Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2002, Qupperneq 18
18
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002
Tilvera DV
Hálfrar aldar afmæll morgunsöngs í Laugarnesskóla
Nemendur í Laugarnesskóla og fimm ára börn úr leikskólum hverfisins sungu í morgun viö hátíölega athöfn.
Söngurinn
skapar samkennd
- segir Helgi Grímsson, skólastjóri Laugarnesskólans
Nemendur í Laugamesskóla og
fimm ára böm úr leikskólum
hverfisins sungu í morgun viö há-
tíðlega athöfn. Tilefnið var útgáfa
á sönghefti skólans og meðfylgj-
andi geisladiskum vegna háifrar
aldar afmælis morgunsöngs í
Laugamesskóla á síðasta ári. Sér-
stakir gestir hátíðarinnar vora
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri, Stefán Jón Hafstein, for-
maður fræðsluráðs, og Gerður G.
Óskarsdóttir fræðslustjóri.
Þrjú lög voru valin og flutt af
nemendum skólans og fimm ára
bömum af leikskólunum Hofi,
Lækjarborg og Laugaborg. Söng-
stjómin var í höndum hátíðar-
gesta og skólastjóra en píanóund-
irleik önnuðust tónmenntakenn-
arar skólans.
Helgi Grímsson, skólastjóri
Bíógagnrýní
Laugamesskóla, segir þessa hálfr-
ar aldar gömlu hefð vera
ómissandi þátt í starfsemi skól-
ans. „Bömunum finnst þetta mjög
skemmtilegt, þetta skapar einnig
mikla samkennd. Þau læra að
sjálfsögðu fjölmörg sönglög og
einnig læra þau að koma fram í
hópi og taka tillit til annarra. Auk
þess er þetta yndisleg byijun á
deginum," segir Helgi.
Lögin í söngbókinni eru þau
sömu og sungin era í morgun-
söngnum og eru sambland af ætt-
jarðarlögum, bamalögum og lög-
um úr Disney-myndunum. Helgi
segir bömin eiga sín uppáhaldslög
sem þau taki jafnan undir fullum
hálsi. Má þar nefna lög eins og
Hittu naglann á höfuðið eftir Ólaf
Hauk Simonarson, Vinalagið (Ég
er vinur þinn) úr Leikfangasögu, í
grænum sjó úr Litlu hafmeyjimni,
Hafið bláa hafiö og öxar við ána.
Morgunsöngurinn hófst, eins og
áður segir, fyrir fimmtiu og einu
ári. Að sögn Helga byrjaði þessi
hefð fyrir tOstilli nefndar sem sett
var á laggirnar 22. október 1951 og
bar nafnið „Agi og venjur." Nefnd-
in taldi að söngurinn væri eitt af
því sem aukið gæti aga í skólan-
um og þótti auk þess skemmtileg
venja. Upphafsmaður morgun-
söngsins var Ingólfur Guðbrands-
son, tónlistar- og ferðafrömuður,
en hann stjórnaði söngnum fyrstu
árin. Þá lék Magnús Eiríksson
undir og stjómaði oft morgun-
söngnum frá upphafi og þar til
hann hætti kennslu 1974.
-BB
Drepin úr leiðindum?
Regnboginn - Killing me softly: i
Sif
Gunnarsdöttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Það verður að segjast eins og er
að það besta við að fara að sjá
kvikmyndina Killing me softly er
að á undan henni er sýnt úr nýju
Lord of the Rings-myndinni, The
Two Towers, og nýjustu James
Bond-myndinni. Lord of the
Rings-framhaldið sýnist ætla að
vera alveg jafnmikil kvikmynda-
veisla og sú fyrsta og Bond virðist
líka vera í finu formi, enda ekki
ónýtt að hafa nýbakaða ósk-
arsverðlaunaleikkonu, Halle
Berry, til að leika aðalbondbeibið.
En svo lauk sýnishomum úr
næstu myndum og við tók kvik-
mynd þar sem allt sameinaðist,
vond saga, luraleg leikstjórn og
verulega vondur leikur.
Heather Graham leikur amer-
isku stúlkuna Alice sem vinnur í
London við að hanna tölvuforrit
eða eitthvað - það var nú aldrei
verulega mikilvægt hvað hún
gerði í vinnunni. Hún býr með
huggulegum strák sem drýgir þá
höfuðsynd að vera ekki spennandi
og þvi gerist það að þegar hún ýtir
á hnappinn á gangbrautarljósi
einn daginn snerta fingur hennar
fingur dularfulls, myndarlegs
manns, fjallgönguhetjunnar Ad-
ams, sem horfir á hana brennandi
augnaráði og áður en maður getur
sagt popp og kók eru þau komin
Kllllng Me Softly
Heather Graham leikur konuna sem
getur ekki gleymt manni sem hún
rekst á.
