Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Síða 21
21 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002 PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Hjartað lagt á veisluborðið - Stefán Baldursson talar um sorgina og gleðina í Veislunni Líklega er Veislan eftir Thomas Vinterberg best heppnaða dogma- myndin. Efni myndarinnar er átak- anlegt og dogma-formið var einstak- lega trúverðugt: núorðið eru skjálf- hentir ættingjar með vídeómynda- vélina á lofti í hverri fjölskyldusam- komu. Á fimmtudagskvöldið var Veislan frumsýnd á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins. Leikgerðin er eftir Thomas Vinterberg og Mog- ens Rukov en aðlögun handritsins eftir Bo hr. Hansen. Leikstjóri er Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri. „Kvikmyndin er mjög dramatísk og leikaravænleg mynd; sagan er sterk og mikið af góðum hlutverk- um,“ segir Stefán. „Þegar við ákváð- um að setja verkið upp vorum við spurð; af hverju? Myndin væri til og hún væri góð. En það er eins með þetta og öll góð handrit, hægt að setja þau upp á hundrað vegu. Góð leikrit eru sýnd aftur og aftur. Við tókum því handritið og reyndum að gleyma tilvist kvikmyndarinnar í forvinnunni og á æfingum. Við ákváðum að gera leiksýningu sem lifði sínu sjálfstæða lífi. Og það seg- ir sig sjálft að nálgun okkar er önn- ur en í kvikmyndinni." Stemning og hátíðleiki Umfjöllunarefni verksins, sifja- spell, hefur verið áberandi í íslensk- um leikhúsum í vetur. í Hafnar- fjarðarleikhúsinu voru Englaböm Hávars Sigurjónssonar sýnd í haust, fyrr í vetur sýndi Nemenda- leikhúsið íslands þúsund tár eftir Elísabetu Jökulsdóttur og And Björk, of course... var frumsýnt fyr- ir hálfum mánuði í Borgarleikhús- inu. Stefán segir þessa umfjöllun brýna en það sé algjör tilviljun að þessi verk séu sýnd á sama leikár- inu. „Aðalefni Veislunnar er skelfi- lega sorglegt. Mér þótti spennandi að vinna þannig úr efniviðnum að áhorfendur upplifðu góða leikhús- ferð,“ segir Stefán. „Sagan er ekki bara sorgleg og átakanleg heldur líka skemmtileg þótt það kunni að hljóma mótsagnakennt: eins og í öll- um veislum og lífinu sjálfu skiptast á skin og skúrir. Það er sungið og dansað í Veislunni en hún er síðan brotin upp með öllu óhugnanlegri augnablikum.“ Sá hráleiki sem var svo sannfær- andi í kvikmyndinni verður í leikrit- inu að nálægð; á sviðinu er stórt veisluborð og við það er blandað sam- an leikurum og áhorfendum. Enginn áhorfandi er fjær borðinu en svo að hann getur alltaf fundið lyktina af réttunum sem bornir eru fram. „Við kusum fljótt að reyna að skapa ööruvísi rými utan um sýn- inguna; fá meiri nálægð og gefa áhorfendum þannig sterkari tilfinn- ingu fyrir því að þeir væru með í veislunni án þess að gera kröfu um mikla þátttöku. Mörgum þykir sú krafa óþolandi og er ég þar á meðal. Við látum áhorfendur því í friði en þeir nýtast sem hluti af umhverfinu og skapa sterkari stemningu og há- tíðleika." Stefán svarar neitandi spuming- unni um hvort það geti ekki verið hættulegt að hafa áhorfendur svona samtvinnaða sýningunni. „Ég held að þetta sé saklaust og skemmtilegt þegar fólk er ekki krafið um þátt- töku. Ef leikaramir myndu örva áhorfendur til að taka þátt gæti veislan hæglega farið úr böndunum og atburðarásin ruglast. Á þeim æf- ingum sem áhorfendur hafa verið hefur fólk verið feimið við að setjast hjá leikurunum. Eftir á segja flestir að þeir hefðu hvergi viljað vera annars staðar en við sjálft veislu- borðið." Meiri tilfinningahiti „Raunsæi er leikstíll sem gaman er að vinna með; áhorfandinn þarf að trúa á þetta fólk þegar hann er innan um það. Engu að síður verð- ur að vinna verkið út frá aðferðum og forsendúm leikhússins því það þýðir ekki að leika of dempaðan kvikmyndaleik. Hlutverk Hilmis Snæs Guðnasonar er dálitill mönd- ull i sögunni og i kvikmyndinni er persóna hans nánast sljó en mikið að gerast í andliti hans og augum. Við forum aðrar leiðir í leikritinu enda lítið spennandi ef hann sæti al- gjörlega passívur við veisluborðið. I leiksýningunni er meiri tilfinninga- hiti og meiri áþreifanleg og augsýni- leg átök heldur en í kvikmyndinni." Hlutverk Veislunnar em gríðar- lega krefjandi og til þess að verkið nái flugi þarf góða leikara. í hópn- um sem Stefán hefur unniö með era margir afbragðsleikarar. „Þetta er einvalalið og ég er gríðarlega ánægður með frammistöðu þeirra allra í þessum frábæra leikhópi," segir Stefán, „og það era auðvitað forréttindi að vinna með snillingi eins og Hilmi. Allir leikarar sýning- arinnar þurfa að uppfylla strangar kröfur því í raun era öll hlutverkin aðalhlutverk. Leikaramir era mikið inni á sviðinu, áhorfendur allt um kring og því þurfa persónumar að vera sannar á hveiju einasta andar- taki.“ Tilfinningamar sem unnið er með í sýningunni eru miklar og erf- iðar. „Starf leikarans er að vinna með tilfinningar allan daginn. Ég hætti aldrei að undrast hvað frábærir leikarar fara langt og ganga nærri sér; rífa úr sér hjartað og henda framan í áhorfendur aftur og aftur.“ -sm Hjartanu hent framan í áhorfendur „Ég hætti aldrei aö undrast hvaö frábærir ieikarar fara langt ogganga nærri sér; rífa úr sér hjartaö og henda framan í áhorfendur aftur og aftur, “ segir Stefán Baldursson. Á myndinni er Inga María Valdimarsdóttir í hlutverki Mettu. DV-MYND E.ÓL. Nálægðln í Veislunni „Viö kusum fljótt aö reyna aö skapa ööruvísi rými utan um sýninguna; fá meiri nálægö og gefa áhorfendum þannig sterkari tilfinningu fyrir því aö þeir væru meö í veislunni án þess aö gera kröfu um mikla þátttöku. Mörg- um þykir sú krafa óþolandi og er ég þar á meöal. Viö látum áhorfendur því í friöi en þeir nýtast sem hluti af umhverfinu og skapa sterkari stemningu og hátíöleika. “ Sígildur ostur í nýj'um búningi auðveldari í meðförum - jafnari gæði rm www.ostur.is íslenskir ostar - hreinasta afbragð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.