Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2002, Blaðsíða 8
24 MÁNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2002 Sport DV Njarövík-Snæfell 3-0, 3-5, 13-18, 24-20, (20-24). 28-28, 35-28, 35-35, 43-37, (45-^40). 51-41, 50-52, 63-55, 70-58, (72-59). 77-61, 77-67, 87-67, 93-71, 93-78. Stig Njarðvikur: G.J. Hunter 34, Ragnar Ragnarsson 22, Páll Kristinsson 10, Friörik Stefánsson 9, Teitur Örlygsson 7, Sigurður Einarsson 6, Halldór Karlsson 5. Stig Snœfells: Hlynur Bæringsson 24, Clifton Bush 18, Georgi Bujukliev 9, Lýöur Vignisson 7, Sigurbjörn Þórðarson 6, Helgi Guömundsson 6, Jón Ó. Jónsson 6, Daði Sigurþórsson 2. Dómarar (1-10): Rögn- valdur Hreiðars- son og Björgvin Rúnarsson (7) Gœói leiks (1-10): 7. Áhorfendur. 220. Maöur leiksins: G.J. Hunter, Njarövík. Fráköst: Njarðvík 34 (12 í sókn, 22 í vörn, Hunter 12), Snæfell 35 (12 í sókn, 23 í vörn, Bush 11, Hlynur 10) Stoðsendingar: Njarðvík 19 (Teitur 6), Snæfell 10 (Helgi 3). Stolnir boltar: Njarðvík 12 (Hunter 4), Snæfell 9 (Hlynur 3, Bush 3). Tapaðir boltar: Njarðvík 8, Snæfell 13. Varin skot: Njarðvík 8 (Friörik 4), Snæfell 2 (Hlynur). 3ja stiga: Njarðvík 33/10 (17%), Snæfell 25/7 (19%). Víti: Njarðvík 19/17 , Snæfell 31/21. Kefiavík-Grindavík 92-97 5-0, 7-8, 20-11, 28-17, (28-20). 23-26, 35-31, 35-39, 38-42, (41-41). 47-50, 59-50, 61-59, (72-65). 78-65, 73-77, 80-34, 84-34, 84-90, 98-97, 92-97. Stig Keflavikur: Damon Johnson 21, Jón Hafsteinsson 16, Gunnar Einarsson 15, Falur Harðarson 14, Guöjón Skúlason 12, Kevin Grandberg 9, Magnús Gunnarsson 5. Stig Grindavikur: Darrell Lewis 37, Páll Axel Vilbergsson 22, Helgi Jónas Guöfmnsson 16, Guölaugur Eyjólfsson 11, Guömundur Bragason 8, Pétur Guðmundsson 2. Dómarar (1-10): Leifur S. Garðarsson og Einar Skarphéð- insson (8) Gceöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 350. Maöur leiksins Páll Axel Vilbergsson, Grindavík Fráköst: Keflavík 36 (13 í sókn, 23 í vörn, Jón H. 8), Grindavík 40 (10 í sókn, 30 í vörn, Lewis, 10, Guðmundur 10.) Stoðsendingar: Keflavík 21 (Hjörtur 4, Magnús 4, Damon 4), Grindavík 17 (Lewis 6). Stolnir boltar: Keflavík 12 (Damon 4), Grindavík 9 (Helgi Jónas 3). Tapaðir boltar: Keflavík 14, Grindavík 19. Varin skot: Keflavík 4 (Damon 2), Grindavík 2(Lewis2). 3ja stiga: Keflavík 30/12, Grindavík 25/10. Víti: Keflavík 16/8 (50%), Grindavík 27/23 (85,2%). Við eigum helling inni - sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, eftir sigurinn á Snæfelli Njarðvíkingar sigruðu Snæfell í Ljónagryfjunni á föstudagskvöld 93- 78. Þetta var fyrsti leikur G.J. Hunter með UMFN og ljóst að kappinn kem- ur til með að styrkja Njarðvíkinga í baráttunni sem fram undan er. Gestimir byrjuðu ágætlega með þá Hlyn Bæringsson og Clifton Bush í fararbroddi og leiddu 13-18 um miðj- an fyrsta leikhluta. En Ragnar Ragn- arsson og Hunter voru atkvæðamikl- ir hjá UMFN, sem snéru leiknum fljótlega aftur sér í hag og heima- menn fóru með 45-40 forystu inn í leikhléið. Hunter var allt í öllu Hunter var svo allt í öllu í upphafi síðari hálfleiks og eftir 5 mínútur var hann búinn að gera 12 stig, eða jafn- mörg og hann hafði gert í fyrri hálf- leiknum og 13 stiga forysta Njarðvík- inga þegar fjórði og síðasti leikhlut- inn fór af stað. í stöðunni 77-67 gera Njarðvíkingar 10 stig í röð og gera þar með út um leikinn og Friðrik Ragnarsson gat leyft sér að gefa þeim Jóhanni Árna Ólafssyni og Kristjáni Rúnari Sigurðssyni eldskímina í efstu deild á lokamínútunum, en þeir eru báðir 16 ára gamlir. G.J. Hunter komst mjög vel frá sínum fyrsta leik með UMFN þó svo að hittnin heföi getað verið betri. Hann er greinilega góður