úr öllum fotunum að stunda villt
kynlíf með glæsibrag - og halda
því áfram með reglulegu millibili
alla myndina, sennilega í hvert
skipti sem handritshöfundur og
leikstjóri voru komin í klemmu
með söguna.
Alice yfirgefur sinn óspennandi
kærasta og fer að búa með Adam.
En hver er Adam? Af hveiju er
systir hans svona káfandi áköf og
skrýtin? Af hverju er einn skápur-
inn heima hjá honum alltaf læst-
ur? Og hvemig dó eiginlega fyrr-
verandi kærastan hans? Áður en
nokkurri af þessum spumingum
er svarað er okkur orðið nákvæm-
lega sama um svörin því persón-
umar eru svo frámunalega
heimskulegar að því fyrr sem þær
byrja að útrýma hver annarri því
betra.
Heather Graham er verulega
vond í aðalhlutverkinu en afskap-
lega lekker án klæða - sem hún er
reyndar iðulega. Mér er eiginlega
fyrirmunað að skilja hvers vegna
hún heldur áfram að fá hlutverk
út um allt, ég hef ekki enn séð
hana leika vitundarögn betur en
sæmilega og þótt hún sé bæði and-
litsfríð og með bombulegan vöxt
þá era þær það svo til allar. Jos-
eph Fiennes er sömuleiðis af-
spymulélegúr í hlutverki fjall-
göngukappans færa, Adams - sem
reyndar fer ekki upp á annað en
Alice í myndinni. Það er eins og
mig minni að hann hafi gert ágæt-
lega á móti Cate Blanchett i stór-
myndinni Elisabeth en leikstjór-
inn Chen Kaige hefur haft lag á að
fá það versta út úr aðalleikuran-
um sínum um leið og hann gerir
mynd sem er fyrirsjáanlegri en
málverk sem er málað eftir núm-
erum.
Kllling me softly. Leikstjóri: Chen Kaige
Handrit: Kara Lindstrom eftir skáldsögu
Nicci French. Aðalleikarar: Heather Gra-
ham, Joseph Fiennes, Natascha McElho-
ne og Ulrich Thomsen
Vínsæltistu kvikmyndimar
Spennumyndir
Ný mynd skaust á toppinn í Banda-
ríkjunum um helgina. Það er myndin
The Ring sem skaut Hannibal Lecter-
myndinni Red Dragon niður í þriðja
sætið. The Ring er hryllingsmynd af
bestu gerð sem fjallar um undarlegt
myndband sem hefur þann leiða fylgi-
kvilla að hver sá sem horfír á mynd-
bandið deyr innan viku. Það er svo
ungur blaðamaður, leikinn af Naomi
Watts, sem ákveður að rannsaka
myndbandið og fer þangað sem talið er
að uppruni myndbandsins liggi. The
Ring er endurgerð af japanskri hroll-
vekju sem er ein af vinsælustu mynd-
um sem gerðar hafa veriö í Japan fyrr
og síðar. Það er frekar óþekkt starfslið
sem kemur að myndinni en leikstjór-
inn, Gore Verbinski, gerði síðast
myndina The Mexican með Juliu Ro-
berts og Brad Pitt sem fékk mjög mis-
jafna dóma. Naomi Watts leikur aðal-
hlutverkið í myndinni en hún á að
baki fjölmargar kvikmyndir, þó aðal-
lega sjónvarpsmyndir.
Spennumyndir eru vinsælar vestan-
vinsælar vestra
The Ring
Fjallar um unga blaöakonu sem
rannsakar undarlegt myndband.
hafs og kemur myndin Abandon einnig
ný inn á listann. Hún fjallar um Cat-
harine Burke (Katie Holmes) sem er
undir mikilli pressu í náminu. Hún er
í prófum, þarf að klára lokaritgerð og
verja hana. Með þetta allt hangandi
yfir sér kemur tO skjalanna lögreglu-
maður sem er að rannsaka hvarf fyrr-
um kærasta hennar en sá hefur verið
týndur í tvö ár. Minningin um týnda
kærastann heltekur hana og ásækir á
versta tíma. Stephen Gaghan leikstýrir
myndinni en hann hefur m.a. gert
myndirnar Rules of Engagement og
Traffic. -HÞG
ALLAR UPPHÆÐIR 1 ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA.
