Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.2002, Page 43
55 LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2002 H>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Billy Joel Hann er sagöur hafa verið fullur á tónleikum. Billy Joel: Of mikil hóstasaft Söngvarinn og píanóleikarinn Billy Joel og Elton John ætluöu að fara saman í stutta tónleikaferð um Bandaríkin. Þeirri ferð hefur nú verið aflýst af óviðráðanlegum ástæðum og segja talsmenn Joels að hann eigi við mjög slæmt kvef að stríða. Þeir félagar komu saman fram i upphafi ferðarinnar í Madison Square Garden í New York og þeir sem þar voru áttuðu sig fljótlega á hinni raunverulegu ástæðu fyrir frestuninni. Á þeim tónleikum var Billy Joel sýnilega töluvert drukk- inn og söng stundum alls ekki í takt eða tón við félaga sinn Elton John. Eitt sinn fór hann svo hastarlega út af laginu að Elton sagði upphátt við áhorfendur: Guð minn góður, og gretti sig. Joel var mjög þvoglumæltur, hélt langa og sundurlausa ræðu og talaði mikið um ameríska hermenn og sögustaði tengda stríðsrekstri Am- eríkana gegnum tíðina. Enginn skildi neitt en þegar tilkynnt var að Joel þjáðist af slæmu kvefi og hefði tekið inn heldur mikið af hóstasaft skildu flestir hvað átt var við. Má ekki halda á byssu Hetjuleikarinn Steven Seagal, sem er þekktur fyrir að leika ofúrhetjur sem yfirbuga heilu herskipin án þess að hárgreiðslan ruglist, er eitt af vin- sælustu hörkutólum þess háttar kvik- mynda. Nú berast fréttir af því að sam- starfsmaður hans ætli i mál við harð- jaxlinn vegna þess að hann sé orðinn svo mikill friðarsinni að hann megi ekki lengur halda á byssu hvað þá meira. Þessi samstarfsmaður, sem heitir Julius Nasso, segir að þeir hafi gert með sér samning um gerð fjögurra mynda en .síðan hafi Seagal farið að sækja tíma hjá búddakennara sem hafi sannfært hann um að snúa frá þessari villu síns vegar og hreinlega Steven Seagal Sagt er aö hann sé oröinn búddisti og megi ekki halda á byssu. heilaþvegið hann svo hann muni aldrei leika í hasarmynd aftur því það stríði gegn vitund búddismans. Nasso hefur höfðað mál vegna þess- ara samningsrofa og krefst 20 mUljón dollara í skaðabætur en fulltrúar Seagals segja að þessi málatilbúnaður sé algerlega byggður á sandi. Pabbi bað um fyrirgefningu Það hefur stundum verið sagt að máttur óskarsverðlaunanna sé nokkuö mikill en þá er einkum átt við áhrif þeirra á feril leikara. Halle Berry leikkona vakti mikla athygli þegar hún veitti sínum verðlaunum viðtöku á dögunum. í kjölfar verðlaunanna hafði fað- ir hennar skyndilega samband við hana og bað hana fyrirgefningar á Halle Berry Hún þekkti aldrei fööur sinn. áralöngu afskiptaleysi en hann yf- irgaf Halle og móður hennar þegar Halle var aðeins fjögurra ára. Fað- irinn, sem er kominn nokkuð á efri ár og þjáist af parkinsonveiki, vill endilega hafa samband við dóttur sína þótt seint sé. Halle mun hafa tekið þessari síðbúnu fyrirgefningarbeiðni fálega enda hefur hún opinberlega sakað foður sinn um að hafa beitt sig og móð- ur sína ofbeldi. Byggðu á þínum tíma »■****- Klukkubúðir í þínu hverfi Grafarvogi | Ármúla | Vestur í bæ | Kópavogi Tími þinn er það sem skiptir mestu máli þegar þú vinnur að viðhaldi og nýbyggingu. Hjá Klukkubúðum Húsasmiðjunnar nýtur þú góðs af rúmum afgreiðslutíma, miklu vöruúrvali og fyrsta flokks þjónustu. Við erum í Grafarvogi, Ármúla, vestur í bæ og höfum opnað nýja Klukkubúð við Dalveg 4 í Kópavogi. HÚSASMIÐJAN www.husa.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.