alhliðaleik- maður og Njarðvíkingar endur- heimta sjáifstraustið með komu hans. Ragnar Ragnarsson lék einnig mjög vel og mætti hreinlega skjóta meira, enda með frábæra nýtingu. Hjá gestunum var Hlynur Bær- ingsson duglegur og Clifton Bush átti ágæta spretti. „Ég er mun sáttari við spila- mennsku okkar í kvöld heldur en undanfarið. Við eigum þó helling inni og útlendingurinn á eftir að komast betur inn í hlutina hjá okk- ur,“ sagði Friðrik Ragnarsson, þjálf- ari Njarðvíkinga, eftir leik. -EÁJ Grindvíkingar unnu góðan sigur i Keflavík: Komum alltaf Darrel sterkur Darrel Lewis skoraöi 37 stig, tók 10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í sigri Grindavíkurliðsins í Keflavík á föstudagskvöldið. Lewis hefur Jeikið vel fyrir Grindavík í vetur og er með 27,8 stig að meðaltali. DV-mynd Sigurður Jökull Grindvíkingar unnu glæsilegan sigur, 92-97, á nágrönnum sínum í Keflavík í viðureign liðanna í úrvals- deildinni í körfuknattleik á föstu- dagskvöldið var. Með sigrinum komust Grindvikingar á topp deildar- innar og virðast til alls vísir í deild- inni í vetur með sama áframhaldi. Heimamenn í Keflavík voru beittari í byrjun og náðu ágætu forskoti í fyrsta leikfjórðungi. í næsta leik- hluta vöknuðu Grindvíkingar heldur betur til lífsins, náðu að jafna og komast yfir en i hálfleik var staðan jöfn, 41-41. Góöur endir hjá Grindavík Eftir leikhléið var leikurinn í byrj- un í járnum en enn á ný náðu Kefl- víkingar góðum tökum á leiknum og komust 13 stigum yfir. I síðasta leik- hluta hrukku gestirnir svo um mun- aði í gírinn, léku góða vörn og sókn- in var að sama skapi mjög öflug með þá Darrell Lewis og Pál Axel Vil- bergsson í broddi fylkingar. Þeirra þáttur lagði öðru fremur grunninn að sigri Grindvíkinga í leiknum. Damon Johnson og Gunnar Ein- arsson voru beittastir í herbúðmn Keflvíkinga en liðið náði ekki að halda út en ljóst er að mun meira býr í liðinu en það sýndi í þessum leik. Eins og áður sagði voru þeir Páll Axel og Lewis góðir en enn fremur komust þeir Helgi Jónas Guðfinns- son og Guðlaugur Eyjólfsson vel frá leiknum. Héldum Keflavík niðri „Ég er svona á heildina litið bara sáttur með spilamennsku minna manna en auðvitað komu kaflar í leiknum sem ég var ekki ánægður með. Við gerðum okkur grein fyrir því að við yrðum að halda Keflvík- ingum niðri en þeir höföu skorað mikið í sínum leikjum fram að þess- um. Þrátt fyrir að Keflvíkingar næðu stundum góðu forskoti komum við alltaf til baka og það var ég sérlega ánægður með. Ég var ekki allt of bjartsýnn fyrir leikinn en við höfum átt við meiðsli að stríða en þetta small sem betur fer saman í þetta skiptið. Ég sé ekki ástæðu til annars en að vera bjartsýnn á framhaldið en mér sýnist samt breiddin í deildinni vera góð í vetur. Öll liðin virðast heppin með sína útlendinga og það bætir upp brotthvarf sterkra leik- manna úr deildinni eftir tímabOið á sl. vori,“ sagði Friðrik Ingi Rúnars- son, þjálfari Grindvíkinga, í samtali viö DV. við til ba - sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvikin Sex stiga forysta Keflavíkur - eftir 85-53 sigur liðsins á ÍS og tap KR á heimavelli fyrir Grindavík Keflavík náði sex stiga forskoti á toppi 1. deildar kvenna í körfubolta með 85-53 sigri á Stúdínum sem máttu fyrir bragðið sætta sig við sjö- unda tapiö í röð. IS-liðið byrjaði þó leikinn af krafti og haföi yfir 11-14 þegar 2:53 voru eftir af fyrsta leik- hluta og Anna María Sveinsdóttir, þjálfari Keflavíkur, tók þá leikhlé. Anna María brýndi leik sinna stelpna sem skoruðu tíu síðustu stig leikhlut- ans og höföu síðan góð tök á leiknum það sem eftir'var. Keflavík leiddi 21-14 eftir fyrsta leikhluta