SÆTl FYRRI VIKA TTT1LL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O - The Rlng 15.015 15.015 1981
o 2 Sweet Home Alabama 9.559 98.472 3282
o 1 Red Dragon 8.763 77.810 3307
o 5 My Big Fat Greek Wedding 7.145 169.292 2014
o 3 Brown Sugar 5.215 18.502 1378
o 4 The Transporter 5.083 17.191 2610
o - Abandon 5.064 5.064 2341
o 6 The Tuxedo 4.122 43.149 2424
o 11 Jonah: A Veggle Tales Movie 3.906 16.025 1571
© 8 Tuck Everlasting 3.758 10.579 1448
0 7 White Oleander 3.146 10.748 1510
0 - Formula 51 2.817 2.817 1857
© 9 Knockaround Guys 2.455 9.411 1806
© 10 Barbershop 2.407 68.992 1540
© 23 Punch-Drunk Love 1.480 2.045 78
© 12 The Rules of Attraction 1.188 4.815 1430
© 13 The Banger Sister 749 28.720 841
© 14 Moonlight Mile 746 5.150 408
© 31 Bowling for Columbine 728 1.052 46
© 19 Spirited Away 519 3.424 151
Vínsælustu myndböndín
Vængjaða veran
flýgur hátt á listann
Hástökkvari vikunnar er myndin
The Mothman Prophecies sem er
spennumynd um blaðamanninn John
Klein (Richard Gere) og konu hans,
Debra Messing, en þau finna húsið
sem þau hefur alltaf langað í. Þegar
þau eru á leið frá nýja heimilinu keyr-
ir Debra á vængjaða veru og keyrir
utan í kant. Hún rekur höfuðið harka-
lega í og deyr á spítala stuttu seinna.
John finnur nokkrar teikningar sem
kona hans hafði rissað á dánarbeðin-
um. Myndimar eru af vængjaðri veru
sem samt líkist ekki engli á nokkum
hátt.
Tveimur árum seinna er John
staddur, án þess þó að vita hvernig
hann komst á staðinn, í smábæ í Vest-
ur-Virginíu. Þar er stað-
arlöggan að reyna að
leysa úr málum þar
sem í öllum tilfellum
sams konar vængjuð
vera hefur sést viðs
vegar um bæinn. John
telur að hann geti
fundið nýjar vísbend-
ingar um lát konu
sinnar. Myndin fer
beint í annað sætið.
Harts War kemur ný
inn á lista en hún fjall-
ar um laganema, leik-
inn af Bruce Willis,
sem er foringi í banda-
ríska hemum i seinni
heimsstyrföldinni.
Hann fær það verkefni
að verja svartan fanga
sem er ranglega ákærð-
ur fyrir manndráp. All
about the Benjamins er
einnig ný á lista en
hún er með rapparan-
um Ice Cube í hlut-
Hástökkvarl vlkunnar er myndln The
Mothman Prophecles.
verki manns sem eltir eftirlýsta flótta-
menn og verður vitni að demanta-
svindli. Hann og sá eftirlýsti ákveða að
leggja til hliðar ágreiningsmál sín og
vinna saman að lausn málsins. Á
toppnum er enn þá grín/spennumynd-
in Showtime með Eddie Murphy og
Robert De Niro í aðalhlutverkum.
-HÞG
FYRRI VIKUR
SÆTI VIKA TTTILL (DREIFINGARAÐILI) ÁUSTA
O 1 Showtime (sam myndböndj 2
o ný The Mothman Propecies <sam myndbönd) 1 i
o 2 Panic Room (skífan) 4
o 3 My Blg Fat Greek Wedding (myndform) 6
© 4 What's The Worst Thing... 3 :
o ný Hart's War (skífanj -
o 6 Don’t Say a Word (skífan) 1
o 5 K-Pax (sam myndbönd) 8
o ný Ali About the Benjamins (myndformj 4
© 7 Kate & Leopold iskífan) 1
0 9 Collateral Damage (sam myndbönd) 5 !
8 We Were Soidiers (skífanj 6
© 10 Dragonfly (myndform) 6
© 12 Rollerball (skífanj 2
© 15 The 51st State (myndform) 2
© 16 A Beautlful Mind isam myndbönd) 9 J
0 11 The Time Machine (Sam myndböndj 8
© 17 Mulholland Drive (bergvík) 5
© 18 Mávahlátur (sam myndböndj 3
13 D-TOX (SAM MYNDBÖND) 3