Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2002, Qupperneq 26
34
Rafpóstur: dvsport@dv.is
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002
Kynning á úrvalsdeild
kvenna 2002 4SBSÞ
Olga með 28
mörk í fýrra
Hér til hægri sjást íslands-
meistarar Breiðabliks í
fyrra en Breiðablik hefur
unnið titilinn tvö síðustu
árin og alls 14 sinnum frá
upphafi eða oftast allra fé-
laga í kvennaflokki.
DV-mynd E.ÓI.
Olga Færseth átti frábært sum-
ar með KR í fyrra og vann til
allra verðlauna sem einstak-
lingur gat unnið, þar á með-
al var hún kosin besti leik-
maður deildarinnar af
mótherjum sínum. Olga er
hér til hliðar með tvo af
gullskóm sínum sem marka-
drottning úrvalsdeUdarinn-
ar. KR-liðið náði þó ekki að
hampa neinum titlum þrátt
fyrir mörkin hennar.
Olga skoraði alls 28 mörk i
leikjunum 14 i fyrrasumar og
hefur skorað 54 mörk á síðustu
tveimur sumrum. Olga bætti
einnig markamet Ástu B. Gunn-
laugsdóttur í júlí í fyrra með sínu
155. marki á ferlinum.
Olga hefur farið vel af
stað í vor og setti með-
al. annars marka-
met með 17
mörkum
deUdabik-
arnum í
ti
vor.
-ÓÓJ
vera í nokkrum sérflokki en önn-
ur lið deildarinnar eru hins veg-
ar jafhari en ofl áður og það gæti
því stefnt í hörkubaráttu um önn-
ur sæti deildarinnar, titillinn er
aftur á móti á leiðinni í
Vesturbæinn.
íslandsmeistarar Breiðabliks
hafa misst marga leikmenn en
einnig fengið sterka leikmenn til
baka því Margrét Ólafsdóttir er
komin heim auk flögurra ann-
arra ungra stúlkna frá Val,
Grindavík og Víði. Blikastúlkur
hafa mikla hefð með sér í liði og
verða seint afskrifaðar, það hafa
þær sýnt undanfarna áratugi.
ÍBV náði sínum besta árangri
frá upphafi í fyrra en liðið hefur
gengið í gegnum miklar breyting-
ar í vetur. ÍBV verður án fyrir-
liða síns, írisar Sæmundsdóttur
sem veikir sérstaklega vörnina
en miðjan hefur aftur á móti
styrkst með tilkomu þeirra Lauf-
eyjar Ólafsdóttur og Rakelar
Logadóttur. Eitt er þó víst að El-
ísabetar Gunnarsdóttur bíður
krefjandi frumraun í efstu deild
en reynist Skotarnir vel í vörn-
inni og haldi Bryndís Jóhannes-
dóttir áfram að hrella markverði
mótherjanna er ýmisfegt í spilun-
um í Eyjum í sumar.
Vcdskonur kórónuðu góða
haustmánuði með bikarmeist-
aratitli í fyrra og þar streyma
leikmenn upp í meistaraflokk úr
hinum sigursæla öðrum flokki fé-
lagsins. Til að Valsliðið blómstri
í sumar þurfa hins vegar margar
þessara ungu stelpna að komast
yfír „annars-árs vegginn" svo-
kallaða. Þær sýndu síðasta sum-
ar að þær eru efni I góða feik-
menn en nú er meiri pressa á
þeim um að standa sig og þær
þurfa að komast yflr það að vera
efnilegar í það að verða góðar.
Helena Ólafsdóttir þekkir hvað
þarf tO að vinna og það verður
gaman að sjá hvernig stelpurnar
þroskast undir hennar stjórn.
Stjaman dalaði nokkuð á síð-
asta tímabfli eftir frábært ár þar
á undan en þær hafa sýnt í gegn-
um tiðina að liðið getur unnið öfl
liö og þær eru líka eina liðið sem
hefur unnið KR, Breiðablik og
ÍBV í vormótunum. Stjaman hef-
ur endurheimt fyrirliða sinn,
Heiðu Sigurbergsdóttur, úr barn-
eignarfríi og það gæti fært þeim
stöðugleikann á miðjuna sem
kannski skorti síðasta sumar.
Af öðrum liðum má búast við
harðri baráttu FH og Þór/KA/KS
um að sleppa við umspflið en
bæði þessi lið hafa sýnt miklar
framfarir í vor og gætu fyrr en
varir farið að stefna hærra upp
tölfuna. Grindavík á hins vegar
erfitt tlmabfl fyrir höndum og
bíður það verkefni að sfeppa með
sem minnst töp úr leikjunum.