og haföi 36-26 yfir í hálfleik. Marin Rós Karlsdóttir átti bestan leik í liði Keflavíkur, var með 18 stig og 6 stoðsendingar og hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sinum. Auk Mar- inar voru þær Rannveig Þorvaldsdótt- ir og Kristín Blöndal að gera góða hluti, Erla Þorsteinsdóttir byrjaði leikinn af krafti og Bima Valgarðs- dóttir kom sterk inn á lokakaflanum. Hjá ÍS var Þórunn Bjamadóttir að spila ágætlega en fyrir utan fyrstu sjö mínútumar náðu Stúdínur sér ekki á strik. - Stig Keflavikur: Marín Rós Karlsdóttir 18 (6 stoðs., 3 stolnir), Bima Vaigarösdóttir 16 (6 fráköst), Kristín Blöndal 12 (4 stoðs.), Erla Þorsteinsdóttir 11 (7 fráköst), Svava Ósk Stefánsdóttir 9, Sonia Ortega 8 (9 frá- köst, 5 stoðs., 4 stolnir), Rannveig Rand- versdóttir 7 (5 stoðs.), Lára Gunnarsdóttir 2, Andrea Færseth 1, Vala Rún Bjömsdótt- ir 1. Stig ÍS: Þórunn Bjarnadóttir 13 (7 fráköst), Cecilia Larsson 8 (4 stolnir, 3 stoðs.), Jófríð- ur Halldórsdóttir 8 (5 fráköst), Lára Rún- arsdóttir 5, Kristín ðladóttir 5, Rós Kjart- ansdóttir 4, Steinunn Dúa Jónsdóttir 4, Guðrún Baldursdóttir 3, Svandís Sigurðar- dóttir 3 (9 fráköst). Grindavík vann KR öðru sinni Grindavík gerði sér lítið fyrir og vann íslands- og bikarmeistara KR öðru sinni í vetur en þessi lið mætt- ust í DHL-höllinni á laugardag. Grindavík sigraði 55-66 eftir að hafa leitt allan leikinn. Munurinn var 17 stig i hálfleik, 24-41, en KR vann þriðja leikhluta 17-4 og minnkaði þar með muninn i fjögur stig, 41-45. Lengra komast KR ekki og Sólveig Gunnlaugsdóttir sá til þess að halda KR í hæfilegri fjarlægð í lokin með tveimur stómm 3ja stiga körfum. Ósvaldur Knudsen sagði að sitt lið heföi ekki mætt tilbúið til leiks. „Þessi leikur þróaðist eins og síðasti leikur okkar á móti Njarðvík þar sem við lendum undir. Grindavík er með betra lið en Njarðvík og vorum við búin að grafa okkur of djúpa holu til að redda hlutunum í seinni hálfleik eins við gerðum á móti Njarðvík. Við hreinlega töpuðum þessum leik í fyrri hálfleik. Samt sem áöur var alls ekk- ert vanmat í gangi. Leikur okkar er of sveiflukenndur og verðum við að laga það. Við leik- um mjög vel á köflum en síðan dettur þetta niður hjá okkur í algjöra meðalmennsku," sagði Ósvaldur. Hjá Grindavík var Denise Shelton grimm í fráköstunum og reif niður 27 talsins. Hún hitti þó illa í sókninni. Sólveig steig upp í lokin og Ema Rún Magnúsdóttir spilaði gríðarlega vel í öðmm leikhluta. Hjá KR vom þær Hanna Kjartansdóttir og Helga Þorvaldsdóttir bestar. Stig KR: Helga I>orvaldsdóttir 15 (7 fráköst), flanna Kjartansdóttir 13 (12 fráköst), Hildur Sigurðardóttir 13 (8 fráköst, 3 stolnir), Mar- ía Káradóttir 5, Georgia Christiansen 5, Guðrún Sigurðardóttir 4. Stig Grindavlkur: Denise Shelton 22 (27 fráköst, 6 tapaðir, 6 stolnir, 7 stoðs.), Sólveig Gunnlaugsdóttir 13, Erna Rún Magnúsdótt- ir 11, Sigriöur Anna Ólafsdóttir 10, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 4, Sandra Guðlaugs- dóttir 3, María Anna Guðmundsdóttir 2. 1.DEILD KVENNA Staðan: Keflavík 7 7 0 544-404 14 Grindavík 7 4 3 486488 8 KR 7 4 3 444-422 8 Haukar 6 3 3 326-363 6 Njarðvik 6 2 4 372-395 4 Is 7 0 7 336436 0 Næstu leikir: Haukar-KR ............Frm. 21. nóv. Keflavík-Njarðvík .... fim. 21. nóv. ÍS-Grindavík.......mán. 25. nóv Njarðvík-Haukar........miö. 27. nóv Njarðvík-Grindavlk . . . Miö. 4. des. Haukar-Keflavík.......lau. 7. des. KR-ÍS ................lau. 7. des. Marín Rós Karlsdóttir úr Keflavík (til hægri) hefur hitt frábærlega fyrir utan 3ja stiga iínuna í vetur. Marín hefur skorað 2,1 þrist í leik og nýtt 51,7% skotanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.