ég hlakka
mikið til að takast á við verkefni
borgarinnar. Mér finnst Reykjavík
fuU af ónýttum tækifærum sem
mig langar að eiga þátt í að nýta
til að gera þessa borg enn betri."
- Þú sérð fyrir þér framtíð í
pólitík?
„Já, ég sé alveg fyrir mér fram-
tíð í pólitík. Þetta er vettvangur
sem mig langar til að takast á við.
Ég sé kostina og ég sé gallana en
kostimir eru miklu fleiri. Ég veit
fátt meira spennandi en stjómmál
og sé ekki fyrir mér að eitthvað
gerist sem verði til þess að ég hörfi
frá þeim. í dag er þetta það sem
mig langar mest til að gera.“