Sigur eða stig virðast hreinlega
ekki vera raunhæf markmið
fyrir liðið í sumar.
DV-Sport mun halda áfram að
fjalla vel um stelpumar og
einkunnagjöf blaðamanna verður
tfl staðar eins og tvö siðustu
sumur. -ÓÓJ
M Úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld:
Qgnar einhver KR?
ÚrvalsdeOd kvenna í knatt-
spyrnu hefst i kvöld með heflli
umferð en í DV í dag má finna
glæsflega kynningu
DV-Sport á átta
liðum defld-
arinnar.
Þar má
fmna
myndir og upplýsingar um afla
leikmenn defldarinnar.
í spá fyrirliða þjálfara og for-
ráðamanna á dögunum fékk lið
KR yfirburðakosningu og ef
marka má mikinn liðstyrk KR-
liðsins í vetur þá ætti spurning
sumarsins aðeins að vera um
hvort eitthvert lið ógni KR.
KR hefur misst af titlinum tfl
Breiðabliks tvö síðustu ár á að-
eins samtals sex stigum þrátt fyr-
ir að hafa skorað 56 fleiri
mörk en íslandsmeistaramir í
leikjunum 28. Það efast því eng-
inn um sóknarstyrk Vestur-
bæjarliðsins en með tflkomu
landsliðsmarkvarðarins,
Þóru B. Helgadóttur, og
systur hennar og fands-
liðsfyrirliða, Ásthfldar
Helgadóttur, á miðjuna
er hætt við því að róður-
inn verði þungur fyrir
önnur lið defldarinnar.
Ekki má gleyma því að
við stjómvölin hjá KR er
nú komin Vanda Sigur-
geirsdóttir sem hefur
skflað íslandsmeist-
aratitli öO fjögur ár sín
sem þjálfari í efstu
defld kvenna og enn
fremur 52 sigrum og
engu tapi í þeim
56 leflfium sem
hún hefur
stjómað með
Breiðabliki
(1994-96) og
KR (1999).
KR virðist
keppni i hverju orði
Bobby Jackson hjá Sacramento Kings í baráttu viö þá Lindsay Hunter og Derek Fisher hjá Los Angeles Lakers.
Úrslitakeppni NBA:
Sacramento jafnaði
- á heimavelli gegn LA Lakers
Sacramento Kings tókst að jafna
metin, 1-1, í einvíginu gegn Los
Angeles Lakers i úrslitum Vestur-
defldarinnar með þvi að sigra í öðr-
um leiknum í Sacramento aðfar-
amótt þriðjudagsins, 96-90.
Sacramento hafði góða forystu,
89-74, þegar sex og hálf minúta var
eftir af leiknum en gaf eftir á enda-
sprettinum. Það nægði þó ekki
Lakers sem misnotaði mörg góð
tækifæri tfl að komast inn í leik-
inn.
Los Angeles Lakers leið fyrir það
að Kobe Bryant var ekki hefll
heflsu eftir að hafa fengið matar-
eitrun nóttina fyrir leikinn. Það
hindraði hann þó ekki í því að
skora 22 stig í leiknum. Shaquifle
O’Neal var stigahæstur hjá Lakers
með 35 stig og tók 12 fráköst, Rick
Fox skoraði 10 stig og Robert Horry
skoraði 8 stig og tók 20 fráköst.
Chris Webber var atkvæðamestur
hjá Sacramento, skoraði 21 stig og
tók 13 fráköst. Mike Bibby skoraði
20 stig og gaf 8 stoðsendingar,
Bobby Jackson skoraði 17 stig og
Vlade Divac skoraði 15 stig og tók
14 fráköst fyrir Sacramento.
Celtics jafnaði metin
í Austurdeildinni mættust New
Jersey Nets og Boston Celtics í
öðmm leik liðanna á heimavelli
Nets í New Jersey og unnu
gestimir þar sannfærandi sjö stiga
sigur, 86-93, og jöfhuðu þar með
stöðuna í einvíginu í 1-1.
Antoine Walker var stigahæstur
í liði gestanna með 26 stig, auk þess
sem hann tók 11 fráköst, en næstur
kom Paul Pierce með 18 stig og 14
fráköst.
Jason Kidd var aflt í öllu hjá
Nets með þrennu, skoraði 23 stig,
tók 16 fráköst og átti 10 stoö-
sendingar. -ósk/EK