Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2002, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2002
23
DV
Helgarblað
.
DV-MYND ÞÖK
Páll Halldórsson og Greta Onundardóttlr
Saman betjast þau fyrir líft 32 ára gamals sonar Páls sem er langt leiddur sprautufíkill. Baráttan hefur staöiö í 16 ár en árangur þessa björgunarleiöangurs er enn óljós.
til þess sem ávísaði lyfinu. Það
hafði engin sérstök áhrif og þótt við
séum viss um að landlæknir vilji
gjaman gera eitthvað í þessu þá
virðist hann ekki hafa völd til þess,“
segir Greta.
„Það er erfitt að ímynda sér að
landlæknir vilji að læknar, sem
fóðra fíkla á töflum, starfi. í mínu
gamla starfi giltu alveg skýrar regl-
ur um það hvenær menn máttu
fljúga og hvenær ekki. Það gildir
greinilega ekki sama um allar stétt-
ir. Svo er reynt að halda því fram að
ef þessir menn séu ekki fóðraðir á
dópi þá leggist þeir bara í afbrot og
allt verði vitlaust. Þetta er ekki
nógu góð afsökun og málið getur
ekki verið svona einfalt," segir Páll.
„Maður getur ekki annað en fyllst
reiði út í heilbrigðiskerfið og þá
lækna sem skrifa upp á örorku fyr-
ir fiklana en eru kannski að fjölga
viðskiptavinum hjá sér í leiðinni.
Þetta er endalaus martröð." - Þau
hjónin segjast aldrei hafa reynt að
ræða þetta mál við þá lækna sem í
hlut eiga fyrr en í umræddu bréfi.
En hvað vilja þau sjá að gerist í
framhaldi af þeirri umræðu sem nú
er farin af staö?
Sennilega gerist ekkert
„Auðvitað vonum við að opin um-
ræða hafi loksins einhver áhrif en
sennilega gerist ekki neitt,“ segir
Greta og Páll kinkar kolli til sam-
þykkis.
- En hvað mynduð þið vilja sjá
gerast?
„Það væri stórt skref fram á við
að skrúfa fyrir læknadópið. Við vit-
um ekkert um það hve margir fikl-
ar eru háðir því en þeir skipta
áreiðanlega tugum. Fólk sem hefur
sótt í læknadóp hefur sagt frá því
opinberlega að því hafi liðið eins og
í reykstofunni á Vogi þegar það sit-
ur í biðstofu læknisins. Þar eru að-
eins fiklar."
- Að undanfómu hafa birst fréttir
í blöðum um fimm dauðsfoll langt
genginna fikla, þar af tvö á síðustu
þremur vikum. Þótt ekkert hafi ver-
ið staðfest um það opinberlega heyr-
ast sögur um að morfintöflur ávís-
aðar af læknum hafi komið við sögu
einhverra þessara dauðsfalla. Urðu
þær fréttir til þess að þið ákváðuð
að fara út í þessa baráttu?
í biðsal dauðans
„Okkur hefur lengi langað til að
láta rödd okkar heyrast en þegar
við heyrðum fréttimar af stóra
skammtinum, 900 töflum frá sama
lækni til sama fikils á skömmum
tíma, þá var það dropinn sem fyllti
mælinn. Það er alltaf talað um þetta
sem vandamál þeirra einstaklinga
sem eru háðir eiturlyfjum en sjón-
armiö hins stóra hóps aðstandenda
heyrist alltof sjaldan. Þetta fólk er
allt i heljargreipum allan daginn og
það tók mjög á að hlusta á símtöl
sumra þeirra örvæntingarfullu að-
standenda sem hingaö hringdu.
Þetta var sú rödd sem við vildum að
heyrðist í umræðunni. En fyrst og
fremst eru það læknamir sem við
viljum reyna að stöðva, þessa lækna
sem drepa I stað þess að lækna. Þeg-
ar við heyrum þessar fréttir um
dauðsfoll af of stórum skammti þá
verðum við hrædd um líf sonar okk-
ar. Hann er kannski kominn í bið-
sal dauðans þama úti þar sem hver
sprauta getur orðið sú síðasta."
Flugstjórinn er lentur
- Páll vill ekki að menn kalli
hann þjóðhetju eftir ferilinn í starfi
sínu hjá Landhelgisgæslunni. Hann er
sextugur síðan í febrúar á þessu ári en
fyrir einu og hálfu ári missti hann
flugréttindin af heilsufarsástæðum.
Hann segir að lengi vel hafi hann litið
á þennan tíma sem biðtíma eftir rétt-
indunum á ný en sé að sætta sig við að
líklega sé þetta endanlegt. Flugmenn
mega almennt starfa til 65 ára aldurs.
„Ég var ekkert á leiðinni að hætta.
Mér fannst þetta svolítið erfitt hlut-
skipti en það er ekkert að gera annað
en að sætta sig við þetta og fmna bara
eitthvað annað skemmtilegt að gera.“
-PÁÁ
boðið ijiltlii Iiíí 2l).til 30. apríl 2UU2.
áleggstegundir:
ostur, sósa, sveppir,
laukur, paprika, svartar
ólífur, tómatar og
grænmetiskrydd.
1 ÞÚ SÆKIR